Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 8. MARS 1997 T>V 62 Ingibjörg Gunnarsdóttir Ingibjörg Gunnarsdóttir, fyrrv. skrifstofustjóri Hjúkrunarfélags ís- lands, Fremristekk 9, Reykjavík, er sjötug í dag. starfað í þeim félögum síðan. Þá situr hún i sóknarnefnd Breiðholtskirkju. Starfsferill Fjölskylda Ingibjörg fæddist í Syðra- Vallholti í Hólminum í Skagafirði og ólst þar upp. Hún lauk prófi frá Samvinnu- skólanum í Reykjavík 1946. Ingibjörg stundaði skrifstofustörf hjá Kaupfélagi Ámesinga, heildversl- un Hallgríms Tuliníusar, yið Morgun- biaðið og hjá Véladeild SÍS. Hún hóf störf hjá Hjúkrunarfélagi íslands 1968 og varð þar skrifstofustjóri 1970. Hún starfaði síðan hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga frá 1994 en lét af störfum fyrir aldurs sakir 1.3.1997. Ingibjörg var meðal stofnenda kvennadeildar Skagfirðingafélagsins og Kvenfélags Breiðholts og hefur Ingibjörg giftist 4.10. 1952 Móses Aðalsteinssyni, f. 7.3. 1925, d. 26.2. 1994, verkfræðingi. Hann var sonur Aðalsteins Stefánssonar, verkstjóra hjá Akureyrarbæ, og k.h., Þórdísar Ágústinu Jónsdóttur, húsmóður frá Patreksfirði. Dóttir Ingibjargar og Mósesar er Ragnheiður, f. 4.2. 1953, sagnfræðing- ur, kennari og starfsmaður við Þjóð- skjalasafn íslands, nú búsett í Kaup- mannahöfn, gift dr. Matthew J. Dris- coll, frá Boston í Bandaríkjunum, af írsku bergi brotinn en hann er starfs- maður við Árnasafn í Kaupmanna- höfn og eiga þau tvö böm, Kára, f. 1980, og Katrínu Þórdísi, f. 1987. Systkini Ingibjargar: Gunnar, f. Forstööumaöur Kjarvalsstaða og Ásmundarsafns Laus er til umsóknar staöa forstööumanns Kjar- valsstaöa og Ásmundarsafns. Starfiö felst í stjórnun og rekstri listasafna á vegum menningarmálanefndar Reykjavíkurborgar, þ.e. starfsemi á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni. Hlutverk forstööumanns Forstööumaður ber ábyrgö á fjárhagslegum rekstri og starfsmannastjórn. Forstöðumaður hefur yfirumsjón meö listaverka- eign Reykjavíkurborgar, þar á meöal útilistaverkum í borginni. Hún felur í sér skráningu listaverka, forvörslu þeirra, fræöistörf er þau varöa, útlán þeirra og útleigu, bókasafn og heimildarskráningu, safnkennslu, útgáfu- starfsemi, gerö tímabundinna listsýninga og innlend og erlend samskipti. Þá hefur forstöðumaður yfirumsjón meö starfi byggingalistadeildar á Kjarvalsstöðum. Forstöðumaður er menningarmálanefnd til ráðuneytis um listaverkakaup og borgaryfirvöld almennt til ráöu- neytis í listrænum efnum. Kröfur geröar til umsækjenda: Stjórnunarhæfileikar og stjórnunarreynsla. Listfræðimenntun á háskólastigi, æskilegt er MA-próf eöa sambærileg menntunargráöa. Lipurö í mannlegum samskiptum. Hæfni til aö setja fram hugmyndir í ræöu og riti á íslensku og erlendum málum. Þekking og reynsla af starfsemi listasafna er æski- leg. Fræöileg störf og rannsóknir, helst á sviði íslenskr- ar listasögu, eru æskileg. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri menningar-, uppeldis- og félagsmála. Undirmenn eru starfsmenn Kjarvalsstaða og Ás- mundarsafns. Umsóknir um starfið þurfa aö hafa borist fyrir 15. mars 1997. Æskilegt er að nýr forstööumaöur taki til starfa 1. júnf 1997. Kjör veröa samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar. Vakin skal athygli á aö hér er um aö ræða tímabundna ráöningu til fjögurra ára, meö möguleika á einni endurráðningu til fjögurra viðbótarára. Borgarráð skipar forstööumann aö fenginni tillögu menningarmálanefndar. í umsókn þarf aö gera grein fyrir hversu umsækj- andi mætir öllum ofangreindum kröfum. Skrifleg umsókn sendist framkvæmdastjóra menningar-, uppeldis- og félagsmála á skrifstofu borgarstjóra í Ráö- húsi Reykjavíkur, en hann veitir jafnframt nánari upplýs- ingar. Borgarstjórinn í Reykjavík, 28. febrúar 1997. Rétt er aö vekja athygli á aö þaö er stefna borgaryfir- valda aö auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgöar- stööum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja. 28.3. 1926, bóndi i Syðra- Vallholti, kvæntur Stef- aníu Sæmundsdóttur frá Siglufirði; Ástríður Helga, f. 9.2. 1928, starfs- maður við bandaríska sendiráðið í Reykjavík; Erla Guðrún, f. 28.5.1929, starfaði lengst af við Al- þjóðabankann í Was- hington D.C.; Aðalheiður Þorbjörg, f. 19.12. 1930, d. 28.3. 1933; Ásgeir, f. 5.3. 1932, húsasmiður í Reykjavík; Sigurður Heiðar, f. 1.7. 1933, starfsmaður hjá Hafrannsóknarstofnun í Reykjavík, kvæntur Hrefnu Einarsdóttur, starfs- manni hjá Hafrannsóknarstofnun og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Ingibjargar voru Gunnar Gunnarsson, f. 8.11.1889, d. 3.12. 1962, bóndi í Syðra-Vallholti, og k.h., Ragn- hildur Erlendsdóttir, f. 8.8.1888, d. 1.3. 1974, kennari og húsmóðir. Ingibjörg Gunnarsdóttir. Ætt Faðir Gunnars var Gunnar, b. í Syðra-Vallholti, bróðir Sveins á Mælifellsá, langafa Gunnars Andrés- sonar ljósmyndara á DV og Jóhanns heitins Sveinssonar, lög- fræðings og formanns Sjálfsbjargar. Gunnar var sonur Gunnars, odd- vita í Syðra-Vallholti Gunnarssonar, b. á Skíöastöðum, bróður Þorvalds, langafa Magn- úsar Jónssonar ráðherra og langafa Jóns Pálma- sonar alþingisforseta, föður Pálma á Akri. Gunnar var sonur Gunnars, b. á Skíðastöð- um Guðmundssonar, ættfóður Skíðastaðaættarinnar, b. á Hvalnesi Gunnarssonar, (Barna- Gunnars), b. á Hvalnesi Jónssonar. Móðursystir Ingibjargar var Jósef- ina, kona Friðriks Hansen, kennara á Sauðárkróki. Ragnhildur var dóttir Erlends, b. á Beinakeldu Eysteins- sonar, bróður Bjöms í Grímstungu, afa prófessoranna Bjöms Þorsteins- sonar og Þorbjamar Sigurgeirssonar. Móðir Ragnhildar var Ástríður Helga Sigurðardóttir, b. í Hindisvík Jó- hannessonar. Ingibjörg verður heima og tekur á móti gestum að Fremristekk 9, í dag, laugardaginn 8.3. milli kl. 16.00 og 19.00. Konráð Gunnarsson Konráð Gunnarsson útgerðarmaður, Ólafs- braut 50, Ólafsvík, er sextugur í dag. Starfsferill Konráð fæddist I Stykkishólmi og ólst þar upp. Hann gekk í Barna- skóla Stykkishólms, tók minna mótorvélstjóra- próf 1 Reykjavík 1955 og smáskipaprófi á Isafirði 1958. Konráð var vélstjóri Konraö Gunnarsson hjá Jóni Gíslasyni í Hafnarfirði 1955 og Kristjáni Guð- mundssyni á Rifi 1956-57 en hefur síðan lengst af verið stýrimaður og skipstjóri við eigin útgerð. Þá er hann, ásamt konu sinni og sonum, eigandi ferðaþjónustunnar Snjófell á Amarstapa. Konráð er félagi í Lionsklúbbi Ól- afsvíkur. Elín Hanna Sigurðar- dóttir stjórnmálafræð- ingur; Agnes, f. 4.10. 1976, verkakona í Ólafs- vík. Systkini Konráðs: Þómnn Gunnarsdóttir, f. 13.8. 1924, húsmóðir í Hafnarfirði; Guðmund- ur Gunnarsson, f. 17.6. 1926, bifreiðastjóri í Stykkishólmi; Halldóra Málfríður Gunnarsdótt- ir, f. 9.9.1927, húsmóðir á Akureyri; Jómnn Gunnarsdóttir, f. 4.4. 1930, húsmóðir í Bjarghildur Gunnars- Fjölskylda Konráð kvæntist 24.12. 1962 Guð- rúnu Tryggvadóttur, f. 4.1. 1940, er rekur ferðaþjónustu á Amarstapa. Hún er dóttir Tryggva Jónssonar, f. 20.8. 1911, d. 13.4. 1994, skipstjóra, bónda og útgerðarmanns á Eyri í Breiðvíkurhreppi, og k.h., Sigríðar Salbjargar Guðmundsdóttur, f. 13.3. 1916, d. 25.12. 1982, húsfreyju. Böm Konráðs og Guðrúnar era Sigurlaug, f. 3.2. 1959, húsmóðir í Ólafsvík, gift Haraldi Yngvasyni bif- reiðastjóra og eiga þau fimm böm; Tryggvi, f. 22.12. 1960, vélvirki og framkvæmdastjóri Snjófefis á Am- arstapa en hann á einn son með Margréti Sigríði Birgisdóttur; Sölvi, f. 2.8. 1962, búfræðingur og stýrim- aður í Ólafsvík; Jóna, f. 12.12. 1964, húsmóðir í Bessastaðahreppi, gift Jóhanni Jónssyni verktaka og eiga þau tvö böm; Kári, f. 6.2. 1967, húsa- smiður í Reykjavík en kona hans er Reykjavík; dóttir, f. 16.2. 1932, húsmóðir í Kópa- vogi; Guðrún Gunnarsdóttir, f. 3.5. 1933, húsmóðir í Reykjavík; Rann- veig Hansína Gunnarsdóttir, f. 28.8. 1934, d. 1991, húsmóðir í Reykjavík; Ingibjörg Gunnarsdóttir, f. 14.2. 1936, húsmóðir í Reykjavík; Hrefna Gunnarsdóttir, f. 29.7.1938, húsmóð- ir í Reykjavík; Lovisa Gunnarsdótt- ir, f. 22.8.1939, húsmóðir í Kópavogi; Jónas Gunnarsson, f. 17.11. 1940, út- gerðarmaður í Ólafsvík. Þá dóu tví- burar i fæðingu. Hálfsystir Konráðs, sammæðra, var Inga Jónsdóttir, f. 12.9. 1922, d. 1974, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Konráðs: Gunnar Bac- hmann Guðmundsson, f. 6.10. 1898, d. 28.10. 1986, sjómaður og verkam- aður í Stykkishólmi, og k.h., Kristensa Valdís Jónsdóttir, f. 19.6. 1897, d. 14.8. 1981, húsmóðir. Ætt Gunnar var sonur Guðmundar Júlíussonéu, sjómanns í Stykkis- hólmi, og k.h., Jómnnar Konráðs- dóttur. Kristensa Valdís var dóttir Jóns Jónassonar, b. og sjómanns, og Kri- stólínu Þórunnar Kristjánsdóttur. Konráð verður að heiman á af- mælisdaginn. lil hamingju með afmælið 8. mars 90 ára Magnús Eggertsson, Njálsgötu 92, Reykjavík. 85 ára Þorsteinn Steingrimsson, | Hóli, Öxarfiarðarhreppi. 80 ára Sigríður Jónsdóttir, | Hraunbæ 103, Reykjavík. 75 ára Anna Sigríður Loftsdóttir, Lokastíg 26, Reykjavík. Emma Guðnadóttir, Löngiunýri, Skeiðahreppi. Valgerður Valgeirsdóttir, Birkihlið 42, Reykjavík. 70 ára Þómnn Ingólfsdóttir, Hlíðargötu 35, Búðahreppi. Jóna Tryggvadóttir, Heiðargerði 65, Reykjavík. 60 ára Björg Hjartardóttir, Mávahlíð 23, Reykjavík. Ásgeir Þ. Ásgeirsson, Hlíðarvegi 49, Kópavogi. Eðvald Eðvaldsson, Breiðvangi 30, Hafnarfirði. Steinunn Ingólfsdóttir, Skeljanesi 8, Reykjavík. Guðrún Elsa Kristjánsdóttir, Húnabraut 20, Blönduósi. Kristín Sigurðardóttir, Heiðvangi 34, Hafnarfirði. Jóna Þ. Ólafsdóttir, Vatnsleysu III, Biskupstungna- hreppi. 50 ára Regin Grimsson, Skjólvangi 8, Hafharfirði. Bjöm Jónsson, Brúarási, Hlíðarhreppi. Kolbrún Kristin Gunnarsdótt- ir, Boðagranda 4, Reykjavík. Stefán Bergsson, löggiltur endurskoðandi, Salthömrum 24, Reykjavík. Kona hans er Jenný Guðrún Magnúsdóttir. Þau taka á móti vinum og vandamönnum í Stakkahlíð 17, Reykjavík, í kvöld, laugardag- inn 8.3. frá kl. 20.00. Anton Óskarsson, Vallarhúsum 14, Reykjavík. Gunnar H. Pálsson, Vailartröð 12, Kópavogi. Anna Höskuldsdóttir, Espilundi 1, Akureyri. Halla G. Hjálmarsdóttir, Hrísrima 15, Reykjavík. 40 ára Ragnar Rúnar Sverrisson, Lindarseli 2, Reykjavík. Ema Haraldsdóttir, Jaðarsbraut 37, Akranesi. Egill Héðinn Bragason, Fróðasundi 10 B, Akureyri. Guðmundur Vignir Hauksson, Reykjavíkurvegi 48, Reykjavík. Elínborg Ellertsdóttir, Vesturgötu 40, Keflavík. 7/////////////////////J staögreiöslu- og greiöslu- kortaafsláttur og stighaekkandi r % Smáauglýsingar DV 5505000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.