Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Qupperneq 36
48
*■ -
Þrándheimur þúsund áta
- hátíðahöld bróðurpart ársins
LAUGARDAGUR 8. MARS 1997
1000 ára afmæli
Þrándheims
Viðburðir á afmælishátíð
Það er langt mál að telja upp
allt það sem verður á dagskrá á
þúsund ára afmælishátíð
Þrándheims. Hér verður þó
gerð tilraun til að segja frá því
helsta. Dagana 12.-17. apríl
verður haldin Barokk-hátíðin. í
næsta mánuði á eftir verður
haldin heimsmeistarakeppni í
alskeggs- og yfirskeggsræktun.
30. maí til 8. júní verður hin
eiginlega afmælishátíð.
Samkoma konung-
borinna
Föstudaginn og laugardaginn
20.-21. júní ætla norsku kon-
ungshjónin Haraldur og Sonja
að halda upp á 60 ára afinæli
sín í Þrándheimi. Fjöldi annars
konungborins fólks úr Evrópu
mun samgleðjast norsku kon-
ungshjónunum, meðal annars
Margrét Danadrottning og Hin-
rik prins. Um mánuði síðar
verður alþjóðlega Cutty Sarkt
siglingahátíðin sem endar í
Þrándheimi. í næsta mánuði á
eftir verða leiksýningar þar
sem sýndir verða hinir dramat-
ísku atburöir Stiklastaðabar-
daga þar sem Ólafur helgi Har-
aldsson var veginn.
Pílagrímadagar
Vikuna 25. júli til 4. ágúst
verður skemmtun sem sérstak-
lega er tileinkuð Ólafi helga.
Mánudaginn og þriðjudaginn
28.-29. júlí verða pílagrímadag-
ar og búið er að merkja sér-
staka pílagrímaleið á milli
Óslóar og Þrándheims. í fyrstu
viku septembermánaðar (4.-9.
september) verður haldin leik-
listarhátíð.
Tónlist og kvikmyndir
II nágrannabænum Hell verð-
ur haldin blúshátíð sem örugg-
lega á eftir að vekja áhuga
margra. í næsta mánuði þar á
i eftir verður haldin kvikmynda-
hátíð í Þrándheimi (7.-12. októ-
ber) og djasshátíð mánuöi síð-
ar, 7.-9. nóvember.
Aðdráttarafl
Það eru ekki aðeins áður-
nefndir atburðir sem hafa að-
dráttarafl fyrir ferðamenn til
1 Þrándheims. Niðarósdómkirkj-
I an í Þrándheimi er eitt helsta
kennileiti landsins og enginn
| sem á annað borð kemur til
I Þrándheims getur látið hjá líða
I að skoða þetta merkilega mann-
j. virki.
Stórvaxið timburhús
í Þrándheimi er einnig
1 stærsta timburhúsið á Norður-
| löndum, „Stiftsgarðurinn", en
j það er jafnan dvalarstaður Nor-
egskonungs ef hann dvelur ekki
I í konungshöllinni. Aðrar merk-
ar timburbyggingar við Niðar-
■ ós vekja jafnan áhuga ferða-
; manna, en þær eru flestar yfir
. aldargamlar. Ringve-safnið
: skoða margir sem til Þránd-
| heims koma, en þar var áður
heimili Tordenskjolds.
Fjórföldun
Þrándheimur er vinsæl borg
Ihjá ferðamönnum og árlega
kemur um hálf milljón manna
þangað. Skipuleggjandi afmæl-
ishátíðarinnar segist hins veg-
ar búast við að minnsta kosti
i fjórfoldum þeim skammti á há-
1 tíðina, jafnvel fleirum. Áætlað
er að gestir verði á milli 2 og 3
milljónir. -ÍS
Ekki er ólíklegt að þeir sem leggja leiö sína til
Þrándheims í Noregi á árinu rekist á konur í
klæönaöi sem var algengur hér á árum áöur.
barokkhátíð sem haldin verður
12.-17. apríl í tilefni af afmælinu.
Þjóðhátíðardagur Norðmanna
er 17. maí og þá verður 1000 ung-
mennum hvaðanæva af Norður-
löndunum stefnt til Þrándheims á
„Nordic Youth“ hátið sem haldin
verður þann dag. Ungmennin
munu sýna fæmi sína á ýmsum
sviðum, í tónlist, leiksýningum
og handverki. Hámark afmælis-
hátíðarinnar verður þegar
norsku konungshjónin halda upp
á 60 ára afmæli sitt í Þrándheimi
í júnímánuði. Að sjálfsögðu mun
konungborið fólk víða úr Evrópu
einnig mæta til hátíðahaldanna.
