Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1996, Page 14
14
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 JjV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVl'K, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins f stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Afturvirk leyfi
Einn helzti skipherra Landhelgisgæzlunnar hefur sagt
starfi sínu lausu og gerzt triUukarl, af því aö hann er
ósáttur við, hvernig ráðamenn þjóðarinnar hafa leikið
Landhelgisgæzluna. Skipherrann er Höskuldur Skarp-
héðinsson, sem fjallað er um á öðrum stað í blaðinu í
dag.
Meðal þess, sem fyllti mæli Höskuldar, er afturvirkt
leyfi, sem hann telur, að Þorsteinn Pálsson hafi, sem
dómsmálaráðherra og sjávarútvegsráðherra í senn, veitt
einu skipa Einars Odds.Kristjánssonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, sem staðið var að ólöglegum veiðum.
Þessi skoðun er studd mannalátum þáverandi skip-
verja á Æsu, sem sögðu tökuna marklausa, af því að Ein-
ar Oddur mundi kippa málunum í liðinn fyrir sunnan.
Það kom svo í ljós, að afturvirkt leyfi var skjótlega gefið
út að kvöldlagi og taka skipsins gerð marklaus.
Einar Oddur hefur bætt gráu ofan á svart við upprifj-
un þessa máls og uppnefnt skipherra Landhelgisgæzl-
unnar sem „ofvirkan bókstafstrúarmann". Þeir þykjast
svo sem eiga ríkið þessir höfðingjar Sjálfstæðisflokksins,
enda virðast ýmis fleiri dæmi staðfesta, að svo sé.
Þorsteinn Pálsson hefur margsinnis dregið taum sér-
hagsmuna gegn almannahagsmunum. Frægast var, þeg-
ar hann gekk framhjá lægsta tilboði í Síldarverksmiðjur
ríkisins og lét vini stna í flokknum hafa þær á verði, sem
var hundruðum milljóna króna undir raunvirði.
Hann hefur einnig dregið taum tryggingafélaganna,
þegar þau hafa einhliða tekið saman höndum um að rýra
kjör öryrkja. Mikill meirihluti lögmannastéttar landsins
hefur fordæmt þann gerning, sem var dæmigerður fyrir
stuðning ráðherrans við sérhagsmuni.
Verst er við mál af þessu tagi, að þjóðin lætur sér fátt
um finnast. Hún æmtir hvorki né skræmtir, þótt flett sé
ofan af hverju hneykslismálinu á fætur öðru. Hún hefur
þannig komið sér upp stétt stjórnmálaleiðtoga, sem tek-
ur áhyggjulausar geðþóttaákvarðanir eftir þörfum.
Raunar er venjulegur íslendingur svo lokaður fyrir
umræðu um siðalögmál, að hann hefur þær einar
áhyggjur af spiilingu að komast ekki í hana sjálfur. Það
er ekki von, að menn endist til vera skipherrar landhelg-
isgæzlu og aðrir laganna verðir hjá svo siðlausri þjóð.
Fyrir nokkrum árum var í landinu fjármálaráðherra,
sem lét ríkið taka verðlaus veð í ímynduðum eignum
vina sinna og gaf vildarmönnum sínum ríkisfyrirtæki á
Siglufirði. Hann var óvenjulega frakkur við geðþótta-
ákvarðanir í svipuðum stíl og dómsmálaráðherrann.
Þessi fyrrverandi fjármálaráðherra, sem er fjarri því
að vera vammlaus, nýtur nú feiknarlegra vinsælda þjóð-
arinnar og verður sennilega orðinn forseti lýðveldisins í
sumar. Ekki er hægt að hugsa sér átakanlegra dæmi um
víðtækt siðleysi íslendinga almennt.
Áhugaleysi íslendinga um fastar leikreglur í lagaleg-
um römmum á veigamikinn þátt í erfiðleikum þjóðar-
innar, þar á meðal minni hagvexti en hjá nágrannaþjóð-
unum. Efnahagsleg velgengni markaðshyggjuþjóðfélaga
byggist nefnilega á föstum og sjálfvirkum leikreglum.
Hér fer gengi stórfyrirtækja minna eftir rekstrarár-
angri heldur en eftir aðstöðu þeirra í kerfinu, sambönd-
um þeirra við valdamenn, sem taka ákvarðanir eftir geð-
þótta, óbundnir af skrifuðum og óskrifuðum lögmálum,
svo og möguleikum þeirra til að misnota sér fákeppni.
Hér á landi skiptir meiru, að útgerðarmaður sé í póli-
tík og helzt á þingi, svo að hann fái fyrirgreiðslu ráð-
herra, heldur en að hann kunni að reka fyrirtæki.
Jónas Kristjánsson
Þungamiðja hnattferðar
Clintons í Austur-Asíu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
er i viku hnattferð með viðkomu í
tveim löndum Austur-Asíu og
Rússlandi. Rússlandsferðin er á
yfirborðinu'til þátttöku í fjölþjóða-
fundi um kjarnorkuöryggi en er í
rauninni viðleitni til að styðja við
bakið á Borís Jeltsín Rússlands-
forseta i erfiðri kosningabaráttu,
með því að auglýsa alþjóðlega
stöðu hans fyrir rússneskum kjós-
endum.
I Japan og Suður-Kóreu átti
Bandaríkjaforseti hins vegar
stórpólitísk erindi, annað brýnt
en hitt með langtímamarkmið fyr-
ir augum. í báðum löndum er þó
um það að ræða að sýna fram á að
við breyttar aðstæður geti Banda-
ríkin áfram verið jafnvægisafl í
Austur-Asíu.
í Seoul ákváðu Clinton og Kim
Jong Sam, forseti Suður-Kóreu, að
bjóða Norður-Kóreu og Kína til
þátttöku í ráðstefnu til að gera
friðarsamning eftir Kóreustríðið,
sem lauk með vopnahléi 1953. Til-
boðið er svar við yfirlýsingu
Norður-Kóreu um að hún telji
ákvæði vopnahléssamningsins úr
gildi, og því fylgdi hún eftir með
því að senda ítrekað þungvopnað
lið inn á hlutlausa beltið þvert
yfir Kóreuskagann sem þá var af-
markað.
Meginkrafa Norður-Kóreu-
stjórnar er að Bandaríkjastjórn
gangi til friðarsamninga við hana
án þátttöku Suður-Kóreu. Stjórn
Suður-Kóreu hefur hins vegar
krafist tvíhliða viðræðna við
stjórnina i Pyongjang.
Með tillögu Clintons og Kims er
farið bU beggja. Kínastjórn hefur
tekið henni vænlega og stjórn
Norður- Kóreu kveðst hafa hana
til athugunar. Helsta gagnrýnin
hefur komið frá Rússlandsstjórn,
sem þykir fram hjá sér gengið.
Á víðara sviði um austanverða
og suðaustanverða Asíu hefur
óvissa um valdahlutföll og fram-
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
tíðarhorfur ágerst á síðari árum.
Einkum kemur tvennt tU. Síend-
urteknar erjur um viðskiptamál
milli Bandaríkjanna og Japans
hafa vakið efasemdir um endingu
pólitísks og hernaðarlegs banda-
lags ríkjanna. Þetta þykir þeim
mun viðurhlutameira sem sam-
tímis hefur átt sér stað efnahags-
uppgangur í Kína ásamt eflingu
hernaðarmáttar og áhyggna af
valdabaráttu samfara fyrirsjáan-
legum leiðtogaskiptum.
Kínastjórn heldur áfram tU-
raunum með kjarnavopn, hún
stefnir greinUega að því að gera
Kína að flotaveldi og ræður yfír
töluverðum eldflaugakosti. Kín-
verskur vilji til valdbeitingar þyk-
ir hafa komið fram i yfirtroðslum
gagnvart Víetnam og Filippseyj-
um, þar sem ríkin deila um yfir-
ráðasvæða í Spratly eyjaklasanum
víðlenda á Suður-Kínahafi. Mest
varð mönnum þó um þegar Kína-
stjórn reyndi að hafa áhrif á for-
setakosningar á Tævan með flota-
og eldflaugaæfíngum í námunda
við eyna og áskildi sér rétt til að
hindra með valdi að Tævan tæki
sér sjálfstæði.
Með tilliti til alls þessa var
ákveðið að viðskiptamál skyldu
liggja í láginni í Japansheimsókn
Clintons en láta hana snúast um
hernaðarbandálag ríkjanna. Auk
áðurgreindra stórpólitískra or-
saka kom það til að nauðgun
þriggja bandarískra landgöngu-
liða á skólastúlku á eynni Ok-
inawa hefur valdið uppnámi miss-
erum saman, þar sem bandarískar
herstöðvar eru þéttastar í Japan á
tiltölulega litlum bletti.
Clinton féflst á að reyna að
lækka öldurnar á Okinawa með
því að leggja þar niður fimm
bandarískar herstöðvar, þar á
meðal víðlenda flugstöð, og biðjast
við brottfór afsökunar á framferði
hermanna sinna. En tekið var
fram að mannfjöldi í bandarískum
herstöðvum í Japan öllu yrði eftir
sem áður óbreyttur, um 100.000.
Meira máli skiptir þó, að stjórn-
ir Bandaríkjanna og Japans hafa
orðið ásáttar um að endurskoða
samkomulag sitt frá 1978 um sam-
starf á hættutímum eða ófriðar-
tímum í Austur-Asíu. Þar með er
komið til móts við væntingar ann-
arra ríkja á svæðinu, sem líta
ekki aðeins á nærveru bandarísks
herafla sem mótvægi við hernað-
armátt Kína, heldur einnig hemil
á endurvakningu hernaðarstefnu í
Japan.
Kínastjórn hefur fyrir sitt leyti
sýnt lit á að friðmælast við nálæg
ríki eftir uppnámið út af aðförum
hennar við Tævan. Hún hefur lagt
fyrir aðildarríki Samtaka ríkja
Suðaustur- Asíu (ASEAN) tillögu
um undirbúning sameiginlegrar
yfirlýsingar um reglur góðrar
sambúðar og óskar að auki „við-
ræðuþátttöku" í fundum ASEAN.
Er það komið tilefni til að taka
upp meðferð deilunnar um Sprat-
ly-eyjar.
Bill og Hillary Clinton veifa til gestgjafa við brottför frá Tokyo á fimmtudag.
Símamynd Reuter
skoðanir annarra
Gro Harlem Brundtland til SÞ
| „Enn einu sinni hefur Gro Harlem Brundtland
I forsætisráðherra verið orðuð við háttsett embætti á
alþjóðavettvangi. Nú er það staða framkvæmda-
: stjóra Sameinuðu þjóðanna. Samtökin þurfa fyrir
« árslok að velja sér nýjan leiðtoga til fimm ára. Inn-
an SÞ eru vangaveltur þegar hafnar um hver muni
1 taka við af Boutros Boutros-Ghali. Staða Gro
I Harlem Brundtland í alþjóðastjórnmálum er mjög
I' sterk. Hún er þekkt fyrir að vera duglegur og ós-
meykur stjórnmálamaður, ekki hvað síst fyrir starf
sitt að umhverfismálum.“
Úr forustugrein Verdens Gang 15. apríl.
Öryggið sett á oddinn
„Þegar Bill Clinton forseti heimsótti Japan fyrst
i árið 1993 voru heiftarlegar viðskiptadeilur efst á
; baugi. Hann var aftur í Tokyo í vikunni en um-
ræðuefnið hefur breyst. í þetta skipti hafa hvorir
tveggju lagt áherslu á að styrkja öryggisbandalag
sitt. Breytingin er vel við hæfi vegna nýrrar hern-
aðarlegrar spennu í heimshlutanum og hún lofar
góðu um bætt samskipti Bandarikjanna og helsta
bandamanns þeirra í Asíu.“
Úr forustugrein New York Times 18. apríl.
Víðskiptahindranir í ESB
„Sjötta hvert útflutningsfyrirtæki í Danmörku
hefur nýlega mátt þola viðskiptahindranir í öðrum
löndum Evrópusambandsins. Það er í sjálfu sér
áhyggjuefni en verður enn hrikalegra þegar aðeins
tíunda hvert fyrirtæki verður fyrir viðskiptahindr-
unum utan ESB. Væntingarnar um innri markað
með ffjálsum flutningum yfir landamærin hafa
brugðist svo hrapallega að fyrirtækin lenda í minni
vandræðum afls staðar annars staðar í heiminum."
Úr forustugrein Politiken 17. apríl.