Dagur - 19.12.1995, Page 28
28 B - DAGUR - Þriðjudagur 19. desember 1995
„Tónlistaráhugi íReykjadal er mikill og almennur, sem
byggist aftur á því að menningarlíf hér um slóðir stend-
ur á afar traustum grunni. Aberandi þykir mér og eftir-
tektarvert hve margir stunda söngnám við tónlistarskól-
ann hér á Laugum, eða um tuttugu nemendur. Skólinn
hér er reyndar ekkert einsdazmi, miklu almennara er
orðið en var að fólk laeri söng. Söngur er í tísku í dag og
auðvitað eru sjónvarp>sstöðvarnar áhrifavaldar íþessu,
sem og ýmislegt annað, og er það vel," segir Björn Þór-
arinsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Laugum í
Reykjadal, t samtali við Dag.
Hljómsveitin Kaktus fyrir margt löngu. Ólafur Þórarinsson er lengst til vinstri, þá Árni Arinbjarnarson, þá hjónin
Sigríður Birna og Björn og lengst tii vinstri er Magnús Einarsson, sem margir þekkja sem útvarpsmann á Rás 2.
Tónlistaráhugi hér er
mikill og almennur"
- segirBjörn Þórarinsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Laugum í Reykjadal
Síðastliðin fimm ár hefur Bjöm
Þórarinsson verið skólastjóri Tón-
listarskólans á Laugum í Reykja-
dal. Hann á að baki alllangan feril
sem tónlistarkennari, fyrst við
Bamaskólann á Selfossi frá 1977
til 1980 og frá því ári fram til
1990 við Snælandsskóla í Kópa-
vogi.
„Það var síðari hluta vetrar
1990 sem ég þurfti að fara í upp-
skurð á baki og lá þá tvo mánuði
rúmfastur. Það var á meðan ég
bylti mér í rúminu sem ég fór að
velta fyrir mér hvort ekki væri rétt
að fara máski út á land til starfa.
Fjölskyldan var til í þetta og við
fórum að fletta blöðunum og fljót-
lega datt ég niður á Tónlistarskól-
ann á Laugum. Hringdi hingað og
var strax vel tekið af ráðandi
mönnum. Leiddi nú hvað af öðru
og frá ráðningu minni var gengið
um vorið. Hingað flutti fjölskyld-
an um sumarið og þetta er sjötti
vetur okkar hér. Jú, okkur líkar
virkilega vel. Því er þó ekki að
leyna að okkur þykir við vera svo-
lítið fjarri okkar fólki, en við hjón-
in eigum flest okkar fólk á Sel-
fossi og þar í kring. En það er
óþarfi að hugsa svona; enda emm
við fljót að skjótast suður ef vill.
En annars er gott að vera héma á
Laugum," segir Bjöm.
Hljómsveitir og
hippamenning
Bjöm Þórarinsson ólst upp á bæn-
um Glóru, sem stendur skammt
frá Selfossi. Um uppvöxtinn þar
segir fátt, annað en að hugurinn
beindist fljótt til þess sem verða
vildi. Strax átti tónlistinn hug hans
allan og fljótlega var Bjöm, sem
títtnefndur er Bassi af þeim er best
þekkja hann, kominn í hljómsveit-
ir. „Já, ég byrjaði árið 1964 í svo-
nefndum Carol kvintett, sem Giss-
ur Geirsson hljómsveitajarl á Sel-
fossi hélt úti. Einhver ár var ég í
þeirri sveit og fleimm en árið
1968 byrjaði ég í Mánum sem
Hljómsveitin Mánar naut mikilla vinsælda á hippaárunum svonefndu í
kringum 1970. Björn Þórarinsson er lengst til vinstri á þessari mynd, en
með honum eru þeir Smári Kristjánsson, Ragnar Sigurjónsson og Ólafur,
bróðir Biörns. er lenpst til hneori
STÍLL HF - ÓSEYRI 2 ■ 600 AKUREYRI
SÍMI 462 5757 ■ FAX 462 5112
Við erum ótrúlega merkílegir!
Við Tónlistarskólann á Laugum er starfræktur barnakór sem Björn stjórnar. Hér syngur kórinn fyrir utan skóla-
húsið í vorblíðunni eitt árið.