Dagana 23.-26. júlí verður hald-
in siglingakeppni eða sýning þar
sem mörg af glæsilegustu fleyjum
jarðarinnar, tignarleg seglskip og
önnur glæsileg för taka þátt í sigl-
ingakeppni sem kennd er við
Cutty Sark, viskítegundina kunnu.
Fleyin munu sigla inn Þrándheims-
fjörð til borgarinnar. í september
verður haldin leiklistarhátíð í
Þrándheimi og sýnd verk þekktra
leikhópa víða að úr heiminum.
Hér á undan hefur aðeins fátt eitt
verið nefnt af því sem á dagskrá
verður á 1000 ára afmælishátíð
Þrándheims. í dálkinum hér til hlið-
ar á síðunni er upptalning á því
helsta og eins og glögglega sést eru
fjölbreyttar uppákomur bróðurpart
ársins. Þeir sem hafa áhuga á þvi að
fylgjast með einhverjum hluta há-
tíðarinnar ættu að fara að skipu-
leggja ferðina nú þegar því eflaust
verður skortur á hótelrými í Þránd-
heimi á árinu 1997.
-ÍS
Ertu að hugsa um að
fara í ferðalag til Nor-
egs á árinu 1997? Þú
ættir að láta það ógert,
það verður enginn
Norðmaður heima hjá
sér. Að vísu gegnir allt
öðru máli ef þú ferð til
Þrándheims. Þar verða
allir Norðmenn sam-
ankomnir - til að
fagna 1000 ára afmæli
staðarins.
Þannig eru ferða-
bæklingar kynntir í
Noregi, þar sem sviðs-
ljósinu er beint að
borginni Þrándheimi.
Fjölmargar borgir
halda upp á stórafmæli
sín án þess að hafa
neinar staðreyndir um
raunverulegan aldur
að byggja á. íbúar
Þrándheims eru hins
vegar alveg vissir í
sinni sök. Samkvæmt
því sem greint er frá í
Heimskringlu lagði
Ólafur Noregskonung-
ur Tryggvason grunn
að byggðinni við
Þrándheim (sem einn-
ig hefur verið kölluð
Niðarós) við Þránd-
heimsfjörð árið 997 eft-
ir Krist.
Það var þó ekki Ólaf-
ur Tryggvason sem
gerði þennan stað
frægan, heldur miklu
fremur Ólafur konung-
ur Haraldsson, sem
síðar fékk viðumefnið
Ólafur helgi. Árið 1030
beið Ólafur Tryggva-
son bana í Stiklastaða-
bardaga við bændur og
höfðingja frá Þránd-
heimi og Norður- Nor-
egi er hann reyndi að
endurheimta ríki sitt.
Lík Ólafs var fært til
Þrándheims og fljót-
lega eftir að hann var
jarðsettur fóm yfirn-
áttúrlegir hlutir að op-
inberast mönnum í
grennd við legstað
hans. Skömmu síðar
mun viðumefnið
„helgi“ hafa fest við
hann og Ólafur tekinn
í dýrlingatölu. Hin
fræga Niðarósdóm-
kirkja, sem er í flestra
augum kennileiti stað-
arins, var byggð á leg-
stað hans. Kirkjan
mun á vissan hátt
verða miðstöð hátíða-
haldanna á árinu.
Fjölmargar
uppákomur
Uppákomur í tengslum við af-
mæli Þrándheims verða ótal-
margar. Allir kannast við vetr-
arólympíuleikana sem haldnir
voru í Lillehammer. Ætlunin er
að endurtaka keppni í fjölmörg-
um greinum í Þrándheimi.
Margir bestu skíðamenn heims
munu mæta þangað til að taka
þátt í skíðakeppni, norrænum
greinum.
Meginhluti Þrándheims
brann í miklum eldsvoða árið
1681. Borgin var samt fljótlega
endurbyggð og barokk bygging-
arstíllinn var áberandi. Fjöl-
margar byggingar, sem enn
standa, bera því glögglega vitni.
Eitt af því sem tekið var í notk-
un eftir brunann, var stórkost-
legt kirkjuorgel í Niðarósdóm-
kirkju, en það er frá árinu 1741.
Það var nýlega endurgert og
verður mjög í sviðsljósinu á
Orgelið í Niöarósdómkirkju veröur í brennidepli á barokkhátíö sem hald-
in verður í aprílmánuöi.