Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1997, Page 60
TtugfaMhLLr
IL wkmimgimr
2T.sQKMM3>
KIH
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
i hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1997
Siglufjörður:
Snjóflóða-
hætta á
skíðasvæðinu
Skíðasvæði Siglfirðinga var lokað
í gær vegna snjóflóðahættu. í gær-
kvöld hafði snjóað látlaust síðan í
fyrradag, snjórinn er blautur og
þungur og jafnfallinn skiptir magn-
ið tugum sentimetra. Engin hætta
hafði skapast í bænum vegna þessa
í gær. -sv
Féllí
nýbyggingu
Maður féll á milli hæða í nýbygg-
ingu við Malarhöfða í gærmorgun.
Hann handleggsbrotnaði á báðum
höndum, kinnbeinsbrotnaði og
eitthvað fleira. -sv
Linda Samúelsdóttir:
Selur stóriðju
hamingjuegg
„Það vantar fleiri egg,“ segir
Linda G. Samúelsdóttir, bóndi í
Tungu í Hvalfirði. Linda er eggja-
bóndi og framleiðir svokölluð ham-
ingjuegg en hænur hennar ganga
lausar en eru ekki í þröngum búr-
um, eins og algengast er.
Linda hefur barist ötullega gegn
frekari stóriðju í Hvalfirði. Hún seg-
ir í samtali við DV I morgun að eft-
irspum eftir framleiðslu hennar
hafi síður en svo minnkað eftir að
baráttan gegn álveri í Hvalfirði fór í
fullan gang. Mötuneyti Jámblendi-
verksmiðjunnar hefur keypt egg af
Lindu og sú saga hefur verið á
kreiki að það hafi hætt þeim við-
skiptum. Linda segir svo ekki vera,
Jámblendiverksmiðjan kaupi áfram
af sér egg. -SÁ
<#> Primera
'C-V
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími 525 8000
L O K I
Löggæslumyndavélarnar byrjaðar að sanna gildi sitt:
Gómaður á rauðu
Ijósi á ófugum
vegarhelmingi
„Þessar löggæslumyndavélar
em þegar byrjaðar að sanna gildi
sitt. Það er verið að fara af stað
með sektir og ákæmr gegn öku-
mönnum sem sjást á myndum aka
gegn rauðu ljósi. Myndimar sýna
greinflega númeraplötur þeirra
bfla sem aka gegn rauðu ljósi og
einnig andlit ökumanna. Þessar
vélar era öflugt sönnunargagn
gegn þeim ökumönnum sem brjóta
umferðarlögin," segir Þórhaflur
Ólafsson, aðstoðarmaður dóms-
málaráðherra og formaður um-
ferðarráðs, um löggæslumyndavél-
amar sem settar hafa verið upp á
sex gatnamótum í Reykjavík.
„Það er stefhan að fjölga þess-
um myndavélum í nánustu fram-
tíð og koma þeim upp víðar en í
Reykjavík. Myndavélarnar eru
tengdar við ljósastýringuna og raf-
eindabúnaður nemur þegar öku-
tæki ekur yfir gatnamótin. Síðan
em leysigeislar sem mæla hrað-
ann á ökutækinu, tjarlægð o.fl.
þannig að það er tvöfóld trygging.
Nýlega var ökumaður staðinn
að verki og myndaður af löggæslu-
myndavél þegar hann ók gegn
rauðu ljósi á Kringlumýrarbraut-
inni nýverið. Ekki var nóg með að
hann keyrði gegn rauðu ljósi held-
ur var hann líka á öfugum vegar-
helmingi og að auki sést framsæt-
isfarþeginn með áfengisflösku í
hendinni,“ segir ÞórhaOur.
