Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1996, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
25
Fréttirnar um fyrir-
hugaða tónleika
með breska tónlist-
armanninum David
Bowie og félöaum í
Laugardalshölí í júní
hafa hreyft við
mörgum Bowie-að-
dáandanum, sem
flestir eru kringum
fertugt og upp úr.
Margir þeirra voru
fljótir að festa sér
miða þegar miðasal-
an hófst í síðustu
viku og nú verður
ungu kynslóðinni
sýnt hvað það er að
eiga sér raunveru-
legt átrúnaðargoð.
Vio ræddum við
nokkra aðdáendur
um lífið með Bowie.
Halldór R. Lárusson auglýsingateiknari:
Barði þá sem sögðu
að Bowie væri hommi
„Þetta byrjaði ’72. Ég las þá grein um Bowíe
eftir Ómar Valdimarsson í Vikunni og hlust-
aði á Ziggy Stardust. Ég hef fylgst með öllu
sem frá Bowie hefur komið og er skrifað um
hann. Ég safna bókum og myndum. Á tímabili
var ég alveg sjúkur og átti það til að berja
menn ef þeir sögðu að hann væri hommi,“ seg-
ir Halldór R. Lárusson auglýsingateiknari.
Halldór er einn harðasti Bowie- aðdáandinn
hér á landi og er sennilega sá sem einna oftast
hefur farið á tónleika með honum. Hann fór á
sína fyrstu tónleika í Gautaborg 1983, tvisvar
þegar hann var að læra úti í Los Angeles árið
1987, þegar Bowie hélt tónleika þar dag eftir
dag, og svo fór hann á tónleika í Dyflinni í
fyrra. Hann hefði getað farið á tónleika í Los
Ángeles í lok maí 1990 en var kominn með svo
mikla heimþrá að hann vildi ekki bíða í háif-
an mánuð til að komast á tónleikana.
„Síðustu tónleikarnir voru bestir, kannski
af því að þeir voru haldn-
ir í minnsta salnum.
Hann spilaði
reyndar ekkert
af gömlu,
þekktu lög-
unum enda
lagði hann
þeim öllum
árið 1990
og byrj-
aði
upp á nýtt, alveg ferskur. í Dublin var þetta al-
veg meiriháttar, bara músíkin og engir dansar-
ar eða neitt sjóv eins og til dæmis 1987. Þetta
var algjör snilld,“ segir Halldór.
Bowie var í mikilli lægð frá 1983 þangað til
í fyrra en Halldór segist hafa fylgt sinum
manni gegnum súrt og sætt og haldi jafnmikið
upp á hann nú og áður. Hann viðurkennir þó
að hann sé ekki jafn duglegur við að safna 1 úr-
klippumöppuna og áður en hún hefur að
geyma myndir af Bowie og félögum hans sem
Halldór safnaði í ellefu ár eða fram til 1985.
Hann var þó byrjaður á nýrri möppu - á bara
eftir að líma inn.
„Þetta hefur reynt á þolrifin en maður valdi
þetta 1972 og verður að standa við það. Það eru
náttúrulega til plötur frá þessu tímabili, True
Light frá 1984 og Never Let Me Down frá 1987,
sem maður hlustar ekki á af neinum áhuga.
Þær eru afspyrnu
slappar
i , báðar,“
Halldór R. Lárusson auglýsingateiknari hefur safnað plötum, diskum, bókum og myndum um Dav-
id Bowie auk þess sem hann klippti út myndir af rokkhetjunni og límdi í úrklippubók í ellefu ár.
Halldór skoðar hér úrklippubókina og ýmis Bowie-rit ásamt vini sínum og miklum Bowie-aðdá-
anda Sæmundi R. Þorgeirssyni. DV-mynd GVA
Gunnar Salvarsson skólastjóri er grjótharður Bowie-aðdáandi. Þegar hann frétti af komu
Bowies til íslands settist hann niður til að hlusta á Bowie-plöturnar. Hann taldi sig eiga sex eða
sjö plötur en komst að raun um að þær voru 18. DV-mynd BG
Gunnar Salvarsson skólastjóri:
Grjótharður
Bowie-aðdáandi
Gunnar Salvársson, skólastjóri Vesturhlíð-
arskóla og fyrrverandi rokkskríbent, er grjót-
harður Bowie-aðdáandi. Gunnar kynntist tón-
list Bowie fyrst upp úr 1970 og hefur fylgst
með honum alla tíð siðan þó að heldur hafi
það minnkað eftir að hann hætti tónlistar-
skrifum. Hann segist hafa séð Bowie þroskast
og tónlist hans breytast. Hann hafi mikil
áhrif á dægurtónlistina í dag. Gunnar segist
ekki hafa verið í sambandi við neina aðra
Bowie-aðdáendur heldur hafi þetta bara verið
„eins manns trúarbrögð", eins og hann orðar
það.
„Hann er frábær tónlistarmaður og einn af
brautryðjendunum í dægurtónlistinni. Hann
ér upphafsmaðurinn að því sem kallað hefur
verið leikhúsrokk. Hann setti tónleika sína á
svið eins og leiksýningar og skapaði persón-
ur og var með nokkurn söguþráð á sumum
plötunum sinum. Allt var þetta nýtt og raun-
verulega einsdæmi að einstaklingur skyldi
gera þessa hluti,“ segir Gunnar Salvarsson
um Bowie.
Gunnar segist hafa kynnst tónlist David
Bowie fyrst gegnum Hunky Dory-plötuna,
sem var forveri Ziggy Stardust, upp úr 1970
og hann hafi hlustað á Bowie allan áttunda
áratuginn. „Það má kannski segja að sá ára-
tugur hafi verið hans blómatímabil," segir
hann. Heldur hefur dregið úr hlusturi Gunn-
ars á tónlist David Bowies en þó segist hann
vera harðákveðinn í að skella sér á tónleik-
ana með honum í júní.
Gunnar segist hafa sest niður og skoðað
vinyl-plötusafnið sitt eftir að hann frétti að
von væri á Bowie til landsins og talið sig eiga
sex eða sjö plötur með honum en komist að
raun um að hann ætti 18.
„Þégar maður fréttir af komu frægra
manna til íslands þá fer maður ævinlega að
hlusta á plöturnar aftur og ég hef verið að
gera það dálítið upp á síðkastið. Það verður
enginn svikinn af tónleikum með David
Bowie,“ segir hann.
-GHS