Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1995, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1995, Side 43
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995 51 Afmæli Einar Ámason Einar Kristján Gunnlaugur Árna- son, fyrrv. flugstjóri og útgerðar- maður, Skúlagötu 40A, er sjötugur ídag. Starfsferill Einar fæddist í Landakoti í Sand- gerði og ólst upp við almenn land- búnaðarstörf ogfiskvinnslu. Hann gekk í kvöldskóla í Sandgerði 1940-41, sótti mótomámskeiö í Reykjavík 1942, stundaði flugnám við Spartan School of Aeronautics í Tulsa í Oklahoma í Bandaríkjunum 1946-47 og við Air Service Training í Southampton á Englandi 1951-52 og hlaut aö því loknu bresk flug- stjórnarréttindi hin meiri og rétt- indi sem flugleiðsögumaður. Einar var flugmaður hjá Loftleið- um hf 1947-48 og flugstjóri þar 1948-64 er hann sneri sér að útgerð. Hann var forstjóri og aðaleigandi útgerðarfélagsins Borgarkletts hf. 1962-71 ogBúðakletts hf. 1963-69 en hann átti og gerði út Árna Magnús- son GK 5 og Arnar RE 21. Þá stofn- aði hann útgerðarfyrirtækið Sjóla hf. 1964 ásamt Eggert Gíslasyni skipstjóra og var stjórnarformaður þess. Þeir gerðu Gísla Áma RE 375 út í sameiningu til 1985. Einar var formaöur FÍ A1953-54 og sat í stjóm Loftleiöa hf. frá 1953 og síðar Flugleiða hf. allt til 1988. Fjölskylda Einar kvæntist 5.4.1963 Maríu Bergmann, f. 12.9.1935, skriftar- greini-MGA. Börn Einars og Maríu eru Gylfi Björn, f. 18.3.1964; Hafsteinn Gaut- ur, f. 8.4.1965, viðskiptafræðingur; Helma Rut, f. 7.12.1967, MA í sálar- fræði. Dóttir Einars og Helgu Berndsen er Guðrún Magdalena, f. 29.8.1957, húsmóðir, gift ívari Bjarnasyni og eigaþautvöbörn. Alsystkini Einars eru Ásta, f. 1.1. 1922, húsmóðir og hstakona í Kefla- vík; Óskar, f. 23.9.1923, útgerðar- maður í Sandgerði; Sigríður, f. 8.3. 1927, d. 2.7.1989, starfsstúlka á sím- stöðinni á Keflavíkurflugvelli; Árni, f. 26.5.1930, d. 1.4.1993, vélstjóri Og útgerðarmaður í Sandgerði. Hálfsystkini Einars, samfeðra, eru Sveinbjörg, f. 31.12.1909, húsmóðir í Reykjavík; Sigurbjörn, f. 25.7.1914, d. 17.4.1986, vélstjóri; Magnea og Arnar sem létust tuttugu og tveggja og tuttugu og þriggja ára. Foreldrar Einars voru Árni Magn- Ússon, f. 7.8.1886,19.3.1966, útvegsb. í Landakoti í Sandgerði, og Sigríður Magnúsdóttir, f. 17.2.1887, d. 24.7. 1961, húsfreyja. Ætt Árni var sonur Magnúsar, út- vegsb. í Sandgerði, Eyjólfssonar, á Ytri-Sólheimum, Eyjólfssonar. Móð- ir Magnúsar var Steinunn Magnús- dóttir. Móðir Árna var Vilborg Berents- dóttir, b. í Mörtungu, Oddssonar. Móðir Vilborgar var Málfríður Ól- afsdóttir, b. á Eyjarhólum, Högna- sonar og Ingveldar Jónsdóttur. Sigríður er dóttir Magnúsar, b. í Geitagili, Einarssonar, vinnumanns Einarssonar, hreppstjóra á Hnjóti, Einarssonar, ættfoður Kollsvíkur- Einar Kristján Gunnlaugur Árna- son. ættarinnar, Jónssonar! Móðir Magnúsar var Sigríður Magnús- dóttir, hreppstjóra á Hvalskeri, Ein- arssonar og Guðríðar Bjarnadóttur frá Hnjóti. Móðir Sigríðar var Berg- ljót Gunnlaugsdóttir Björnssonar og Júhönnu Jónsdóttur. Einar verður að heiman á afmæl- isdaginn. Til hamingju með afmælið 22. júlí 85 ára Benedikt Þorvaldsson, Álftarima 11, Vestmannaeyjum. 80ára Benedikt Þorvaldsson, Dvergbakka 4, Reykjavík. 75ára_______________ Sverrir Ámason, Viðilundi 16d, Akureyri. Sigurbjörg Pálsdóttir, Laufskálum 1, Borgarbyggð. 70ára Sigurbjörg Svanhvít Stendórs- dóttir, Borgarheiði 17, Hveragerði. Kristinn Þórir Einarsson, Eyrarstíg 3, Reyðarfirði. Páll Halldór Guðmundsson, Reynimel 60, Reykjavík. Hanna Kristjánsdóttir, Silungakvísl 19, Reykjavík. 60 ára_________________ Ólafur Ágústsson, Litluvöllum 9, Grindavik. .Sesselja Friðriksdóttir, Skipasundi 88, Reykjavik. Bergljót Sigurbjörnsdóttir, Fjarðarseli 19, Reykjavík. Bergljót verður heima og vonast eftir að sjá sem flesta vini og ætt- ingja á afmælisdaginn. Elsa Guðmundsdóttir, Hörðalandi 10, Reykjavík. 50 ára Eygló Ingimarsdóttir, Hólabraut 3A, Hrísey. 40 ára Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Smárahvammi 1, Hafnarfirði. Valmundur Ingi Pálsson, Hverafold 8, Reykjavik. Sigurborg Jóna Hilmarsdóttir, Álftamýri 28, Reykjavík. Björgvin Rúnar Leifsson, Garðarsbraut 31, Húsavík. Karl Sigurðux Sigurðsson, Háaleitisbraut 51, Reykjavík. Dagbjört Eysteinsdóttir, Vallholtsvegi 7, Húsavík. Sigurvin Bjarnason, Aflagranda 15, Reykjavík. Erlingur Hreinn Hjaltason, Leirubakka 6, Reykjavík. Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Bjargarstíg 6, Reykjavik. Ólöf Guðnadóttir, Götu, Hrunamannahreppi. Katla Gunnarsdóttir, Hagamel45, Reykjavík. Gunnar Rafn Guðmundsson Gunnar Rafn Guðmundsson vél- virki, Hálsaseli 37, Reykjavík, er sextugurídag. Starfsferill Gunnar fæddist á Patreksfirði og ólst þar upp. Þar læröi hann vél- virkjun og starfaði nokkur ár hjá Loga hf. Arið 1966 flutti hann til Reykjavíkur og hóf þá störf hjá Ormsson hf. við lyftuuppsetningar og viðgerðir. Um 1970 byijaði hann að vinna hjá Raflyftum sf. og hefur hann starfað þar síðan. Árið 1968 kynntist Gunnar Guðrúnu Jóns- dóttur en þau h'afa alla tið búið í Reykjavík. Fjölskylda Gunnar kvæntist 25.7.1970 Guð- rúnu Jónsdóttur, f. 26.3.1940, kaup- konu. Foreldrar hennar eru Jón Þorgrímsson og María I. Hjálmars- dóttir sem bjuggu að Ytri-Húsa- bakkaíSkagafirði. Böm Gunnars og Guðrúnar eru Jóhanna, f. 2.7.1969, búsett í Reykja- vík, gift Benedikt Amarsyni, barn hennar er Jón Gunnar Mikaelsson, f. 22.12.1987; Jón, f. 4.12.1970, búsett- ur í Reykjavík, kvæntur Sigríði Lilju Samúelsdóttur og er barn þeirra Sigrún María, f. 9.5.1995. Gunnar Rafn Guðmundsson. Systkini Gunnars em Björn, f. 20.9.1930, búsettur á Patreksfiröi; Halla, f. 21.3.1932, hefur búið í Reykjavík síðustu árin en áður á Patreksfiröi; Svala, f. 20.12.1930, hefur búið í Reykjavík síðustu árin en áður á Patreksfirði. Foreldrar Gunnars eru Guðmund- ur Gestsson, f. 3.7.1901, d. 19.1.1982, og JóhannaPálsdóttir.f. 17.1.1907. Þau voru búsett á Patreksfirði þar sem Jóhanna hefur dvalið á sjúkra- húsinusíðustuárin. Sigurbjörg Bjömsdóttir Sigurbjörg Björnsdóttir heildsali, Hjallabrekku 12, Kópavogi, er fimm- tugídag. Starfsferill Sigurbjörg fæddist að Fremri- Gufudal í Austur-Barðastrandar- sýslu 22.7.1945 og ólst þar upp til átta ára aldurs, fluttist þá að Hrafnadal og síöar að Fjarðarhomi í Bæjarhreppi í Strandasýslu. Til Reykjavíkur fluttist Sigurbjörg 1959 og býr hún nú í Kópavogi. Sigurbjörg lauk landsprófi frá Vogaskóla og var einn vetur í hús- mæðraskólanum að Staðarfelli í Dölum. Hún lauk stúdentsprófi frá öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð 1982 en einnig hefur hún stundað nám í bókasafns- og upplýs- ingafræðum við Háskóla íslands. Hún hefur rekið heildverslunina Hrísnes hf. síðan 1988. Fjölskylda Sigurbjörg giftist 1965 Höskuldi R. Stefánssyni, f. 5.4.1941, d. 18.7. 1988, rafvélavirkja og eiganda Hrís- ness hf. Börn þeirra era Valbjöm Jón, f. 19.2.1965, vélstjóri og iönrekstrar- fræðingur, kvæntur Hrönn Önund- ardóttur hjúkrunarnema og eru börn þeirra Heiða Björg, f. 15.1.1988, og Hörður Freyr, f. 31.1.1990; Stefán Rúnar, f. 11.7.1972, nemi við Tækni- skóla íslands; Þröstur Þór, f. 11.5. 1976, nemi við Menntaskólann í Kópavogi. Álsystkini Sigurbjargar era Lýður sagnfræðingur, Ólafur Gísli inn- heimtumaður og Elínborg Þuríður, starfsstúlka á Landspítalanum. Hálfsystkini Sigurbjargar, sam- mæðra, eru Eyrún Sigríður og Odd- ur. Eru þau bæði látin. Uppeldis- bróðir Sigurbjargar og sonur Ey- rúnar er Örn Grundfjörö. Foreldrar Sigurbjargar voru Val- gerður, f. 17.7.1902, dóttir Andrésar Sigurðssonar og Guðrúnar Jóns- dóttur sem bjuggu að Gullþórisstöð- Sigurbjörg Björnsdóttir. um í Þorskafirði í A-Barðastranda- sýslu og Björn, f. 28.7.1905, sonur Lýðs Sæmundssonar, bónda og smiðs í Bakkaseli í Standasýslu, og Elínborgar Daníelsdóttur. Sigurbjörg tekur á móti gestum að heimili sínu á afmælisdaginn eft- irkl. 18. Kári Tryggvason Kári Tryggvason, rithöfundur og fyrrv. kennarj, Kópavogsbraut 1A, íbúð 122, Kópavogi, verður níræður ámorgun. Starfsferill Kári fæddist í Víðikeri í Suöur- Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Hann stundaði nám í unglingaskóla á Breiðumýri 1923-24, við Gagn- fræðaskólann á Akureyri 1924-25 og við Héraðsskólann á Laugum 1925-26. Kári var bóndi í Víðikeri 1928-54, kennari í Bárðdælaskólahverfi 1928-54, kennari og umsjónarmaður í barna- og miðskólanum í Hvera- gerði 1954-70 og kennari í Reykjavík 1970-73. Kári var formaður sjúkrasamlags Bárðdæla, sat í hreppsnefnd og var formaður lestrarfélags Bárðdæla- hrepps. Út hafa komið eftir Kára eftirfar- andi ljóðabækur: Fughnn fljúgandi (barnaljóð), 1943; Yfir Ódáðahraun, 1948; Skólarím, vísur eftir Kára og nemendur hans, 1948; Hörpur þar sungu, 1951; Sunnan jökla, 1968; Til uppsprettunnar, 1972. Þá valdi hann efni í Sjötíu ljóð, 1975, og Ferskeytl- una,útg. 1988 og 1993. Barnasögur eftir Kára eru Álfar og rósir, skólastílar 1950; Dísa á Grænalæk, 1951 (2. útg. 1959 og3. útg. 1970); Riddararnir sjö, 1951; Suðræn sól, 1952; Dísa og sagan af Svartskegg, 1960; Veislugestir, 1960; Dísa og Skoppa, 1961; Sísí, Túkú og apakettirnir, 1961; Skemmtilegir skóladagar, 1962 (2. útg. 1972); Palli ogPési, 1963; Ævintýraleiðir, 1963; Dísa og ævintýrin, 1965; Jökull og Mjöll, 1965; Björn á ferð og flugi, 1970; Íílla horfir á heiminn, 1973 (2. útg. 1982); Börnin og heimurinn þeirra, 1977. Hann hlaut verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir bók- ina Úlla horfir á heiminn. Fjölskylda Kári kvæntist 30.8.1930 Margréti Björnsdóttur, f. 14.1.1907, kennara. Hún er dóttir Björns Pálssonar, gullsmiðs á Refstað í Vopnafirði, og k.h., Rannveigar Nikulásdóttur húsfreyju. Dætur Kára og Margrétar eru Hildur, f. 22.8.1933, leiðbeinandi við dagdeild í Sunnuhlíð í Kópavogi, gift Gísla Eyjólfssyni stýrimanni, nú starfsmanni í Straumsvík, og eiga þau þrjú börn; Sigrún, f. 20.8. 1936, húsfreyja í Tástrup í Dan- mörku, gift Finn Sveinsson, tækni- manni sjónvarpsins í Kaupmanna- höfn, og eiga þau tværcjætur; Rann- veig, f. 14.11.1938, kennari í Reykja- vík, og á hún einn son; Áslaug, f. 22.3.1941, ritari hjá Samskipum, og á hún eina dóttur, gift Erlendi Lár- ussyni, forstjóra Tryggingaeftirlits ríkisins. Systkini Kára era: Helga, hús- freyja í Reykjavík; Höskuldur, nú látinn, b. á Bólstað í S-Þingeyjar- sýslu; Hörður, nú látinn, b. í Svart- árkoti í Bárðardal; Egill, nú látinn, hreppstjóri í Víðikeri; Kjartan, b. í Víðikeri; Sverrir, b. í Víðihlíð í Mý- vatnssveit. Foreldrar Kára vora Tryggvi Guðnason, f. 9.11.1876, d. 29.10.1937, b. í Víðikeri og deildarstjóri KÞ1 Kári Tryggvason. Bárðardal, og k.h., Sigrún Ágústa, f. 2.10.1878, d. 1958, húsfreyja. Ætt Tryggvi var sonur Guðna, b. á Brenniási, Sigurðssonar, b. í Stafni, Sigurðssonar. Móðir Guðna var Guðrún Tómasdóttir, b. á Kálfa- strönd, Jónssonar, b. á Kálfaströnd, Tómassonar, b. á Landamóti, Ólafs- sonar, prests á Landamóti, Jónsson- ar, prests á Þóroddsstað, Þorgríms- sonar, prests á Þóroddsstað, Ólafs- sonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún Jónsdóttir, ættfóður Mýrarættar- innar, Halldórssonar. Sigrún Ágústa var dóttir Þorvalds, b. í Villingadal í Eyjafirði, Ámason- ar. Kári og Margrét veita móttöku ættingjum og vinum í sal þjónustu- kjarna Sunnuhlíðar, Kópavogs- braut 1A, sunnudaginn 23.7., kl. 16.00-19.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.