Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 T^>V
dagur í lífi
Jón Guðmundsson var í undirbúningsnefnd afmælis Egilsstaðabæjan
Gamli kaupfélagsstjórinn
ánægður með græna litinn
„Undirbúningur afmælis Egils-
staða hefur staöið í langan og
strangan tíma og nú virðist sem
ósk afmælisnefndarinnar um gott
veður ætli að rætast (við gerðum
þá kröfu til máttarvalda að þau
gæfu okkur gott veður í afmælis-
gjöf). Það er fimmtudagurinn 26.
júní, úti sól og blíða og hiti um 15
gráður þegar undirritaður reis úr
rekkju sinni á Hallormsstað. Þetta
var góðs viti því í dag átti ég von á
listakonunni Finnu B. Steinsson
til að mála listaverk á aðalgötu Eg-
ilsstaða, Fagradalsbrautina.
Ég ók í Egilsstaði rétt fyrir kl. 8,
hélt rakleiðis til Þráins og Gunn-
hildar í Héraðsprenti til að ná í
nokkur eintök af afmælisblaði Eg-
ilsstaða sem ég þurfti að koma í
póstinn sem allra fyrst svo íbúar
dreifbýlisins fengju nú dagskrá
væntanlegra hátíðarhalda í tíma.
Þráinn prentari var syfjulegur
enda lagt nótt við dag að undan-
fömu. Ég varð að hafa hraðann á
því von var á flugvélinni frá
Reykjavík á hverri stundu með
Finnu innanborðs.
Málaði bláar brýr
Við aðalinngang flugstöðvarinn-
ar voru ýmsir mætir menn. Ámi
ísleifs og Vernharður Linnet voru
t.d. mættir til að kveðja þann
fræga fiðlusnilling, Sven Asmus-
sen, sem leikið hafði á opnunartón-
leikum tíundu Jazzhátíðar Egils-
staða kvöldið áður. Þeir sneru all-
ir andliti til sólar og voru famir að
taka lit.
Okkur fannst tilvalið að fá
Finnu B. Steinsson til að skreyta
Egilsstaðabæ á 50 ára afmælinu.
Hún hefur á undanförnum áram
vakið mikla athygli og umtal,
gerði t.a.m. tilraun til þess að telja
hina óteljanlegu Vatnsdalshóla og
málaði gömlu brýmar í Norðurdal
í Borgarfirði bláar.
Upp úr hádegi var undirbúningi
lokið svo við Finna hófum gerð
listaverksins, íklædd hvítum mál-
aragöllum og skærgrænum örygg-
isvestum frá Vegagerðinni. Við
byrjuðum á Eiðavegi og fikruðum
okkur síðan inn á Fagradalsbraut-
ina. Það er viss lífsreynsla að
starfa úti á miðjum þjóðvegi og
betra að hafa augun opin. Þótt
flestir ökumenn hafi verið tillits-
samir við okkur götumálarana
voru nokkrir sem einhverra hluta
vegna áttu erfitt með að hægja á
sér.
Nennti varla á fund
Finna var búin að reikna út að
við þyrftum að mála yfir þrjú
hundruð þríhyrninga, samtals um
64 fermetra. Eftir um klukkustund-
arvinnu voru þríhymingarnir
orðnir eitthvað á þriðja tuginn
þannig að með sama hraða yrðum
við að fram á nótt.
Helgi Halldórsson, bæjarstjóri
og formaður afmælisnefndar, leit
við hjá okkur upp úr mðjum degi á
sínum græna Renó og dró mig inn
á fund með afmælisnefndinni. Ég
nennti tæpast en skyldan kallaði.
Eftir fundinn fann ég að ég var
orðinn svangur enda ekkert borð-
að síðan snemma um morguninn.
Sigrún Lárusdóttir afmælisnefnd-
armaður aumkaði sig yfir mig og
bauð mér og listamanninum í mat.
Hafi hún þökk fyrir.
Egilsstaðamaraþon
Klukkan var átta og ekki nema
þriðjungur Vaxtarbroddanna,
verkið hét það, hennar Finnu hafði
litið dagsins ljós. Nú var aö taka til
hendinni og sem betur fer barst
góður liðsauki. Skriður komst á
málið.
Ýmsir vegfarendur gáfu sig á tal
við okkur og spurðu m.a. hvort við
værum að auðkenna hlaupaleiðina
fyrir Egilsstaðamaraþon. Þegar við
sögðumst hins vegar vera að mála
listaverkið Vaxtarbrodda kom
spekingslegur svipur á marga.
Flestir lýstu yfir ánægju sinni,
fannst verkið flott. Aðrir ypptu
öxlum en Þorsteinn, fyrrverandi
kaupfélagsstjóri, brosti út undir
eyru, svo ánægður var hann með
græna litinn.
Verkinu lauk upp úr klukkan
eitt í dýrlegri miðnætursól. Þá var
orðið nokkuð dregið af listamönn-
unum en umhverfislistaverkið
Vaxtarbroddar teygði sig eins
langt og augað eygði eftir Fagra-
dalsbrautinni. Það var tilkomu-
mikil sjón.
Heim var ég kominn upp úr
klukkan tvö að nóttu og svaf vel á
mínu græna eyra til morguns."
Jón Guðmundsson
vann ötullega aö undir-
búningi afmælis Egils-
staðabæjar. Hér er hann
að mála umhverfislista-
verkiö Vaxtarbrodda.
DV-mynd Sigrún Björg-
vinsdóttir.
Finnur þú fimm breytingar? 418
Þú ert rekinn, Jensen, en ég skal gefa þér mín bestu meðmæli ef þú
ert til í aö fá þér starf hjá helsta keppinaut okkar.
Nafn:______________________________________■______________________
Heimili:----------------------------------------------------------
SÖ39
Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og sextándu
getraun reyndust vera:
Ómar Valgeirsson, Hallbjöm V. Rúnarsson,
Norðurvangi 20, Hólagötu 4,
220 Hafnarfjöröur. 245 Sandgerði.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi frnim atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél
ffá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
3.995 kr.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 418
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík