Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1995, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995
32
\ Mánaðartekjur sjón-
varpspredikarans
1$ Bennys Hinns og
kirkju hans
* eru rúmar
100 millj-
A ónir ís-
lenskra
króna, að því
er greint er
frá í erlend-
um hlöðum. Meðal þeirra sem hafa
verið örlátir þegar þeim hefur verið
réttur safnaðarbaukurinn er fyrrum
hnefaleikakappinn Evander
Holyfield. Benny Hinn sann-
færði nefnilega Holyfield
um að kraftaverk
hefði læknaö
hannaf
hjart-
Sjónvarpspredikarinn Benny Hinn:
Þénar 100 mil/i ónir kr óna á mánuði
veikmm sem
neyddi hann til
að draga sig í
hlé frá
hnefaleik-
Sjónvarps-
predikarinn
Benny Hinn
sannfærði
hnefaleikakapp-
ann Evander
Holyfield um að
kraftaverk hefði
læknað hann af
hjartveiki. Að
launum hlaut
Benny ávísun
upp á rúmar 17
milljónir ís-
lenskra króna.
unum.
Eftir það
lá Holy-
field
kylliflat-
ur fyrir
fótum
sjónvarps-
predikarans
á samkomum
hans og varð
eiginlega aðal-
stjarnan á
samkomum
Hinns í
nokkrum
ríkjum
Banda-
ríkjanna
á síðasta
ári. Hvorki
Holyfield né
Hinn höfðu
íeyrt hvor af öðr-
um fyrr en hnefa-
leikakappinn sótti
eina samkomu Hinns
snemma í fyrra. í lok
samkomunnar gekk
Holyfield að sviðinu
eftir að Hinn hafði
hvatt samkomugesti
að nálgast sig. Haft er
eftir Holyfield að þeg-
ar hönd Bennys
Hinns hefði nálgast
hann hefði hann séð
skært ljós. Að sam-
komunni lokinni
rétti Holyfield Benny
Hinn ávísun upp á
17 milljónir og 200
þúsund krónur.
Læknar sem rann-
sökuðu Holyfield
eftir samkomuna
lýstu því yfir að
batamerki sæjust.
Þeir gátu ekki sagt
af hverju batinn
stafaði.
Ýmsir hafa gefið í
skyn að áhugi
Bennys Hinns á
Holyfield hafi
eitthvað haft að
gera með það
hversu mikið fé
Holyfield á inni í
banka, auk þess
sem nýta megi
frægð hans.
Holyfield gerir
lítið úr 17 milljónun-
um
um
r sem
hann gaf
kirkju
Bennys
Hinns og
kveðst hafa
gefið kirkju í Hou-
ston 100 milljónir.
Á kraftaverkasamkomun-
eru gestir minntir á það
að pundin, dollararnir, frank-
arnir og mörkin, sem þeir séu með
í vösunum, séu ekki gjaldgengir
gjaldmiðlar í himnaríki. Það sé ekki
hægt að kaupa sér______________
fríðindi fyrir handan.
Stungið er upp á því
að gestir losi sig við
þetta fé sem í lokin
verður hvort sem er
gagnslaust.
Samkomugestir eru
einnig hvattir til að
kaupa bækur Bennys
Hinns um trúarleg
málefni. Benny Hinn
spyr samkomugesti
hvort þeir hafi lesið
bækumar og þeir sem
ekki hafa lesið eru
spurðir hvort þeir
vilji ekki leggja hönd
á hjartað og lofa að fá
sér eintak.
Þe
‘
í
Aðalmið-
stöðvarnar
í Orlando á
Flórída
Aðalmiðstöðvar
Bennys Hinns eru í
Orlando í Flórída þar
sem hann stofnaði
World Outreach Cent-
er. Benny Hinn er titl-
aður prestur, kennari,
predikari og rithöf-
undur. Rúmlega tiu
þúsund manns sækja
samkomur kirkjunnar
í hverri viku, að sögn
starfsmanna Bennys
Hinns. Milljónir
manna eru sagðar
fylgjast með sunnu-
dagsguðsþjónustum
Bennys sem er sjón-
varpað. Benny stýrir
einnig daglega hálfrar
klukkustundar þætti
sem sjónvarpað er um
Ameríku, Kanada og
Evrópu.
