Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Blaðsíða 70
74 afmæli
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 JLlV
Guðmundur L. Friðfinnsson
Guðmundur Liljendal Frið-
finnsson, skógarbóndi og rithöf-
undur að Egilsá í Akrahreppi í
Skagafirði, er níræður í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á Egilsá og
ólst þar upp. Hann var við smíða-
nám tæpa tvo vetur í byrjun
þriðja áratugarins, stundaði nám
við Héraðsskólann á Laugarvatni
1929-30 og við Bændaskólann á
Hólum 1931.
Guðmundur hóf búskap á Eg-
ilsá 1932 og hefur verið skógar-
bóndi þar frá 1987. Þá starfræktu
þau hjónin fjölmennt sumardval-
arheimili fyrir þéttbýlisbörn um
árabil auk þess sem þau voru alla
tíð mikið skógræktarfólk.
Bækur sem út hafa komið eftir
Guðmund eru Bjössi á Tréstöðum,
unglingabók, 1950 og 1971; Jónsi
karlinn í Koti og telpurnar tvær,
unglingabók, 1950; Máttur lífs og
moldar, skáldsaga, 1954; Leikur
blær að laufi, skáldsaga, 1957;
Hinum megin við heiminn, skáld-
saga, 1958; Saga bóndans í
Hrauni, æviminningar, 1961; Bak-
svipur mannsins, smásögur, 1962;
Undir ljóskerinu, sagnaþættir,
1967; Örlagaglíma, skáldsaga, 1970;
Málað á gler, ljóð, 1977; Blóð,
skáldsaga, 1978; Örlög og ævin-
týri, þjóðleg fræði I.b. 1984 og Il.b.
1985; Sumarjól, barna- og fjöl-
skylduleikrit, 1985; Mislitt mann-
líf, unglinga- og fjölskyldusaga,
1986; Þjóðlíf og þjóðhættir, þjóðleg
fræði, 1991.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 11.6.1932
Önnu Sigurbjörgu Gunnarsdóttur,
f. 1.4. 1904, d. 20.5. 1982, húsfreyju.
Hún var dóttir Gunnars Ólafsson-
ar, b. í Keflavík í Hegranesi, og
k.h., Sigurlaugar Magnúsdóttur
húsfreyju.
Dætur Guðmundar og Önnu
eru Kristín, f. 16.3. 1934, kennari í
Kópavogi, gift Hilmari Jónssyni
verkstjóra og eiga þau þrjá syni;
Sigurlaug Rósinkranz, f. 10.10.
1935, óperusöngkona í Los Angel-
es og ekkja eftir Guðlaug Rósin-
kranz þjóðleikhústjóra og á hún
þrjú börn; Sigurbjörg Lilja, f. 1.3.
1937, nuddkona og heimspekingur
í Reykjavík, gift Þór Snorrasyni
skrúðgarðyrkjumeistara og eiga
þau þrjá syni.
Foreldrar Guðmundar voru
Friðfinnur Jóhannsson, f. 20.4.
1958, b. á Egilsá, og s.k.h., Kristín
Guðmundsdóttir húsfreyja.
Ætt
Friðfinnur var sonur Jóhanns,
b. í Sólborgarhóli í Kræklingahlíð
Jónssonar, timburmanns á Naust-
um við Akureyri Sigmundssonar.
Móðir Jóhanns var Þórunn Niku-
lásdóttir, frá Narfakoti í Njarðvík-
um Snorrasonar, bróður Solveig-
ar, móður Árna Sigurðssonar,
smiðs í Stokkhólma, langafa Elín-
borgar Lárusdóttur rithöfundar.
Móðir Friðfinns var Friðflnna
Friðfinnsdóttir, b. á Espihóli í
Eyjafirði, bróður Gríms, langafa
Sigurðar, afa Sigurðar Geirdals,
föður Sigurjóns Birgis (SJÓN)
skálds. Friðfinnur var sonur
Gríms græðara, læknis á Espihóli
Magnússonar og Sigurlaugar,
systur Kristjáns, langafa Jóhanns
Sigurjónssonar skálds og Jóns,
fóður Jónasar frá Hriflu. Sigur-
laug var dóttir Jóseps, b. í Ytra-
Tjarnarkoti, bróður Jónasar, afa
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Jósep var sonur Tómasar, b. á
Hvassafelli, Tómassonar, ættföður
Hvassafellsættarinnar, bróður
Elínar. Móðir Sigurlaugar var
Ingibjörg, systir Gunnars, langafa
Hannesar Hafsteins. Ingibjörg var
dóttir Hallgríms, málara og smiðs
á Stóra- Eyrarlandi, Jónssonar.
Guðmundur L. Friðfinnsson.
Kristín var dóttir Guðmundar,
b. á Úlfsstöðum Jónssonar, b. á
Fagranesi í Öxnadal Arnfinnsson-
ar. Móðir Guðmundar var Helga,
systir Soffiu, móður Jóns Jóns-
sonar í Djúpadal, afa Jóns Sig-
urðssonar, alþm. á Reynistað.
