Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1996, Side 10
10
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
íslensk danspör komust á verðlaunapall í Blackpool í Englandi:
„Áfram ísland" ómaði
um alla danshöllina
Það var gaman að vera íslending-
ur í Blackpool í Englandi í vikunni
eftir páska því að þá unnu íslenskir
dansarar stóra sigra í óopinberri
heimsmeistarakeppni sem haldin er
á hverju ári í Blackpool. Þrátt fyrir
flensu, sem hrjáði marga dansarana
og foreldra þeirra, náðu fjögur pör
að stíga á verðlaunapall og það
fimmta stóð sig einnig mjög vel.
Segja má að íslendingar eigi heims-
meistara í suðuramerískum döns-
um því að Sigursteinn Stefánsson
og Elísabet Sif Haraldsdóttir lentu í
1. sæti í suðuramerískum dönsum í
aldursflokknum 12 til 16 ára.
Gífurlega hörð keppni var milli
paranna í aldursflokki Sigursteins
og Elísabetar enda gerðist það í
fyrsta skipti í sögu keppninnar í
Blackpool að átta pör voru valin í
úrslit, fram að þessu hafa þau alltaf
verið sex. Gífurlega góð stemning
var í höllinni meðan Sigursteinn og
Elísabet dönsuðu og allt þar til úr-
slitin voru tilkynnt. Jón Edwards-
son, faðir Davíðs Gills Jónssonar,
segist hafa heyrt að stemningin hafi
verið á við góðan landsleik því að
„Áfram ísland" hafi ómað um sal-
inn meðan parið dansaði og þar til
úrslitin lágu fyrir.
Þarf snerpu og mýkt
„Ég er alveg í skýjunum. í fyrra
urðum við í 5. sæti og við vissum að
öll pörin fyrir ofan voru farin upp í
næsta aldursflokk fyrir ofan okkur
nema eitt. Það voru þrjú til fjögur
pör sem áttu möguleika á sigri núna
og við vorum eitt af þeim. Við vor-
um í toppformi og það gekk allt upp
en þetta var rosalega erfitt og tók
mikið á,“ sagði Sigursteinn nú í vik-
unni. Hann sagði að hann og Elísa-
bet hefðu keppt tvisvar í annars
konar, minni keppni fyrir aðal-
keppnina til að komast í „góðan fíl-
ing,“ eins og hann orðaði það.
Keppnin í Blackpool hófst í vik-
unni eftir páska og lauk um síðustu
helgi. Pörin kepptu á hverjum degi
og hófst keppnin klukkan þrjú eða
fjögur að degi til og lauk um hálfeitt
að nóttu þegar stigið var á verð-
launapall. Um 210-220 pör hófu
keppnina í hverjum aldursflokki og
fækkaði pörunum alltaf um helming
í hverri umferð. Dansaðar voru sjö
til átta umferðir á hverjum degi,
fimm dansar í einu, og leið hálftími
til klukkutími á milli umferða.
„Maður þarf að gefa fullt í þetta
því að maður getur alltaf átt von á
því að detta út, líka til að bæta sig
alltaf í hverri umferð," sagði Sigur-
steinn og bætti við að það sæti enn
í sér þreyta eftir keppnina. „Þetta
eru svo hraðir dansar og maður
þarf að hafa snerpu og mýkt í þessu.
Þetta tekur virkilega á,“ sagði hann.
En þó að árangur Sigursteins og El-
ísabetar hafi vissulega verið glæsi-
legur stóðu hin íslensku pörin sig
einnig frábærlega vel.
íslensk pör í
3. og 5. sæti
í öðru sæti í suðuramerísku döns-
unum í aldursflokki 12-15 ára lenti
ástralskt par og í þriðja sæti komu
Davíð Gill Jónsson og Halldóra Halldórsdóttir stóðu sig með mikilli prýði.
DV-myndir Stefán Guðleifsson
íslensk danspör stóðu sig frábærlega vel á danskeppni í Blackpool á dögunum og komust á verðlaunapall. Hér má
sjá Benedikt Einarsson, Berglindi Ingvarsdóttur, Brynjar Örn Þorleifsson, Sesselju Sigurðardóttur, Sigurstein Stef-
ánsson og Elísabetu Sif Haraldsdóttur með verðlaunagripina.
ið í nammibindindi og sleppi allri
gosdrykkju og svo segist hún borða
mjög sérstakt fæði og orkuríkt þeg-
ar hún er í keppnisferðalagi.
Dans skemmtilegri
en körfuboltinn
Davfð Gill Jónsson og Halldóra
Halldórsdóttir, sem bæði eru 10 ára
gömul, unnu keppnina í tja tja og
lentu í 5. sæti í suðuramerískum
dönsum, svo eitthvað sé nefnt. Ár-
angur Davíðs og Halldöru þykir
mjög góður því að þau eiga eitt ár
eftir í sínum aldursflokki, það er í
flokki 12 ára og yngri.
