Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Blaðsíða 33
32 Hþlgarviðtal
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 DV
DV LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996
Gelgarviðtal
an og Sella læröi gerö heimildar-
mynda í Maine. Einnig tók hún nám-
skeið í að skrifa kvikmyndahandrit.
Þegar hún dvaldi á íslandi gerði hún
heimildarmynd sem Saga Film fram-
leiddi um Sigurð Þorsteinsson skip-
stjóra og var myndin sýnd í ríkissjón-
varpinu.
Efri röð frá v.: Stefán, Anna Heiða, ritari, Páll Arnór, Ivar. Neðri röð frá vinstri: Sella, Pórunn,
Guðrún Stephensen, Signý og Sigþrúður.
Glæpum fækkar
Sella býr í Upper West Side sem er ná-
lægt Náttúrugripasafninu á Manhattan og
í göngufæri við leikhúsin. Á þessum slóð-
um er ekki mjög mikið um glæpastarf-
semi. Sella segir að best sé að forðast þau
hverfi sem eru hættulegust. Hún segist
kunna sig, gangi ekki með veski, fari ekki
í gönguferð í Central Park á nóttunni og
fari aldrei í Harlem.
„Glæpum hefur fækkað mikið í New
York því borgarstjórinn hefur verið með
átak. Borgin er hreinni og hann kemur
skemmtanafyrirtækjum eins og Disney
fyrir á 42. götu þar sem var mikið um
vændi og klámstarfsemi. Á þann hátt
hreinsar hann út úr hverfínu. Það er mjög
mikill munur síðan þetta var gert þar sem
þetta illræmda hverfl var við leikhús-
hverfið Broadway. Áður flýtti fólk sér í
leikhúsin og frá þeim aftur. Núna eru
komnir veitingastaðir í leikhúshverflð og
leikhúsgestir eru afslappaðri heldur en
áður.“
Sautján ára til Am-
Sella fór fyrst til
Bandaríkjanna
sautján ára gömul í
háskóla í Texas í
eitt ár. Eftir það
fór hún í skóla í
Lousiana og
þaðan aftur til
íslands. Hún
vann á íslandi
sem einkarit-
ari á lögfræði-
stofu fóður
síns í tvö ár.
Á þeim tíma
kynntist
hún fyrsta
eiginmanni
sínum, Ge-
orge
Wesley
Allen, og
flutti til
Banda-
ríkjanna
með hon-
um. Þau
eiga sam-
son-
erslun
stóru
verslun-
arfyrir-
tæki og
býr í Texas. Allen, fyrrverandi eiginmað-
ur Sellu, var lögreglumaður í Indiana þar
sem þau hjónin bjuggu í fimm ár eða þar
til þau skildu. Sella starfaði á þeim tíma
við skrifstofustörf og banka í Indiana.
Við skilnaðinn fluttist hún til New
York þar sem hún bjó í kringum tíu ár. Á
þeim árum rak hún ásamt tveimur öðrum
veitingastaðinn Palssons á Manhattan.
Kabarett-leikhús
„Við stækkuðum Palssons á þessum
tíma og bættum við kabarett-leikhúsi þar
sem við settum upp nokkrar leiksýningar
þar til leikritið Forbidden Broadway varð
svo vinsæll að uppselt var langt fram í
tímann. Forbidden Broadway var sýndur
á Palssons í 5'/2 ár. Það var aldrei sérstak-
lega gott samkomulag á milli meðeigenda
minna. Eg hætti að'vinna á veitingastaðn-
um og fluttist til Utah á þessum árum og
þá fór veitingastaðurinn niður á við
vegna samstarfsörðugleika þeirra. Þeir
töluðu i á endanum ekki saman en mér
tókst að selja öðrum þeirra minn hluta í
veitingahúsinu. Helminginn fékk ég borg-
aðan en hinn helmingurinn rann í gjald-
þrotið þegar staðurinn fór á hausinn,"
segir Sella.
Kraftmikill framleiðandi
Árið 1982 byrjaði Sella að framleiða
sýninguna Forbidden Broadway við
mikla hrifningu áhorfenda og því starfi
lauk árið 1991. Þá hafði verkið verið sýnt
i nokkrum stórborgum eins og New York,
Boston, Washington og Los Angeles.
Hluta af þeim tíma bjó SeUa í Utah og
ferðaðist á milli.
