Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Síða 49
FIMMTUJÐAGÖK 23v DESEMBBR 1993 Hæstiréttur hnekkir tveimur sýknudómum Hæstiréttur hefur hnekkt tveimur sýknudómum héraösdómara og sak- fellt tvo ökumenn í ákæru um ölvun við akstar. í hvorugu máhnu kom lögregla að viðkomandi ökumönnum undir stýri, það er þeir voru ekki stöðvaðir í akstri. Þeir héldu því báð- ir fram að þeir hefðu neytt áfengis eftir að hafa ekið bifreiðum síninn. f öðru málinu var um að ræða mann sem velti bíl á mótum Laugar- vatnsvegar og Biskupstungnabraut- ar í mars 1992. Ökumaðurinn fannst í nærhggjandi sumarbústað, þá veru- lega ölvaður, og mældist alkóhól- magn í blóði hans 2,37 prómill. Hæstiréttur byggði niðurstöðu sína á framburðum tveggja vitna sem báru að ökumaðurinn hefði borið ýmis merki ölvunar er þeir komu að bifreið hans. Auk þess var stuðst við blóð og þvagsýnisrannsókn sem þótti hnekkja framburöi ákærða um að hann hefði drukkið áfengi eftir að hílinn valt út af vegi. Þetta og enda- lok ökuferðarinnar var tahð sanna sekt ökumannsins. Hann var dæmd- ur til að greiða 40 þúsund króna sekt í ríkissjóð og er sviptur ökiu'éttind- um í 12 mánuði. í síðara málinu var um að ræða ökumann sem lögreglan í Húnavatns- sýslu kom að í kyrrstæðum bíl í gangi við Melstað í Miðfirði í ágúst 1992. Lögreglumenn töldu að þeir hefðu séð ökuljós bílsins í um tíu mínútm- áður en þeir komu að honum og bílhnn hefði af ljósunum að dæma greinhega ekið yfir ójafiit landslag. Ökumaður- inn og félagi hans sögðust hafa verið í bílnum í tvo tíma en breyttu um og sögðu um 20 mínútur þegar þeim var greint frá því að tilkynning hefði komið um annað varðandi ferðir þeirra. Ökumaðurinn kvaðst hafa neytt áfengis eftir að hann stöðvaði bílinn. Alkóhólinnihald í blóði reynd- ist vera 0,90 prómih. Hæstiréttur byggöi niðurstöðu sína á því að rannsókn leiddi í ljós að áfengisneysla ökumannsins hefði staðið yfir í a.m.k. 1-2 klukkustundir áður en prufur úr þvagj og blóði voru teknar. Einnig var tekið mið af fram- burði lögreglumannanna og dyra- varðar á veitingahúsi á Hvamms- tanga sem sá ökumanninn skömmu áður og taldi hann undir áhrifum. Með dómi Hæstaréttar er ökumaður- inn sviptur ökuréttindum í 3 mánuði og er gert að greiða 25 þúsund króna sekt til ríkissjóðs. -Ótt Allt ónýtt eftir húsbrunann á Húsavlk: Æðri máttarvöld komu við sögu segir Oðinn Magnússon „Eg veit eiginlega ekki hvað skal segja. Maður er ekki enn búinn að átta sig á þessu. Það snýst aht í hausnum á manni ennþá," segjr Óð- inn Magnússon. Óðinn bjó í húsi númer 38 við Garð- arsbraut á Húsavik en það hús brann í fyrradag. „Það fór í gang reykskynj- ari fyrir ofan svefnherbergisdymar. Við sofum á efri hæð hússins og bömin í herberginu hjá okkur. Ég hélt í fyrstu að þetta væri útvarps- verkjaraklukkan en svo fann ég brunalykt og skaust fram úr rúminu og leit fram og þá var allt á kafi í svörtum, þykkum reyk. Við rifum bara bömin og rukum út berfætt á náttfótunum 1 gegnum reykinn,“ seg- ir Óðinn. Hann segir að þau hafi getað komið sængunum utan um bömin og hlaupið yfir í næsta hús og þar hafi hann skihð bömin og konu sína, Sóleyju Hafsteinsdóttur, eftir. Þetta hafi ekki tekið meira en mínútu. Hann hafi farið aftur í húsið og reynt að ná í garðslöngu sem var þama en séð að eldhúsið hafi verið orðið al- elda. Þegar hann hafi farið út hafi hann einungjs séð eld á milh loft- klæðningar og veggklæðningar þannig að eldurinn hafi breiðst ótrú- lega hratt út og hann hafi ekki ráðið við neitt. Slökkviliðið kom fljótlega á staðinn og fylgdist Óðinn með um tíma og var berfættur ahan tímann. Enginn slasaðist hins vegar nema hvað Óðinn fann fyrir óþægindum í hálsi og var með verk í fótumnn, sennilega vegna kuldans um morg- uninn en nokkurra gráða frost var á Húsavík. Óðinn segist hafa tekið rafhlöðum- ar úr reykskynjaranum í sumar því hann hafi alltaf farið í gang þegar þau hafi verið að djúpsteikja. „Ég setti þær í um daginn af einhverri rælni þannig að ég veit ekki hvemig farið hefði ef ég hefði ekki gert það. Ég held að þama hafi æðri máttar- völd komið við sögu,“ segir Óðinn. Óðinn er jámiðnaðarmaður og hafði unnið að endurbótmn á húsinu