Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Blaðsíða 53
LAUÖARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
OO
Stormur og rigning
um allt land
Briet Héðinsdóttir leikur Karen
Blixen í Dóttur Lúsifers.
Einleikur um
Karen Blixen
Sýningar í Þjóðleikhúsinu hafa
gengið vel það sem af er vetri.
En sýningar verða að víkja fyrir
öðrum verkefnum og eitt þeirra
leikrita sem síðustu sýningar eru
auglýstar á er Dóttir Lúsífers eft-
ir William Luce sem hefur verið
sýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins.
í stað þess verða hafnar sýningar
á Oleanna eftir bandaríska leik-
Leikhúsin
ritaskáldið David Mamet sem
einnig hefur komið nálægt kvik-
myndabransanum.
Dóttir Lúsifers fjallar um ævi
og ritverk dönsku skáldkonunn-
ar Karenar Blixen. Bríet Héðins-
dóttir leikur Karen Blixen og hef-
ur hún fengið lof fyrir leik sinn.
Leikstjóri er Hávar Sigurjónsson.
Síðustu sýningar verða í kvöld
og 1. og 3. desember.
Málþing um list
Errós
í dag boðar Menningarmála-
nefnd Reykjavíkur til opins mál-
þings að Kjarvalsstöðum um list
Errós. Verða flutt fiögur erindi
um ólíka þætti í hst Errós. Fyrir-
lesarar eru: Alain Jouflroy,
Hans-Joachim Neyer, Aöalsteinn
Ingólfsson og Gunnar B. Kvaran.
Að erindunum loknum verða
opnar umræður og fyrirspumum
svarað. Málþingið hefst ki. 10.00.
Fundir
Nýstjómmálahreyting
Ný hreyfing fólks, sem vili breyt-
ingar í islenskum stjómmálum
heldur opin fund á Hótel íslandi
á morgun kl. 14.00-16.00. Þar
verða kynnt áform hreyfingar-
innar, heiti hennar og fyrir hvað
hún stendur. Aðalræðumaður er
Jóhanna Siguröardóttir alþingis-
maöur en auk hennar verða stutt
ávörp og boöiö upp á skemmtiat-
riði.
Málefni kvenna og bama á
18. öld
Félag um áfjándu aldar fræði
.boðar til fundar um málefiii
kvenna og bama í stofu 101 í
Odda í dag kl. 14. Guörún Guö-
laugsdóttir rithöfundur og Guð-
Iaug Gísladóttir bókmenntairæð-
ingur flytja erindi. Að þeim lokn-
um verða umraíður. Öllum er
heimill aðgangur.
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 270.
25. nóvember 1994 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 68,150 68,350 66,210
Pund 106,520 106,840 108,290
Kan. dollar 49,570 49,770 49,060
Dönsk kr. 11,1710 11,2150 11,3020
Norsk kr. 9,9730 10,0130 10,1670
Sænsk kr. 9,1420 9,1780 9,2760
Fi. mark 14,2110 14,2680 14,4730
Fra. franki 12,7390 12,7900 12,9130
Belg. franki 2,1257 2.1343 2,1482
Sviss. franki 51.7400 51,9500 52,8500
Holl. gyllini 39,0700 39,2200 39,4400
Þýskt mark 43,8000 43,9300 44,2100
it. lira 0,04221 0,04243 0,04320
Aust. sch. 6,2140 6,2460 6,2830
Port. escudo 0,4281 0,4303 0,4325
Spá.peseti 0,5235 0,5261 0,5313
Jap. yen 0,69220 0,69420 0,68240
irsktpund 105,320 105,840 107,000
SDR 99,58000 100,08000 99,74000
ECU 83,2900 83,6200 84,3400
Slmsvari vegna gengisskráningar 623270.
I dag verður suðaustan stormur og
rigning um allt land með þeirri und-
Veðrið í dag
antekningu þó að vindur snýst í suð-
vestan storm með skúrum sunnan
til á landinu síðdegis. í nótt og fram-
eftir degi á morgun verður milt en
síðan fer að kólna, fyrst suðvestan
til. Á höfuborgarsvæðinu verður
suðvestan kaldi og skýjað með köfl-
um í fyrstu. Suðaustan stormur og
rigning fram eftir degi en síðan
stormur og skúrir. Hiti 3-7 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 15.59
Sólarupprás á morgun: 10.33
Síðdegisflóð í Reykjavík: 00.27
Árdegisflóð á morgun: 00.27
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri skýjað 7
Akumes léttskýjað 3
Bergstaöir skúrásíð. klst. 6
Bolungarvík slydda 2
Keíla víkurílugvöllur rign. á síð. klst. 5
Kirkjubæjarklaustur súld 4
Rauíarhöfn skýjað 3
Reykjavík rigningog súld 5
Stórhöföi þoka 6
Bergen alskýjað 5
Helsinki léttskýjað -1
Kaupmannahöfn léttskýjað 7
Stokkhólmur léttskýjað 4
Þórshöfn súld 10
Amsterdam skýjað 11
Barcelona mistur 15
Berlín léttskýjað 7
Feneyjar þokumóða 11
Frankfurt skýjaö 10
Glasgow súld 11
Hamborg rigning 8
London mistur 13
LosAngeles skýjað 11
Lúxemborg skýjað 7
Sýning átta listamanna í Nýlistasafninu:
I dag verður opnuö í Nýlistasafn-
inu sýning átta myndlistarmanna,
sjö þeirra eru íslenskir og einn
hollenskur. Þeir eiga það allir sam-
eiginlegt að hafa stundað fram-
haldsnám í Hollandi á undanfóm-
um árum og er Hollendingurin í
hópnum samferöamaður þeirra.
Sýning ber vitni um gjörólík sjón-
arhom eins og vera ber þegar fiöldi
listamanna sýnir saman. Mismun-
andi miðlar takast á og úr verður
hin Qölbreyttasta sýning. Þeir lista-
menn sem sýna verk sín í Nýlista-
safninu era Elsa Dóróthea Gísla-
dóttir, Guðrún Hjartardóttir,
Gunnar J. Straumland, Helgi Hjal-
talín Eyjólfsson, Jón Bergmann
Kjartansson, Pétur Öm Friðriks-
son, Rob Hoekstra og Sólveig Þor-
bergsdóttir. Fæst þeirra hafa sýnt
verk sín hér á landi að einhveiju
ráði, en þau hafa tekið þátt í fiöl-
mörgum samsyningum á erlendri Þegar þessi mynd var tekin i gaer var verið að vinna að uppsetningu
grund og þá aöallega í Hollandi. sýningarinfiarsemverðuropnuðidag. DV-mynd ÞÖK
Myndgátan
„ AHÍ NÚ
'E/?U»1 vio JAFNÍ^,
eirr, Eirr
\ _C\ 4 O
)VCB.
\
Bolfískur
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
61
Risaeðlurnar gera víöreist í nú-
timanum.
Risaedlur
ferðastum
tímann
Barnamyndin Risaeðlumar
byrjar í nútímanum þar sem við
kynnumst borgarbörnunum
Louie og Ceciliu sem óska sér
einskis frekar en að eignast vini
og þeim auðnast það þótt ekki séu
þaö neinir venjulegir vinir. Á
meðan í fortíðinni, þegar risaeðl-
urnar réðu ríkjum hér á jörð-
inni, kemur tímaferðalangurinn
Kapteinn NewEyes í heimsókn til
risaeðlanna og gefur þeim meðal
sem eykur öll skilningarvit
þeirra. Kapteinninn býður síðan
Kvikmyndahúsin
fióram risaeölum far inn í nútím-
ann og þar hitta þau fyrir Louie
sem tekur risaeðlunum opnum
örmum.
Risaeðlurnar gerði fyrirtæki
Stevens Spielbergs, Amblin Pict-
ure, en þar á bæ er að minnsta
kosti gerö ein teiknimynd í fullri
lengd á hveiju ári og af fyrri
myndum í þessum flokki má
nefna An American Tail og The
Land before Time. Margir þekktir
leikarar og frægar persónur ^
leggja til rödd sína í Risaeðlunum
og má þar fyrsta nefna frétta-
manninn fræga Walter Cronkite.
Sjónvarpsmaðurinn Jay Leno er
einnig meðal þeirra sem ljá radd-
ir sínar og kokkabókahöfundurin
Juha Child. Þá má nefna leikar-
ana John Goodman og Martin
Short.
Nýjar myndir
Háskólabíó: í loft upp
Laugarásbíó: Gríman
Saga-bió: Villtar stelpur
Bíóhöllin: Sérfræðingurinn
Bióborgin: Forrest Gump
Regnboginn: Reyfari
Stjörnubió: Threesome
Bestujúdó-
kapparNorður-
landa í Höllinni
Þaö er mikið um að vera í
íþróttum um helgina. Fyrst ber
að telja opna skandinaviska mót-
ið í júdó en þar keppa allir
fremstu júdókappar á Norður-
löndum. Mótið er haldið í Laugar-
dalshöllinni og hefst kL 16.00. fs-
lenskir júdókappar hafa oft staðið
á verðlaunapaili í keppni þessari
og eiga vafalaust eftir að setja
mark sitt á hana nú.
Þaö veröur mikið um aö vera í
handboltanum í dag en leikiö
verður í bikarkepprúnni. KL 16.30
leikur Afturelding á heimavelli
gegn Val, kl. 18.00 leika Haukar
og ÍH í Hafnarfirði og kl. 18.15
leika Valur-b og KR og fer sá leik-
ur fram í ValsheimiJinu. Á morg-
un leika svo Grótta-Fram, Sel-
foss-FH, KA-Víkingur og Sfiarn-
an-FH.
Tveir leikir verða í bikarkeppni
kvenna. Kl. 16.00 leikur FH gegn
Sfiömunni i Haiharfirði ogi Vest-
mannaeyjum leikur ÍBV gegn
Sfiörnunni kl. 17. Þá veröa þrír
leikir í 1. deildinni í blaki og á
sunnudagskvöldið veröur körfu-
boltinn allsráöandi.