„Ég hef verið í dansi frá því ég
var fjögurra ára og Dóra byrjaði
líka fjögurra ára. Við erum búin að
dansa saman frá því við vorum sex
ára,“ segir Davíð Gill. Hann æfir
líka körfubolta hjá Val og á að
mæta á æfingar þrisvar í viku en
sleppir alltaf einni æfingu til að
geta mætt í dans. En hvort skyldi
honum finnast skemmtilegra, karf-
an eða dansinn?
„Mér finnst dans skemmtilegri,"
segir hann.
Rétt er að geta þess að Snorri
Engilbertsson og Doris Ósk Guð-
jónsdóttir komust í úrslit í flokki
12-13 ára í suðuramerískum döns-
um.
Keppnisferðin til Blackpool tókst
með afbrigðum vel. Um 150 íslend-
ingar fóru á keppnina og leigðu sér
flugvél sem flaug beint til Blackpool
með keppendurna, foreldra þeirra
og danskennara. Það er víst áreið-
anlegt að þetta fólk fór enga erindis-
leysu til Blackpool. -GHS
íslendingar. Það voru þau Brynjar
Örn Þorleifsson og Sesselja Sigurð-
ardóttir. í fjórða sæti kom írskt par
og í fimmta sæti komu íslending-
arnir Benedikt Einarsson og Berg-
lind fngvarsdóttir. Benedikt og
Berglind eru aðeins 13 og 14 ára og
eiga því að öllum líkindum eftir að
keppa í þessum sama aldursflokki
aftur á næsta ári. í sjötta sæti var
írskt par, sjöunda sæti ítalskt par og
slóvenskt par í áttunda sæti.
„Þetta er alltaf mjög mikil vinna,
það er mikið að gera og maður sef-
ur lítið. Keppnin byrjaði yfirleitt
um fjögur á daginn og var aldrei
búin fyrr en um eitt um nóttina.
Svo þarf líka að undirbúa sig, mála
og greiða og æfa sig. En það er nátt-
úrulega mesta vinnan hjá þeim sem
komast lengst,“ segir Sesselja Sig-
urðardóttir en hún og dansherrann
hennar, Brynjar Örn Þorleifsson,
komu með fjóra verðlaunagripi
heim frá Blackpool.
Æfingar fimm
sinnum í viku
„Við Brynjar erum búin að dansa
saman frá því við vorum sex ára og
erum mjög góðir vinir. Við vorumi
sama danstímanum og kennarinn
okkar spurði okkur hvort við vild-
um ekki dansa saman. Við höfum
bara dansað saman síðan og gengið
rosalega vel,“ segir hún. Sesselja og
Brynjar æfa dans fimm sinnum í
viku og stundum oftar, allt eftir því
hvað er fram undan hjá þeim, og
sama gildir um hin pörin.
Pörin fara yfirleitt í dansskólann
strax eftir skólann og koma ekki
heim fyrr en klukkan fimm til sex
síðdegis. Það er því lítið um annað
hugsað en skólann, heimalærdóm-
inn og dansinn.
Veiktist í
aðalkeppninni
„Okkur hefur gengið mjög vel á
síðustu árum þannig að við vonuð-
um það besta en gerðum okkur ekki
neinar sérstakar vonir. Ég veiktist á
aðaldeginum, mér var flökurt og ég
gat ekkert borðað og var alveg orku-
laus en þetta endaði vel,“ segir
Berglind Ingvarsdóttir. Þrátt fyrir
veikindin stóðu Berglind og Bene-
dikt, sem eru 13 og 14 ára gömul, sig
með prýði og lentu í 5. sæti í suður-
amerísku dönsunum.
Berglind segir að þau taki þátt í
íslandsmeistaramótinu í samkvæm-
isdönsum, sem haldið verður í maí,
og svo hafi þegar verið ákveðið að
þau taki þátt í mjög sterkri keppni í
úthverfl Lundúna í haust sem heit-
ir International. Ekki er víst að hin
pörin taki þátt í þeirri keppni vegna
aldurs. Ef þau ákveða að taka þátt í
keppninni verða þau að keppa í
eldri aldursflokki og segir Sigur-
steinn að þau séu að velta fyrir sér
þátttöku. Þau sjái þá hvernig þau
standi í samanburði við pör á sín-
um aldri.
Það er mjög krefjandi að vera í
dansi, sérstaklega ef maður ætlar
sér að ná langt. Sesselja segir að
dansinn taki mikinn tíma, stelpurn-
ar verði að eiga fallega keppniskjóla
og herrarnir séu alltaf í hvítri
skyrtu með bindi. Hún segist passa
vel upp á mataræðið, hafa lengi ver-
I
I
!t
(
(
(
!(