Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Side 43
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
-4t j
Jfbh
51
Opið á flestum skíðasvæðum landsins:
Snjóinn vantar á
sumum
- engar hækkanir á lyftugjöldum
Skíðasvæði landsins eru nú
opnuð hvert af öðru, sum hver
hafa verið opin nokkrar vikur en
önnur hafa ekki verið opnuð enn.
Á flestum skiðasvæðum vantar
enn nokkuð af snjó en útlitið er
þó betra á flestum stöðum en í
fyrra. Þá snjóaði svo lítið í heild-
ina að nokkur skíðasvæði voru
aldrei opnuð þann vetur.
Skíðasvæðið í Bláíjöllum var
opnað í nóvember, sem er óvenju
snemma. „Það er nægur snjór á
aðalskíðasvæðunum en eittiivað
grýtt á öðrum en vonandi stend-
ur það til bóta. Frá því að opnað
var héma hjá okkur hefur viðrað
ágætiega til skíðaiðkunar en við
erum ekki á móti því að fá meiri
snjó héma í Bláfjöllin," sagði
Einar Bjamason, starfsmaður á
skíðasvæði Bláfialla.
„Við erum með ellefu lyftur
héma í Bláfjöflunum en sem
stendur em fimm í gangi. Hér er
opið á virkum dögum frá 10 á
morgnana til 22 á kvöldin en oft
er svo lítil aðsókn hjá okkur fyr-
ir hádegi að við opnum oft ekki
fyrr en klukkan 13 á daginn. Komi
hópar sem vilja byrja fyrr er þaö
ekkert mál að verða við óskum
þeirra og opna lyftumar fyrr.
Lyftugjöldin era óbreytt frá í
fyrra. Dagskort fullorðinna era á
1.000 krónur, hálfsdagskortin á 800
dagskort fyrir böm á 400 og hálfs
dagsgjöldin fyrir þau era 300 krón
ur. Síðan er ókeypis í byrjendalyft
umar eins og alltaf hefur verið,‘
sagöi Einar.
Skíðalyftur KR-inga í Skálafelli og
á Hengilssvæðinu hafa enn ekki
verið opnaðar og er þar snjóleysi
um að kenna.
Lokuöu aftur
„Við opnuðum skíðasvæðið hjá
okkur í Seljalandsdal viku fyrir jól
en urðum að loka því aftur vegna
■ / 3
Skí&aíþróttin er fjölbreytileg, sumir renna sér á gönguskíðum eða svigskf&um en
þessir hressu strákar eru meira fyrir a& renna sér á snjóbrettum.
Slysi spáð
Það er aðeins tímaspursmál
hvenær mannskætt slys mun
eiga sér stað í háloftunum yfir
Afríku. Alþjóðasamtök flugum-
ferðarstjóra
eru sam-
mála um að
miðað við
ó b r e y 11
á s t a n d
muni stefna
í stórslys. Á
síöasta ári fjölgaði til muna
þeim tilvikum þegar lá við stór-
slysi en aðeins tilviljanir einar
réðu því að komist var hjá
mannskaða. Oftast nær vora
það flugmennimir sjálfir, sem
tóku fram fyrir hendur flugum-
ferðarstjóranna, sem komu í
veg fyrir slysin. í Afriku era
flest dauðsföfl á flognar milur af
öllum heimsálfum.
Breytt í safn
Ríkisstjórn S-Afríku hefur
breytt fangelsi því þar sem Nel-
son Mandela dvaldi langdvölum
í safii sem orðið er fjölsótt af
ferðamönnum. Mandela eyddi
18 áram í þessu fangelsi af heil-
um 27 áram sem hann mátti
dúsa í fangavist. Fangelsið er á
eyju undan Höfðahorg.
þess óvenjulega atburðar að snjó tók
upp hjá okkur. Eins og er vantar
snjó á skíðasvæðið okkar en það er
ástand sem við eigum ekki að venj-
ast. Hér er hægt að bregða sér í golf
á meðan beðið er eftir snjónum,“
sagði Bjöm Helgason, íþróttaæsku-
lýðsfulltrúi á Isafirði.
„Það snjóar reyndar þessa stund-
ina og við eigum ekki von á öðra en
að úr rætist á næstu dögum. Reynd-
ar var frekar lítill snjór hjá okkur i
fyrra en stefiiir í betra nú og við
vonumst til að geta opnað aftur nú
um helgina.
Við höfum bætt mjög lýsingu á
skiðasvæðinu frá í fyrra og nú era
skíðabrekkumar í Seljalandsdaln-
um vel flóðlýstar. Við erum með
sömu lyftugjöld og í fýrra, engin
hækkim,“ sagði Björn.
„Við opnuöum skíðasvæðið hjá
okkur við Siglufjörð í miðjum des-
ember sem væri i raun ágætis byij-
un ef bæst hefði við snjóinn. Frá
þeim tíma hefúr snjó tekið úr fjafl-
inu og við höfum neyðst til að loka
svæðinu fyrir almenning en höfúm
opið fýrir þá sem þurfa að æfa. Við
erum hættir að geta keyrt neðri lyft-
una,“ sagði Guðmundur Sigurjóns-
son, starfsmaður á snjótroðara á
skíðasvæði Siglufjarðar.
„Þetta lítur samt betur út en í
fyrra en við vorum aðeins með opið
í einn dag í fýrra aflan veturinn.
Við höfúm ekki hækkað lyftugjöldin
frá því í fyrra,“ sagði Guömundur.
Nýr tro&ari
Aðeins ein lyfta hefur verið opin
í Oddskarði á Austfjörðum fram til
þessa. „Aðallyftan hefur verið í
gangi frá því um jólin en það hefur
verið heldur litið um snjó hjá okkur
fram að þessu. Það er þó snjókoma
þessa shmdina,“ sagði Ómar Skarp-
héðinsson, umsjónarmaður skíða-
svæðisins í Oddskarði.
