Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1996, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
21
Kortsnoj fórnar
á báðar hendur
r
- Yoko Ono róar hugann með taflmennsku
Nú er Viktor Kortsnoj orðinn 65
ára en ekki skortir þó leikgleðina. Á
alþjóðlegu móti í New York, sem
fram fór skömmu fyrir páska, barð-
ist hann til þrautar í hverri skák og
uppskeran varð sex vinningar, fjög-
ur töp en aðeins eitt jafntefli.
Kortsnoj deildi þriðja sæti á mót-
inu með stórmeisturunum Valery
Salov, Joel Benjamin og Patrick
Wolff en allir fengu þeir 6,5 vinn-
inga. í 2. sæti varð Bosníumaðurinn
knái, Ivan Sokolov, sem fékk hálf-
um vinningi meira. Enski stór-
Umsjá
Jón LÁrnason
meistarinn Michael Adams yarð
hins vegar ótvíræður sigurvegari.
Hann hlaut 8,5 vinninga - gerði
fimm jafnteíli en vann aðra and-
stæðinga sína.
Þetta er með öflugri mótum sem
fram hafa farið í New York borg um
langt skeið. Borgin hefur þó löngum
verið þekkt í skáksögunni, ekki síst
fyrir fjörlega taflmennsku. Sigur
Adams er glæsilegur en árangur
hans telur ein 2750 Elo-stig. Þeir
Nigel Short heyja nú óopinbert ein-
vígi um það hvor þeirra teljist
snjallastur enskra stórmeistara.
Áður en við skoðum handbragð
sigurvegarans er rétt að líta á
snilldarlega fórnarskák öldungsins
Kortsnojs gegn stórmeistaranum
Georgi Serper frá Úsbékistan. Tafl-
mennska Kortsnojs virðist býsna
einstrengingsleg en sýnir enn og aft-
ur djúpan stöðuskilning meistarans
og um leið „takstískf ‘ innsæi.
Hvítt: Georgi Serper
Svart: Viktor Kortsnoj
Enskur leikur.
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6 4.
g3 Bb4 5. Bg2 0-0 6. 0-0 He8 7. Rd5
Bc5 8. d3 Rxd5 9. cxd5 Rd4 10.
Rd2 d6 11. e3 Rf5 12. Rc4 a5 13.
Bd2 a4 14. b4 Bb6!
Kortsnoj kærir sig kollóttan þótt
uppskipti á b6 kosti hann tvípeö á b-
línunni. Þar með væri hann laus
við veikt peðiö á c7 og frekari að-
gerðir hvíts á drottningarvæng
væru úr sögunni.
15. Ra5 Dd7! 16. Dc2 h5 17.
Hacl h4 18. Dc4 De7 19. Dc2 hxg3
20. hxg3 g6!
Hvítur hefur sólundað tíma sín-
um í óþarfa en á meðan hefur
Kortsnoj byggt markvisst upp sókn-
cU'stöðu. Nú er áætlun hans einfóld:
Hrókurinn skal á h-línuna og síðan
skal blásið í herlúðra.
21. Dxa4 Kg7 22. Dc2 Hh8 23.
Rc4 Dg5 24. Rxb6 Dh5! 25. Hfel
Dh2+ 26. Kfl
26. - Rxg3+! 27. fxg3 Bh3 28.
Bxh3 Dxh3+ 29. Kf2 Df5+
- Og hvítur gafst upp áður en
Kortsnoj gafst færi á að ljúka meist-
araverkinu eftir 30. Kg2 Hh2+! 31.
Kxh2 Df2+ 32. Kh3 Hh8+ 33. Kg4 Df5
mát.
Skák þessi var tefld í 5. umferð en
þann daginn fengu áhorfendur mik-
ið fyrir sinn snúð. Adams lét einnig
vaða á súðum í skák sinni við Nick
de Firmian.
Hvítt: Nick de Firmian
Svart: Michael Adams
Spænski leikurinn.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7.
Bb3 0-0 8. c3 d5
Marshall-árásin alræmda. Svart-
ur fórnar peði fyrir virka stöðu og
sóknarfæri. Enn nýtur þetta af-
brigði vinsælda, þótt „teórían"
spanni 20 leiki eða meira.
9. exd5 Rxd5 10. Rxe5 Rxe5 11.
Hxe5 c6 12. d4 Bd6 13. He2 Dh4
14. g3 Dh3 15. Rd2 Bf5 16. a4
Hae8 17. Hxe8 Hxe8 18. Rfl h5 19.
axb5 axb5 20. Ha6? Rc7!
E.t.v. hefur hvítum sést yfir þetta
einfalda svar. Ekki gengur 21. Hxc6
vegna 21. - Be4 og liðstap blasir við
vegna máthótunarinnar.
21. Ha7 h4 22. Re3?! hxg3 23.
hxg3
23. - Bxg3! 24. fxg3 Hxe3! 25.
Bxe3 Dxg3+ 26. Kfl
Ekki verður mælt með 26. Khl
Be4+ og mátar.
26. - Bh3+ 27. Ke2 Bg4+
Drottningin er fallin og eftirleik-
urinn er auðveldur.
28. Kd2 Bxdl 29. Bxdl Rd5 30.
Ha8 Kh7 31. HeB f5 32. Ke2 Dh2+
33. Kd3 Dxb2
- Og hvítur gafst upp.
Víðsýni Yoko Ono
Yoko Ono, ekkja Bítilsins Johns
Lennons, kvaðst hafa oróið furðu
lostin er hún las í dagblaði nokkru
í New York að skáksveit Morrow-
menntaskólans gæti ekki tekið þátt
í bandaríska landsmótinu sökum
fjárskorts. Að sögn umboðsmanns
hennar fannst henni skondið að
skóli hefði ekki fjármagn fyrir skák-
listina sem hefði einmitt svo mikið
menntunarlegt gildi.
Yoko brá skjótt við, afhenti skák-
sveitinni ávísun upp á 2.500 dollara
(tæplega 170 þúsund ísl. krónur),
unglingunum til mikillar gleði sem
nú gátu tekið þátt i mótinu. Þess má
geta að skólinn er í Brooklyn-hverf-
inu þar sem sjálfur Bobby Fischer
óx úr grasi.
Frétt þessa efnis birtist í víðlesnu
blaði í New York en fór þaðan á Int-
ernetið þar sem Daði Jónsson fann
hana og setti á sína ágætu skáksíðu.
Sögunni fylgir að Yoko' Ono teflir
skák nánast á hverjum degi. „Það
róar huga hennar,“ segir umboðs-
maðurinn.
Hinn fjallmyndarlegi sjarmör, Pi-
erce Brosnan úr James Bond-
myndunum, sýndi sig á verð-
launaafhendingu í Beverly Hills.
Brosnan var að sjálfsögðu spari-
klæddur og með heitkonu sína,
Keeley Shaye, upp á arminn. Er-
lend tímarit velta því fyrir sér
hvort komið sé að trúlofun hjá
parinu.
AÐALFUNDUR
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar verður haldinn þriðjudaginn
30. apríl kl. 20.30.
Fundarstaður Sunnusalur (áður Átthagasalur) Hótel Sögu.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins
frá og með 24. apríl nk.
Dagskrá nánar auglýst síðar.
Stjórn Dagsbrúnar
\
Er á tali ?
Villi karlinn veit ekki að hann þarf aðeins að nýta sér
Hann ýtir bara á fær staðfesti ngu,
leggur á og notar timann til annars.
Þegar hitt simtalið er búið, hringir
siminn hjá Villa og brátt er hann
kominn i samband. Simtalspöntun
kostar aðeins 9,97 krónur.
POSTUR OG SIMI