Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Blaðsíða 22
22 ‘Mróttir__________________ 7 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 .U'V „Verð alltaf Islendingur og mun alltaf keppa fvrir íslands hönd" - segir Vala Flosadóttir, 18 ára afreksmaður og methafi í stangarstökki Vala Flosadóttir, sem aö- eins er 18 ára gömul, er einn örfárra íslenskra íþrótta- manna sem standa í fremstu röð í heiminum í dag. Aðal- grein Völu er stangarstökk og er hún eina íslenska stúlkan sem leggur stund á þessa skemmtilegu en erfiðu íþróttagrein. Það kann þó að breytast í nánustu framtíð, enda hefur árangur Völu á stórmótum erlendis þegar gert það að verkum að áhugi á greininni hefur stóraukist hér heima. „Ég komst í fyrsta skipti í kynni við stangarstökkið í mars 1994. Þá tók ég í fyrsta skipti í stöngina. Það var í Lundi í Svíþjóð. Ég hafði verið að æfa hástökk. Þjálf- ari minn, sem er stangar- stökksþjálfari, var að kenna strákum og mig langaði til að prófa þetta. Mér fannst þetta svolítið spennandi. Síðan þróaðist þetta áfram. Mérfannst það skemmtilegt að verða fyrsta stúlkan í Sví- þjóð og íslandi til að prófa að stökkva stangarstökk. Ég fór síðan að æfa þetta með strákunum og keppa á mót- um með þeim. Þetta var skemmtileg lífs- reynsla." góður þjálfari og telur mögu- leika mína mikla i framtíð- inni. Hann telur mig hafa yfir að ráða hæfileikum til að geta náð enn lengra.“ - Það hlýtur að vera gam- an fyrir þig að vera braut- ryðjandi í þessari grein? „Það er virkilega skemmtilegt. Þetta hefur enginn gert áður og mér finnst þetta mjög skemmti- legt.“ Vala er stödd hér á landi þess dagana í fríi ef frí skyldi kalla. Hún hefur ver- ið önnum kafin við að sýna stangarstökk í skólum og segir að sér hafi komið mjög á óvart hve áhugi krakk- anna er mikill. „Viðbrögðin hafa verið mjög góð og ég bjóst alls ekki við þessu. í raun hefur þetta verið alveg ótrúlegt." Námi lokiðíbili Vala hefúr lokið námi í sænskum menntaskóla. í framhaldinu tók hún ákvörðun um framhaldið og hún er þessi: „Ég ætla að æfa af gríðar- legum krafti næsta árið. Á álagstímum mun ég enn svolítið dágóður „Á svolítið eftir í heims- metið" Besti árang- ur Völu er 4,17 metrar en heimsmetið í stangarstökki kvenna er 4,45 metrar. „Já, það er eftir í heimsmetið, biti.“ - Er heimsmetið fjarlægur draumur fyrir þig? „Nei, hann er ekkert of fjarlægur. Ég vona að ég eigi mörg ár eftir í íþróttunum. Ég set mér aldrei ákveðin markmið, aldrei einhverjar ákveðnar hæðir, heldur stefni ég bara að því að gera mitt besta hverju sinni. Það nægir mér. Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi, líka í stangar- stökki kvenna. Það er ekki þar með sagt að ég ætli að lofa einhverjum heims- metum.“ Arangur Völu 1996 ogsðtökk 4i7mpSeiSw Unglinga 1 PrakWandi -t og NoiSmS^^ Þafgekkhenn313!.3 N°rðurlandamótinu í sumar i stangarstökki en stök™ aldursflotti. ’ SCm er íslandsmet í hennar æfa tvisvar á dag en þegar líða tekur aö mótum einu sinni á dag. Ég ætla að gera mitt besta til að bæta árangur minn. Síðan á sama tíma að ári mun ég fara yfir stöðuna og spá í framhaldið." - Er þetta ekki erfitt fjár- hagslega? „Ég er svo heppin að vera á svokölluöum ólympíustyrk unglinga og þarf þvi ekki að vinna með þessu. Ég get helgað mig íþróttinni og það verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út eftir næsta ár.“ Engin aðstaða á íslandi - Hver eru helstu mótin hjá þér á næsta ári? „Fyrst skal telja heims- meistaramót- ið innanhúss og svo Evr- ópumeistara- mót ung- linga. Ég held að stangar- stökk kvenna verði ekki með á heims- meistaramót- _____ inu ut- anhúss en það fer að koma að því. Það var hætt við það á síðustu stundu. Það er hins veg- ar búið aö lofa þvi að. greinin verði keppnisgrein á næstu Ólympíuleikum í Sydney árið 2000. Þang- að stefni ég.“ „Vala Flosadóttir, Vala Flosadóttir ásamt fööur sínum, Flosa Magnússyni, prófasti á Bíldudal. afskaplega vel með þá hluti," segir Flosi meðal annars um dóttur sína. ,Vala Lundi, Malmö" - Ætlar þú að dvelja áfram í Svíþjóö eða er á steftiuskránni að flytja heim til íslands? „Ég mun búa áfram í Sví- þjóð enda er æfingaaðstaða þar til fyrirmyndar. Það er engin aðstaöa hér á landi. Það er hægt að stökkva í nokkrum húsum, en þá er ekki hægt að vera á gadda- skóm. Ég mun hins vegar alltaf verða íslendingur og keppa fyrir íslands hönd. Svíamir vilja alltaf eigna sér svolítið af mér. Mér er það til dæmis minnisstætt þegar ég var kynnt til leiks á Evrópumótinu á þessu ári. Þá var sagt í hátalarakerf- inu: „Vala Flosadóttir, ís- landi, Svíþjóð, Lundi, Mal- mö.“ Það er hins vegar alveg á hreinu að ég er og verð alltaf íslendingur og mun alltaf keppa fyrir íslands hönd.“ Ballið byrjaði á Bíldudal Miklir mögu- leikar segir þjálfarinn Vala hefur frá upphafi verið með pólskan þjálfara sem hefur sérhæft sig í stangarstökki. „Hann er mjög „Vala er Ijúf og dugleg segir Flosi Magnússon, faðir Völu Flosadóttur „Auðvitað er ég stoltur yfir árangri Völu og hvemig henni hefur tek- ist að bæta árangur sinn stöðugt í íþróttunum. Það er hreinlega ekki hægt annað en að vera ánægður með hana,“ sagði Flosi Magnússon, prófastur á Bildudal, í samtali viö DV, en hann er faðir Völu Flosadóttur stangarstökkvara. „Það kom snemma í ljós að Vala hafði mikinn áhuga á íþróttum. Strax á unga aldri, þegar við áttum heima á Bíldudal, lék hún sér gjaman í fót- bolta, en þegar hún varð eldri tóku frjálsar íþrótt- ir við. Ég hef auðvitað fylgst vel með Völu og sérstak- lega þegar ég var í Sví- þjóð. Auðvitað vonast maður alltaf eftir betri árangri og ef til vill hef- ur hún hæfileika til að bæta árangur sinn vem- lega. Ég velti hennar mögu- leikum ekki fyrir mér dags daglega, en fyrst þú spyrð þá get ég sagt að ég hef auövitað leitt hugann að Ólympíuleikum og öðm slíku.“ - Hvernig lýsir þú Völu Flosadóttur í stuttu máli? „Hún er afskaplega ljúf manneskja og dug- leg. Þegar hún var bam kom snemma í Ijós að hún var ákveðin og vildi fara sínu fram. Það kom meðal ann- ars fram í því þegar ver- ið var að klæða hana. Hún vildi alltaf ráða því I hvaða fötum hún væri og þaö var ekki hægt að breyta hennar skoðunum á því. Vala er einnig metnaðargjöm en hún fer afar vel með þá hluti að mínu mati,“ sagði prófasturinn Flosi Magn- ússon. -SK er metnaðargjörn en hún fer DV-mynd Brynjar Gauti Vala hóf að iðka íþróttir á Bíldudal 9 ára gömul. Hún fæddist í Reykjavík en flutt- ist fljótlega til Bíldudals og bjó þar í nokkur ár. „Stelpumar á BUdudal voru ekki mjög mikið gefnar fyrir íþróttimar, en mér fannst aftur á móti mjög spennandi að leika mér í íþróttum með strákunum. Þannig byrjaði þetta allt saman,“ sagði Vala Flosa- dóttir. Hún hefur náð ótrúlegum árangri í grein sinni sem af flestum er talin ein erfiðasta greinin innan frjálsra íþrótta. Árangur í A þessari íþróttagrein hefur verið að batna með hverjum mánuðinum sem líður. Það er alls ekki gefið að Vala nái að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu, en til þess hefur hún þó alla hæfileika og metnað. Til að ná ár- angri í stangarstökki þarf miklar æfingar, þrautseigju og elju. Og á næstu dögum munu krakkar í skól- um Reykjavíkur eiga þess kost að sjá þessa frábæru íþróttakonu sýna listir sínar. -SK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.