Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Síða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Síða 59
IjV LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 63 Þrjár útstillingardömur í Ikea: Störfuðu a framandi slóðum „Það koma stundum óskir um að fá starfsfólk til starfa tímabundið í öðrum löndum. Ég var beðin að fara til Dubai og starfa þar við útstilling- ar i sex vikur í nýrri verslun sem verið er að opna. Mér fannst það spennandi og sló til,“ segir Bryndís Sævarsdóttir, útstillingarmaður í Ikea, sem er nýkomin heim frá Dubai þar sem hún kynntist annarri menningarveröld. „Verslunin sem ég var að starfa í er svipuð að stærð og þessi hér í Holtagörðum. Hún er í raun mjög lík henni,“ segir Bryndís. Með henni störfuðu Norðmenn og Svíar. í Dubai búa margir útlendingar, þ. á m. Bretar, og hafa Ikea-vörur verið mjög vinsælar þar. Dubaibúar höfðu fyrir minni Ikea-verslun en henni var lokað þegar sú stóra var opnuð. „Það var mjög skemmtilegt að koma til Dubai og kynnast allt öðrum menningarheimi. Konurnar ganga með blæjur og andrúmsloft er allt mjög ólíkt því sem maður þekk- ir. Hins vegar fór mestur tími minn í vinnu þannig að ég gat ekki kynnt mér nægilega vel hvernig lífið geng- ur fyrir sig,“ segir Bryndís. Hún hitti þó einn íslending, Pál, sem starfar hjá eiganda Ikea-versl- unarinnar en þó í öðru vöruhúsi. Bryndís lærði gluggaútstillingar í Danmörku og hóf störf hjá Ikea fyr- ir fimm árum. Sjö manns starfa nú við útstillingar í Ikea. Bryndis er ekki sú eina sem hefur fengið tæki- færi til að starfa fyrir Ikea á fram- andi slóðum því Drífa Hilmarsdóttir fór tO Hong Kong í sömu erinda- gjörðum og Inga Árnadóttir til Singapore. íslendingar hafa þótt snjallir í uppsetningum á Ikea-verslunum því ungur íslendingur sá um þá hlið mála í London. Fyrsta Ikea-verslunin leit dagsins ljós árið 1948 en hún var þá nær ein- göngu póstverslun. Fyrsta Ikea- verslunin var opnuð í heimabæ eig- andans, hins sænska Ingvars Alm- hult, í Smálöndum í Svíþjóð árið 1958 og var þá stærsta húsgagna- verslun Evrópu. Árið 1963 var fyrsta Ikea- verslunin opnuð utan Svíþjóðar, í Noregi. í dag eru þær orðnar 125 í 26 löndum og fjölgar að meðaltali um 5 á ári. Árið 1994 komu rúmlega 116 milljón gestir í Utstillingadömurnar í Ikea, Inga, Bryndís og Drífa. verslanir Ikea og keyptu fyrir 334 Fyrsta Ikea-verslunin á íslandi milljarða. var opnuð í ágúst 1985. -ELA dúkkurnar fyrir stráka og stelpur. Þær eru hreint ótrúlega sætar. 3 Stœrðlr: 24cm kr. 33cm kr. 45cm kr. 580,- 980,- 2.180,- Jólagjöfin mín fæst í Magasin. Maenstn Husgagnahöllinni Bíldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 587 1410 Ronald Reagan bregður á leik mefl bömum Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er orðinn 84 ára gamall og er haldinn Alzheimer- sjúkdómnum. Nýlega, er hann var á göngu í Beverly Hills, hitti hann nokkra hressa stráka í fótbolta. Hann sýndi þá að hann er enn ung- ur í anda og tók þátt í stuttum leik með þeim. Drengirnir urðu mjög upp með sér yfir að hinn aldur- hnigni, fyrrverandi forseti skyldi leika sér við þá og munu trúlega seint gleyma þessu. Reagan sjálfur skemmti sér augljóslega konung- lega. Þegar leikurinn hafði staðið stutta stund virtist forsetinn fyrr- verandi orðinn þreyttur en gaf sér þó tíma til að taka í höndina á hverjum og einum áður en hann fór. Reagan kvaddi alla með handa- bandi eftir leikinn. Hreint frábært jólatilboð w ■ r fjölskyldunnar! eaeiPfej 28" twín tli Fullkomin fjarslýring meS öllum aSgerðum á skjá. íslenskt textavarp (Upplýsingar á skjá). Myndllampi (BLACK MATRIX) flatur. HljóSmagnari Nicam víSóma (STERIO) 2x15W eSa 30W. Tveir hátalarar eru í tækinu. Hægt er aS tengja heyrnartól og auka hátalarasett viS tækiS. Beint inntengi (SCART) sem gerir mynd frá myndbandstæki og/eSa afruglara mun skarpari. Afborgunarverö kr. 77.666, VISA Lágmúla 8, Sími 553 8820 Umbobsmenn um allt land VISA í 24 mánu&i 3.790,- (pr. mánuS) EURO í 36 mánuSi 2.685,- (pr. mánuS) Reykjavík: Heimskringlan. Kringlunni.Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, K(. Borgfirðinga, Borgamesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vesttirðlr: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvfk.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blðnduósi. Skagfirðingabúð.Sauðárkróki. HJjómver, Akureyri. KEA.Dalvfk. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Stál, Seyðisfirði. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshðfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.