Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
Dagur í lífl Guðvarðs Gíslasonar veitingamanns:
Jólaland sett upp
Ég vaknaði klukkan hálfátta, eins
og ég er vanur, en var óvenju syfjað-
ur þar sem ég hafði ekki farið í rúm-
ið fyrr en hálftvö um nóttina. Daginn
áður hafði ég verið að undirbúa jólin
af miklum krafti en viö höfum sér-
staka jólastemningu hér í desember.
Við höfum útbúið bamatré með Di-
sneyskrauti og annað með fígúrun-
um úr Galdrakarlinum í Oz. Einnig
erum við að setja upp jólaævintýra-
land með járnbrautarlestum. Við
byrjuðum á þessu í fyrra og fórum
þá til Ameríku til að kaupa skrautið
og höfum enn bætt við okkur þetta
árið. Síðan eigum við von á að
minnsta kosti 1200 leikskólabörnum
í heimsókn í kakó og kökur. Þau
komu hingað í fyrra til skoða ævin-
týralandið og mér sýnist að ekki
muni færri koma núna,
Konan mín er við nám í Myndlista-
og handíðaskólanum og fór á fætur
á sama tíma og ég en strákamir okk-
ar fengu ömmu sína í heimsókn sem
kemur þeim í skóla og leikskóla.
Þennan morgun varð ég að sleppa
sundinu sem ég er vanur að fara í á
morgnana vegna þessa mikla verk-
efnis sem enn beiö mín á hótelinu.
Ég var kominn í vinnuna rétt fyrir
átta og byrjaði daginn á að ganga um
salina og bjóða starfsfólki góðan dag-
inn. Síðan var hafist handa við jóla-
skrautið aftur enda mikið starf en
síminn var stöðugt að ónáða mig. Ég
kláraði nú engin sérstaklega merki-
leg mál fyrir hádegið en sendi þó
nokkur faxbréf út í bæ með upplýs-
ingum um jólahlaðborðið okkar.
Fariðyfirmálin
Rétt fyrir hádegi hringdi yngri son-
ur minn í mig frá leikskólanum og
var heldur sár að hafa ekki fengið
aö taka nýja stýrissleöann með sér
en mér tókst að hugga hann. Amma
hans hafði ekki krafta til að draga
á um fimm þúsund gestum í jólamat-
inn.
Haldið upp á
þakkargjörðardag
Einnig var ég að raða saman tón-
hstardagatali, þ.e. hverjir munu
leika fyrir gesti á þessum kvöldum
en það verða bæði harmoníkuleikari
og píanóleikarinn okkar Sigurður
Jónsson. Þá var ég líka að bóka jóla-
böll og með þjónunum sat ég nokkra
stund en við vorum aö búa til ákveð-
inn jólaskot sem eru sérblandaðir
jóladrykkir sem bera nöfn jólasvein-
anna. Ég fékk síðan óvænta hring-
ingu frá Ameríku um að hingað væru
væntanlegir 72 Ameríkanar til aö
halda upp á þakkargjörðardaginn
hér á landi. Þetta fólk kemur hingað
eingöngu til að halda upp á þennan
dag og við urðum aö skipuleggja
móttökuna í einu snarhasti og útvega
okkur kalkúnana og annað sem til-
heyrir á þessum degi. Þetta þýddi
annan fund með þjónunum um und-
irbúning á þessari amerísku veislu.
Konan mín kom hingað um fjögur-
leytið til að hjálpa til við undirbún-
inginn. Um fimmley tið hentist ég upp
í Grænuborg til að sækja yngri strák-
inn og síðan heim til að sækja þann
eldri og þeir fengu að sniglast í kring-
um okkur meðan viö kláruðum. Við
borðuðum kvöldmat á hlaupum, við
Gulla fengum okkur laxatartar en'
strákarnir vildu kjúkhng og franskar
kartöflur og síðan var haldið áfram
við vinnuna th hálfehefu. Ég fór þó
ekki heim fyrr en hálftólf, kveikti
aðeins á Sjónvarpinu og datt inn í
kvikmyndina Sleeping with the
Enemy, en slökkti fljótlega og flýtti
mér í rúmið enda orðinn dauðþreytt-
ur. Þetta var nú ekki beint týpískur
dagur enda er ég meira við venjuleg
skrifstofustörf dags daglega.
hann á sleðanum en honum fannst
hún ekki nyög skemmtheg fyrir
bragðið.
Klukkan tólf hófst fundur á fjórðu
hæðinni með hótelstjóra en á þennan
fund mæta allir deildarstjórar
Scandic hótelanna. Þar er fariö yfir
ýmis mál er varða hótehn, hvað þarf
aö gera við, hvað er að gerast á næstu
dögum og þess háttar. Ráðstefnu-
stjórinn gefur skýrslu um þá fundi
sem verða í sölunum og ég kem með
skýrslu um hvemig bókun er hjá
mér og hvað að gerast á næstunni. Á
þessum fundi eru öll mál rædd er
varða hótelin og það er mjög þýöing-
armikið. Þetta er klukkutímafundur
þar sem boðið er upp á smurt brauð
og kaffi.
Þegar ég kom af fundinum voru
smiðir mættir á staðinn og einnig var
birgðarvörðurinn í mikilli vinnu
með jóladótið. Undirbúningur jól-
anna tók því mestallan daginn. Ég
átti síðan fund með matreiðslumönn-
um um jólahlaðborö þar sem farið
var yfir alla hluti varðandi skipu-
lagningu og verkaskiptingu. Það má
aldrei neitt klikka og hver starfsmað-
ur hefur sitt hlutverk. Við eigum von
Guðvarður Gíslason, veitingamaóur á Hótel Loftleiðum, við jólaævintýralandið sitt.
DV-mynd ÞÖK
Finnur þú fimm breytingar? 285
Það eina sem ég get sagt með vissu er að þú ert með mjög
lágan blóðþrýsting.
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir tvö hundruð áttugustu og þriðju
getraun reyndust vera:
1. Álfhildur Eiríksdóttir, 2. Sigmar Þór Hóvarðarson,
Borgum, Hólagötu 30,
681 Þórshöfn. 900 Vestmannaeyjum.
Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn
eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós
að á myndinni til hægri hefur fimm atrið-
um verið breytt. Finnir þú þessi fimm at-
riði skaltu merkja viö þau með krossi á
myndinni til hægri og senda okkur hana
ásamt nafni þínu og heimihsfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
Grundig útvarpsklukka að verðmæti 4.860
krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf.
2. verðlaun:
Fimm Úrvalsbækur. Bækumar, sem eru
í verðlaun, heita: Þú ert spæjarinn, Sím-
inn, Á ystu nöf, í helgreipum haturs og
Lygi þagnarinnar. Bækumar eru gefnar
út af Prjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 285
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík