Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995
erlent fréttaljós
51
Rússneskir þingmenn fá ekki fína einkunn í iok fyrsta kjörtímabilsins:
Sfðasti þingfundurinn í
Dúmunni, neðri deild rússneska
þingsins, var haldinn í gær. Tveggja
ára kjörtímabil er á enda og ganga
Rússar til kosninga sunnudaginn
17. desember. Það þykir vægt til
orða tekið þegar sagt er að þing-
haldið og líf þingmanna hafi ein-
kennst af sérkennilegum uppákom-
um. í þinginu hafa menn rifist heift-
arlega, slegist og mundað byssur.
Næturlöng partí og slagsmál hafa
séð rússneskum dagblöðum fyrir
efni. Fjórir* þingmenn hafa verið
myrtir á kjörtímabilinu og sprengja
sprakk á skrifstofu eins þeirra í vik-
unni.
Þegar uppákomur þessar eru
hafðar í huga er ekki að furða þó
Rússar hafi ekki mikið álit á þing-
mönnum sínum. Sjónvarpsfrétta-
kona, sem fjallaði um þingstörfin
síðastliðin tvö ár, sagði að erfitt
væri að finna Rússa sem væri
ánægður með sína fulltrúa á þingi.
Sagði hún að kannski kæmi sá dag-
ur að kjósendur gætu dáð og virt
þingmenn en ýmislegt þyrfti að
breytast til að svo yrði. En meðan
síður dagblaðanna eru fullar frá-
sagna af villtum partíum og slags-
málum þingmanna þykir vonin lítil.
Rifist en ekki sett lög
Kannski er til of mikils ætlast af
hinu unga lýðræðisríki sem Rúss-
land er. Boris Jeltsín forseti beitti
skriðdrekum til að berja niður
valdaránstilraun harðlínumanna úr
röðum kommúnista í október 1993. í
desember sama ár var efnt til kosn-
inga og þingið varð til. Umbóta-
flokkurinn Valkostur Rússa fékk
flest hinna 450 þingsæta sem voru
til skiptanna. Fjöldi þjóðemsissina
og kommúnista náði einnig kjöri.
Þeir hafa síðan gert Jeltsín og ríkis-
stjórn hans lífið leitt.
Lögmenn hafa margir kvartað
yfir því að í stað þess að setja lög
hafi þingmenn eytt tíma þingsins í
að halda ræður sjálfum sér til dýrð-
ar eða til að úthúða ríkisstjórn og
andstæðingum sínum.
Þó þingmenn hafi sumir hverjir
hegðað sér skynsamlega og sam-
staða hafi náðst um sum málefni, til
að mynda fjárlögin á dögunum, þá
hefur almenn hegðun þingmanna
verið langt frá því til fyrirmyndar.
Tók starfssystur
sína hálstaki
í september kom hægri maðurinn
Nikolai Lysenko af stað heiftarlegu
rifrildi og slagsmálum í þinginu.
Hann þreif krossmerki úr siifri af
hempulausum rétttrúnaðarpresti og
þingmanni fjálslyndra, Gleb Yakun-
in. Þjóernissinninn og samkvæmis-
ljónið Vladimir Zhirinovsky var
ekki lengi að blanda sér í málin.
Hann þreif gleraugun af einni
starfssystur sinni sem reyndi að
skakka leikinn, tók hana hálstaki
og hárreitti. Myndir af þessari upp-
ákomu voru sýndar í sjónvarpi um
heim allan og Rússar voru frá sér af
skömm og hneykslun.
Zhirinovsky var ekki kjaftstopp
frekar en fyrri daginn og sagði sigri
hrósandi: „Því meira hneyksli, því
fleiri atkvæði".
Forseti þingsins, Ivan Rybkin,
neyddist til að gefa þingmönnum
ákúrur í síðasta mánuði þar sem
þeir komu vopnaðir til vinnu. Hann
sagði engan vera hrifinn af slíkum
tilburðum. En þingmönnunum er
kannski vorkunn enda hafa fjórir
þingmenn verið myrtir frá því í des-
ember 1993. Glæpaflokkar eru taldir
bera ábyrgð á morðunum enda fyr-
irferðarmiklir í rússnesku þjóðlífi.
Margir þingmanna hafa valið að
Þjóðernissinninn Vladimir Zhírinovskí, leiðtogi frjálslyndra demókrata,
faðmar hér tvo flokksfélaga sína á þingfundi í gær, síðasta fundi fyrir kosn-
ingar. Eftir margar makalausar uppákomur í rússneska þinginu þykir. ekki
furða þó Rússar hafi ekki mikið áiit á þingmönnum sínum. Zhírinovksf hefur
látið að sér kveða í þessum uppákomum. Símamyndir Reuter
koma vopnaðir til vinnu en skilja
vopnin þó eftir við innganginn í
þingsalinn. Sprengingin á þing-
mannsskrifstofu Lysenkos í vikunni
var síðan ekki til að sefa ótta þing-
manna um öryggi sitt.
KOSNINGAR 17/12
Flokkarnir verða að fá 5 prósent
fylgi til að vinna sæti í neðri deild
rússneska þingsins, Dúmunni,
17. desember. Alls bjóða 43 flokkar
fram í kosningunum.
FLOKKAR SEM NÁÐU KJÖRi 1993
<?AP*
V«#ro*
*** poc
Kvenna- Kommúnista- Valkostur Frjálslyndir
flokkurinn flokkurinn Rússlands* demókratar
8,2% 11,9% 15,7% 23,2%
KOMMÚNiSTAFLOKKURINN:
Til vinstri. Mælir fyrir
efnahagsumbótum og endurreisn
Sovétríkjanna. Nýtur fortíðarþrár og
leiðir i skoðanakönnunum.
Leiðlogi: Gennady Zyuganov
Horfur:
Ætti að bæta við núverandi fylgi, 45
þingsæti, en fær varla hreinan
meirihluta.
BÆNDAFLOKKURINN:
Á vinstrivængnum, mikið
dreifbýlisfylgi. Er á móti
einkavæðingu í landbúnaði og
vill 3-5 ára efnahagsáætlanir.
Leiðtogi: Mikhail Lapshin
Horfur:
Ætti að ná þingsætum.
KVENNAFLOKKURINN:
Flokkur vinstri sinnaðra kvenna,
flestra fyrrum kommúnista. Stefnir
að auknum áhrifum kvenna. Vill
sameina efnahagsumbætur og
áætlunarbúskap.
Leiðtogi: Alevtina Fedulova
Horfur:
Nær inn á þing.
RÚSSNESKA FÖÐURLANDIÐ:
Hægri/miðjuhreyfing sem Jeltsín
forseti styður. Margir ráðherrar og
oddvitar landssvæða á
framboðslistum auk iðnjöfra. Styður
markaðsumbætur ríkisstjórnarinnar.
Leiðtogi: Viktor Chernomyrdin
forsætisráðherra.
Horfur:
Fær þingmenn kjörna en fagnar varla
kosningasigri
YABLOKO:
Frjálslyndur flokkur. Lofar meiri
umbótum og styður einkavæðingu.
Hefur gagnrýnt mjög hernaðarumsvif
ITsjetseníu.
Leiðtogi: Grigory Yavlinsky
Horfur:
Fær mest fylgi Irjálslyndra flokka.
„rpp RÚSSNESKIHÉRAÐA-
FLOKKURINN (KRO)
Þjóðernissinnar sem vilja sterkari
heh aðstoð við innlend fyrirtæki og
cku\ 06«'- miðstýrða verðmyndun.
Leiðtogi: Yuri Skokov
Horfur:
Gæti fengið mikið fylgi.
FRJÁLSLYNDIR
DEMOKRATAR: (LDPR)
Þjóðernisöfgaflokkur. Vill stöðva
sundrun ríkis og elnahags.
Leiðtogi: Vladimir Zhirinovsky
Horfur:
Fær ekki eins mikið fylgi og í síðustu
kosningum.
‘Ekki er búist við að PRES og V alkostur
Rússlands táimeiraentimmprósenttylgi. REUTER
o
JtóJlOKO
Þingfundurinn í gær og formleg
þingslit 22. desember verða síðustu
fundir margra þingmanna. Meöan
þeir undirbúa starfslok sín berjast
aðrir um að komast á þing. Þar eru
margir kallaðir en fáir útvaldir.
