Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Blaðsíða 23
JLlV LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996
Halla Margrét Jóhannesdóttir er komin meö myndarlega kúlu sem gegnir
meöal annars hlutverki bjórvambar í Birtingi.
Halla Margrét í hlutverki Don Fernando í Birtingi. DV-myndir GVA
- segir Halla Margrát Jóhannesdóttir leikkona
„Ég leik alls kyns hlutverk, meö-
al annars greifynjuna, móður
Kúnígúndar, og nokkra karlmenn
og frumbyggja. Kúlan gegnir til
dæmis hlutverki bjórvambar og
uppþembds maga á frumbyggja,"
segir Halla Margrét Jóhannesdóttir
leikkona sem leikur mörg hlutverk
með lítinn aukaleikara innanborðs
en hún er komin sjö mánuði á leið.
Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður
og Háðvör frumsýndi leikritið Birt-
ing í gær.
„Birtingur fer til Parísar og þar
voru kjólamir risastórir. Það hent-
aði mér ágætlega. Við erum með
frábæran búningahönnuð, Þórunni
Jónsdóttur, sem tekur tillit til þarf-
anna og dregur fram það sem þarf
hverju sinni,“ segir Halla Margrét.
„Sýningin er mjög kraftmikil og
maður tekur á öllu sínu. Ég myndi
sjálfsagt gera það líka þó ég væri ekki
ófrísk. Ég er í mörgum litlum hlut-
verkum og það eru allir hinir leikar-
amir líka,“ segir Halla Margrét.
Leikritið er gert eftir samnefndri
sögu eftir Voltaire sem Halldór Lcix-
ness þýddi á íslensku. Gunnar
Helgason leikur aðalhlutverkið.
Leikgerðina að Birtingi gerðu Hilm-
ar Jónsson leikstjóri, Gunnar Helga-
son leikari og Erling Jóhannesson
leikari ásamt leikhópnum.
„Mér fmnst það forréttindi að fá
að halda áfram að vinna þó ég sé
ófrísk. Leikkonur þurfa oftar en
ekki að hætta fyrr að vinna heldur
en aðrar starfsstéttir,“ segir Halla
Margrét.
Sagan er heimspekileg með ævin-
týralegu ívafi. Birtingur elst upp og
býr í kastala þar sem allt er gott.
Altunga starfar sem lærifaðir í
kastalanum. Hann segir lífið grund-
vallast á því að allt sé gott og stefni
til hins besta. Ógæfa Birtings hefst
þegar hann kyssir greifadótturina,
Kúnígúnd. Honum var i refsingar-
skyni hent út úr kastalanum þar
sem hann er ekki aðalborinn og
hafði engan rétt á að kyssa hana.
Þar hefst ferð hans um heiminn og
hann hittir ótrúlegasta fólk. Hann
lendir i styrjöldum, jarðskjálftum,
fer til Suður- Ameriku og fyrir-
heitna landsins Eldorado.
Leikhópurinn Hermóður og Háð-
vör varð til í fyrra í kringum upp-
setningu Himnaríkis eftir Áma Ih-
sen en farið var með það í leikferð
til Evrópu. Núna eru sjö leikarar
starfandi og átta manna kór.
Halla Margrét verður væntanlega
léttari í kringum áramót og hyggst
leika sín hlutverk þangað til. Leik-
húsin taka yfirleitt gott jólafrí og
hún trúir því að allt gangi vel og
hún fæði ekki barnið fyrr en á til-
settum tima. „Ef allt gengur að ósk-
um á þetta að smella saman,“ segir
Halla Margrét og bankar í borðið.
Eftir áramót tekur hún siðan til
óspilltra málanna aftur, nýorðin
mamma. -em
Shell í næsta nágrenni
Um helgina ætlar starfsfólk
Shellstöðvanna að aðstoða þig við
að búa bílinn undir veturinn, þér
aö kostnaðarlausu.
Við munum mæla frostþol kælivökvans,
mæla olíuna, athuga vökva á
rúðusprautum, athuga perur og yfirfara
rúðuþurrkur.
A/lætum vetrinum vel undirbúin og
stuðlum að öryggi allra í umferðinni.
Vetrarvörur í miklu úrvali og
rúðusköfur og T-Blá vökvi á
rúðusprautur á sérstöku tilboði.