Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 JL>V Ég sprett upp eins og fjöður. Klukkan er orðin hálfátta og best að fara að drífa sig í vinnuna. Það er miðvikudagur og gos nýhafið undir Vatnajökli. Ég skelli í mig nokkrum franskbrauðssneiðum með osti og ýmiss konar sultum, skola þessu niður með sælumjólk og ætla að þjóta. Eiginkonan kallar úr svefnherberginu hvort ég ætli ekki að gera kaffi. Ég set kaffið á og hringi í Pál Imsland á eldgosa- vaktinni til að vita hvemig þetta stendur með gosið. Kaffið er orðið heitt og frúin komin á lappimar. Við drekkum morgunkaffið saman og ég skófla í mig nokkrum brauð- sneiðum í viðbót. Hugleikur sonur okkar kemst nú allt í einu að því að hann nær ekki á réttum tíma 1 skólann nema hann sé keyrður. Við keyrum af stað i bílnum mínum. Hann hoppar úr við Kvennaskólann en ég keyri áfram léttur í lund og flauta fjörugt lag. Við ljósin í Suðurhlíð hugsa ég sér- staklega um að stoppa á rauðu vegna óskemmtilegrar minningar sem er bundin við þau ljós. Ég er kominn í vinnuna mína og byrja á því að stimpla mig út af því ég hafði gleymt því kvöldið áður. Ég geri skyndiyfirlit yflr jarð- skjáifta næturinnar og reyni að meta niðurstöðumar. Tölvukerfið hafði að nokkru leyti farið í skrall um morguninn. Því hafði orðið bumbult af öllum þeim mæliniður- hitta fólk vegna leikrits sem hún er að skrifa. Konan mín er leik- skáld í dagvinnu. Tók ég vitlausan bíl? Ég hafði farið heim á lánsbíl frá samstarfs- fólki kvöldið áður þegar ég kom úr ferðalagi og nú hafði ég gleymt honum heima. Ég þýt heim á mín- um bíl og skipti yfir í lánsbílinn. Það er í svo mörgu að snúast að ég neyðist til að skrópa á yfir- stjórnarfundi. Þeir hljóta að kom- ast af án mín. Ég fer að pæla í því hvað sé að gerast í Vatnajökli. Nú hringir Gunnar sonur minn úr nálægu sveitarfélagi. Þangað hafði hann skotist kvöldið áður til að lækna íbúana og drýgja náms- lánin. Þú manst hverju þú lofaðir, pabbi? segir hann. Það rifjaðist upp fyrir mér að í svefnrofunum kvöldið áður hafði ég lofað honum að sækja Leif á leikskólann, Amar til dagmömmunnar og Evgeniu úr líffræðináminu. Ég lofaði þessu auðvitað ekki bara vegna sljóleika míns hálfsofandi. Stöðugt nagar samviskubitið mig að ég vanræki þessi sjö kríli, þrátt fyrir að Berg- ur elsti dóttursonurinn sé fermdur og alveg að ná mér á lengdina. Auðvitað er ekki hægt að kenna mér um bamabömin og ég ætti ekki að hafa neitt samviskubit. Ég held áfram að hugsa um spennuna í jarðskorpunni og eld- gosið. á borðinu fyrir framan mig liggur tímaritsgrein sem ég átti að sjr *víí Ragnar Stefánsson jaröeðlisfræðingur hefur haft í nógu að snúast aö und anförnu. una þar sem hún skúrar. Hún er nefnilega skúringakona í yfir- vinnu. Ég er ekki nema tveimur mínútum of seinn svo það verða fagnaðarfundir og við forum sam- an í sund og JL-húsið á eftir til að kaupa í matinn handa okkur og strákunum heima. Við erum samhent við matar- gerðina en ég ét of mikið. Síðan lognast ég út af fyrir framan ein- hverja bráðfjöruga útlenska skemmtimynd. Þegar ég er að sofna heyri ég eldri soninn segja að yngri dóttir mín hafi hringt. Það getur bara þýtt eitt, hugsa ég, að við eigum að passa næstyngsta krílið. Samviskubitið kafnar í svefndrunganum sem hveffist yfir mig. Klukkan er orðin þrjú og ég er andvaka. Þú vakir, segir konan. Já, hvað með það, segi ég. Það eru mínar bestu stundir þegar ég vaki. Þú verður að fá átta tíma svefn, segir hún, þetta gengur ekki svona. Til hvers? Ég hvílist full- komlega svona, ég hugsa um skemmtilega hluti. Þú verður alla vega að ná fhnm tímum. Viltu ekki hálfa svefntöflu? segir hún. Þetta eru algerar barnatöflur. Ég vil ekki verða háður svona lyfjagjöf- um, segi ég. Ég sný mér upp í horn og held að ég sé búinn að snúa frúna af mér með rökfestunni. Ég ranghvoffi augunum kröftuglega. Mér hefúr verið sagt að geri mað- Dagur í lífi Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings: Lognast út af eftir annasaman dag stöðum frá gossvæðinu sem við höfðum reynt að hrúga inn í það til úrvinnslu. Þegar ég hafði þusað dálítið um þetta við undirmennina hringdi frúin. Þú tókst vitlausan híl, sagði hún. Hún var nefnilega búin að segja mér að hún þyrfti að fara upp í Mosfellssveit í dag að vera búinn að ritrýna og slitur af norrænni skýrslu sem ég átti líka að vera búinn að klára. Samviskan nagar. Áður en klukkan er orðin 17 hringja þeir frá Stöð 2 og vilja fá mig í gosviðtal. Ég fellst á það enda hafði ég neyðst til að svíkja þá kvöldið áður. Ég bruna nú inn í Furðuland að sækja fjórða yngsta krílið. Síðan sæki ég tengdadótturina í líffræði- tímann áður en ég sæki yngsta krílið til dagmömmunnar enda hafði það aldrei komist inn í mig hvort þetta var í Gnoðarvogi eða Goðheimum. Þegar þetta allt er orðið klárt tek ég stefnuna á hálendið austan Reykjavíkur þar sem Stöð 2 er til húsa og ryð spekinni úr mér í þættinum ísland i dag. Nú eru aðeins tíu mínútur þar til ég á að sækja skáldkonuna mína fyrir utan forstjóraskrifstof- ur það í nokkrar rnínútm- sofni maður óhjákvæmilega. Mér tekst þó ekki að sanna þá kenningu því skyndilega er stungið upp í mig fingri með hálfri svefntöflu. Ég kem engum vömum við. Ég held að ég verði aö gefa yöur eitthvað verkjastillandi áður en við borum... Nafn:___________________________________________________________________ Heimili:------------------------------------------------------:--------- Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sjötugustu og átt- undu getraun reyndust vera: Aðalheiður Halldórsdóttir Ragnheiður G. Óskarsdóttir Frostafold 21 Núpabakka 23 112 Reykjavík 109 Reykjavík Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfh sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi, að verðmæti kr. 4.900, frá Bræðrunum Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1.790. Annars vegar James Bond-bókin Gullauga eða Goldeneye eftir John Gardner og hins vegar bók Luzanne North, Fin og rík og liðin lík. Vinningarnir verða sendir heim. Merkiö umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 380 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavik
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.