Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Page 24
LAUGARDAGUR 8. MARS 1997 24 ÉítaL Misstu hjart- og lungnaveika tveggja ára dóttur: Sandra Sif var engill í mannsmynd „Það er eins og maður hafl sprungið og sé að reyna að tína sam- an brotin aftur af veikum mætti,“ segja hjónin Jóhann Br. Helgason og Halldóra Pétursdóttir sem misstu rúmlega tveggja ára dóttur sína, Söndru Sif, rétt fyrir jól úr hjarta- og lungnasjúkdómi. Myndir prýða veggi á heimili þeirra af litlu stúlkunni sem kom í heiminn og sigraði hjörtu þeirra er kynntust henni en átti alltof stutta ævi. Hún var sólargeisli foreldra sinna og bræðr- anna Davíðs og Elvars á meðan hún litði en eftir situr minningin ein. Fjöl- skylda hennar og aðstandendur berj- ast nú við að læra að lifa án hennar. Sjö mánaða endalausri þrautagöngu upp á líf og dauða lauk með ósigri Söndru Sifjar og hugsunum um hvers vegna hún var tekin frá þeim. Þroskuð sál „Sandra Sif kenndi okkur og öll- um sem kynntust henni ótrúlegustu hluti. Við metum lifið og tilveruna öðruvísi eftir þessa reynslu. Sandra Sif var mjög þroskuð sál í litlum lík- ama. Þegar maður horfði í augun á henni var ekki eins og að horfa í augun á litlu bami. Maður reynir að hugga sig við að hún hafi átt að stoppa stutt og þroska okkur. Hún hafði einhvem tilgang þó hún hafi stoppað stutt. Við hefðum helst kos- ið að þroskast á einhvem annan hátt heldur en að missa bamið okk- ar,“ segir Halldóra. Sandra Sif fæddist með þrískiptan hjartagalla, samgrónar tvær blöðkur, þrengsli í lungnaslagæðaropinu, hnökra á milli hjartahólfa og gat á milli hólfa. Þessir gailar uppgötvuð- ust strax á fyrsta sólarhringnum. „Okkur var mjög bmgðið þegar okkur var tilkynnt um þetta,“ segir Jóhann. „Maður á aldrei von á því að eignast sjálfur veikt bam. Við voram send heim og áttum að bjarga okkur sjálf,“ bætir Halldóra við. Þó þessir miklu gallar væra til staðar vann hjartað sitt verk eins og það átti að gera og tíminn átti að leiða í ljós hvort Sandra Sif þyrfti á aðgerð að halda síðar meir. Lokum- ar voru of stórar og þykkar fyrir svona lítið bam. Halldóra og Jó- hann fóru með stúlkuna heim af spítalanum og hún fór í eftirlit á þriggja mánaða fresti. Hún þroskað- ist eðlilega fyrstu mánuðina en svaf heldur meira en önnur böm. Út- haldið var örlítið minna en hjá heil- brigðum bömum. Ekki ein Á þessum tíma voru engin sam- tök hjartveikra bama til en þau voru stofnuð árið eftir að Sandra Sif fæddist. Hjónin era mjög þakklát fyrir að félagið var stofnað og það létti róðurinn þar sem þau fengu að vita að þau stæðu ekki ein í þessari baráttu. Halldóra fór ekki út að vinna þar sem ekki var ráðlegt að Sandra Sif umgengist mikið önnur börn á leikskóla þar sem hún gæti smitast af alls kyns pestrnn. Veikist meira „í maí í fyrra fékk Sandra Sif há- Þú gætir eignast þessa Macintosh tölvu ásamt mótaldi með því að fylgjast með í DV! Taktu þátt í laufléttri og skemmtilegri getraun meb DV og Apple-umbobinu og þú gætir eignast PERFORMA 6320/120 Macintosh tölvu meb mótaldi, ab verbmæti 150.000. Tölvan er öflug, meb gott minni, hrabvirkt geisladrif og stóran harbdisk. Hvort sem nota á tölvuna vib vinnu, nám, leik eba flakk um veraldarvefinn þá leysir hún vand- ann á skjótan og aubveld- an hátt. Safnabu saman öllum 7 þátttökusebl- unum, sem birtastfrá 5.-12. mars, fylltu þá út, sendu til okkar og þú ert kominn í pottinn. ÞVERHOLTI 11 - SIMI 550 5000 Apple-umboðið hf SKIPHOLTI 21 - SÍMI 511 5111 Heimasiða: http://www.apple.is 1 Spurning nr. 4 Hvab kostar Macintosh Performa 6320/120 meb mótaldi? ( ) 250.000 ( ) 150.000 ( ) 300.000 Nafn: Heimilisfang: póstniimpr Kennitah- Sími- Sendist til DV - Þverholti 11 Merkt: Makki - 105 Reykjavík Skilafrestur er til 19. mars. þrýsting í lungun en það þýðir að hún mettaði ekki súrefnið í blóðinu heldur fór það til baka ómettað. Þeg- ar þetta kom upp varð hún blá í framan og við fórum með hana í sjúkrabíl á Landspítalann," segir Halldóra. í fyrstu var haldið að Sandra Sif væri með lungnabólgu en síðar kom í ljós að málið var mun alvarlegra en það. Lungnaslagæðin var þanin og foreldranum var ekki gefín nein von um líf handa henni. Henni voru gefm í hæsta lagi þjú ár því háþrýst- ingur í lungum er ólæknandi. „Við áttum mjög bágt með að skilja að ekkert væri hægt að gera fyrir stúlkuna okkar þar sem tækn- in er orðin svo mikil. Okkur var gerð grein fyrir þvi strax að það lagast þvi að eiga langveikt barn. Lífinu er hagað samkvæmt því og heimilislífíð breytist þegar ekki er vikið frá baminu. Jóhann og Hall- dóra vora bundin yfir Söndru Sif í sjö mánuði þar sem þau gátu ekki ætlast til að neinn annar þyrði að gæta hennar svona veikrar. Aðlögun á heimilinu „Það er ekki erfitt að eiga veikt barn á við það að missa barnið," segir Jóhann. Þau segja að það hafi tekið vini og vandamenn talsverðan tíma að að- lagast nýju ástandi á heimilinu. All- ir hafi gætt þess að koma ekki ef þeir voru með eitthvert slen. Sandra Sif var í hálfgerðri sóttkví heima „Sandra Sif haffii einhvern tilgang þó hún hafi stoppafi stutt. Vifi heffium þó helst kosifi afi þroskast á einhvern annan hátt heldur en afi missa barnifi okkar,“ segir Halldóra sem stendur ásamt eiginmanni sínum Jóhanni fyrir framan Grafarvogskirkju. DV-mynd Hilmar Pór ætti fyrir henni að liggja að deyja. Við gátum ekki hugsað um það þá að hún myndi deyja. Við héldum í vonina eins lengi og hægt var,“ seg- ir Halldóra. Vildum ekki trúa „Eins og staðan varð nokkrum sinnum á spítalanum var okkur sagt að þetta væri daga- eða viku- spursmál þegar hún greip einhveij- ar pestir. Við vildum ekki heyra svoleiðis lagað. Hún hafði sýnt og sannað margoft að hún hafði risið oftar en einu sinni upp úr þvi. Við reyndum að lifa sem eðlilegustu lífi,“ segir Jóhann. Jóhann og Halldóra vora nokkrar vikur á sjúkrahúsinu í maí og júní og fóra síðan heim með Söndru Sif. Þau tóku með sér birgðir af súrefhi til þess að geta haft hana heima. Hún þurfti að nota fjóra til fimm lítra af súrefni á mínútu í 20 tíma á sólarhring. Hún gat verið án súrefn- is nokkrar mínútur og upp í hálf- tíma í einu. Sandra Sif var fljót að segja til um hvenær hún þurfti súr- efni og bað þá um að blása. „Sandra Sif átti gott sumar úti í garði með slönguna og kútinn og ég keyrði á eftir henni með kútinn. Maður er ótrúlega fljótur að aðlag- ast þessu," segir Halldóra. Að sögn Jóhanns er erfitt að að- hjá sér þar sem allar pestir gerðu hana veikari fyrir. „Baráttan var fyrir lífi og dauða og allir í kringum okkur tóku tillit til þessa,“ segir Jóhann. Sálarlíf Jóhanns og Halldóru var í rúst fyrst eftir að þau fréttu að Sandra Sif myndi ekki lifa af sjúk- dóminn. Þeim var boðið að tala við prest en þáðu það ekki. „Á þeim tíma fannst mér það vera viðurkenning á því að Sandra Sif væri að deyja," segir Halldóra. Halldóra og Jóhann segja aö þeim hafi gengið vel að vinna úr sínum málum sjálf. Sumarið var að vonum mjög erfitt en Halldóra missti alla matarlyst. Móðir Halldóru flutti til þeirra á meðan þau voru á spítalan- um með Söndru Sif og hugsaði um strákana og heimilið. Hjónin eru henni afar þakklát og einnig vinum og vandamönnum. Hristi af sár veikindin Sandra Sif veiktist síðan mjög al- varlega í haust en þá safnaði hún á sig miklum bjúg. Hjartað byxjaöi að gefa sig vegna álagsins af háþrýst- ingnum í lungunum. Hún fékk einnig vírus í lungnapípumar og var þá ekki hugað líf. „Við vorum búin undir það að hún kæmi ekki með okkur heim aft- ur en við voram samt ákveðin í því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.