Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1997, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1997 DV
dagur í lífi
Dagurinn í lífi Dagnýjar Kristjánsdóttur þegar hún varð doktor:
Þokan hvarf og ég hætti við að hengja mig
„Ég svaf eins og hrútur til
klukkan hálfníu en um leið og ég
losaði svefninn kom það til mín að
nú væri hann upp runninn ... dag-
urinn ... 15. febrúar ... dagurinn
sem ég var búin að undirbúa árum
saman og bíða eftir mánuðum sam-
an, dagurinn þar sem ég verði
doktorsritgerðina mína um fullorð-
insbækur Ragnheiðar Jónsdóttur.
Ég reyndi eitthvað að grauta í
bókum en gat ekkert einbeitt mér,
pælingamar þeyttust hring eftir
hring í kollinum og ég hugsaði
með mér að ef ég yrði svona í
vörninni myndi ég hengja mig - á
staðnum. Um hádegisbilið komu
Stella tengdamamma og Árni
tengdapabbi með stóra blóma-
körfu og allt í einu var klukkan
orðin eitt. Ég fór í bað og spariföt-
in og svo keyrðum við Kristján
maðurinn minn og Ámi, yngri
sonurinn, niður í Háskóla klukk-
an hálftvö.
Látu eins og heimurinn
væri ekki ao farast
Kristján og Ámi fóru upp í há-
tíðasal en ég inn á skrifstofu rekt-
ors þar sem Sveinbjöm Bjömsson
rektor, deildarforseti heimspeki-
deildar, Páll Skúlason, og andmæl-
endur mínir, Ástráður Eysteinsson
og Sigríður Þorgeirsdóttir, vora
fyrir, komin í bláar skikkjur, segj-
andi brandara eins og heimurinn
væri ekkert að farast.
Doktorsvamir við Háskólann
eru virðulegar og formfastar og
enginn getur vitað fyrirfram hve
margir hafa áhuga á að leggja leið
sína á slikar samkomur. I þetta
sinn var hátíðasalurinn troðfull-
ur, stólar voru bomir inn óg fólk
stóð uppi á svölunum allan tím-
ann. Það sýnir svo ekki verður
um villst að það ríkir mikill
áhugi fyrir kvennaíræðum í sam-
félaginu.
Örvandi andmæl-
endur
Það er skemmst frá að
segja að vörnin gekk mjög
vel og var mjög skemmti-
leg. Þegar ég hélt inn-
gangsræðuna greiddist
þokan i höfðinu sundur og
ég hætti viö að hengja
mig. Andmælendumir
vora þrælgagnrýnir, það
vantaði ekki, en líka
örvandi og uppbyggilegir.
Ég svaraði aðeins brota-
broti af því sem ég hefði
viljað ræða frekar en
vörnin stóð í þrjá tíma og
fólk var byrjað að þreyt-
ast.
Kampavín með
rektor
Dagný Kristjánsdóttir lýsir fyrir okkur deginum þegar hún varði doktorsritgerð sina sl. laugardag i Haskola Islands um
fulloröinsbækur Ragnheiðar Jónsdóttur. DV-mynd BG
Eftir vömina bauð rekt-
or mér, Kristjáni, Áma og
mömmu minni, Þórunni
Jónsdóttur, ásamt deildar-
forseta og andmælendum
upp á glas af kampavíni.
Það var bæði faiieg og góð
stund.
Rétt fyrir klukkan sex
voram við svo komin heim
í Barmahlíð og þá var
komið að þætti Krisfjáns,
sem var ekki aðeins búinn
að vera mér eins og besti
geðlæknir i öllu stressinu
heldur skipuleggja tvö
hundruð manna veislu í
Norræna húsinu um
kvöldið! Hún átti að byrja klukkan
átta og eftir voru smásnúningar. Ég
fór í gallabuxur, keyrði Kristján
niður í Norræna hús þar sem eldri
sonur okkar, Snorri, var að æfa
með hljómsveitinni sinni sem heit-
ir Hátíðni og hafði lagt það á sig að
æfa eldgömul, „morkin“ fjölda-
söngslög mér til heiðurs. Þau fóra á
kostum um kvöldið. Meðan verið
var að undirbúa Norræna húsið tók
ég tvo snúninga og var orðin svo
sein að mér rétt tókst að ná í
mömmu og Árna, hafa fataskipti og
smella niður í Norræna hús á mín-
útunni átta.
Ógleymanleg veisla
í hönd fór veisla sem ég mun
aldrei gleyma. Dagskráin sam-
anstóð af ræðum, söng, dansi og
leik og Kristján stjómaði öllu sam-
an af myndugleik. Vel vissi ég fyr-
ir að vinir okkar eru heiilandi
hæfileikafólk en stemningin var
einstök. Veislunni var lokið klukk-
an að ganga eitt og fjölskyldan
hjálpaði okkur að koma heim
blómahafi og gjöfum. Það var glað-
ur, þakklátur en ákaflega þreyttur
nýbakaður doktor sem skreið í sitt
ból um klukkan þrjú.“
Finnur þu fimm breytingar? 399
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð nítugustu
og sjöundu getraun reyndust vera:
Helga Jónsdóttir Unnar S. Olsen
Tjamargötu 10B Höfðabraut 2
101 Reykjavík 300 Akranes
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
flmm atriöum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 3.950, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1790 - Ógnarást eftir Lindu Randall
Wisdon og Sinnaskipti eftir Lyndu
Kay Carpenter.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú funm breytingar? 399
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík