Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 13 "V
y íslensk fjölskylda komin heim eftir 6 ár í Afríku:
Ok um 20 lönd á 8 mánuðum
y
frá Namibíu til Islands
DV, Hólmavík:____________________
Þau eru án efa með víðförlustu ís-
lendingum á síðasta ári, fóru í bíl
um 16 lönd Afríku og 4 Evrópulönd:
Spán, Frakkland, Þýskaland og Dan-
mörku. Um 30 þúsund kílómetra
leið frá Namibíu tii íslands eftir sex
ára dvöl þar ytra þar sem þau voru
á vegum þróunarsamvinnustofnun-
ar íslands. Heimferöin tók um 8
mánuði og var viðburðarík í meira
lagi.
Þetta eru hjónin Friðrik Már
Jónsson og Bima Hauksdóttir og
með þeim í för voru þrjú börn
þeirra, Andri Fannar, Rannveig og
Stefán Haukur, sem aðeins er 6 ára
og hefur trúlega upplifað fleiri og
stærri atburði síðasta árið eða svo
en flestir jafnaldrar. Það sama má
segja um systkini hans. Tvívegis
heimsótti fjölskyldan ættlandið á
þessu sex ára tímabili, 1992 og 1994,
og í bæði skiptin vegna fermingar
barnanna. Staðið var stutt við í
bæði skiptin.
Friðrik Már starfaði við vélstjóm
á rannsóknarskipi Namibíubúa og
annaðist auk þess þjálfun inn-
fæddra í því er að vélstjórn laut.
Fjölskyldan bjó í Svvakopmund,
sem er bær við ströndina. Þar í ná-
lægð bjuggu og fleiri íslenskar fjöl-
skyldur og var gott og stöðugt sam-
band á milli íslendinganna. Birna
segir gott mannlíf í Namibíu og
þeim hafl liðið vel þar. Stjómarfar-
ið virðist vera traust, landið fékk
sjálfstæði frá S-Afríku 1990. Þjóðin
er að feta sig hægum skrefum til
betra lífs. Namibíumenn eiga góða
möguleika til þess að verða vel sjálf-
bjarga. Góð fiskimiö em skammt
undan, ferðamannaiðnaður í vexti
og í jörðu hafa fundist góðmálmar.
Aðdragandi heimferðar þeirra
með þessum hætti var langur. Hug-
myndin að fara í bíl nær alla leiðina
kviknaði ekki löngu eftir að þau
komu út. Það var þó ekki fyrr en
heimferðartíminn var í nánd sem
öll vinnan hófst og plön voru lögð
að skipulagi ferðarinnar. í apríl sl.
var svo lagt af stað á traustum am-
erískum jeppa og í fyrstu gekk ferð-
in nokkuð vel. Suður-Afríka var
fyrsta landið sem farið var yfir. Erf-
iðleikar og nær óvenjulegir atburð-
ir vora þó á næsta leiti.
„Fyrsta áætlun okkar gerði ráð
fyrir að við næðum síldarævintýr-
inu á Siglufirði í ágústmánuði," seg-
ir Friðrik Már, sem segist vera Sigl-
firðingur í húð og hár. Bilun í milli-
kassa bílsins, þegar þau lentu í
árekstri við brú í Tansaníu, kostaði
þau um sex vikna bið eftir varahlut
og gerði þann draum að engu. Erfið-
leikamir jukust svo þegar farið var
um lönd Mið- og Vestur-Afríku,
ekki síst um Zaire, þar sem segja
má að hálfgerð óöld hafi ríkt og alls
kyns hindranir vora hafðar í
frammi til þess að gera þeim erfitt
að komast áfram. Það er þó vægt til
orða tekið, því þar og víðar áttu þau
i viðskiptum við ofbeldishneigða en
einkennisklædda embættismenn
einræðisherranna, sem létu sér ekki
nægja að sjá skilríki þeirra í tíma
og ótíma heldur heimtuðu af þeim
peninga og aftur peninga gegn því
að þeim væri veitt leyfi til þess að
halda áfram ferð sinni.
Bima vill þó ekki telja að þau
hafi nokkru sinni verið í alvarlegri
lífshættu þó að áhættusamt hafi
verið að ferðast um nokkur lönd,
einkum Zaire. Almenningur í þess-
um löndum var þeim víðast hvar
heldur þægilegur og kom vel fram
við þau.
Heimkomin segir Bima þau mjög
ánægð og gott sé að þetta sé að baki.
Öll era þau þreytt, ekki sist bömin,
en síðari hluti ferðarinnar hafi
reynt allmikið á þau enda tíminn
orðinn langur. Jólunum eyddu þau
Bima og Friðrik Már ásamt synin-
um Stefáni Hauki i faðmi ættingja
og vina á Siglufirði. Hin börnin tvö
dvöldu hjá ættingjum sínum á ísa-
firði.
Fram undan er kyrrlátara líf með
heimilisstofnun í Reykjavík þar
sem bömin setjast á skólabekk, tvö
þeirra í fyrsta sinn á íslandi. Bima
hyggst heQa nám við Háskóla Is-
lands, halda áfram því námi sem
hún hóf úti.
Á leið fjölskyldunnar frá Siglu-
firði til Reykjavíkur dvöldu þau um
stund á bænum Ljúfustöðum í
Strandasýslu. Þar dvaldi Birna
nokkur sumur æsku sinnar og ung-
lingsára hjá hjónunum Þórði G.
Bjamasyni og konu hans Maríu S.
Þorbjömsdóttur. Þar á ein víð-
förlasta íjölskylda þessa lands jafn-
an góðum vinum að mæta. -GF
Friörik Már og Birna ásamt syninum Stefáni Hauki og Maríu á Ljúfustööum. DV-mynd Guöfinnur
MEÐ BLÖNDUÐU GRÆNMETI
LETTOSTAR
þrír góðir á léttu nótunum
MUNDU EFTIR OSTINUM
LÉTTOSTUR