Síðastliðin fimm ár
hefur Benny farið í
kraftaverkaferðir um
helstu borgir Banda-
ríkjanna, Evrópu,
Suður-Ameríku og
Asíu, að því er kemur
fram í upplýsingum
frá kirkju hans í Or-
lando. Sagt er að
Benny hafi komið ár
sinni sérstaklega vel
fyrir borð í Suður-Am-
eríku þar sem lútersk-
ir sjónvarpspredikar-
ar sækja mjög í sig
veðrið á kostnað kaþ-
ólsku kirkjunnar.
Mun streyma drjúgt í
sjóð hans úr vösum
fólks suður þar.
Benny Hinn á tveimur samkomum í 10.000 manna höll í Björgvin í Noregi:
Sannfærðumst eftir
kraftaverkin á f slandi
- segir Ingar Úkerlund, forstöðumaður safnaðarins í Björgvin
etta er engin múgsefjun.
Þetta er guðs andi sem
starfar svona. Þetta gerist
þegar fólk kemst í alvöru-
trú, segir Eiríkur Sigur-
björnsson, framkvæmdastjóri sjón-
varpsstöðvarinnar Omega, um
handaupplyftingar og söng þúsunda
íslendinga á samkomum sjónvarps-
predikarans Bennys Hinns í vik-
unni.
Presta íslensku þjóðkirkjunnar
vantar eld, að mati Eiriks. „Þeir
þurfa að fá að koma fram fyrir guð
og fá þessa upplifun. Það er ekki
nóg að læra bara fræðin utanbókar
í háskólanum. Þeir þurfa að eignast
afturhvarf og lifandi trú á Jesú og
trú á því sem þeir eru að predika.
Heimsókn Bennys
Hinns er hvatning til
allra presta að taka
þetta alvarlega, leita
guðs og fá smurningu
inn í sitt líf. Þá myndu
kirkjur landsins fyll-
ast.“
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Það eru stórir hlutir sem hafa
gerst hjá bræðrum okkar á íslandi.
Við fréttum af kraftaverkum Benn-
ys Hinns þar í fyrra og sannfærð-
umst um að þetta væri sannur
kraftaverkamaður. Það sama mun
hafa gerst aftur nú í vikunni á ís-
landi,“ segir Ingar Úkerlund, for-
stöðumaður safnaðarins Orð lífs-
ins í Björgvin í Noregi, í samtali
við DV.
Benny Hinn var á samkomu í
Björgvinjarhöllinni í gær og verð-
ur þar aftur í dag. Höllin tekur um
tíu þúsund manns í sæti og var
reiknað með húsfylli. Fólk frá Fær-
eyjum, Danmörku og Svíþjóð kom
gagngert til Noregs til að leita
ásjár hjá prédikaranum.
„Við höfum frétt að á íslandi
hafi lamað fólk kastað hækjunum
frá sér og staðið upp úr hjólastóln-
um eftir að Benny lagði hendur á
það. Blindir hafi fengið sýn og
daufir heyrn. Það er undursamlegt
að bræður okkar skuli hafa oröið
vitni að slíkum kraftaverkum
Guðs. Röðin var svo sannarlega
komin að okkur,“ sagði Úkerlund.
Söfnuðurinn í Björgv.in hefur
um nokkurt skeið gefið út prédik-
anir Bennys og fylgst náið með
verkum hans undanfarin ár.
Úkerlund sagði að Benny væri að
sínu viti mesti kraftaverkamaður-
inn sem nú væri uppi og sannar-
lega helgur maður.
Að sögn Ukerlunds eru það öll
helstu trúfélögin í Björgvin sem
standa að komu Bennys til bæjar-
ins. Þar munu vera um 90 söfnuðir
kristinna manna. Hann sagði að
sér kæmi á óvart að biskup ríkis-
kirkjunnar í Björgvin hefði nokk-
uð við prédikarann að athuga,
enda lægju fyrir vitnisburðir þús-
unda manna um að hann hefði í
raun og veru gert kraftaverk á
sjúku fólki.
„Peningar eru aukaatriði I þessu
sambandi. Það er enginn skyldað-
ur til að greiða Benny. Fólk styður
hann hins vegar með frjálsum
framlögum. Það eru einu greiðsl-
urnar sem hann tekur fyrir krafta-
verk sín,“ sagði Úkerlund.
Húsfyllir var í Laugardalshöll á samkomum Bennys Hinns. Norðmenn
reiknuðu einnig með mikilli aðsókn.
Hann vildi ekki kannast við að
söfnuðurinn í Björgvin borgaði
fyrir komu Bennys til Islands um
leið og hann hefði verið fenginn á
samkomurnar í Noregi.