Önnur systir Helgu var Þórey,
langamma Magnúsar Jónssonar
frá Mel, ráðherra. Helga var dótt-
ir Gísla, b. á Hofi í Hörgárdal
Halldórssonar og Bergþóru Árna-
dóttur, hreppstjóra á Laugalandi
Jónssonar.
Guðmundur er að heiman á af-
mælisdaginn.
Einar Hólm Ólafsson
Einar Hólm Ólafsson, skóla-
stjóri Öskjuhlíðarskóla, Stórateig
13, Mosfellsbæ, verður fimmtugur
á morgun.
Starfsferill
Einar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk kennara-
prófi frá KÍ 1967, stundaði fram-
haldsnám í sérkennslu við KÍ
1968-69 og í Noregi 1973-74.
Einar var kennari við Kópa-
vogshælið 1967-71, við Höfðaskóla
í Reykjavík 1971-73, forstöðumað-
ur Skálatúnsheimilisins 1974-79,
yfirkennari við Öskjuhlíðarskóla
1979-87 og hefur verið skólastjóri
þar frá 1987.
Einar flutti í Kópavoginn 1967
og aftur til Reykjavíkur 1970 en
hefur átt heima í Mosfellsbæ frá
1975.
Hann spilaði með ýmsum dans-
hljómsveitum í Reykjavík á árun-
um 1962-92, sat á árum áður í
stjórn Félags íslenskra hljómlist-
armanna og sat í skólanefnd og
félagsmálaráði Mosfellsbæjar.
Fjölskylda
Einar kvæntist 27.5. 1967 Vil-
borgu Árnýju Einarsdóttur, f.
10.8. 1946, þroskaþjálfa. Hún er
dóttir Einars Sigurðssonar, húsa-
smíðameistara, kennara og org-
anista á Selfossi, og Ingibjargar
Árnadóttur húsmóður.
Börn Einars og Vilborgar Ár-
nýjar eru Ingibjörg Hólm, f. 26.6.
1965, kennari, búsett í Mosfellsbæ,
gift Jóni G. Jónssyni og eiga þau
tvö börn, írisi Hólm og Þóri
Hólm; Ólafur Hólm, f. 18.6. 1970,
tónlistarmaður í Reykjavík.
Systkini Einars eru Stella
Hólm, f. 22.6. 1943, búsett í
London; Birgir Hólm, f. 28.2. 1956,
pípulagningarmeistari í Mosfells-
bæ.
Foreldrar Einars eru Ólafur
Hólm Einarsson, f. 17.6. 1914,
fyrrv. yfirverkstjóri hjá Hitaveitu
Reykjavíkur, og k.h., Þorgerður
E. Grimsdóttir, f. 10.12. 1915, hús-
móðir.
Einar verður að heiman en
Einar Hólm Ólafsson.
hann mun halda upp á daginn
með móður sinni sem er áttræð
sama dag.
Þorgerður E. Grímsdóttir
Hl hamingju með
afmælið 9. desember
85 ára
Sigríður Jónsdóttir,
Skólastíg 14 A, Stykkishólmi.
80 ára
Guðbjörg Jónsdóttir,
Víkurbraut 9 A, Mýrdalshreppi.
Árni Sigiu-ðsson,
Vogatungu 25 A, Kópavogi.
75 ára
Ragna Benediktsdóttir,
Höfðahlíð 2, Akureyri.
70 ára
Sigurður Tómasson,
Vogatungu 34, Kópavogi.
Baldur Oddgeirsson,
Tjörn, Stokkseyrarhreppi.
Magnús Stefánsson,
Áshamri 30, Vestmannaeyjum.
60 ára
Elín Sóley Sigurðardóttir,
Vikurgötu 5, Stykkishólmi.
Anna Lára Gísladóttir,
Aðalstræti 22, Bolungarvík.
Valgerður Frimann,
Suðurbyggð 13, Akureyri.
50 ára
Bragi Hannibalsson,
Hvassaleiti 3, Reykjavík.
Anna Gísladóttir,
Tjarnarlundi 12 D, Akureyri.
Marteinn Sverrisson,
Kögurseli 38, Reykjavík.
Marteinn er aö heiman.
Auður Angantýsdóttir,
Seljabraut 14, Reykjavík.
Matthildur Gísladóttir,
Auðbrekku 38, Kópavogi.
Sigurður
Ástráðsson,
Reyrhaga 14,
Selfossi, verður
fimmtugur á
mánudaginn.
Eiginkona hans
er Guðný
Bjarnadóttir.
Þau taka á móti
gestum á heim-
ili sínu eftir kl. 18.00 í kvöld, laug-
ardaginn 9.12..
40 ára
Jóhannes Bekk Ingason,
Varmalandsskóla, Borgarbyggð.
Eygerður Þórisdóttir,
Túngötu 28, Eyrarbakka.
Ásta D. Kristjánsdóttir,
Seli, Austur-Landeyjahreppi.
