Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Síða 46
50
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995
Þau lesa undir próf í Þjóðarbókhlöðunni
Ekki eru allir á kafi í smáköku-
bakstri eöa jólagjafainnkaupum þó
að óðum styttist til jóla. Nú er sá
tími sem jólaprófin standa yfir í
mörgum skólum. Sumir taka fá
próf og eru jafnvel búnir um þetta
íeyti en margir verða alla næstu
viku einnig. Flestir læra trúlega
heima hjá sér en í Þjóðarbókhlöð-
unni er fullt út úr dyrum þessa
dagana. Námsmenn flykkjast þang-
að til að lesa. Það er forvitnilegt að
vita hvers vegna nemendur kjósa
að læra þar. Heigarblað DV hitti
nokkra hressa framhaldsskóla-
nema að máli í Þjóðarbókhlöðunni
í vikunni. Allir voru þeir í
próflestri en gáfu sér þó tíma fyrir
stutt spjall. Vonandi koma tafirnar
ekki niður á árangrinum. -ÞK
Meira nammi en venjulega
I anddyrinu í Þjóöarbókhlöðunni
sat Selma Hafliðadóttir, nemi á
þriðja ári í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, og hvíldi sig. Hún tók
því vel að vera trufluð dálitla stund.
„Þetta er fyrsti dagurinn minn
hérna í Þjóðarbókhlöðunni. Ég kom
klukkan níu og ætla að vera til
klukkan fimm. Þetta er önnur pásan
sem ég tek mér í dag. Mér líst bara
vel á að vera hérna,“ sagði hún
klukkan hálffjögur síðdegis þegar
tíðindamenn Helgarblaðsins voru á
ferðinni.
„Þegar ég er heima fer ég alltaf að
gera eitthvað annað en að læra, tala
í símann, hlusta á tónlist eða bara
taka til í herberginu mínu,“ sagði
Selma þegar hún var spurð hvers
vegna hún kysi að læra í Þjóðarbók-
hlöðunni frekar en heima hjá sér.
Selma sagði að frekar margir væru
úr hennar skóla í Þjóðarbókhlöð-
unni að læra.
- Ertu stressuð fyrir prófin?
„Nei, ég er ekkert stressuð, þetta
er ekkert svo erfitt enda fer ég bara
í fiögur próf.“ Hún sagðist vera að
læra fyrir þýsku og stærðfræði og
það væri nóg að læra.
- Borðarðu eitthvað sérstakt með-
an þú ert i prófum?
„Það er þá helst að mig langi
meira í nammi en á öðrum tímum
og ég læt það bara eftir mér,“ sagði
Selma og brosti. -ÞK
Selma Hafliðadóttir, nemi á þriðja ári í MH, sagðist ekkert vera stressuð fyr-
ir prófin. DV-mynd BG
Frá níu á morgnana til
tíu á kvöldin
Kristján Örn Kjartansson, nemi í 6. bekk í MR,
náttúrufræðideild, var spurður hvers vegna hann
kysi að læra í Þjóðarbókhlöðunni fyrir prófin
fremur en heima hjá sér. „Mér finnst þægilegt að
læra hérna, maður verður ekki fyrir neinum trufl-
unum og heldur sig betur að náminu. Ég kom líka
hingað í fyrra. Ég kem klukkan níu á morgnana og
er tii tíu á kvöldin, það er svo mikið að læra. Mað-
ur þarf líka að koma klukkan níu til aö fá sæti.
Prófin eru frá níu til hálfellefu þá daga sem þau
eru.
Það er einn galli við þetta hérna, það er bara
opið til klukkan fimm á laugardögum og lokað á
sunnudögum. Við þurfum að læra þá daga eins og
aðra daga þegar við erum í prófum."
- Hvaða námsgreinar finnst þér erfiðastar?
„Það er ekki gott að segja, náttúrufræðin er erf-
ið og stærðfræðin en hún er ekki verst. Það er
mismikið námsefni eftir greinum, t.d. er mjög
mikið að lesa í íslensku, sögu og náttúrufræði."
- Hvernig finnst þér þessi tími sem prófin
standa yfir?