„Við erum trúfólk en ekki fjár-
málamenn. Það er hins vegar gleði-
legt ef bræður okkar á íslandi hafa
notið góðs af komu kraftaverka-
mannsins til Noregs. Við rífumst
ef til vDl um fisk en fyrir guði
erum við bræður,“ sagði Úkerlund.
íslendingar eru
allir guðs börn
„íslendingar eru allir guðs börn.
Ég hef fundið góða strauma á ferð-
um mínum til íslands og átt góða
fundi með trúsystkinum mínum
þar,“ sagði sjónvarpspredikarinn
og kraftaverkamaðurinn Benny
Hinn á fundi í Noregi í gær. Þar
svaraði hann spurningum frá fjöl-
miðlum, meðal annars frá DV.
Benny hélt vakningarsamkomu
í Björgvinjarhöllinni í gær og verð-
ur með aðra samkomu í kvöld.
Mikill áhugi er fyrir Benny hér í
Noregi og hafa norskir trúmenn
haft greinargóðar fregnir af veru
hans á íslandi í ár og í fyrra.
Benny lét mjög vel af dvöl sinni
á íslandi og kvaðst tilbúinn að
heimsækja „eyjuna í norðri“
hvenær sem hans væri óskað og
það þótt sálir íslendinga væru ekki
margar.
„Ég varð áþreifanlega var við
DV-mynd JAK
hve íslendingar eru opnir fyrir
orði guðs. Það var góð stemning á
samkomunni þar. Víst gerðust
kraftaverk þar fyrir guðs vilja en
ég vil ekki sjálfur dæma um hvort
nokkur fékk varanlega bót meina
sinna. Það er lækna að dæma um
slíkt,“ sagði Benny.
Fjármál sín ræðir hann ekki op-
inberlega og vildi ekki svara
spurningum DV þar að lútandi.
Peningar en ekki trú
„Við hér hjá kirkjunni í Björg-
vin höfum ekkert með þennan
mann, Benny Hinn, að gera. Ég
ætla ekki að dæma um verk hans
en það ber almennt séð að gjalda
varhug við mönnum sem ferðast
um og þykjast gera kraftaverk. Oft
snýst slík starfsemi um peninga en
ekki trú. Það er grátlega auðvelt að
hafa peninga út úr sjúku fólki með
loforðum um skjóta lækningu,"
segir Halstan Bondevik, biskup í
Björgvin í Noregi, í samtali við
DV.
Biskupinn sagðist ekki vilja
ganga svo langt að kalla Benny
Hinn falsspámann því hann þekkti
ekkert til verka hans. „Almennt
séð eru slíkir farandprédikarar
varhugaverðir, án þess að ég vilji
þar með dæma Benny Hinn sér-
staklega sem falsspámann,“ sagði
Bondevik.
Sá mörg
kraftaverk
í Laugardals-
höll
Það var líka guðs andi
sem sá til þess að
kraftaverkin létu ekki
á sér standa, að sögn
Eiríks. „Ég sá margt.
Fólk sagði frá því að
fóta- og bakverkir
hefðu horfið. Það var
svertingi sem kom
þama og sagði frá því
að hann hefði læknast
í baki. Þeir sem voru
nærstaddir sögðu frá
því að hann hefði
greint frá því að
tengdamamma hans
hefði skotið á hann
fyrir nokkrum árum.
Þarna um kvöldið
gerði hann upp hug
sinn og tók tengda-
móður sína í sátt og
þar með hvarf verkur-
inn. Það var þarna
maður frá Pakistan
sem snerist frá sinni
múslímatrú og meðtók
Jesú Krist sem frels-
ara. Þegar hann sá
hvað var að gerast
varð hann sannfærður
um það að þessi Jesús
Kristur væri ekki í
gröfinni heldur lif-
andi. Þessi Pakistani
ætlar nú að boða fegn-
aðarerindið."
Frelsaðist
sjálfur
fyrir tuttugu
árum
Sjálfur frelsaðist Ei-
ríkur, sem var óreglu-
maður, fyrir um það
bil tuttugu árum.
Hann rekur nú kristi-
legu sjónvarpsstöðina
Omega og það var
vegna þess starfs sem
hann kynntist Benny
Hinn. „Ég fékk þátt
frá Bandaríkjunum
þar sem sjónvarpað
var frá samkomu
Bennys. Við sýndum þáttinn og
fengum mikil viðbrögð. í þættinum
var sýnt þegar fólk stóð upp úr
hjólastólum. Það var sagt frá krafta-
verkum þegar blindir fengu sýn og
krabbameinssjúkir læknuðust. Ég
hitti svo Benny þegar ég var á ferð
í Bandaríkjunum í febrúar 1994.
Hann varð mjög hrifinn er ég sagði
honum frá því að ég hefði sýnt frá
samkomu hans og hann spurði
hvort ég gæti ekki útvegað honum
stærsta samkomuhúsið á íslandi.
Hann kom svo hingað í ágúst í fyrra
og það var allt troðfullt í
Kaplakrika. En þá þekktu menn
ekki Benny Hinn og kölluðu hann
loddara," segir Eiríkur.
Fjölskyldan sneri
baki við honum
Benny Hinn er fæddur í ísrael en
flutti ásamt fjölskyldu sinni til
Kanada 17 ára. Þar hitti hann fólk
sem bauð honum á samkomur. „Það
endaði með því að hann komst til
lifandi trúar á Jesú og fljótlega eftir
það talaði guð til hans að hann ætti
að fara og predika. En hann gat ekki
talað því hann stamaði svo mikið.
Foreldrar Bennys voru aldir upp í
ströngmn gyðingdómi og það var
mikil skömm fyrir íjölskylduna þeg-
ar Benny snerist í trúnni. Hann var
hafður úti í horni. Benny byrjaði að
predika þrátt fyrir stamið en þá
kom kraftur guðs yfir hann og
smurning og hann varð altalandi. Á
einni samkomunni var honum sagt
að foreldrar hans væru viðstaddir
og hann fraus. En allt gekk vel.
Benny var ekki reiðubúinn að ræða
við foreldrana að samkomunni lok-
inni og kom seint heim um nóttina
til að vera viss um að þeir væru
sofnaðir. En faðir hans vakti eftir
honum og sagðist vilja eignast
þennan Jesú sem Benny hafði ver-
ið að predika um.“
Eins og sleginn með
planka í höfuðið
Þeir sem enn efast velta því fyrir
sér hvort það sé ekki múgsefjun eða
leikaraskapur þegar fólk fellur við
það eitt að Benny Hinn réttir út
höndina eða blæs á það á samkom-
um. „Allan daginn fyrir samkomu
er Benny Hinn í bæn frammi fyrir
guði. Það finnst alveg i kringum
hann mikil nærvera guðs. Það er
undan krafti guðs sem menn falla.
Maður les um það í biblíunni að
þeir sem komu nálægt nærveru
guðs gátu ekki staðið. Meira að
segja Gunnar Þorsteinsson hjá
Krossinum, sem ekki er mikið fyrir
að flíka sínum tilfinningum, steinlá
þegar Benny Hinn rétti út höndina
og bað fyrir honum. Hann sagði að
það hefði verið eins og hann hefði
verið sleginn með planka í höf-
uðið. En það fylgir þessu
velliðan."
Það var í fyrra sem Eiríkur kynntist Benny Hinn í Bandaríkjunum. Nokkrum
mánuðum síðar kom Benny til íslands.
fslendingar kunna
ekki að gefa
Benny er svo hrifinn af landi og
þjóð að hann kom hingað á eigin
kostnað. En hann lét samskotabauk
ganga um á samkomunni. Halaðist
þá ekki inn talsvert fé?
„Nei, íslendingar kunna ekki að
gefa. Það kom eitt-
hvað inn en
okkur sýndist það ekki mikið. Fólk
er miklu opnara í Bandaríkjunum
og annars staðar en þetta er allt að
koma hjá okkur.“
Þó svo að bandarískir samkomu-
gestir séu rausnarlegir er það skoð-
un Eiriks að Benny Hinn sé ekki
auðugur. „Það er mikill kostnaður
við trúboðið. Þeir hafa greitt fullu
verði það sem þeir eiga. Hann hefur
borgað fullt verð fyrir það sem guð
hefur gefið honum. Hann er prest-
ur sem guð hefur blessað ríku-
lega. Hann er með söfnuð í Or-
lando í Flórída. Hann byrjaði
fyrir nokkrum árum með fá-
mennan hóp en nú er söfn-
uðurinn á sjöunda þús-
und.
Eiríkur Sigurbjörns-
son, sem rekur sjón-
varpsstöðina
Omega, frelsaðist
fyrir 20 árum.
DV-mynd JAK