Páll Ásgeir Pálsson,
Þverási 37, Reykjavík.
Óskar Finnsson,
Garðabraut 18, Akranesi.
Margrét Sigursteinsdóttir,
Réttarholti 13, Selfossi.
Ólafur Sævar F. Númason,
Meistaravöllum 25, Reykjavík.
Þorgerður E. Grímsdóttir hús-
móðir, Skipholti 12, Reykjavík,
verður áttræð á morgun.
Starfsferill
Þorgerður fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hún lauk barna-
skólaprófi frá Miðbæjarskólanum.
Þorgerður starfaði um árabil á
Sólheimum í Grímsnesi en hún
tók, ásamt Sesselju Sigmundsdótt-
ur, á móti fyrstu vangefnu börn-
unum sem þangað komu um 1932.
Fjölskylda
Þorgerður giftist 23.1. 1943 Ólafi
Hólm Einarssyni, f. 17.6.1914,
fyrrv. yfirverkstjóra hjá Hitaveitu
Reykjavíkur. Foreldrár hans voru
Einar Hólm Ólafsson skósmiður,
og Gíslína Magnúsdóttir húsmóð-
ir. Einar lést 1915 en Gíslína gift-
Kolbrún Pálsdóttir dagmóðir,
Leynisbrún 5, Grindavík, verður
fertug á morgun.
Starfsferill
Kolbrún fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp við Skúlagötuna.
Hún er lærð dagmóðir.
Kolbrún starfaði á dagvistunar-
heimilinu Hlíðarenda í Reykjavík
1986-89, flutti í Grindavík 1990,
starfaði þar á dagmæðraheimilinu
Neskoti sem hún síðan eignaðist
ásamt Guðlaugu Methúsalems-
dóttur, og sem þær nú starfrækja
undir nafninu Krítarbær.
Fjölskylda
Kolbrún giftist 13.12. 1988 Ragn-
ist síðan Jóni Halldórssyni og
bjuggu þau í Reykjavík.
Börn Þorgerðar og Ólafs eru
Stella Hólm, f. 22.6. 1943, búsett í
London, gift Gavin McFarlane og
eiga þau tvo syni; Einar Hólm, f.
10.12.1945, pípulagningarmeistari,
búsettur í Mosfellsbæ, kvæntur
Vilborgu Á. Einarsdóttur og eiga
þau tvö börn; Birgir Hólm, f. 28.2.
1956, skólastjóri Öskjuhlíðarskóla,
búsettur í Mosfellsbæ, kvæntur
Ósk Sigurjónsdóttur og eiga þau
tvö börn.
Systkini Þorgerðar: Björn Júlí-
us Grímsson, nú látinn, sjómaður
í Reykjavík; Jósefina Grímsdóttir,
nú látin, húsmóðir í Vestmanna-
eyjum; Bertha M. Grímsdóttir,
búsett í Garðabæ; Sigurrós
Grímsdóttir, búsett á Álftanesi.
Fórstursystir Þorgerðar var
Sigrún Þórmundsdóttir, nú látin,
búsett í Vestmannaeyjum.
ari Rúnari Þorgeirssyni, f. 15.11.
1950, stýrimanni á Mumma frá
Sandgerði. Hann er sonur Þor-
geirs Þórarinssonar, útgerðar-
manns í Grindavík, og Helgu Har-
aldsdóttur húsmóður. Kolbrún og
Ragnar Rúnar skildu.
Fóstursonur Kolbrúnar er Örn
Francis Arnarson, f. 20.1. 1991.
Alsystir Kolbrúnar er Guðný
Pálsdóttir, f. 29.10. 1950, búsett í
Reykjavík.
Hálfsystkini Kolbrúnar, sam-
mæðra, eru Guðmundur Guð-
brandsson, f. 14.11. 1939, búsettur
að Saurbæ í Vatnsdal í Húnvatns-
sýslu; Þorbjörg Guðbrandsdóttir,
f. 11.5.1941, búsett í Reykjavík.
Hálfsystkini Kolbrúnar, sam-
feðra, eru Hreinn Pálsson, búsett-
ur í Mosfellsbæ; Magnús Pálsson,
Kolbrún Pálsdóttir
Þorgerður E. Grímsdóttir.
Foreldrar Þorgerðar: Grímur
Kr. Jósefsson, f. 16.9. 1891, járn-
smiður í Reykjavík, og Halldóra
Jónsdóttir, f. 11.9. 1885, húsmóðir.
Þorgerður ver afmælisdeginum
með íjölskyldu sinni og vinum.
Kolbrún Pálsdóttir.
búsettur í Mosfellsbæ; Elsa Páls-
dóttir, búsett í Reykjavík; Kristín
B. Pálsdóttir, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Kolbrúnar: Páll Ög-
mundsson, f. 29.7. 1914, d. 10.10.
1995, bílstjóri í Reykjavík, og
Halla Sigurðardóttir, f. 21.1.1915,
húsmóðir.