Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 25
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 25 Hissa á leikaravalinu Nú kom þessi maður upp í huga mér og ég talaði við Theodór um að þennan mann frá Möðrudal yrði ég að fá, hvað sem það kostaði. Diddi sagði að ef lagið yrði of flókið fyrir sveitamanninn myndi hann bara einfalda það. Ég hringdi í Möðrudal til að leita manninn uppi en fékk þær upplýs- ingar að hann væri fluttur suður til Reykjavíkur og stæði fyrir hljóm- sveit. Nú voru hæg heimatökin. Ég greip manninn og bauð honum hlut- verk Huds, hins kolsvarta, sem hann þáði hinn glaðasti. Ég gleymi ekki upphtinu á hópnum þegar ég leiddi hann inn á æfingu. Krakkarnir voru þegar komin með stjömur í augun yfir að vera hin út- völdu og nú leiði ég þennan sveita- lubba inn og tilkynni að hann eigi að leika eitt stjörnuhlutverkið! Einhverjir mölduðu í móinn og töldu hann alls ekki passa í hópinn, ég samþykkti það fúslega og sagði: - Þið haflð rétt fyrir ykkur, þetta er íslenski negrinn ykkar. Eftir það tóku þau Adda mjög vel. Nú þurfti ég að flnna leikara sem gæti túlkaö spánska minnihlutann í Ameríku, Portóríkana eða Mexíkana sem áttu erfitt uppdráttar í Guðs út- valda landi. Heimsfrægir úr Keflavík Á þessum árum voru nokkrar hijómsveitir úr Keflavík heimsfræg- ar á íslandi og kanaútvarpið og kana- sjónvarpið búið að ala upp nýja kyn- slóð aðeins ameríkaníseraðri en Reykjavíkurliðið. í Keflavík fann ég stúlku af bandarísku bergi brotna sem hafði músíkina í kroppnum og minnti mig á Suður-ameríkana. Hún hét Magnea Reynalds og fóður sinn hafði hún ekki hugmynd um. Hann hafði veriö á beisnum hjá am- eríska hernum, og það eina sem hún vissi var eftirnafnið Reynalds. Magnea lagði hvorki söng né dans fyrir sig seinna á lífsleiðinni, hún lærði til sjúkrahða eftir Hárævintýr- ið og hún gerðist seinna búddatrúar og stofnaði samtök barna hermanna sem höfðu að markmiði að leita uppi týnda feður sína. Magnea leitaði árum saman að sín- um týnda fóður og nú þegar þetta er rifjað upp er hann fundinn; uppnum- inn yfir að eiga hér dóttur sem hann hafði ekki hugmynd um, tvær upp- komnar dótturdætur og tvö langafa- börn. Þegar hann fékk fréttirnar tók hann fyrstu flugvél frá New York, þar sem hann á fimm önnur vel menntuð börn. Og það merkilega er: Hann er Portóríkani. Við bættum inn nýjum atriöum um Leif heppna, fund Ameríku og skræl- ingja. Nú vantaði mig fulltrúa mon- gólska kynstofnsins og þá lá beint við að leita til Kjuregej vinkonu minnar, konu Magnúsar Jónssonar. Leikkona frá Moskvu Kjuregej Alexandra Argúnova, leikkona frá Moskvu, var ein þeirra fáu sem gátu tahst atvinnuleikarar í leiksýningunni á Hárinu. Hún hafði verið send úr heimalandi sínu, Ja- kútíu í Síberíu, tólf ára gömul, til leikhstarnáms í Moskvu, var vahn ásamt tíu öðrum Jakútum. Jakútar eru hirðingjaþjóðflokkur, um kvart- mihjón, og tala tungumál sem er skylt tyrknesku. Fyrsta „vestræna“ tungumáhð sem Kjuregej lærði var rússneska. Eftir að þau Magnús komu til ís- lands hafði hún einangrast inni á heimili tengdaforeldra sinna sem voru henni afar góð. Fyrsta barn þeirra Magnúsar, Sunna, fæddist í Moskvu, en hún var búin að eignast þrjú börn til viðbótar þegar ég fékk hana til að leika hjá mér í Hárínu. Það var mikið átak fyrir Kjuregej að fara út að vinna og ekki síst að blanda geði við þennan unglingahóp sem var svo gjörólíkur henni að öllu leyti. En uppruni og framandi menn- ing Kjuregej varð okkur öhum til uppörvunar. Ég setti hana í hlutverk eskimóa og Asíu-ameríkanans í sýningunni. Hún söng yndislegt jakútskt lag sem féh eins og flís við rass í rytma Hárs- ins. En nú kom babb í bátinn, ég fékk þau skilaboð frá vini mínum og koh- ega, Magnúsi, að ég mætti ekki láta Kjuregei taka þátt i nektaratriðinu sem hann hafði haft spurnir af að væri í uppfærslunni. Konan hans mátti ekki bera sig fyrir almenningi. Ég varð undrandi, ég hafði kviðið því að fá krakkana til að taka þátt í nekt- inni, feimin og ung, en þessu bjóst ég ekki við af hinum gáfaða, frjáls- lynda og víðsýna félaga. Hann gat ekki að þessu gert, hann var afbrýði- samur og fúll þegar Kjuregej fór á æfingar. Leifur Hauksson lékhommann í raun og veru skipti engu máli hvort væri einum leikara fleira eða færra í þessari nektarsenu. Leikhóp- urinn hverfur undir stóra shkifah- hiíf, afklæðist þar í ljósaskiptunum og í flöktandi lituðum ljósum koma þau undan og halda fallhlífinni uppi í hring fyrir aftan bak og syngja ynd- islegt lag th áhorfenda. Fólk viknaði þegar það sá þetta atriði og ekki vissi ég th að nokkur hneykslaðist, enda hafði atriðið tilgang og forsendur. Leifur Hauksson var valinn í hlut- verk hommans í Hárinu. Það var mjög vandasamt hlutverk. Hommar voru kahaðir kynvilhngar í þá daga og um kynvillu var aðeins pískrað í hornum og skúmaskotum. Éf átti að rógbera menn og eyðheggja mannorð þeirra var áhrifaríkast að koma á þá hommaóorði. Á leiksviði voru þeir sýndir mjög ósympatískir, alltaf hiægilegir á sama hátt og gleðikonur voru leiknar, óskiljanlegar fígúrur, heimskar og fáfengilegar. Ég varð að finna einhveija leið með Leifi th að koma hommanum Woof til skila til íslenskra áhorfenda öðru- vísi en þeir væru vanir. Forðast af öllum mætti gamla khsjuleikinn. Þegar ég gekk með mitt fyrsta og eina bam, hann Benedikt okkar, átti ég að vinum tvo homma sem bjuggu saman í vesturbænum. Þeir höfðu trúað mér fyrir þessu voðalega leyndarmáli sínu og þeim hafði tekist að halda því leyndu að mestu leyti, enda voru þeir hvorki leikarar né gegndu hefðbundnum kvennastörf- um, en karlmenn sem gegndu slíkum störfum fengu oft og iðulega á sig slíkt orð. Þjónustu- lundaðirvinir Þessir vinir mínir tóku að snúast eins og skopparakringlur í kringum mig þegar ég fór að þykkna undir belti. Þeir elduðu ofan í mig hollan mat, þjónuðu mér th borös og gerðu mér allt th geðs. Ég var eldhress á meðgöngutímanum en stundum þreytt eftir langan vinnudag. Á þessum tíma var ég að setja upp Höll í Svíþjóð eftir Sagan fyrir Leik- félag Kópavogs. Undir það síðasta var ég orðin svo þung að ég þurfti að halda með báðum höndum undir bumbuna þegar ég klifraði upp á leiksviðið th að tala við leikarana. Þessi hommavinir mínir elskuðu mig ófríska og fengu að taka þátt í óléttu minni. Ólétta var nokkuð sem þeir myndu ahtaf fara á mis við sem for- eldri. Þessa þjónustulunduðu vini fékk ég til liðs við mig þegar Hárið komst á dagskrá. Þeir ákváðu að bjóða okk- ur Leifi í ekta hommapartí til skiln- ings og fræðslu á þessu svokallaða óeðli sem var þeirra rétta eðh. Þessi aðferð er nú kölluð vettvangskönnun í leikhúsunum og þykir góð. . Partíið var haldið í rúmgóðum kjahara í bænum, í íbúð eldri homma sem var bankamaður. Veislugestir vissu fyrirfram erindi okkar Leifs og tóku okkur vel en grínuðust í fyrstu með því að leika gömlu hommakhsj- umar. Þetta kvöld var ógleymanlegt. Alúð var lögð í góðan mat og aha huggu, blóm og kertaljós. Þegar menn voru búnir að borða, drekka ljúf vín og orðnir hreifir brugðu nokkrir á leik. Þeir drógu fram stóra kistu og upp úr henni göldruðu þeir ahs konar gardínur og dulur, vöfðu þessu um sig og sveifl- uðu í eins konar upphöfnum slæðu- dansi. Þarna fengum við Leifur stórkost- legt „show“. Þessir kjallaragestir komu hvorki úr röðum leikara né áberandi aðila í þjóðfélaginu. Þeir stunduðu ýmiss konar vinnu, en þeir áttu sameiginlega vináttu, ást og samkennd - sem á þessum tíma var eins konar samsekt. Við aukagemsarnir skemmtum okkur konunglega og skhningur og samúð Leifs var þar með vakin. En hann dreif mig aö vísu heim þegar honum fannst einn eða tveir vinanna vera farnir að stíga óþæghega mikið í vænginn við sig! Leifi tókst að koma Woof til skila á leiksviöinu á jákvæðan hátt, án þess þó að persónan týndi húmom- um. Hann var viðloðandi leikhúsið í nokkur ár en lagði aldrei fyrir sig leikhstarnám. Hann lék hjá mér í Þjóðleikhúsinu, bæði í Dags hríðar sporum Valgarðs Eghssonar og í Helenu fogru, og fékk ghmrandi móttökur, en hann valdi sér aö lok- um hlutverk útvarpsmannsins. Nektaratriðið Ég hafði vahð ákveðinn dag th að æfa og útskýra nektaratriðið fyrir unglingunum og ætlaði sannarlega Leikarar i Hárinu voru margir hverj- ir þekkt tónlistarfólk og má hér sjá Halldór Kristinsson og Drífu Krist- jánsdóttur á æfingu ásamt fleirum. Árni Blandon fór með aðalhlutverk- ið í Hárinu. að fara fínt í það til að sjokkera þau ekki. Fyrir sjálfa mig heföi verið átak að sýna mig nakta á sviði. Ég gaf kaffipásu og á eftir sagði ég að við myndum eyða einum eða tveimur klukkutímum í þetta atriði. Við vorum búin að æfa sönginn og hreyfingarnar áður og nú átti stóra stundin að renna upp. En ég komst að því þarna að stóra stundin var bara fyrir mig. Þegar kaffitíminn var útrunninn bólaði ekki á börnunum, þau voru horfin svo ég fór að leita að þeim. Jú, yfirhafnir þeirra voru enn frammi svo einhvers staðar hlutu þau að vera í húsinu. Og mikið rétt, á efstu hæð kem ég að þeim hinum róleg- ustu, öllum kviknöktum haldandi á ímyndaðri fahhlif í skjannaljósi: - Við erum bara að æfa okkur svo þetta verði þér ekki of erfitt, sögðu þau. Þau voru þá búin að æfa sig í heila viku uppi á lofti í hveijum kaffi- tíma. Berstrípaðir strákar og stelpur Við höíðum forsýningu fyrir frum- sýninguna, buðum blaðamönnum, háskólastúdentum og fleirum: Þá verður Háríð frumsýnt n.k. mánudag og mun ríkja mikil eftir- vænting hjá almenningi. Ekki mun hún þó vera almennt, listræns eðlis, heldur hlakkar fólk til að sjá stráka ogstelpur berstrípaðar á sviðinu, því stykkið er ómerkilegt, utanmúsíkur. Það er furðuleg afstaða leikstjórans, eflaust vegna kröfu leikara, að banna ljósmyndir af þessu iistafólki, sem sýnir nekt sína og skakar sér fyrir peninga. Svona