Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1996, Blaðsíða 51
X>V LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
afmæli
711 hamingju með
af mælið 21. apríl
80 ára
Þorsteinn Karlsson,
Búðardal II, Dalabyggð.
Gústaf B. Einarsson,
Hverfisgötu 59, Reykjavík.
75 ára
Kristinn Guðsteinsson,
Hrísateigi 6, Reykjavík.
Auður Magnea Jónsdóttir,
Víðilundi 18a, Akureyri.
70 ára
Jóna María Hannesdóttir
húsmóðir,
Bröttuhlíð 6,
Hveragerði.
Eiginmaður
hennar er Helgi
Jóhannsson,
fyrrv. bóndi að
Núpum í Ölfusi.
Jóna María
verður að heim-
an.
Jóhannes Árnason,
Vallarbraut 6, Hvolsvelli.
Gísli Berg Jónsson,
Silfurgötu 40, Stykkishólmi.
60 ára
Halla SofBa Guðmundsdóttir,
Byggðavegi 140, Akureyri.
Bergsveinn Sigurðsson,
Eyrarholti 6, Hafharfirði.
Grétar Guðmundsson,
Hverfísgötu 13, Hafnarfirði.
Hafliði Guðjónsson,
Hvassaleiti 34, Reykjavík.
Magga Alda Árnadóttir,
Núpakoti, Austur-Eyjaíjalla-
hreppi.
50 ára
Dana Jóhannsdóttir,
Hamraborg 30, Kópavogi.
Ólöf Friðfinnsdóttir,
Kleppsvegi 28, Reykjavík.
Helga Garðarsdóttir,
Kornbrekkum, Rangárvalla-
hreppi.
Erlingur Aðalsteinsson,
Þórunnarstræti 93, Akureyri.
Guðríður Andrésdóttir,
Króktúni 4, Hvolsvelli.
Friðbjörn H. Guðmundsson,
Hauksstöðum, Vopnafjarðar-
hreppi.
Óskar Benediktsson,
Beinárgerði, Valiahreppi.
40 ára_________________________
Ragnar Ágúst Kristinsson,
Góuholti 14, ísafirði.
yalgerður Kr. Brynjólfsdóttir,
Árbakka, Holta- og Landssveit.
Sigrún Hilmarsdóttir,
Selvogsgötu 26, Hafnarfirði.
Gunnhildur Gísladóttir,
Hofteigi 12, Reykjavík.
Sveinn Bernódus Sveinsson,
Búastaðabraut 8, Vestmannaeyj-
um.
Jóhann Sigurðsson,
Hagamel 53, Reykjavík.
sviðsljós
Alec Baldvin var sýknaður eftir að hafa slegið niður Ijósmyndara sem vildi
ná mynd af Kim Basinger og dóttur þeirra Alec þegar mæðgurnar voru að
koma heim af fæðingardeildinni um daginn.
Alec Baldwin leikari:
Sýknaður eftir að hafa
lamið Ijósmyndara
Það er erfitt að vera heimsfrægur
og fá ekki að hafa einkalíf sitt i
friði! Þetta fékk bandaríski leikar-
inn Alec Baldwin að reyna um dag-
inn þegar hann sló niður ljósmynd-
ara fyrir utan heimili sitt í San
Fernando dalnum í Bandaríkjunum.
Ljósmyndarinn vildi ná mynd af
Kim Basinger, barnsmóður Alecs,
og barni þeirra þegar þær voru að
koma heim af fæðingardeildinni.
Alec, sem var orðinn pirraður, sló
manninn niður og kærði ljósmynd-
arinn verknaðinn.
Dómarinn komst að þeirri niður-
stöðu að Alec væri sýkn saka, en
hann átti yfir höfði sér allt að sex
mánaða fangelsisdóm, og getur
hann nú sinnt nýja barninu sínu,
henni Ireland Eliesse, og barnsmóð-
ur sinni af fullum krafti. Segja má
að litla barnið, sem Kim og Alec
kalla Addie, sé sannkallað krafta-
verk því að Kim Basinger var 41 árs
þegar hún átti hana og Alec 37.
Sigurvegarar í yngri og eldri flokki ásamt þeim sem lentu í öðru og þriðja sæti,
Ein efnilegasta skákkona
landsins héraðsskákmeistari
DV, Akranesi:________________________
Laugardaginn 13. apríl fór fram
hið árlega skólaskákmót Vestur-
lands í Grundaskóla á Akranesi.
Rétt til þátttöku á mótinu áttu allir
skólaskákmeistarar skólanna á
Vesturlandi. Sigurvegarar í skóla-
skákmóti Vesturlands fá síðan rétt
til aðtaka þátt í úrslitum skólaskák-
móts íslands sem fram fer dagana
2.-5. maí. Keppendur voru víðs veg-
ar að af Vesturlandi og var keppt í
tveimur flokkum, eldri og yngri.
Héraðsmeistari í eldri flokki, þ.e.
13-15 ára, vair Berta Ellertsdóttir,
Akranesi, sem hefur unnið mörg
mót og er orðin ein efnilegasta skák-
kona landsins, í öðru sæti varð Sig-
urður Már Sturluson, Akranesi. í
yngri flokki, 13 ára og niður úr,
varð héraðsmeistari Garðar B.
Gunnlaugsson.
aukaafslátt af smáauglýsingum DV
ÍS rr»á-
auglýsingar
OV
Tilkynning frá LAUGAVEGS APÓTEKI
vegna verðkönnunar DV á lyfjum sl. föstudag 19. apríl 1996
Verðlisti sá yfir vörur okkar, sem birtur er í DV er mjög villandi og ýmsar upplýsingar um verð
okkar sömuleiðis. DV segir að í Laugavegs Apóteki „virðist miðað við lægri gjaldskrá en annars
staðar". Þetta er óþarflega ruglingslegt. Hið rétta er að í Laugavegs Apóteki notum við iægri
álagningu á allar vörur sem hið opinbera ákveður ekki verð á, og við notum sömu álagningu á all-
ar vörur, sem frjáls álagning er á. Við veitum einnig öllum 10% afslátt af vörum sem greiddar
eru með peningum, ávísunum eða debetkortum, þ.e. af 85-90% af öllum vörum, sem okkur eru
greiddar við sölu. Auk þess fá allir öryrkjar svo og félagar í Félagi eldri borgara (sem allir 60 ára
og eldri geta gengið í) 15% afslátt af öllum vörum sem þeir greiða okkur á sama hátt.
Vinsamlegast athugið einnig að þetta er ekki nein stuttlíf „afsláttarhrina" í Laugavegs Apóteki.
Þetta er okkar fasta verð eins og það hefur verið um langan tíma. Álagning lyfja, sem selja má án
lyfseðils, lækkaði í okkar eðlilegu, almennu álagningu um leið og stóri bróðir sleppti taki sínu á
þeim vörum.
Hér er svo endurbirtur listi DV yfir ýmsar vörur frá ýmsum apótekum og nú með réttu verðui:
Laugav. Borgar Lyfja Apótek Rvíkur Apótek Ingólfs
Apótek Verð með 10% afsl. Apótek Norðurb Apótek Kópav. Apótek
Nicor tygg. 2 mg/30 stk. 533 558 558 698 628 558 698
Nicor plast. 10 mg/7 stk. 1.545 1.746 1.745 2.182 1.964 1.745 2.182
Parkódín, 10 stk. 134 170 169 212 212 170 212
Paratabs, 500 mg/20 stk. 102 142 141 217 177 140 177
„Ein á dag“, fjölv.,100 stk. 476 527 515 513 511 515 498
Lactúlósa, 100 ml 220 254 254 318 318 254 318
Teldanex, 60 mg/20 stk. 508 534 533 667 667 534 667
Hýdrókortísón, 20 g 410 440 440 550 550 440 550
Otrivin 293 326 326 408 408 326 408
Samtals, kr. 4.221 4.697 4.681 5.765 5.435 4.682 5.710
Fólk er vinsamlegast beðið að athuga að vöruverðið í Laugavegs Apóteki í dag er okkar fasta verð
'eins og það hefur verið um lengri tíma. Annað verð hér í listanum er allt meira og minna með bráða-
birgðaafslætti inniföldum, sérstaklega frá þeim apótekum sem fjölmiðlar hafa haft sérstakan áhuga á
að veita ókeypis auglýsingar.
Oddur C.S. Thorarensen