Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 35
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 43 Fólki fannst ekki skynsamlegt aö Jónína Kjagan færi í verslunarferð til Amsterdam. Allir vissu um knappan fjárhag hennar og vandamál í samskiptum hennar við Sveinjón. Áð gefa ráð „Ég er löngu hættur að gefa fólki ráð,“ sagði Nökkvi læknir. „Það er gjörsamlegatilgangslaust. Skipta má fólki í tvo hópa. Annars vegar eru þeir sem stöðugt leita ráða sem þeir ætla ekki að fara eftir. Hins vegar eru þeir sem gefa ráð án þess að nokkur hafi beðið um það. Hann hallaði sér aftur í stól og sagði dreymandi við viðmælanda sinn: Jónínu Kjagan lang- ar í verslunarferð „Tökum dæmi. Jónínu Kjagan vinkonu mína langaði í tveggja vikna verslunarferð til Amsterdam í fyrrahaust. Hún vissi þó í hjarta sér að eiginlega haíði hún ekki efni á slíkri ferð. Auk þess hafði hún áhyggjur af Sveinjóni unnusta sín- um sem hafði fótbrotnað skömmu áður í fjallgöngu. Vinnuveitandinn vildi ekki gefa henni frí. En hana langaði til Amsterdam og allar ferðaskrifstofur landsins birtu dag- lega ílennistórar auglýsingar í Mogganum um Amsterdamferðir á góðu verði og viðráðanlegum kjör- um. Jónína velti þessu fyrir sér og ákvaðaðleitaráða. „Finnst ykkur að ég ætti að fara til Amsterdam í október?" sagði hún við vini sína. „Ég er að hugsa um að létta mér skammdegið og fara til Amsterdam í október," sagði hún við systkini sín. „Hvað finnst ykkúr um það?“ „Mamma, finnst þér ekki í lagi að ég fari til Amsterdam?" sagði hún við aldr- aða móður sína. „Finnst þér ekki að ég eigi rétt á því að vera ham- ingjusöm og fara til Amsterdam eins og allir aðrir?" sagði hún við pabbasinn. En fólki fannst þetta ekki skyn- samlegt. Allir vissu vel um knapp- an fjárhag Jónínu og vandamál í samskiptum hennar við Sveinjón. Mamma hennar sagði að hún ætti að bíða með slíka ferð. Pabbi henn- ar taldi að ferðin yrði miklu dýrari en hún gerði ráð fyrir. Hann sagð- ist óttast að hún gæti misst vinn- una. Vinirnir ráðlögðu henni að fara heldur með Sveinjóni með sumrinu þegar hann væri gróinn sára sinna. Eignlega fannst engum þetta sérlega góð hugmynd. Gamlan skólafélaga rekur á fjörur Jónínu Jónína sætti sig illa við þessi svör og leitaði sér annarra ráðgjafa. Laugardag nokkurn í lok septemb- er var hún stödd á Lækjartorgi og hitti þar fyrir gamlan skólafélaga. „Hvað ert þú aö gera þessa dag- ana?“ sagði Jónína. „Ekkert sér- stakt," sagði félaginn gamli. „Hvað um þig?“ „Ekkert heldur," sagði Jónína, „en ég er að hugsa um að fara til Amsterdam í október." „Það Á læknavaktínni er æðisgengið," sagði skólafélag- inn, „þangað væri ég til í að fara.“ Jónína muldraði eitthvað um óviðráðanlegar skuldir og Sveinjón í gipsinu en skólafélaginn sagðist blása á slíkt. „Maöur lifir bara einu sinni," sagði hann glaðlega, „drífðu þig tO Amsterdam og skilaðu frá mér kveðju til stúlknanna í Rauða hverfinu!“ Hann hraðaði sér upp í næsta vagn. Jónína dreif sig á ferðaskrifstofuná og keypti sér miða til Amsterdam. Hún sagði af- greiðslustúlkunni að hana langaði eignlega ekki neitt. „En öllum fmnst að ég eigi að fara,“ bætti hún við. Óskemmtileg heimkoma Þegar Jónína kom heim tveimur vikum síðar komst hún að raun um að skuldasúpan var mun þykkari og bragðverri en áður. Hún hafði eytt langt um efni fram. Hún var búin að missa vinnuna og Sveinjón var kominn úr gipsinu og fluttur til sjúkraþjálfarans sem hafði hann í æfingum. Jónína brotnaði niður. Hún skildi ekki hvernig Sveinjón gat gert henni þetta. „Hvemig datt honum í hug að láta mig fara úr því að þetta var svona mikið mál? Hvers vegna lét fólk mig fara úr því að svona mikið var í húfi.“ Hún var öskureiðog sár. „Fann hún ekki til neinnar ábyrgðar sjálf?“ spurði viðmælandi Nökkva læknis. „Nei,“ sagði Nökkvi, „enda var þetta ekki henni að kenna heldur öllu þessu fólki sem ráðlagði henni að fara. „Mig langaði eiginlega aldrei til Amst- erdam," sagði Jónína. „En allir sem ég talaði við töldu mig á það.“ „Skilurðu núna af hverju ég vil ekki gefa neinum ráð?“ spurði Nökkvi. „Já,“ sagði viðmælandinn. „En finnst þér að ég eigi að skilja við konuna mína, skipta um bíl, kaupa mér nýtt hús, lita á mér hárið og flytja til Tælands?" „Hvaða svar viitu fá?“ sagðí Nökkvi og hallaði sér aftur í stólinn sinn og sofnaði nokkru síðar. Kr. 10.500 Vönduð albúm fylgja 10 myndir í stærðinni 9x12 2 stækkanir í stærðinni 13x18 Ljósmyndastofa Reykjavíkur Hverfisgötu 105, 2. hæð - s. 621166 LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA! ^JUMFEHOAR KÍNVCRSKA RÍKIS FJ ÓLLCIKAHÚ51P OG PHILLIP GANDEY KYNNA: TIL STYRKTAR UMSJÓNAR- FÉLAGI EINHVERFRA FORSYNING HÁSKÓLABÍÓ - 22. NÓVEMBER. w UPPSELT ÍÞRÓTTAHÖLLIN AKUREYRI - 23. NÓVEMBER. Miðasala í Leikhúsinu Akureyri. Sími 96-24073. HÁSKÓLABÍÓ 24. - 25. - NÓVEMBER. KL. 20:30. 26. - NÓVEMBER KL. 14:30 -17:30 - 20:30. Sala með greiðslu- Miðaverð í forsölu aðeins Kr. 1.500 í síma 99 66 33 r T'K'O I I ISLANDl Munið miðasölunaí Háskólabíói, í Kringlunni og Eymundsson Austurstræti. ^eppniída nsi^ 1994 ^ Sunnudaginn 27. nóvember 12-13 ára og 14-15 ára keppa í 4 og 4 dönsum Jafnframt verður keppní í einum dansi fyrir alla aldursflokka. % 16-18 ára 16 ára og eldri og atvinnumenn keppa í 5 og 5 dönsum Jafnframt verður keppni i einum dansi fyrír alla aldursflokka. Keppnin veröur haldin í íþróttahúsinu við STRANDGÖTU, HAFNARFIRÐI Keppnin hefst kl. 14.00. Húsið opnar kl. 13.00. Forsala aðgöngumiða hefst á keppnisstaö kl. 11.30 á keppnisdegi. Aögangseyrir: Börn Kr. 400 Fullorðnir Kr. 600 Sæti viö borð Kr. 1000 Dómarar keppninnar eru þrir og koma frá Noregi, Hollandi og Englandi. Dansráöið óskar eftir aö keppendur veröi komnir tímanlega i húsiö LATTU ÞIG EKKI VANTA! GÓÐASKEMMTUN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.