„Við vorum að fjárfesta í snjó-
troðara og vorum nokkuð lengi að
biða eftir honum. Skíðasvæðið var
opið nokkra daga mifli jóla og nýárs
í ótroðnu en troðarinn kom þann 3.
janúar síðastliðinn og er í fullum
gangi.
Við höfum verið að gera tilraunir
með breytingar á þeim tima sem
svæðið er opið hjá okkur. Stefnt er
að því að vera með opið frá 13-20
þriðjudaga til fimmtudaga, til 19 á
fóstudögum og frá 10-17 um helgar.
Aður vorum við með opið frá 10 fyr-
ir hádegi til 18 en skóladagurinn er
alltaf að lengjast og við þurfúm því
raunverulega að færa tímann nokk-
uð aftur.
Það er komin góð undirstaða af
snjó héma í fjaflið og ekki þarf
mikinn snjó til viðbótar til að
þetta verði mjög gott. Það er sama
verð hjá okkur í lyftumar og í
fyrra og frítt fýrir 6 ára og yngri.
Bamagjöldin gilda fyrir böm allt
upp í 10. bekk grunnskóla hjá
okkur. Það er því ekki fyrr en á
sautjánda ári sem þau þurfa að
fara að borga fullorðinsgjöld,“
sagði Ómar.
Betra en í fyrra
„í Hlíðarfjalli hefur verið opið
frá því 10. nóvember en vegna
snjóleysis erum við ekki með
nema 2 af 4 lyftum í gangi. Við
vorum reyndar með þrjár en snjó
hefur tekið upp héma í Hlíðar-
fjalli og við urðum að stöðva þá
þriðju í bili,“ sagði ívar Sig-
mundsson, umsjónarmaður skíða-
svæðisins í Hlíðarfjalli.
„Þrátt fyrir að einhvern snjó
vanti í brekkumar er mikill og
góður snjór á göngusvæðunum
okkar. Við bjuggmn til tvær
skíðaleiðir til viðbótar í haust en
á þær hefúr ekki reynt enn þá.
Fjórða árið í röð erum við með
sama verðið í lyftumar. Annars er
útiitið nokkuð bjart hjá okkur og
við hefðum verið ánægðir með það í
fyrra að fá jafnmikinn snjó og nú er
þegar kominn," sagði ívar. -ÍS
M m
Hópferðir á
vörusýningar
Ferðaskrifstofan Úrval- Útsýn
gefur nú út í fjórða sinn sérstak-
an bækling yfír helstu vörusýn-
ingar og kaupstefnur í Evrópu
og Bandaríkjimum. Árið 1996
var metár hjá ferðaskrifstofunni
í sölu slíkra ferða og því ljóst að
upplýsingarit sem þetta er is-
lensku atvinnu- og viðskiptalífí
þarfúr þjónn.
í bæMingnum Vörasýningar
1997 era upplýsingar um liðlega
300 sýningar og kaupstefnur
sem spanna allt frá afþreyingu
til hátækni, í alls 109 málaflokk-
um. Áhugi íslendinga á vöru-
sýningum í Bandaríkjunum hef-
ur áberandi aukist en slíkar
ferðir eru skipulagðar sem hóp-
ferðir með íslenskum farar-
stjóra og unnar í samvinnu Úr-
vals-Útsýnar og sendiráðs
Bandaríkjanna á íslandi. ÍS
)ómlmÁ/uisAa/
týÁvœlcllð/
8 dagar í tvíbýli 88.900 með skatti
Innifalið: Flug til Puerto Plata í gegnum New York
Gisting í eina nótt i New York.
Flutningur til og fró flugvöllum erlendis og fiugvollorskottor
«»76.f80
með flugvaUarskottum
SERTILBOÐ: Jan.-Mars
''XtasiicLci/
V ^.38.700
m/sköttum í tvíbýli í 8 daga
BRADENTON/SARASOTA
íbúð: kr.38.700 m/sköttum í tvíbýli í 8 daga
íbúð: kr. <U ] Lt m/sköttum, 4 í íbúð í 8 daga
ívi IW2 fullorðnir-t- 2 börn undir 11 ára
ISI
SERTILBOÐ: Jan.-Mars
3 nætur kr. 27.020 í tvíbýli m/sköttum
2 nætur kr. 24.220 í tvíbýli m/sköttum
SERTILBOÐ: Jan.-IVlms
3 nætur kr. 22.720 í tvíbýli með sköttum
2 nætur kr. 20.320 í tvíbýli með sköttum
SERTILBOÐ: Jan.-IVIars
3 nætur kr. 25.170 í tvíbýli með sköttum
2 nætur kr.22.570 í tvíbýli með sköttum
öðruvísi
vilja tilbreytingu
í0 - Glæsilegur ferðamáti og i
%#Z&/ (/'\s&US434'l/fiT\r þá sem vilja tllbreyti
KÝPUR - PORTUGAL - COSTA del SOL - MALLORKA
Sem umboðsaðili hollensku ferðaskrifstofunnar ARKE REISEN getum
við f allan vetur boðið upp á ferðir á ofangreinda staði í eina, tvær
og þrjár vikur. Hægt að stoppa í Amsterdam - Kynntu þér verðið.
Pantaðuí síma
552 3200
FERÐASKRIFSTOFA
“ REYKJAVÍKUR
Aðalstræti 16 - sími 552-3200
Nefndu landið og við komum þér þangað á tt*-*
HAGSTÆÐASTA VERÐI sem til er hverju sinni þfr