„Forbidden Broadway gekk framúr-
skarandi vel og ég vann eingöngu við að
framleiða hann í níu ár. Meðal annars fór
ég með eina uppsetningu í tveggja vikna
siglingu á skemmtiferðaskipinu Queen
Elizabeth II,“ segir Sella.
Áfengisvandinn
Egill Ólafsson hefur sarr
GSM í hverjum bíl
Sellu fannst gott að alast upp í vest-
urbænum og í Skerjafirðinum. Hún
var samt ekki jafhhrifin af skólakerf-
inu. Það fannst henni byggjast upp á
mötun nemendanna á námsefni og ut-
anbókarlærdómi. Henni leiddist í
skóla þar til hún kom til Bandaríkj-
anna en þar segir hún nemendur fá að
taka þátt. Frá Utah lá leiðin aftur
heim til íslands þar sem hún bjó í þrjú
ár en hún hefur komið með vissu
millibili til íslands. Hún starfaði með-
al annars hér á landi í tvo mánuði í
sumar á
vegum
Listahá-
tíðar.
„Mér
finnst
mjög gott
að vera
heima.
Það hefur
margt
breyst á
þessum
árum sem
ég hef
verið í
burtu.
Mér
finnst
mjög
gamán að
fylgjast
með hvað
allt er
orðið ný-
stárlegt
og ég hef
tekið eftir
því hvað
íslendingar eru
klárir og fljótir
að tileinka sér nýjungar á sviði tölva og
síma. Það er algengara hér á landi að all-
ir hermi eftir nýjungum ef einhver byrjar
heldur en það er í New York. Ég var hissa
á því að sjá alla GSM-símana þar sem þeir
virðast nánast óþarfir vegna þess að vega-
lengdirnar eru svo stuttar. Það er ekki
mikið um GSM-síma notkun í New York,“
segir Sella.
Sella segist alltaf sakna fjölskyldu sinn-
ar á íslandi og stundum fái hún heimþrá.
Hún segir þó að faxtæki og Alnetið hafi
fært hana nær þar sem mjög auðvelt sé að
vera í sambandi við alla núorðið.
„Ég vil helst vera í New York hluta af
árinu og hluta á íslandi til þess að geta
umgengist fjölskylduna meira. Ef Come
Dance with Me gengur vel get ég hugsan-
lega leyft mér það. Ég er þó ekkert að
velta mér upp úr búsetunni núna heldur
tek einn dag í einu,“ segir Sella.
Á síðastliðnu ári lauk Sella við að
skrifa íslenskt leikrit sem heitir Ljósir
lokkar og byggir á reynslu
hennar sem ráðgjafi
hjá SÁÁ. Leikritið
verður tekið í leik-
lestur hjá Þjóðleik-
húsinu eftir
áramót.
„Ég held
ótrauð
áfram á
þessari
braut og er
byrjuð á
öðru verki.
Ég ákvað
þegar ég
kom til
baka frá ís-
lsmdi að
helga mig
söngleikn-
um hund-
rað pró-
sent og
hugsa ekki
um neitt
annaö
fram að
frumsýn-
ingu,“ seg-
ir Sella.
-em
Sella Palsson ásamt leikhópnum sem leikur og syngur í Come Dance with Me.
Frá vinstri neðri röð Peggy Shai, Sella, Bernadette Drayton. Frá vinstri efri röð
Kevin Conell, Curt Hostetter, Rita Harvey og Jon Vandeltholen.
Á árunum í Utah ákvað Sella að söðla
um og byrja aftur í skóla. Hún valdi sér
sálarfræði og lauk BA-prófi í henni. Hún
bætti við sig meðferö áfengissjúklinga og
fjölskyldna þeirra. Hún hefur kynnst böli
áfengisins í sínu lífi þar sem faðir henn-
ar, fyrrum eiginmaðm’ og sonur og hún
sjálf hafa öll átt við áfengisvanda að etja.
Sella hefur meðal annars starfað sem ráð-
gjafi og deildarstjóri fjölskyldudeildar hjá
SÁÁ.
Sella hefur verið án áfengis í tólf ár en
hún ákvað sjálf að hætta að drekka. Hún
segir að margir hafi verið hissa á því að
hún ætti við vanda að etja. Mjög auðvelt
hafi verið að fela drykkjuna þar sem hún
starfaði á veitingastaðnum. Þar sé eðlilegt
að fólk drekki daglega.
