Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
X / • •• x • • i
Iifið a jorðmni þegar
heimskautin hafa bráðnað
Kvikmyndir
Þannig lítur byggð út þegar vatniö
hefur umlukið jörðina. Innfellda
myndin er af Kevin Costner í hlut-
verki sínu.
Kevin Costner
leikurí
Waterworld:
Um þessar mundir er verið aö
ljúka tökum á þeirri kvikmynd sem
dýrust verður af öllum kvikmyndum
sem frumsýndar verða á næsta ári.
Er það Waterworld sem leikstýrt er
af Kevin Reynolds. í aðalhlutverki
er Kevin Costner en þeir nafnar hafa
áður unnið saman, stóðu að gerö
Robin Hood: Prince of Thieves fyrir
þremur árum.
Waterworld er sannköiluð stór-
mynd sem gerist í framtíðinni á jörð-
inni, nánar tiltekið 26. öldinni. Heim-
skautin hafa bráðnað og jörðin er að
öllu leyti hulin vatni. Leikur Costner
einfara, lögreglumann sem þegar
hann er ekki aö bjarga mannslífum
hefur það að tómstundagamni að
skafa sjávarbotninn í leit að ein-
hveiju, en í þeirri veröld sem vatn
umlykur eru ótrúlegustu hlutir
álitnir verðmætir. Hlutir sem í dag
eru oft nefndir rusl. Aðrir leikarar
eru Dennis Hooper og Jeannie Tripp-
leton.
Fyrir utan Hawaii hefur verið
byggður 2000 tonna pallur úr stáli
og plasti sem tökur fara fram á. Þaö
tók sjö mánuði að hanna og smíða
pallinn sem hvílir ofansjávar á níu
pöllum sem festir eru við botninn.
Sá sem á heiðurinn af hönnun ferlík-
isins heitir Dennis Gassner. Hann
segir að ef einhveijum finnist pallur-
inn líta út eins og ruslahaugur þá sé
það hárrétt. Sviðsmyndin á að líta
út eins og ruslahaugur. Út af þessu
hafa margir haft á orði að búningar
og umgjörð minni á Mad Max mynd-
irnar. Universal, sem framleiðir
myndina, hefur látið uppi að kostn-
aður við hana verði yfir 100 miiijónir
dollara. Og þegar upp er staðiö verð-
ur upphæðin örugglega vel yfir 100
milljón dollarana þar sem veður hef-
ur verið slæmt og tafið tökur.
DV
StarTreksló
öllumvið
Nú eru jólamyndimar að koma
fram á sjónarsviðið hver af ann-
arri og aðsókn í kvikmyndahús
vestanhafs eykst jafnt og þétt.
Þrjár kvikmyndir voru í algjör:
um sérflokki um síðustu helgi. Á
toppnum trónaði Star Trek Gen-
eration. Aðgöngmiðasala á hana
náði 23,1 milJjón dollurum. Á eft-
ir henni komu svo til jafnar tvær
ólíkar myndir, Interview With
the Vampire og The Santa Claus,
báðar með rúmlega 19 milljónir
dollara. Áttu þessar þrjár kvik-
myndir meira en 60% af aðsókn
helgarinnar.
Ekkimástuggavið
Kennedy-ættinni
Skáldsagan Fatherland, sem
meðal annars hefur komið út á
íslensku, gerist upp úr 1960 og
lýsir þjóðfélagsástandi ef Hitler
hefði unnið stríðið. Höfundurinn
Robert Harris gerir því skóna að
þá hefði Joseph Kennedy oröið
forseti Bandaríkjanna og er held-
ur nöturleg lýsing á honum í bók-
inni. í nýrri sjónvarpsmynd eftir
bókinni er dæminu gjörsamlega
snúið við. í stað þess að Kennedy
sé getulaus forseti er hann gerður
að föðurlegum stjórnmálamanni
og er nema von að höfundurinn
sé óánægður. Taliö er að Mike
Nichols, sem er einn aöstandenda
rayndarinnar, hafi ráðið þessu,
en hann er mikil vinur Kennedy-
ættarinnar.
Sharon Stone í
Síðastadansinum
Ekki hefur Sharon Stone getaö
fylgt eftir þeim vinsældum sem
hún öðlaðist í Basic Instinct. Hún
fær samt enn eitt tækiferið i The
Last Dance. Þar leikur hún vilja-
sterka konu sem á von á því að
verða dæmd til dauða. Lögfræð-
ing herrnar leikur Rob Morrow.
Leikstjóri er Bruce Beresford.
Háskólabíó sýnirDaens:
Klerkur sameinast verkalýðmim
Háskólabíó mun taka til sýningar
á næstu dögum belgísku kvikmynd-
ina Daens sem var framlag Belga til
óskarsverölaunanna í fyrra. Myndin,
sem byggð er á sögulegri skáldsögu
eftir Louis Paul Boom, er baráttu-
saga sem gerist á öndverðri nítjándu
öldinni í skugga iðnbyltingarinnar.
Sögusviðið er smábærinn Aalst þar
sem flestir íbúamir vinna í spuna-
verksmiðju. Þegar eigandinn inn-
leiðir hættulegar vinnuaðferðir í
þeim eina tilgangi að auka gróðann
kemur uppreisnarhugur í verkalýð-
inn. Þau mótmæli og sú eining sem
skapast á rót sína að rekja til þess
að um þetta leyti verða miklar um-
bætur á kosningalöggjöfinni í Belgíu
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
og allir karlmenn fá kosningarétt.
Eignastéttin svarar þessari ógnun
með því að herða tök sín á verkalýðn-
um.
Aðalpersónan í Daens er klerkur-
inn Adolf Daens sem talar tæpi-
tungulaust um samfélagsóréttlætið
úr prédikunarstól sínum og samein-
ast að lokum verkalýðnum í barátt-
unni. Hann býður sig fram á móti
málpípu iðnrekendanna í kosningum
sem snúast ekki einatt um völd held-
ur mannréttindi. Valdaklíkunni
tekst meö klækjum að sverta Daens
fyrir páfavaldí og honum er gert að
velja milli hempunnar og stjómmál-
anna.
Leikstjóri myndarinnar, Stijn Con-
inx, þykir fremstur í röð þarlendra
leikstjóra í dag. Hann hefur þó aöeins
leikstýrt þremur kvikmyndum,
Hector (1987) sem hlaut fjölda verð-
launa á kvikmyndhátíðum um allan
heim, Koko Flanel (1989) og Daens
sem hann vann við á þriðja ár og var
frumsýnd 1993. Áður en hann leik-
stýrði Hector var hann aðstoðarleik-
stjóri margra belgískra leikstjóra.
Anthony
Hopkins leik-
ur lækni á
heilsuhæli i
The Road to
Wellville.
Kvikmyndir í Regnboganum á næstunni:
Metaðsólmamiyndir frá
þremur heimsálfum
Það er óhætt að segja að fjölbreytni
einkenni kvikmyndaval Regnbogans
á næstunni. Once Were Warriors er
nýsjálensk mynd sem vakið hefur
mikla athygli. Hún er þegar búin að
slá aðsóknarmet í heimalandi sínu
og þær viðtökur sem hún hefur feng-
ið á kvikmyndahátíðum lofa góðu.
Er skemmst að minnast að hún hlaut
helstu verðlaunin á kvikmyndahá-
tíðinni í Montreal og í Feneyjum var
hún valin besta kvikmynd nýs leik-
stjóra. Verður Once Were Warriors
sýnd í janúar eða febrúar.
Þijár franskar myndir eru allar
væntanlegar til sýningar á næst-
unni. L’accompagnatrice er kvik-
mynd sem fengið hefur mjög góöar
viðtökur. Gerist hún í París undir
hernámi Þjóðverja og segir.frá sam-
bandi frægrar óperusöngkonu er
ræður til sín fátæka og óreynda, en
afar hæfileikaríka stúlku, sem undir-
leikara. Mon Peré ce Héros er frönsk
gamanmynd með Gerard Depardieu
um samband foður við dóttur sína
þegar hún kynnist tilhugalífmu.
Bandaríska útgáfa myndarinnar var
sýnd 1 sumar í Sam-bíóum og lék
Gerard Depardieu einnig í þeirri
mynd. Þriðja franska myndin er Un
Coeur en Hiver, fræg mynd sem hef-
ur fengi mjög góða dóma.
Af bandarísku myndunum sem
verða í boöi í Regnboganum á næstu
mánuðum er helst að nefna The Road
to Wellville, nýjustu kvikmynd Al-
ans Parkers. Er um aö ræða gaman-
mynd sem gerist á heilsuhæli sem
byggt var fyrir ríka og fína fólkið í
Bandaríkjunum í lok síðustu aldar.
Fjöldi þekktra leikar er í aðalhlut-
verkum, meðal annars Anthony
Hopkins, Matthew Broderick, John
Cusack og Dana Carvey. Þá má nefna
nýjustu kvikmynd Bruce Willis,
spennúmyndina Color of Night. Mót-
leikari hans í myndinni er hin unga
breska leikkona Jane Mgjjch. Að síð-
ustu er vert að geta jólamyndarinnar
Stargate sem slegiö hefur í gegn í
Bandaríkjunum. Um er að ræða æv-
intýramynd sem gerist í framtíöinni.
Aðalhlutverkin leika Kurt Russel,
James Spader og Jaye Davison.
Fyrir miðri
mynd er Jan
Decleir, sem
leikur klerk-
inn Daens í
samnefndri
mynd sem
þykir sérlega
áferðarfalleg.