Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Page 4
4 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 Fréttir dv Viðvarandi hallarekstur ríkissjóðs undanfarin ár: Skuldasöf nunin hef- ur kaffært tekjurnar - hlutfall skulda ríkissjóðs af tekjum stefnir 1127,2 prósent Viðvarandi hallarekstur ríkissjóðs hefur kallað á auknar lántökur og nú er svo komið að tekjurnar duga ekki fyrir skuldum. Samkvæmt fjár- lagafrumvarpi Friðriks Sophussonar er gert ráð fyrir að hreinar skuldir ríkissjóös verði rúmir 139 milljarðar í árslok 1995. Ætlaðar tekjur á árinu eru hins vegar einungis 109,4 millj- arðar. Hlutfall skulda af tekjum verður samkvæmt því 127,2 prósent. í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að ríkissjóður veröi rekinn með 6,5 milljarða halla á næsta ári. Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs er áætluð 8,7 milljarðar sem samsvarar tveimur prósentum af landsframleiðslu. í lok ársins 1995 má gera ráð fyrir að bein- ar skuldir ríkissjóðs verði orðnar 139,1 mUljarður sem samsvarar tæp- lega þriðjungi landsframleiðslunnar. Frá árinu 1991, þegar ríkisstjóm Davíðs Oddssonar tók við völdum, hcifa hreinar skuldir ríkissjóðs auk- ist úr 64,3 milljörðum í 131,6 millj- arða í ár. Sé tekiö mið af fjárlaga- frumvarpinu fyrir næsta ár hafa skuldir ríkissjóðs aukist um 74,9 milljarða undir verkstjórn Friðriks Sophussonar í fjármálaráðuneytinu. Halli ríkissjóðs á kjörtímabilinu nemur nú samtals um 40,2 milljörð- um. Á sama tíma jukust erlendar skuldir þjóðarbúsins um 67,8 millj- arða og afborgunarbyrðin þyngdist verulega. Erlend langtímalán eru nú komin upp fyrir 60 prósent af lands- framleiðslu og eru rétt undir alþjóð- lega viðurkenndum hættumörkum. í upphafi kjörtímabihsins fóru 22,9 prósent af útflutningstekjum þjóðar- innar í afborganir á erlendum lánum en nú er hlutfalliö 32,7 prósent. í ár stefnir hlutfall skulda af tekj- um ríkissjóðs í aö veröa 123,3 prósent en það er hærra hlutfall en áður hef- ur sést á pappírum í fjármálaráðu- neytinu. Til samanburðar má geta þess að fari tekjur sveitarfélaga upp fyrir helming af tekjum á aö grípa til varúðarráðstafana samkvæmt viðmiðunarreglum sem félagsmála- ráðuneytið hefur sett. Fari skuldirn- ar hins vegar upp fyrir 80 prósent er hins vegar talað um hættuástand sem leitt getur til gjörgæslu. Jóhanna Tryggvadóttir: Hefur auglýst eftir lögmanni „Ég hef orðið að gera þetta sjálf. Ég get ekki látið mál falla á mig án þess aö reyna að verja mig,“ segir Jóhanna Tryggvadóttir sem á fimmtudag var samkvæmt dómi Hæstaréttar talin vanhæf til aö flytja mál sem hún er aðili að fyrir réttinum. Jóhanna segist ítrekað hafa reynt að ráða hæstaréttarlög- mann til að flytja mál sín. Hún hafi meðal annars auglýst í dag- blööum eftir hæstaréttarlög- manni en án árangurs. Hún bend- ir á að samkvæmt sfjórnar- skránni sé henni heimilt að flytja sitt eigiö mál fyrir dómstólunum. „Afþeim sökum tel ég þetta gróft brot á mannréttindum," segir Jóhanna. Kvennaathvarfið: Guðrún Ágústs- dóttir hætti f yrir kosningar „Ég notfærði mér ekki fyrir- framgreiðslu launa og hafði ekki vitneskju um það fyrr en skýrsla endurskoðenda athvarfsins leit dagsins ljós,“ sagði Guðrún Ág- ústsdóttir, forseti borgarstjórnar og fyrrum fræðslu- og kynningar- fulltrúi Kvennaathvarfsins, að- spurð hvort hún væri ein starfs- kvenna athvarfsins sem hefði nýtt sér fyrirframgreiðslu launa í ríflegum mæli. Eins og fram hefur komið í DV voru töluverð brögö að því meöal starfskvenna athvarfsins að fá laun sín greidd út fyrirfram ósk- uðu þær þess. Meðal annars skulduðu þrjár starfskonur at- hvarfsins tæplega hálfa aðra milljón vegna fyrirframgreiddra launa í október síðastliðnum. í DV kom einnig fram að fram- kvæmdanefnd athvarfsins hefði ákveöið að hækka laun sín 19. júlí síðastliðinn þannig að þaö reyndist fjárhagsgetu samtak- anna ofviða. Aðspurð að því hvort hún hefði átt þátt að þess- arrí ákvöröun segir Guörún svo ekki vera. „Ég hætti fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í vor og var þvi hætt fyrír þann tíma sem þessi ákvörðun var tekin.“ Frammistada fjármálaráðherranna - hlutfall hreinna skulda af tekjum ríkissjóös frá 1981 til 1995 - 127,2 o '81 '82 '83 '84 '85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 PV Dagvörukaupmenn óhressir með sölumál ATVR: Fólk er teymt í stórmarkaðina - segir formaður Félags dagvörukaupmanna Um leið og fjármálaráðherra er að undirbúa frumvörp um fijálsan inn- flutning á áfengi senda dagvöru- kaupmenn frá sér ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að dagvöru- verslanir fái heimild til að selja bjór og léttvín. Þórhallur Steingrímsson, formaður Félags dagvörukaup- manna, sagði í samtali við DV aö áskoranir af þessu tagi hefðu veriö samþykktar árlega í mörg ár án þess að stjómvöld hreyfðu legg né lið. „Okkur fmnst eöhlegt, miðað við fyrirkomulagiö í nágrannalöndum okkar, að menn sem eru að selja steikur og annað til veislunnar geti líka haft rauðvíns- eða hvítvínsflösk- ur til að selja. Okkur er alveg eins treystandi eins og-ríkinu til aö selja þetta. Við verum meö vel búnar verslanir með hæfu starfsfólki," sagði Þórhallur. Dagvörukaupmenn eru óánægðir með þróun verslunarhátta ÁTVR að undanfömu þar sem útsölurnar era komnar í stórmarkaöina. „Okkur fmnst að það sér verið aö teyma fólkið í stórmarkaðina. Áfengi er nú einu sinni vara sem fólk vili og það fer á þessa stóra staði. Við viljum sitja viö sama borð og geta þjónaö okkar viöskiptavinum til fulls. Ef einhvern vantar rauðvíns- flösku á hann að geta keypt hana í sinni búð. Auðvitað verða aö gilda áfram strangar reglur um söluna. Okkur er bannað að selja hér ungl- ingum sígarettur innan 16 ára ald- urs. Af hveiju ættum við ekki að geta bannaö unglingum sem hafa ekki aldur til að kaupa bjór?“ sagði Þórhallur. Skref að einkavæðingu ÁTVR Fiármálaráöuneytið er núna á fullu að undirbúa frumvörp um breyttan rekstur Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins, ÁTVR. Breyting- amar era taldar skref í átt að einka- væðingu ÁTVR. í framvörpunum er gert ráð fyrir fijálsum innflutningi á áfengi og aö sala áfengis til vínveit- ingahúsa, fríhafna og sendiráða verði gefm fijáls. Þannig fer inn- flutningurinn alfarið til heildsalanna sem hafa þurft aö dreifa áfenginu til vínveitingahúsa í gegnum ÁTVR. ÁTVR mun áfram sjá um sölu og dreifingu áfengis til almennings í gegnum útsölur sínar. Stimpilpenni merktur fyrirtækinu og/eða starfsmanninum og með þeim upplýsingum sem hver vill. - Glæsileg gjöf ! DaDsstos KRÖKHÁLSI 6- P.O. BOX 10280 SlMI 91 - 67 1 900 • FAX 91 - 671901 • 110 REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.