„Drykkjumunstrið hérna er ólíkt því
sem gengur og gerist á íslandi. Maður
verður ekki var við ofdrukkið fólk hér
eins og heima og er það vegna þess að Is-
lendingar, sem eiga margir við áfengis-
vandamál að stríða, reyna oft að drekka
ekki í miðri viku og hella svo rækilega í
sig um helgar,“ segir
Sella. A
Skriftirnar hafa
aldrei
verið
langt
und-
,Egill Úlafsson semur tónlistina:
Eg vil búa heima
„ÞfStB eru lagræn lög. Aðalhetju verksins dreymir
um að syngja á Broadway og verður gjaman hugsað til
gullaldaráranna sem voru fjórði, fimmti og sjötti ára-
tugurinn. Af þeim sökum er stíllinn á lögunum sóttur
til þess tíma,“ segir Egill Ólafsson sem semur tónlist-
ina í Come Dance with Me eftir Sellu Palsson.
„Sella hafði fyrst samband við mig fyrir tveimur
árum og samstarf okkar hefur smám saman undið upp
á sig,“ segir Egill.
Egill er mjög fjölhæfur tónlistarmaður og hefur leik-
ið stórt hlutverk í íslensku tónlistarlífi í mörg ár. Þetta
er frumraun hans í lagasmíðum fyrir söngleik á er-
lendri gmndu. Egill þiggur ekki laun fyrir vinnu sina
en hann hefur samið í kringum þrjátíu lagræn og gríp-
andi lög og um tuttugu þeirra verða væntanlega notuð
í söngleiknum. Ef Come Dance with Me gengur vel og
verður settur upp á Broadway eða „Off Broadway" fær
Egill eitthvað fyrir snúð sinn.
lið tónlistina fyrír söngleikinn Come Dance with Me.
r
Sella Palsson seturupp söngleikíNewYorkogfærEgil Olafssontil aðsemjatónlistina:
Stefnir á Broadway
eftir sextán
„Söngleikurinn er tileinkaður
mjög góðum vini mínum sem dó úr
alnæmi. Hann reyndi að koma sér
áfram sem leikari og var afar vin-
sæll á bamum. Fólk leitaði oft til
hans í erfiðleikum sínum,“ segir
Sella Palsson, öðru nafni Sesselja
Pálsdóttir sem skrifað hefur söng-
leik sem settur verður upp í New
York. Sella hefur verið búsett i Am-
eríku meira og minna undanfarin
þrjátíu ár. Egill Ólafsson semur tón-
listina við söngleikinn.
Söguþráðurinn byggir á reynslu
Sellu þegar hún átti veitingastað í
New York. Þar er algengt að leikar-
ar vinni sem barþjónar því þeir geta
auðveldlega skotist frá og fengið
einhvern til þess að hlaupa í skarð-
ið fyrir sig þegar þeir fara í prufur.
„Ég vonast auðvitað til þess að
fólki líki söngleikurinn minn og
bind vonir við að hann verði sýnd-
ur á Broadway eða Off Broadway.
Það góða við New York er að ef fólki
líkar eitthvað stykki vel koma
áhorfendur mjög fljótt og sjá verkin.
Leikhúsheimurinn er frekar þröng-
ur og þeir sem lifa og hrærast í hon-
um vita nákvæmlega hvað er að
gerast,“ segir Sella.
Kynningaruppfærsla
Söngleikurinn gerist að mestu á
veitingastað og fiallar um barþjón-
inn og leikarann Sammy sem lætur
sig dreyma um að koma fram á
Broadway. Einnig blandast inn í
leikinn persónur sem leita huggun-
ar hjá honum á bamum. Söngleik-
urinn heitir Dance with Me og verð-
ur frumsýndur í Chernuginleikhús-
inu i New York 25. október næst-
komandi á fimmtugsafmæli Sellu.
Þetta er fyrsti söngleikurinn sem
hún semur sem sýndur er á sviði og
hún framleiðir hann sjálf. Um er að
ræða svokallaða kynningarupp-
færslu. Búið er að fiármagna sextán
sýningar í tilraunaskyni. Eftir það
ræður áhugi almennings á sýning-
unni hvort stóm fiárfestamir hafa
áhuga á að sefia hana upp á Broad-
way eða Off Broadway.
r
I sveit á sumrin
Sella ólst upp á Kvisthaganum og
í Skerjafirðinum. Hún fór oft í sveit
á sumrin og var á bænum Á í Una-
dal rétt hjá Hofsósi. Sella gekk í
verslunarskóla á sínum tíma og
kláraði hann. Hún er næstelst í átta
systkina hópi. Faðir hennar var
hæstaréttarlögmaðurinn Páll S.