ÞórhaOur segir að erlendis hafi
þessar löggæslumyndavélar gefið
mjög góða raun. í London hefur
umferðarslysum fækkað um rúm-
lega 60% og dæmi era um að þess-
ar vélar hafi verið notaðar sem öfl-
ug sönnunargögn í manndrápsmál-
um. -RR
Hér sjást tvær myndir úr löggæslumyndavélum á Kringlumýrarbraut af ökutækjum sem ekiö var gegn rauöu
Ijósi. Þetta eru fyrstu myndirnar úr myndavélunum sem sýndar eru opinberlega. Leyfi dómsmálaráðuneytisins
fékkst fyrir birtingunni. Á myndum úr þessum myndavélum sjást greinilega skráningarnúmer ökutækja og and-
lit ökumanna en þessar myndir eru útbúnar þannig aö ekki er hægt aö greina skráningarnúmer eöa andlit.
Æsumálið:
Leitað til
Varnarliðsins
„Við höfúm nánast aOs staðar
komið að luktum dyrum og það
grátlega er að þetta virðist aOt snú-
ast um peninga. Þeir eru hvergi
sagðir tO og við virðumst eiga að
sætta okkur við að líkin verði
áfram í skipinu og sjómenn eiga að
sætta sig við að engar skýringar fá-
ist á því af hverju skipið sökk. Við
vOjum jarða líkin í vígðri mold og
hættum ekki fyrr en við náum þeim
upp,“ segir Amar Grétar Pálsson,
ættingi annars mannanna sem fór-
ust með Æsunni á Amarfirði í júlí
á liðnu sumri.
Amar segir að eina ráðuneytið
sem hafi bmgðist við bréfum
þeirra, sem barist hafa fyrir þvi að
skipið verði híft upp af hafsbotni, sé
utanríkisráðuneytið. Það hafi sett
sig í samband við Vamarliðið á
Keflavíkm-flugvelli um að það not-
aði þann búnað sem það hefði yfír
að ráða tO þess að kafa niður að
flakinu. Engin svör hafi þó enn
borist frá Vamarliðinu. Aðrir hafi
þverskaOast við að svara spuming-
um sem tO þeirra hafi verið beint.
Sem kunnugt er verður málið tek-
ið upp á Alþingi á mánudag. -sv
Hindrum álver
meö öllum
ráðum
- segir oddvitinn
„Það er mjög ámælisvert að enginn
hluflaus aðOi skuli fyrirfinnast hér á
landi sem getur metið mál af þessu
tagi af hlutleysi og hlutlægni. Næsta
skref okkar verður það að leita fuO-
tingis dómstóla tO að fá úrskurði um-
hverfisráðherra um álverið hmndið
sem og fleiri stjómvaldsákvörðunum
sem orka tvímælis," segir Guðbrand-
ur Hannesson, oddviti Kjósarhrepps, í
samtali við DV.
Hreppsnefnd Kjósarhrepps kynnti
blaðamönnum í gær fyrirhugaðar að-
gerðir sem hún hyggst grípa tO tfl að
hindra byggingu álvers Columbia
Ventures á Grundartanga. Hrepps-
nefndin telur að lög hafi verið brotin
og að stjórnvöld hafi aOa tíð hafa far-
ið offari og í raun verið búið að
ákveða staðsetningu álversins löngu
áður en forsendur fyrir henni voru
ljósar. ÖOum löglegum ráðum yrði
beitt tO að koma í veg fyrir byggingu
álversins á þessum stað. -SÁ
'2% V
-T-
V
-T-
V
'T'
V
-i:
Upplýsingar frá Vo&urstofu íalands
Sunnudagur
Veðrið á morgun:
Viða léttskýjað sunnanlands
Á morgun verður norðan- og norðaustankaldi en vestankaldi sunn-
anlands. É1 verða norðanlands en víða léttskýjað syðra. Búist er við
vægu frosti.
Veðrið í dag er á bls. 65
Veðrið á mánudag:
Vægt frost
Á mánudaginn er búist við norðankalda. E1 verða verða norðan-
lands en léttskýjað syðra. Það verður vægt frost.