Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1995, Blaðsíða 19
LAllGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995
19
Bjóða íslendingum súpu
um verslunarmannahelgina
Gísli Þór Guðrtumdsson, DV, London:
„Við ætlum að leika trúöa og galdramenn á Norrænu til þess að
fá afslátt af fargjaldinu til íslands,“ sagði Krishnahópur sem blaða-
maður hitti nýverið á Glastonbury tónlistarhátíðinni í Englandi.
Viðmælendur DV sögðu að Hare Krishna hópurinn myndi ferðast
um England og Norðurlöndin í sumar og eiga viðkpmu á íslandi
í lok júlí. „Þetta er í fyrsta skipti sem við fórum til íslands og við
hlökkum mikið til. Við tökum vagninn okkar með en okkur vant-
ar uxa til þess að draga hann því við getum ekki flutt þá með
okkur. Sennilega verðum við þó að notast við hesta á íslandi."
Hópurinn fer gjarnan á sumarhátíðir og eldar þar súpu ofan í
gesti og gangandi til þess að hjálpa þeim að melta hugmyndir
Krishna. Hare Krishna félagarnir voru því að vonum glaðir í
bragði þegar þeir heyrðu að verslunarmannahelgin væri á næsta
leiti á íslandi.
Krishnamenn leggja í súpu.
uv-myndir Gísli Þór
faldar vinningslíkur!
Þu getur unnið helgarferð
Það mun reyna á afl þeirra íslensku hesta sem fá að draga þennan vagn
upp fjallshlíðarnar við Seyðisfjörð.
fyrir tvo til Bretlnnds
Sviðsljós
Leystu þrautina hér að neðan, sendu inn lausnina og þú ert með í
pottinum þegar dregið verður um HELGARFERÐ fyrir tvo til
Shrewsbury, á söguslóðir bróður Cadfaels.
Skartgripadrottningin
Fyrir fjórum árum var Petra Dör-
ing nýútskrifaður hagfræðingur og
atvinnulaus. Nú er hún ein ríkasta
kona Evrópu og kölluð skartgripa-
drottning álfunnar.
Petra er dóttir bakara í bænum
Vogelsberg fyrir utan Frankfurt.
Hún býr í London og er 48. í röðinni
á lista yfir 500 ríkustu aðila Bret-
lands.
Hún byrjaði með tvær hendur tóm-
ar að loknu háskólanáminu en var
haldin brennandi þrá til að hasla sér
völl í viðskiptum. Hún fékk lánaða
peninga hjá íjölskyldunni og fór að
velta fyrir sér möguleikum í útflutn-
ingi. Hún komst að því að enginn
hafði einbeitt sér að beinni sölu á
skartgripum. Þar með hófst Cabouc-
hon-ævintýrið. Núna eru starfs-
mennirnir í aðalstöðvum fyrirtækis-
ins í Middlesex fyrir utan London 500
og umboðsmennirnir í allri Evrópu
skipta þúsundum. Umboðsmennirn-
ir fara með skartgripina í heimahús
og á vinnustaði til að selja.
Cabouchonskartgripirnir þykja
glæsilegir og eftirlíkingárnar af
Cartier-, Gucci- og Tiffanyskartgrip-
unum eru sagðar á góðu verði. Petra
segir að alþýðan eigi að geta eignast
fallega skartgripi en ekki bara þeir
sem eru með vasana fulla af pening-
um.
Petra Döring hefur hagnast á sölu Hlébarðamynstrið hefur verið vin-
óekta skartgripa. sælt í ár.
Þrautirnar eru alls fjórar og birtast í DV ein af annarri fjóra fyrstu laugardaga í júlí.
Þú getur sent lausnir d þeim öllum og þd dttu nafnið þitt f jórum sinnum í pottinum.
Þraut nr. 4:
Liliwin vaknaði með andfælum í myrkrinu, heyrði auðþekkta rödd bróður Anselms,
sem leiddi sönginn í kórnum, og varð gripinn villtri óttatilfinningu af Ijóslifandi minn-
ingunni um þetta yndislega og hræðilega sem þau Rannilt höfðu gert saman. Þetta
sem var opinberun alsælu sem var sömuleiðis svo voðalegt og ófyrirgefanlegt guð-
last. Hér fyrir aftan altarið, í návist svo heilagra helgigripa, varð synd holdsins,
hversu eðlileg og mannleg sem hún gat verið úti á engi eða í kjarrskógi, að dauða-
synd og fordæm ingu. En nánasta ógnin var verri en fjarlægt snarkið í logum vítis.
Hann mundi hvar hann var og allt sem hafði gerst og skilningarvit hans, skörp af ógn
og skelfingu, þekktu athöfnina. Ekki aftansöngur! Náttsöngur! Þau höfðu sofið í
margar klukkustundir. Kvöldið var liðið, nóttin á næstu grösum.
Hann þreifaði um teppið með ógnþrunginni blíðu til að leggja hönd yfir varir
Rannilt og kyssti hana á vangann til að vekja hana. Hún glaðvaknaði samstundis.
Hann fann varir hennar brosa upp við lófann. Hún mundi, en ekki eins og hann; hún
fann ekki til neinnar sektar og hún var ekki hrædd. Ekki enn! Það var enn eftir.
í einni bókanna um bróður Cadfael, sem nefnist ATHVARF ÖREIGANS, er aS
finna ofanskráSa frásögn um unga elskendur.
HvaS hét húsmóSir Rannilt?
ÞRAUTNR.3
Svar: ___
Sendandi:
Heimili: -
Sími heima:
Sími á vinnusfað:
Sendið svörin til: BRÓÐIR CADFAEL - Úrvalsbækur - Þverholti 11-105 Reykjavík
FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
SfÓNVARPIÐ
EMERALD AIR
imngra fyrlr laogra vorO
Opið alla virka daga, laugardaga og sunnudaga kl. 8-21
Grunnfúavörn
Metró verð frá kr. 3621.
- Terpentína
Metró verð frá kr. 1431.
Metró innimálning
10% glans, verð frá kr. 5951.
Pallaolía, ljósgræn
Metró verð frá kr. 4731.
METRQ - Málarinn, Skeifunni 8,
sími 581 3500
ilé\METRÓ
miðstöð heimilanna
Metró útimálning
Verð frá 5851.
Filtteppi
Metró verð frá kr. 385 ferm.
METRfi - Hallarmúla 4,
sími 553 3331