„Mér finnst þetta góður tími, ég er
náttúrlega stressaður eins og allir en
það er ekkert verra. Ég fer í göngu-
ferðir annað slagið. Þetta er samt
mjög erfitt og maður verður auðvit-
að þreyttur."
- Ertu með einhverja sérvisku eða
fastar venjur í prófum?
„Ég er alltaf með sama hálsmenið,"
sagði hann „ég hef það bara undir peys-
unni."
- Nú ert þú i sjötta bekk, ertu búinn að
ákveða hvað tekur við?
„Já, ég ætla í arkitektúr í Danmörku," sagði
Kristján Örn og þar með var pásan búin.
-ÞK
Kristján Orn Kjartansson með hálsmenið góða
sem hann hefur í prófunum. DV-mynd BG
Ekki hægt að fá tíu
í félagsfræði
Ámundi Óskar Johansen sagð
ist vera á fyrstu önn í
Menntaskólanum við
Hamrahlíð.
- Kemur þú oft hingað
að læra?
„Ég kom hingað fyrst
þegar ég var í samræmdu
prófunum og finnst þægilegt
að læra hérna, núna kem ég á
hverjum degi,“ sagði hann og
fannst ekkert mál að
gefa sér tíma fyrir
örstutt spjall.
„Ég fer í
sjö próf og
fyrsta prófið
er í félags-
fræði. Hún
er erfið,
það er
ekki
hægt að
fá tíu í
henni.
Það
eru
að
mikið að læra að það veitir
ekki af.“
Kvíðirðu fyrir prófun-
um?
„Nei, ekki mikið, ég
kvíði svolítið fyrir fé-
lagsfræðinni, hún er
fyrst.“
Ámundi Óskar sagði að
bestu íogin sín væru danska
og enska en það var ekki að
sjá á honum að hann
tæki þetta nærri sér.
Hann sagðist
' eyndar stefna að
góðum árangri
og það sást
á honum
að það
gengi
- eftir.
I Ӄg
K reyni
m að
II fara
á
Ámundi Óskar Johansen sagðist kvíða svolítið fyrir félagsfræðinni.
DV-mynd BG
minnsta kosti 160 blaðsíður sem þarf að
lesa og svo glósurnar. Það geta verið
fiórar blaðsíður af glósum úr einum
tíma.“
- Ertu lengi í einu hérna að læra?
„Svona tólf tíma á dag, það er svo
sund annað slagið,“ sagði hann þegar
hann var spurður hvort hann gerði eitt-
hvað sérstakt fyrir sjálfan sig meðan
hann væri í prófunum.
-ÞK
Eg kem
hingað daglega
„Ég kem hingað daglega meðan ég er í próf-
unum. Það er mjög gott að læra hérna, góð að-
staða, maður verður heldur ekki fyrir truflun-
um. Það er vinsælt hjá krökkum í prófum að
fara að taka til i herberginu sínu til dæmis,"
sagði Sigríður Pétursdóttir, nemi á fyrsta ári í
Menntaskólanum i Kópavogi, sem tók því ljúf-
mannlega að vera trufluð. „Prófin byrjuðu síð-
asta mánudag og eru búin mánudaginn 11. des-
ember.“
- Er ekkert erfitt að fá sæti hérna?
„Ég fékk ekki sæti áðan, það eru svo margir
hérna. Ef maður hefur sæti þarf maður að fá
miða ef maður skreppur frá, annars missir
maður sætið."
Þggar Sigríður var spurð hvernig henni liði
í prófunum sagðist hún vera frekar stressuð.
„Ég fer í göngutúra annað slagið og ætli ég
læri ekki svona 3-4 tíma á dag.
- Vantar þig ekkert að heiman þegar þú ert
að læra hérna?
„Jú, núna vantar mig til dæmis enska orða-
bók. Ég er einmitt að fara að athuga hvort
mamma getur komið með hana, hún ætlaði að
koma hingað á eftir.
- Eru margir úr þínum skóla hérna?
„Ég hef séð einn en þeir eru örugglega
fleiri.“ -ÞK
.4; V
Lv siííittiW
Sigríður Pétursdóttir sagði að sig vantaði enska orðabók að heiman.