Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1996, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1996, Page 30
38 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 T>V tónlist Topplag Það kemur fáum á óvart að Michael Jackson skuli ná fyrsta sætinu á íslenska listanum með lag sitt, Earth Song, en það hef- ur undanfarnar vikur trónað á toppi vinsældalista víða um heim. Lagið er búið að vera 6 vikur á íslenska listanum. Hástökkið Hæsta nýja lag síðustu viku fer hratt upp listann og er há- stökkvari þessarar viku, stekk- ur upp úr 16. sæti í það 6. Það er hljómsveitin Smashing Pum- kins með lagið 1979 sem á heið- urinn af laginu en hún átti einnig topplagið í síðustu viku sem er nú fallið niður í annað sætið. Hæsta nýja lagið Það er ekki oft að nýtt lag á íslenska listanum kemst svona hátt inn á sinni fyrstu viku, alla leið í 7. sætið. Það er hljómsveit- in Cardigans með lagið Sick and Tired sem afrekar þetta og lag- ið hlýtur að gera atlögu að topp- sætinu á næstu vikum. Kóngafólkið fær það óþvegið Martin Rossiter, liðsmaður bresku hljómsveitarinnar Gene, vakti almenna hneykslan fyrir nokkru er hann fór hinum verstu fúkyrðum um bresku konungsfjölskylduna í blaðavið- tali. Lýsti hann því meðal ann- ars yfir að þetta fólk hefði leitt þvílíkar hörmungar yfir bresku þjóðina að hann myndi glaður sjá það allt saman hengt. Þá bað hann drottningarmóðurina í guðs bænum að fara aö hrökkva upp af því svo lengi væru Bret- ar búnir að biða eftir útförinni að það væri að verða óbærilegt. Snýr prinsinn aftur? Merkismaðurinn sem eitt sinn kallaði sig Prince heldur ótrauður áfram baráttu sinni fyrir því að losna undan samn- ingi sínum viö Time Warner út- gáfufyrirtækið. Það nýjasta í málinu er tilboð frá honum um að afhenda fyrirtækinu þrjár plötur, The Vault I, II og III, og heimild til að gefa þær út undir sínu gamla nafni, Prince. í stað- inn krefst merkismaðurinn þess að samningnum verði rift. Ekki hafa nein viðbrögð borist frá Time Warner en plöturnar eru tilbúnar allar þrjár, að sögn merkismannsins, enda hann annálaður dugnaðarforkur. íboði á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00 'í s ’! r T: l WS'K! LISTINN NR. 154 viktma 27.1. • 2.2. '96 ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á USTANUM TOi»l» 4-Jí G) 4 8 6 ... í. ViKA NR. 1... EARTHSONG MICHAEL JACKSON 2 1 4 4 BULLET WITH BUTTERFLY WINGS SMASHING PUMPKINS O 8 17 4 DISCO 2000 PULP 4 2 1 11 CRAZY LOVE EMILIANA TORRINI 5 3 2 7 I EMILIANA TORRINI <3> 16 2 ... HÁSTÖKK VIKUNNAR... 1979 SMASHING PUMKINS Q> EE EQ 12 1 ... NÝTTÁ USTA ... SICK AND TIRED CARDIGANS CD 11 6 FATHER AND SON BOYZONE 9 9 11 7 TOO HOT COOLIO 10 12 15 4 I THINK OF ANGELS KK 8. ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR (5) 13 22 3 EVERYBODY BE SOMEBODY ~ RUFFNECK 12 6 5 8 ANYONE WHO HAD A HEART PÁLL ÓSKAR 13 5 3 4 SJÁUMST AFTUR PÁLL ÓSKAR 14 7 6 11 WHERE THE WILD ROSES GROW NICK CAVE & KYLIE MINOGUE 1 CACION DEL MARIACHI LOS LOBOS & ANTONIO BANDERAS 16 10 10 6 A WINTER'S TALE QUEEN C5z) 22 29 8 EYES OF BLUE PAUL CARRACK (5) 21 28 3 LIQUID SWORDS GENIUS m NÝTT 1 DON'T CRY SEAL (2ft> 23 - 2 TIME HOOTIE & THE BLOWFISH 21 15 14 9 ANYWHERE IS ENYA (5> 29 37 3 LUCKY RADIOHEAD 23 19 19 4 GOLD SYMBOL 24 20 24 3 HEYLOVER LLCOOLJ 25 17 16 7 JESUSTO ACHILD GEORGE MICHAEL (26) 27 33 4 I DON'T WANT TO BE A STAR CORONA 27 14 7 12 MY FRIEND RED HOT CHILI PEPPERS 28 26 31 3 I GOT l'D PEARL JAM ds) 1 SPACEMAN BABYLON ZOO (3Ö) 38 - 2 WONDERWALL MIKE FLOWERS POPS 31 18 9 9 MO BETTER BLUES SÆLGÆTISGERÐIN (5D 40 - 2 ONE OF US JOAN OSBORNE 33 31 34 6 GOOD INTENTION TOAD THE WET SPROCKET NÝTT 1 RIDIN' LOW L.A.D. & DARVY TRAYLOR 35 35 - 2 I WANT TO COME OVER MELISSA ETHERIDGE 36 34 - 2 CAN'T HELP FALLING IN LOVE AGGI SLÆ 8. TAMLA SVEITIN 37 24 20 8 YOU'LLSEE MADONNA NÝTT 1 SOMETHIN' STUPID ALI CAMPBELL 39 28 26 6 BEAUTIFUL LIFE ACE OF BASE 40 32 38 3 WISHES OF HAPPINESS 8. PROSPERITY SACRET SPIRIT Kynnir: Jón Axel Ólafsson Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmd af markaðsdeild DVí hverri viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400. á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum I sumar. Listinn er birtur, að hlufa, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur þátt i vali "WorTd Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard. Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson Kemp berst fyrir heilsunni Martin Kemp, sem eitt sinn gerði garðinn frægan með hljóm- sveitinni Spandau Ballet, hefur lítið getað sinnt tónlist undanfar- in ár vegna veikinda. Fyrir nokkrum árum uppgötvuðu læknar æxli í heila Kemps og var það fjarlægt. Reyndist það vera góðkynja og vonuðu menn að Kemp myndi ná sér að fullu. Hann varð þó að gangast undir annan uppskurð fyrir tæpum tveimur árum og nú fyrir skemmstu töldu læknar að hann þyrfti að gangast undir enn einn uppskurðinn. Enn bendir ekkert til annars en að æxli þessi séu góðkynja og standa því vonir til þess ennþá að Kemp nái sér að fullu. Fordómar Heineken Forráðamenn hollenska bjór- fyrirtækisins Heineken urðu sér heldur betur til skammar á dög- unum þegar þeir kvörtuðu yfír of mörgum „negrum" í hópi áhorf- enda í breskum sjónvarpsþætti sem fyrirtækið kostar. Þáttur þessi heitir Planet 24 og það var sjálfur Bob Geldof sem hrinti honum af stokkunum á sínum tíma. Hann brást hinn versti við skilaboðum Heineken manna og sagði þeim að fara norður og nið- ur. Málið fór alla leið inn í þing- sali breska þingsins þar sem þingmaður nokkur tók það upp og krafðist skýringa frá Hein- eken. Þær bárust ekki en hins vegar margfaldar afsökunar- beiðnir og yfirlýsing frá forstjóra' Heineken þar sem hann harmar þessa uppákomu. Plötu- fréttir Breskir tónlistarunnendur bíða nú margir spenntir eftir fyrstu plötu hljómsveitarinnar Marion en hún hefur vakið tals- verða athygli að undanfórnu. Platan mun bera nafnið This World And Body og kemur út 5. febrúar næstkomandi . . . Liðs- menn Rage Against the Machine hafa loksins lokið við upptökur á nýrri plötu en fæðingahríðirnar hafa verið sérlega erfiðar. Þetta verður önnur plata sveitarinnar og á að heita Evil Empire. Hún er væntanleg á markað um miðjan mars ... -SÞS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.