Pálsson sem er látinn og móðir
hennar er Guðrún Stephensen.
Systkini hennar eru sjö og búa þau
öll á íslandi. Þau heita Stefán,
hæstaréttarlögmaður, Páll Arnór
hæstaréttarlögmaður, Signý, fram
kvæmdastjóri Listahátíðar, Þórunn
kennari og leikkona, Sigþrúður
listamaður og arkitekt, Anna Heiða
skrifstofumaður og nemi í enskum
bókmenntum, og ívar, viðskipta-
fræðingur og eigandi útflutningsfyr-
irtækisins Sævörur.
Vill vinna við skriftir
Einvala lið söngvara og leikara
vinnur að söngleiknum Come
Dance with Me en þeir þiggja ekki
greiðslu fyrir að koma fram. Fáist
fiármagn til sýninga á Come Dance
with Me í stærri leikhúsunum hafa
leikararnir forgangsrétt á hlutverk-
unum. Sella býst við mörgum lönd-
um sínum úr Íslensk-ameríska fé-
laginu á frumsýninguna en það hef-
ur í kringum 300 félagsmenn.
Starf framleiðanda
Leikhúsin á íslandi eru sjálf
framleiðendur sýninga en leikhúsin
í New York eru mikið til einkavædd
og starfandi leikhús með eigin
stjórn eru fáséð. Broadway- leikhús-
in bjóða yfirleitt upp á yfir 1000 sæti
og það kostar mikið að sefia upp
sýningar þar. Off Broadway leikhús-
in eru með færri sæti en 1000. Starf
framleiðandans felst í því að sefia
saman sýninguna og semja við alla
aðila. Mikilvægast er að ná inn fiár-
festum fyrir sýningamar.
„Framleiðsla sýninga og söng-
leikja er ekki efst á listanum hjá
mér lengur. Mig langar öðru fremur
til þess að skrifa en eina leiöin fyr-
ir mig til þess að koma verkinu af
stað er að framleiða það sjálf. Stóru
fiárfestamir verða að sjá leikritið til
þess að vita hvemig almenningur
taki því og hvort áhugi sé fyrir því.“
Vald gagnrýnenda
„Samkeppnin er eitilhörð í leik-
húslífinu í New York og stykkin
ganga misjafnlega vel. Gagnrýnend-
ur hafa mikið vald, sérstaklega
gagnrýnendur New York Times.
Þeir geta skorið úr um hvort verk
gengur eða fellur strax á fyrstu dög-
um þess. Það er samt mikÚvægt fyr-
ir mig að fá gagnrýnendur til að sjá
Come Dance with Me til þess að ég
eigi einhverja möguleika. Yfirleitt
em verk ekki sýnd á Broadway eða
Off Broadway nema búiö sé að
reyna þau annars staðar
fyrst, óháð því hvað höfund-
urinn er frægur. Við tökum
vissa áhættu með því að
reyna söngleikinn í New
York. Ég vildi
ekki
reyna hann annars staðar þar sem
hann er skrifaður sérstaklega fyrir
New York búa.
Sella hefúr fengið til liðs við sig
toppleikara og söngvara og hafa
sumir hverjir leikið og sungið á
Broadway. Mikil vinna liggur í
verkinu og enginn fær laun. Mark-
miðið er að kynna verkið sem best.
Ein af leikkonunmn hefur leikið að-
alhlutverkið í Phantom of the
Opera.
„Það er mjög gaman að sefia upp
sitt eigið leikrit en þetta er auðvitað
mikil vinna. Ég á engan frítíma því
ég vinn allán daginn til þess að
borga leiguna. Ég slarfa hjá lagaút-
gefanda, sem er hluti af Paramount-
kvikmyndafyrirtækinu, sem laus-
ráðinn aöstoðarmaður fiármála-
sfióra. Mig dreymir um að geta unn-
ið að söngleikja- og leikritaskrifum
í framtíðinni," segir Sella.
Sella lætur ekki deigan síga og
hefur undanfarið unnið að því aö
endurskrifa söngleikinn jafhóðum á
æfingum en nú er þeim skriftum að
mestu lokið. Kynningar á verkinu
eru hafnar þar sem oft getur verið
heilmikið mál að fá gagnrýnendur
til þess að mæta. Sella er mjög hóg-
vær og vill lítið tala um hvað gerist
ef söngleikurinn hennar slær í
gegn. Hún segist leggja allan sinn
kraft í að koma honum í stærra
leikhús ef vinsældirnar verða nógu
miklar. Hún segir að á Broadway
séu mörg stéttarfélög i gangi og sýn-
ingar þar séu miklu dýrari heldur
en annars staöar. Þó sýning Sellu sé
frekar einfóld í sniðum reiknar hún
með að uppsetningin kosti ekki
undir 300 þúsund dollurum.