frá því hann og Sóley, sem er bams- hafandi, keyptu það fyrir nokkm. Hann segir að þau hafi einungis ver- iö með skyldutryggingu á húsinu. Hins vegar hadfi innbúið verið ótryggt. íbúar á Húsavík vom fljótir að bregðast við og stofnaði starfsfólk Landsbankans á Húsavík söfnunar- reikning númer 5567. Helga Kristins- dóttir, starfsmaður þar, segir við- brögð allra landsmanna hafa verið frábær og hafi söfnunin gengið fram- ar bj örtustu vonum. -pp Slökkviliðsmenn berjast við eldinn á Húsavík. DV-mynd JS Húsavík. Þórshöfin: Næg at- vinnaísfld, loðnuog ■ mm» * ■ Gylfi Kristjánason, DV, Akureyri: Atvinnuástandið á Þórshöfn hefur veriö mjög gott á árinu, ekki síst vegna mikilla umsvifa í Hraöfrystistöðínni sem er stærsti atvinnuveitandi staðarins. Þang- að hafa m.a. borist á land um 35 þúsund tonn af loönu, um 5 þús- und tonn af síld auk þess sem bolfiskur hefur verið umiinn allt árið, m.a. talsvert magn frá tveimm* færeyskum skipum sem veitl hafa i Smugunni. Jóhann A. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihússins, segir að færeysku skipin tvö, Sandara og Atlantic Margrét, hafi landað 600-800 tonnum á Þórs- höfn í haust. Um helmingur af- lans var unninn á Þórshöfn en hinn hlutinn var keyrður til Húsavíkur, Raufarhafnar og Vopnafjarðar og unninn þar. Sá hluti aflaþessara skipa, sem unn- inn vai' á Þórshöfn, er um 20% þess bolfisks sero unninn er á Þórshöfn á árinu að sögn Jó- hanns. Þórshafnarbúar hafa fengiö 35 þúsund tonn af loðnu en reyndar hefur sárahtiö borist af henni síð- asta mánuöinn. Hins vegar hefur borist talsvert af sild að undan- fómu eða um 5 þusund tonn. Magnið af síidinni hefur farið í bræðslu en stærsta síldin hefur verið heilfryst tii manneldis og beitu og miliisíldin flökuð og roð- dregin og lögð í edik, ýmist í flök- um eöa í bitum. Stakfellið: Þúsundtonn eftirþrjár veiðiferðir í Smuguna Stakfellið kom í fyrradag til Þórshafnar úr þriðju veiðiferð sinni í Smuguna með 290 tonn af þorski. Verðmæti. aflans er 38,1 mifljón. Heildarþorskaflínn í veiðiferð- unum þremur er rúmlega þúsund tonn að verðmæti 148,3 milljónir. Fyrsta veiðiferðin hófst 16. ágúst og voru úthaldsdagarnir samtals 115. -IBS Ekkl hehir enn tekist að hafa hendur í hári þeirra setn rændu peningum og gjafakorti frá Mæðrastyrksnefnd af Huldu Sassoon á Hverfisgötu á sunnu- dag. Góðvfljaður maður kom á ritstjóm DV og bað um að 5 þús- und krónum yrðl komlð til Huldu. Hann sagðlst hafa nóg fyrir síg og sina og hér má sjá blaöa- mann DV afhenta Huldu pening- ana. pp/DV-mynd GVA Fréttir Þórarinn Ævarsson verslunar- stjóri Domino’s Pizza hætti viö að ráða Sigurbjörn Búa Bald- vinsson frá Akureyri t vinnu i jólafríinu vegna þess að Sigur- bjöm Búi er með sitt hár eins og sjá má. DV-mynd Svelnn : „Vinnutíminn var oröinn klár þannig að það var búið að ráða migmunnlega. Þegarég kom suð- ; ur hitti ég ráðningarstjórann en þegar hann sá mig sagðist haim ekki hafa vitað að ég væri með sitt hár. Ég: var með hárið í tagh en hann sagði að þaö myndi ekki duga. Efcg ætlaði að vinna þarna yrði ég að láta klippa mig en ég vildi ekki fórna hárinu fyrir vinnu í tíu daga eða svo,“ segir Sigurbjörn Búi Baldvinsson, tæp- lega tvítugur Akureyringur sem kom til Reykjavíkur til að vinna hjá Domino’s Pizza í jólafríinu. Erum með stífar reglur „Við erum með stífar reglur um útlit og snyrtiraennsku starfs- fólksins sem gilda á öfium Doro- ino’s stööum. Hár a karlmönnum má ná niðuraö kraga á ehikenni- ; streyjunni, ekki er leytilegt aö vera með skegg og bartar. mega bara ná niður að oyrum. Hár á stúlkum vorður aö vera bundiö í tagl undir húfunni. Þessi strákur var að sækja um vinnu í nokkra daga og ég benti honum á að ég myndi ekki fórna hárinu þvi að haim var með mikið og sítt og fallegt hár," segir Þórarinn Æv- arsson, verslunarstjóri hjá Dom- ino’s. „Mcr fyndist það hæpin túlkun að þetta væri brot á jafnréttislög- um en Jafnréttisráð er hugsan- lega tilbúið að skoða þetta mál. Þetta er óvenjulegt af hálfu at- vmnurekajidans ef maðurinn er tilbúinn að taka hárið í tagl ,“ segir Elsa S. Þorkelsdóttir, fram- kvæmdasfjóri Jafnréttisráðs. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.