Alls bjóða 43 flokkar fram til þings
en fimm prósent fylgi þarf til að fá
mann kjörinn. Búist er við að
kommúnistar og þjóðernissinar
komi sterkir út úr kosningunum og
muni verða ráðandi afl á næsta
kjörtímabili. En þó ný andlit komist
á þing sjá fáir ástæðu til að fagna
sérstaklega og eða vonast eftir sið-
bót. Margir þingmenn óttast að
menn með tengsl við glæpaflokka
nái kjöri. Þá hryllir ófáa við þeim
upplýsingum aðalkjörnefndar Rúss-
lands að um 80 prósent frambjóð-
enda til þings eigi vafasama fortið,
séu skráðir fyrir lögbrot af einu eða
öðru tagi.
„Þetta kastar rýrð á þingið og allt
stjórnkerfi landsins og veldur
glundroða í stað stöðugleika," segir
formaður kristilegra demókrata.
Kosningabarátta
í sjónvarpi
En það þarf meira en tengsl við
undirheimana til að komast á þing.
I Rússlandi beita frambjóðendur sér
í auknum mæli í fjölmiðlum.
Treysta þeir sérstaklega á áhrifa-
mátt sjónvarpsins til að koma skila-
boðum sínum áleiðis til kjósenda.
Kosningabarátta að amerískum
hætti er nýjung fyrir flesta rúss-
neska kjósendur sem þekktu ekki
annað en eins flokks kerfi fyrir
fimm árum.
Ekkert er til sparað í auglýsinga-
herferðum þar sem flokkarnir
reyna að ná til 105 milljóna kjós-
enda um allt Rússland sem aftur
velja milli 43 framboðslista. Barátt-
an er mjög dýr, kostar hundruð
milljóna króna.
Slagorð eins og stöðugleiki, rétt-
læti og regla koma oft fyrir í auglýs-
ingum flokkanna og margir leggja
ríka áherslu á baráttuna gegn glæp-
um. Sumir flokkanna höfða mjög til
þess að fólk þrái hið liðna, hina ör-
uggu daga Sovét-tímabilsins.
Ólíkur boðskapur
Til að undirstrika þörf fyrir
breytingar birtir einn flokkur aug-
lýsingu þar sem umkomulaust barn
sést ráfa framan við sundurpsrengd-
ar íbúðablokkir. í annarri auglýs-
ingu eru maður og kona uppi í rúmi
og í þeirri þriðju er spilltur kerfis-
karl gripinn með lúkurnar í pen-
ingakassa. Kvennaflokkurinn, sem
höfðar sérstaklega til kvenna yfir
fertugt, horfir til fortíðar. Hefur
hann fengið myndir úr safni komm-
únista þar sem brosandi og rjóðar
konur byggja járnbrautir, plægja
akra og setja púður í byssukúlur.
Almennt er álitið að persónur
verði ofar í hugá kjósenda en flokk-
arnir og stefnur þeirra þegar kosið
verður 17. desember. Þá er búist við
að tilfinningaleg viðbrögð við þró-
uninni síðastliðin tvö ár ráði miklu.
Þjóðernissinninn, samkvæmis-
ljónið og kvennamaðurinn Vladimir
Zhirinovskí nýtti fjölmiðla til hins
ýtrasta í kosningabaráttunni 1993
og uppskar 23 þingsæti. í þetta sinn
berst boðskapur hans úr svefnher-
bergi pars. Konan verst ástleitnum
og áköfum manninum sem verður
ekkert ágengt. Hann spyr síðan í
öngum sínum: „Dusya, hvern ætlar
þú að kjósa?“ Hún leggst á koddann,
svífur með sælusvip inn í svefninn
um leið og hún segir: „Auðvitað
HANN. Hinir eru allir hræðilegir.“
Russneskir frambjóðendur reiða sig á áhrifamátt fjölmiðla i kosningabaratt-
unni og láta ekkert tækifæri til að komast í sjónvarpið ónotað. Hér er leiðtogi
flokksins, Yabloko, að boða stefnuskrá sína. Hann spáir kommúnistum sigri
í kosningunum.