Sella vonast einnig til að söng-
leikurinn verði tekinn upp í öðrum
ríkjum Bandarikjanna.
Blómstrandi
menningarlíf
Sella hefúr ekki áhuga á því að
standa sjálf á sviði en hún hefur
brennandi áhuga á leikhúsinu. í frí-
tíma sínum vill hún helst fara í leik-
hús.
„Það er ágætt að mörgu leyti að
búa í New York. Blómstrandi menn-
ingar- og listalif eru aðalástæðan
fyrir því að mér líkar svo vel þar,“
segir Sella. Hún gengur mikið og fer
sjaldnast í bíl í vinnuna.
Fluga á vegg
„Þetta er fyrst og fremst skemmtilegt tækifæri fyrir
" mig, allt annað sem gerist er ámóta og happdrættis-
vinningur. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til þess að
semja tónlist sem kemur væntanlega að notum og ég
verð að viðurkenna að leikhúsið er heillandi vettvang-
/ ur fyrir tónlist. Ég fer utan á mánudag til að fylgjast
með æfingum á verkinu sem verður frumsýnt 26. októ-
ber. Það verður spennandi að fá að vera fluga á vegg og
fylgjast með því hvernig þetta er gert á Broadway," seg-
ir Egill.
Annars segir Egill að leikararnir séu mjög góðir. Að-
alleikarinn, Kevin Conell, hefur leikið í Þrúgum reið-
innar í þjóðleikhúsinu í Englandi. Bernadette Drayton
hefur leikið í MTC, frægu leikhúsi í New York, Rita
Harvey lék aðalhlutverkið í Phantom of the Opera,
Curt Hostetter lék í Óvæntri heimsókn, sýningu sem
fór um alla Ameríku, Peggy Shai hefur fengiö Cleo-
verðlaun og Jon Vandeltholen lék á Broadway í Man of
jj Mancha. Pete Blue er tónlistarstjóri.
Egill er ekki óvanur að skrifa tónlist í söngleiki.
Hann skrifaði tónlistina fyrir söngleikinn Gretti, Evu
Lunu, As You Like It, Krókmakarabæinn og fleiri.
Einnig samdi hann ásamt félögum sínum í Spilverkinu
tónlist fyrir leikrit sem heitir Grænjaxlar. Hann hefur
skrifað mikið fyrir leikhús.
Ráttsambönd
„Maður veit aldrei hvernig leikverk gengur áður en
það er frumsýnt. Þaö getur fallið eða slegið i gegn. Þaö
þarf ekki að vera vegna þess að það sé slæmt heldur er
það kannski ekki samið á réttum tíma. Mikilvægt er að
vera með rétt sambönd hverju sinni,“ segir Egill.
Egill segist ekki vita til þess að hann og Sella komi
til með að starfa saman aftur en aftekur það þó ekki ef
Come Dance with Me gengur vel. Hann segir alvanalegt
að menn séu að reyna að koma frá sér söngleik á
nokkrum árum.
Höfundar fá 6%
„Leikhús í Bandaríkjunum er allt öðruvísi heldur en
héma heima. Peningamenn ráða því hvort sýning verð-
ur að veruleika. Höfundar eiga ekki nema 6% af þvi
sem kemur inn en meðalgengi sýninga á Broadway, ef
| þær ganga vel, er 6-8 ár.
„Ég hef ekki nokkurn áhuga á að reyna að koma mér
| á markaði erlendis. Ég vil fá að vera í mínu heima-
! landi. Ég tel mig eiga rétt á því en manni er oft gert
erfitt fyrir með tómlæti og skilningsleysi," segir Egill.
£ Egill er mjög fiölhæfúr maöur. Hann skemmtir ís-
lenskum áhorfendum með tónlist sinni víða í borg og
bæ. Hann hyggur á ferð til Danmerkur þar sem hann
ætlar að halda tónleika ásamt sænsku bandi í nóvemb-
er. Hann fer aftur í Þjóðleikhúsiö þar sem Þrek og tár
verður aftur tekiö til sýninga. Egill segist einnig syngja
í jarðarfórum og brúðkaupum til þess að lifa. -em
4-: