Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1996, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1996, Qupperneq 6
6 útlönd LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 JjV Þorpsbúar í Úkraínu lifa í ótta viö fjöldamoröingja: Henging of góð fyr- ir þennan morðingja Óttinn ræður ennþá ríkjum í þorpinu Bratkóvítsjí í Úkraínu, nærri pólsku landamærunum, þótt lögreglan hafi handsamað mann sem hún segir að hafi gengist við 52 morðum um allt landið. Meðal fórn- arlambanna voru tvær fjölskyldur í þorpinu. Sumir íbúanna 1500 vilja ekki trúa því að maðurinn í haldi lög- reglunnar, kallaður „borgari 0“, sé morðinginn. Aðrir segja að hann hljóti að hafa haft vitorðsmann. „Hvers konar djöfull hrifsaði son minn frá mér?“ sagði hin sextuga Hanna Krítskovskí, svartklædd og grátandi. „Þorpsbúar hafa ekki rætt um neitt annað en morðin í marga mánuði. Ég trúi ekki að hann hafi verið einn að verki. Hvernig gæti einn maður valdið slíkri skelfingu í allri Úkraínu?" Petro sonur hennar var skotinn til bana tveimur dögum fyrir nýárs- dag ásamt eiginkonu sinni og tveim- ur ættingjum. Morðinginn kveikti síðan í heimili þeirra. Þrjú börn, sem misstu foreldra sína, sluppu lif- andi af því að þau gistu hjá vini sín- um. Morðinginn lét á ný til skarar skríða tæpum þremur vikum síðar, eftir að hersveitir sem höfðu verið sendar til þorpsins voru farnar aft- ur til síns heima, og drap fimm manns úr Pilat-fjölskyldunni. „Enginn læsti heima hjá sér áður. Núna rennur mönnum kalt vatn milli skinns og hörunds í hvert skipti sem hundur geltir. Fólk sér morðingja á bak við hvert einasta tré,“ sagði Stepan, tengdasonur Hönnu Krítskovskí. Lögreglan segir að „borgari 0“ hafi játað á sig 52 morð frá árinu 1989. Flest þeirra voru hins vegar framin á þriggja mánaða tímabili frá desember á síðasta ári á 700 kíló- metra löngu svæði. „Henging er of góð fyrir þennan morðingja ef við getum verið viss um að þetta sé morðinginn. Það er of gott að skjóta hann, of gott að skera hann í smástykki. Hann ætti að brenna í víti svo hann geti skilið til fullnustu dauðann sem hann kallaði yfir aðra,“ sagði þorpsbúinn Dara Paníts. Reuter Þetta unga barn særðist í loftárás Israelsmanna á búðir SÞ í Líbanon á fimmtudag þegar rúmlega 100 flóttamenn týndu lífi og 150 til viðbótar hlutu sár. Símamynd Reuter Peres, forsætisráöherra ísraels, hóflega bjartsýnn í sjónvarpsviðtali: Hugsanlegt að samið verði um vopnahlé um helgina I stuttar fréttir Metfjölgun Frakka Frönsku þjóöinni hefúr fjölg- að með methraða siðastliðin 50 ár, úr 40 milljónum í 58. Vill skaðabætur Fjölskylda Mitterrands heitins Frakklands- forseta sagði í gær að hún vildi fá sem svarar um tíu milljón- um króna í skaðabætur frá lækni sem sagöi í bók sinni að forsetinn hefði ekki sagt kjósendum satt um veikindi sín. INýtt sunnudagsblað Nýtt sunnudagsblað, sem verður eingöngu helgað fréttum úr viðskiptaiífinu, hefur göngu sína í Bretlandi á morgun. Múslímum sleppt Stjórnvöld í Serbíu hafa j. ákveðið að sleppa níu af þrettán | flóttamúslimum frá Bosníu sem voru hnepptir í varðhald í síð- ustu viku þegar þeir voru að undirbúa heimferð. Féll á nektarmynd IBrasilísk nektarfyrirsæta, sem tók að stunda vopnuð rán, var handsömuð eftir að franska lögreglan bar af tilviljim kennsl á.hana á Ijósmynd þar sem hún sat fáklædd fyrir. Mannfall í Mogadishu Liðsmenn tveggja stríðsherra börðust í Mogadishu, höfuð- borg Sómalíu, og féll 21 maður. Frakkar verndá Franska stjórnin fyrirskipaði hersveitum sínum að verja for- setahöllina í Mið-Afríkulýð- veldinu þar sem hermenn hafa gert uppreisn vegna vangold- inna launa. Klæði Krists trekkir Mikill fjöldi pílagríma kom í dómkirkjuna í Trier í gær þeg- ar klæðið, sem taliö er að Krist- ur hafi verið í á leiðinni á : krossinn, var sýnt í þriðja sinn | á öldinni. Til í að fara Pavel Gratsjev, vamarmála- ráðherra Rússlands, Ssegist vera reiðubúinn að segja af sér embætti | vegna mikils mannfalls í liði Rússa í fyrirsát uppréisnar- manna í Tsjetsjeníu í vikunni. Hjálp! Marokkóstjórn hefur farið fram á aðstoð utanlands frá í j baráttunni gegn fíkniefnum. Rcuter Erlendar kauphallir: Met voru sett á ný Hlutabréfavísitölur í nokkrum af helstu kaúphöllum heims tóku að hækka á ný í vikunni og söguleg met voru slegin. Þetta á við um FT- SE 100 í London, DAX-30 í Frankfurt og Nikkei í Tokyo. Dow Jones í kauphöllinni í Wall Street í New York var á uppleið á fimmtudag og líklegt að sögulegt met hafi verið slegið í gær. Dow Jones var að jafna sig eftir talsvert fall sl. miðvikudag. Bensín og hráolía á heimsmarkaði lækkaði á ný í vikunni eftir tölvu- verða hækkun í síðustu viku. Kaup- endur eru vel haldnir í birgðum og því hefur eftirspum minnkað, enda þótti mönnum orðið nóg um. Kaffi og sykur hefur einnig lækkað. -Reuter Utanríkisráðherrar Bandaríkj- anna, Rússlands, Frakklands og ítal- íu koma saman í Damaskus, höfuð- borg Sýrlands, í dag eftir að leiðtog- ar sjö helstu iðnveldanna og Rúss- lands hvöttu til þess að þegar í stað yrði samið um vopnahlé í suður- hluta Líbanons. Catherine Colonna, talsmaður Chiracs Frakklandsforseta, sagði að fjórmenningarnir mundu reyna að samræma hvernig vopnahléi yrði framfylgt og leggja fram tillögur. Hervé de Charette, utanríkisráð- herra Frakklands, sem hefur verið að reyna að stilla til friðar milli ísraelsmanna og skæruliða Hiz- bollah síðustu daga, er í Damaskus þar sem hinir ráðherrarnir þrír, Warren Christopher, Jevgení Prímakov og Susanna Agnelli, munu slást i lið með honum. ísraelsmenn hafa gert árásir á Lí- banon í meira en viku núna í hefnd- arskyni fyrir flugskeytaárásir Hiz- bollah á norðurhluta ísraels. Blóð- ugasta árás ísraelsmanna var gerð á fimmtudag þegar um 100 óbreyttir borgarar sem höfðu leitað skjóls í búðum friðargæsluliða SÞ, týndu lífi í loftárás ísraelska hersins. Árásin hefur vakið mikinn óhug um heim allan og þjóðarleiðtogar hafa keppst við að fordæma hana. Símon Peres, forsætisráðherra ísraels, sagði í viðtali við ísraelska sjónvarpsstöð í gær að hugsanlegt væri að samið yrði um vopnahlé við Hizbollah um helgina. Reuter Pólland er lykill- inn að stækkun NATO í austur Alexander ; Kwasni- I ewski, for- i seti Pól- lands, sagði • í gær að inn- ganga lands- i; ins í Atl- | antshafs- bandalagið | (NATO) mundi hafa í for með I sér gífurlegar breytingar á É valdauppbyggingu Evrópu og i umræður um stækkun banda- 1 lagsins til austurs snerust í ' - raun um þetta. | í viðtali við pólska útvarps- f stöð sagði forsetinn að inn- I ganga Tékklands eða Slóvakíu í I NATO mundi ekki breyta hern- I aðarstöðunni í Evrópu, öfugt i við það sem mundi gerast viö 1 inngöngu Póllands. Belgískir súkkulaði- unnendur ævareiðir ESB Súkkulaðiunnendur í Belgíu hugsa framkvæmdastjórn Evr- | ópusambandsins þegjandi þörf- ina vegna þeirrar ákvörðunar ; i skriffinnanna í Brussel að leyfa I súkkulaðiframleiðendum að I þynna kakómassann út meö ódýrari grænmetisfitu. ISúkkulaðiæturnar segja að orðspor Belgíu sem uppsprettu ómengaðs hágæðasúkkulaðis sé í stórhættu og að ákvörðun j ESB sé ekkert annað en uppgjöf i fyrir markaðsöflunum. | „Þetta er til merkis um að Ipeningarnir ráða yfir öllu, lífs- gæðunum og góðum smekk. Við verðum að berjast gegn þessu,“ segir súkkulaðiskríbentinn Jacques Merecier. Barnaklám og | barnavændi fær- ast í aukana Sífelld fleiri börn um heim allan eru seld í vændi, til klám- hunda og til ættleiðingar, að því er lögfræðingur á vegum Sameinuðu þjóðanna segir. I* Ríki heims hafa verið hvött til að herða baráttuna gegn kyn- ferðislegri misnotkun barna. Barnahjálp (UNICEF) SÞ áætlar að í Asíu einni stundi að , minnsta kosti ein milljón barna vændi, flest á Indlandi, ÍTaílandi, Taívan og Filippseyj- um. Þá er talið að 300 þúsund böm stundi vændi í Bandaríkj- unum. Ætlað er að á ári hverju 1 bætist ein milljón barna í hóp ; þeirra sem eru kynferðislega 1 misnotuð í gróðaskyni um allan heim. ' ||l Kjarnakljúfar í Tsjernobýl eru ekki fullkomnir Leóníd Kútsjma, forseti ;. Úkrainu, viðurkenndi í Moskvu | í gær í fyrsta skipti að gömlu kjamakljúfamir í Tsjernobýl- verinu væru ekki fullkomnir hvað smíðina varðaði og hét því að loka þeim ef þjóðir heims væm raunverulega til- búnar að rétta hjálparhönd. Á ráðstefnu um kjamorkuör- yggismál, sem hófst í Moskvu í gær, stendur m.a. til að staö- festa samkomulag um að loka Tsjernobýl fyrir árið 2000 gegn þriggja milljarða aðstoð til Úkraínu frá sjö helstu iðnveld- unum. p Leiðtogar iðnveldanna sjö, 1 þar á meðal Clinton Banda- [ ríkjaforseti og Chirac Frakk- landsforseti, sitja ráðstefnuna, 1 auk leiðtoga Rússlands og Úkraínu. Reuter DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.