sjálfsblekking er eins búraleg og hún er fáránleg, „lista- fólk“ neitar að sýna sig. Haíiö þið heyrtþað betra? Oghvað segir Frey- móður? (Mánudagsblaðið, 5. apríl 1971.) „Nei“ svaraði Freymóður, „ég hef ekki hugsað mér að skipta mér af nektarsenu leikaranna íHárinu. Það kemur þó ekki til af því, að ég sé að skipta um skoðun á kynferðismál- um“... „Án þess að hafa séð sýning- una get ég nú litið talað mig út um skoðun mína á stripli leikaranna, en með fyrirvara mundi ég segja svona sýningu afar óheppiiega fyrir þjóð- ina...“ (Vísir, 14. apríl 1971.) „Frumsýningin“ var í gærkvöldi í Glaumbæ oghrifning viðstaddra var geysimikil... ílok leiksins flykktust áhorfendur upp á leiksviðið og tóku þátt í lokadansatriði HÁRSINS. Eftir sýninguna var það að heyra á fólki, að sýningin heíðifaríð fram úr bjart- sýnustu vonum. En það voru ekki einungis áhorfendur sem voru ánægðir, því eftir sýninguna „toller- uðu“ leikendur leikstjórann Brynju Benediktsdóttur og söngstjórann SigurðRúnar. (Alþýðublaðið, 2. apríi 1971.) Vegna nektaratriðisins lenti ég í vandræðum með sjónvarpið. Fyrir frumsýninguna þurftum við sárlega að fá umfjöllun og leitaði ég þá á náðir fréttastjórans, síra Emhs, og bað hann um að við fengjum viðtal og tekinn yrði upp bútur af æfing- unni. Hann brást hinn versti við og sagði að shkur ósómi sem þessi sýning væri, klám og strípaðir leikarar, ætti ekkert erindi inn í hina virðulega stofnun, sjónvarpið. Og þar við sat. - Sama gilti um útvarpið. Samt komumst við einhvem veginn það langt að hópurinn fór í upptöku og söng inn nokkur lög niðri á Skúla- götu þar sem útvarpið var til húsa. En aldrei var þessum upptökum hampað, hvað þá útvarpað, og áfram hljómuðu lögin úr Hárinu á ensku í gömlu gufunni. Úr Kópavogi í Glaumbæ Eftir látlausar æfingar, þegar ég var farin að sjá fyrir endann á vinnu okkar, var mér orðið ljóst að hús- næði Leikfélags Kópavpgs hentaði ekki þessari sýningu. Ég gat ekki hugsað th þess eftir aha þessa vinnu að hafa bara örfáar sýningar og ef th vhl tap. Svo við fengum Glaumbæ th sýningahaldsins, reyndar eftir nokkurt stríð við Leikfélag Kópa- vogs. Úr Bréfi Brynju til Leikfélags Kópa- vogs: ... Við viljum gera það ljóst nú þegar, að verði frumsýningu enn frestað afþeim ástæðum, að viðkom- umst ekki til æfínga í því húsi, sem félagar leikfélagsins hafa valið til sýninga, teljum við að starf okkar hafí allt farið til ónýtis, þar eð próf- lestur stendur fyrir dyrum hjá fíest- um, og aðrír hafa ekki efni á að sleppa vinnu lengur en hálfan mán- uð í viðbót. Treysti Leikfélag Kópavogs sér ekki til að standa að sýningunni á sama tíma og leikflokkurinn og framkvæmdastjóri féiagsins hafa miðað að og er eini framkvæmdar- möguieikinn, virðist okkur eðliiegt að stjórn Leikfélags Kópavogs selji leikfíokknum sýningarréttinn í hendur svo þríggja mánaða vinna allra þessara aðila verði ekki bóta- laust að engu gerð... Jón Þórisson vann leikmyndina sem átti að vera sáraeinfold; amer- íski fáninn á lofti og hahandi pallur til að leika á. Ég vildi aftur á móti leggja aðaláherslu á búninga og leik- muni, en þá sníkti ég flesta hjá Sölu varnarliðseigna, svo sem shkifall- hlífina stóru sem skreytti nektarsen- una. Brúðkaupsgjafir okkar Erlings og fót mín flest höfnuðu í Hárinu og þetta dót átti ekki afturkvæmt, það brann flest eða týndist í brunanum sem varð um haustið þegar Glaum- bær brann. Miklarvinsældir Hárið var svo frumsýnt mánudags- kvöldið 5. apríl 1971. Sýningin á Hárínu var sannkallað- ur „success". Ég hélt utan um hveija sýningu, gaf nótur á eftir og gætti þess að ekki yrði sjúskað með neitt. Þar fór ég eins og yfirleitt ævinlega síðan eftir orðum kennara míns úr leiklistarskólanum, Haralds Björns- sonar leikara og leikstjóra: - Oh, auðvitað er þetta erfitt, þetta er allt óskaplega erfitt sem viðkemur kúnstinni, en erfiðast af öllu er þó „successinn", hann verður maður að halda utan um, hann verður að passa upp á, því annars komast hýenurnar á kreik. En ég passaði ekki nógu vel upp á successinn okkar. Fólkið fór að þreytast, ég skipti um í minni hlut- verkum vegna forfalla sem var ekki mikið mál fyrir mig. En þegar sá sem lék aðalhlutverkið, hann Árni Blan- don, var búinn að sannfæra hópinn um að enginn kæmi í sinn stað og nú þyrfti hann að fara í háskólann og sinna merkilegri hlutum, lét ég undan. Við ákváðum að hætta. Auð- vitað hefði ég getað fundið annan í hlutverkið og haldið áfram að leika í heht ár - og Árni hefði þess vegna getað haldið sínu striki með sitt nám í háskólanum - sem mér skilst að hann stundi enn af fuhum krafti. Þegar við hættum að sýna Hárið í Glaumbæ náði biðröðin við miðasöl- una niður aö Tjörn. Eftir á hélt fólk að við hefðum hætt vegna brunans sem varð í Glaumbæ stuttu seinna en það er ekki rétt. Við áttum aö vísu ýmsa persónulega muni ósótta, ég aht mitt drasl og hljómsveitin Nátt- úra tapaði öllum sínum hljóðfærum og fékk aldrei bætt. Þeir sem unnu við þessa sýningu urðu htlu fjáðari að verkefnu loknu, en veitingamaðurinn hafði stórgróða af og Leikfélag Kópavogs hefði getað blómstrað á eftir, fjárhagslega að minnsta kosti. Á þessum árum hirti maður ekki mikið um að fá réttlátlega greitt fyrir vinnu sína, maður var svo lukkuleg- ur yfir að fá að vinna að sinni list- grein sem var líf manns allt að um slíka smámuni eins og aura eða gróða var ekki að ræða. Vildu endur- vekja Hárið Rúmum tuttugu árum seinna ákváðum við Sigurður Rúnar viö þriðja mann að setja upp Hárið á eig- in vegum. Við fundum húsnæði í miðbænum og náðum sambandi við lögfræðinga höfunda í New York og fengum sýningarrétt. En þegar við skoðuðum samninginn nánar kom í ljós í smáa letrinu að þessi réttur var fyrir flutning á ensku, skandínavíska réttinn þurfti að sækja til Kaup- mannahafnar. Við sendum umboðs- manni þar símbréf og fengum svar um hæl að við þyrftum að greiða sem svaraði rúmlega hálfri milljón ís- lenskra króna við undirskrift og rétt- urinn væri okkar, en Þjóðleikhúsið og eitthvað sem héti West Side The- atre hefði rétt í þessu beðið um rétt- inn en ekki gengiö eftir honum með greiðslu. Við vorum það langt komin með undirbúning þennan júnímánuð 1993 að greiðslan stóð ekkert í okkur en þá fáum við óvænt bréf um að fyrrnefndir aðhar séu búnir að öðlast réttinn og inna greiðsluna af hendi. Þarna fannst okkur ríkisstofnun bregða fæti fyrir einkaframtakið að ástæðulausu. (Ath.: Flestar millifyrirsagnir eru blaðsins.)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.