Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Blaðsíða 17
DV LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
17
Þrír miðlar segja nunnur fylgja Jónasi Jónassyni:
Ég er mikill efasemdamaður
- segir útvarpsmaðurinn en segist þó þekkja aðra þeirra
Miölar segja tvær nunnur fylgja Jonasi Jónassyni, útvarpsmanninum góökunna. Hann þekkir
aöra þeirra frá því að hann var nemandi í Landakoti sem barn. DV-mynd Pjetur
„Það sem ég vildi fá að vita var hvort hann
sæi eitthvað í húsinu. Ég hafði í raun engan
sérstakan áhuga á því að fara að blanda sjálf-
um mér inn í þetta en viðurkenndi fyrir hon-
um að aðrir miðlar hefðu sagt það sama um
nunnumar,“ segir Jónas Jónasson útvarps-
maður í Scimtali við DV.
Kvöldgestur Jónasar í Ríkisútvarpinu fyrir
rúmri viku var miðillinn Hiimar Guðmunds-
son, maður sem sér fleira en fólk almennt ger-
ir. Jónas þekkir útvarpshúsið vel og segir að
mörgum þyki erfitt að vera einir á ferð á
neðstu hæðum hússins. Jónas vildi því fá að
vita hvort gesturinn sæi eitthvað í hljóðstof-
unni, eitthvað sem honum sjálfum væri fyrir-
munað að sjá. Það eina sem maðurinn nefndi
voru tvær nunnur sem hann sagði greinilega
fylgja Jónasi.
Systir Clementía
„Tveir aðrir miðlar hafa sagt þetta sama
um nunnumar. Fyrir löngu var ég að drekka
kafft hjá Þórunni Maggý Guðmundsdóttur
miðli. Við vorum bara að rabba saman og þar
sem ég er forvitinn maður að eðlisfari spurði
ég: Hvað sérðu núna, elskan? Þá talaði hún
um nunnu. Mér datt strax í hug yndisleg syst-
ir sem kenndi mér í Landakoti þegar ég var
barn.“
Jónas segist í raun aldrei hafa vitað nein
sérstök deili á þessari konu. Hann heldur að
hún hafi heitið Margrét en í Landakoti var
hún kölluð systir Clementía. Nunna þessi
reyndist Jónasi afskaplega vel, m.a. þegar
sprakk í honum botnlanginn og hann var mik-
ið veikur um tíma. Jónas er sannfærður um
að margir muni eftir þessari góðu konu, hún
hafi haft svo fallega útgeislun.
Umkomulaus í skólanum
„Ég varð vitanlega nokkuð forvitinn um
hver hún væri þessi kona og spurði Þórunni
Maggý hvort veriö gæti að þetta væri systir
Clementía. Hún brosir núna, sagði hún þá.“
Jónas segir að systir Clementía hafi viljað
koma boðum til sín í gegnum miðilinn. Þau
voru eitthvað á þá leið að hann hefði alltaf
verið hálfumkomulaus í skólanum og því
hefði hún ákveðið að taka hann að sér.
„Þannig var þetta og ég get ekki séð hvern-
ig Þórunn Maggý ætti að vita það. Þessi góða
nunna sagðist síðan fylgja mér til þess að geta
haldið áfram að annast um mig.“
Hin nunnan er að sögn Jónasar úr gamalli
ítalskri reglu. Það var Kristin Þorsteinsdóttir
miðill sem minntist fyrst á hana við hann.
Nunnan er sögð vera frá mjög gamalli tíð og
er einhvem veginn þama til þess að vanda
um fyrir honum, gera hann að betri manni.
„Erum við ekki alltaf að reyna að verða betri
menn?“ spyr Jónas.
IMeita engu
Aðspurður hvort hann trúi á þetta segist
hann vera mikill efasemdamaður. Hann segist
þó hafa verið alinn upp á heimili spíritista og
aldrei fundist hann hafa efni á því að neita
einu eða neinu.
„Ég er síspyrjandi og á það til að fá köst þar
sem ég efast um að nokkur vitglóra sé í tilver-
unni.“ Jónas segir mörgu svo misskipt hér hjá
okkur. Sumir deyi ungir en aðrir lifi lengur
eins og frænka hans ein, Halldóra Bjarnadótt-
ir, sem varð 108 ára. Þegar hún var 82 ára hót-
aði hún honum að hún ætlaði að verða minnst
110 ára. Jónas lofaði þá um leið að koma og
dansa við hana á afmælisdaginn. „Uss, þú
verður löngu dauður þá,“ sagði þá gamla kon-
an.
„Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir
því að þessu er svona misskipt. Börn deyja án
þess að hafa nokkuð fengið að lifa og það seg-
ir mér að einhvers staðar sé kerfi í þessu sem
við ekki skiljum, Ég vil trúa því að það geti
ekki verið að ég sé hér til þess eins að vinna
í útvarpinu," segir Jónas Jónasson.
-sv
í kortaviðskiptum í
frá og með 8. júlí
DEBETKORT
Þú þarft að slá inn
PIN-númerið þegar
þú greiðir með
kredit- eða debetkorti
í bensínsjálfsölum
Til samræmis við alþjóðlegar öryggisreglur í kortaviðskiptum hafa íslensku
greiðslukortafyrirtækin ákveðið í samráði við olíufélögin að frá og með
8. júlí skuli persónulegt leyninúmer korthafa (PIN-númer) notað í viðskiptum
með greiðslukortum í bensínsjálfsölum hér á landi.*
* PIN-númer vegna VISA-korta fást endurútgefin hjá viðskiptabönkunum,
sparisjóðunum og VISA ef þörf er á.
PIN-númer vegna Eurocard-korta fást endurútgefin hjá Europay á íslandi.
VISA ÍSLAND
ÁLFABAKKA 16, 109 REYKJAVÍK sími 525 2000 - fax 525 2020
EUROPAY
I s l a n d
KREDITKORT HF.
ÁRMÚLI 28-30 • 108 REYKJAVÍK
Sími: 550 1500 • Fax: 550 1515