Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
%íönd ,
Fatos Nano, leiðtogi vinstrimanna í Albaníu, leiddi sína menn til sigurs:
Bjartsýnismaður sem þykir mjög
yfirvegaður og metnaðarfullur
09.1S FM6
inu að undanfömu. Þar hefur ríkt
nánast stríðsástand í kjölfar pen-
ingataps Albana eftir að þeir lögðu
allt sitt undir í svokölluðu
pýramídaspili og ekki síður vegna
Um síðustu helgi var gengið til
kosninga í Albaníu. Óöld hefur ríkt
i landinu í nokkra mánuði og hafa
yfir 1500 manns látist í átökum.
Sigurvegari kosninganna þykir
án efa vera vinstrimaðurinn Fatos
Nano sem leiddi sína menn til sig-
urs. Þó talningu sé enn ekki lokið
hefur forseti landsins og leiðtogi
íhaldsmanna, Sali Berisha, játað sig
sigraðan og gefið út þær yfirlýsing-
ar að hann muni víkja úr embætti
forseta þegar ný ríkisstjóm vinstri-
manna verður mynduð.
Fatos Nano, sem er fyrrum
kommúnisti, er í þeirri aðstöðu nú
að velja sér samstarfsmenn og
margir velta því fyrir sér hver af-
drif Berisha forseta verða. Þó Nano
hafi sagt opinberlega að það sé
pláss fyrir alla, jafiivel Berisha, þá
era uppi efasemdir rnn að hann
muni velja það að viima með forset-
anum. Auk þess sem Berisha er
helsti keppinautm- Nanos í stjóm-
málum er hann persónulegur fjand-
maður Nanos.
Lipur stjórnmálamaður
Fatos Nano þykir mjög yfirvegað-
ur stjómmálamaður. Hann er sagð-
ur hafa lært mikið af falli kommún-
ismans. Hann er mjög lipur í sam-
skiptum sinum við aðra og á mjög
auðvelt með að safha bandamönn-
um og mynda bandalög í kringum
sig. Nýtt þing þarf ekki að snúast
gegn forsetanum núna nema hann
rísi á afturlappimar, sem þykir
ekki alls ólíklegt.
Hins vegar má ganga út frá því
sem vísu að fyrr eða síðar sjái Nano
ástæðu til að losa sig við Berisha.
Fyrst um sinn þarf hann þó að ein-
beita sér að því að reisa þessa fá-
tækustu þjóð í Evrópu á fætur ný
eftir umbrotin sem ríkt hafa í land-
Fatos Nano, leiðtogi vinstrimanna, þykir mjög yfirvegaður stjórnmálamaður.
Hann er einnig sagður mjög duglegur og metnaðargjarn og alltaf einu skrefi
á undan keppinautum sínum. Símamynd Reuter
Nano, sem er 45 ára, er kominn af
fjölskyldu sem var mjög höll undir
kommúnismann. Faðir hans þjón-
aði harðsfjóranum Enver Hoxha
dyggilega þar til hann lést árið 1985
og síðan eftirmanni hans, Ramiz
Alla. Á meðan faðir hans stjómaði
mikilvægasta áróðurstæki komm-
únista, útvarpsstöðinni í Tirana, lét
menntaskólaneminn Fatos skoðanir
sínar óspart í ljós, skoðanir sem
vöktu ugg meðal kommúnista.
Strákurinn hreifst mjög df vestræn-
um fótbolta, tónlist og kvikmyndum
en slíkt passaði ekki inn í myndina
í þessari einangraðu höfuðborg þar
sem afturhaldssemi réði ríkjum.
Út á við fylgdi Nano þeim stefnu-
miðum sem æsku flokksins voru
gefin. Hann nam stjórnmálahag-
fræði við háskólann í Tirana, vann
um tíma í stálverksmiðju í Elbasen
og sérhæfði sig síðan í marx-
leníniskum fræðum við stofnun,
sem var sijómað af hinni illa þokk-
uðu eiginkonu Hoxha, Nexhmije.
Það rann hins vegar fljótt upp fyr-
ir Nano að sá steinaldarkommún-
ismi sem ríkti í landinu riðaöi til
falls og las hann í leyni rit sovéska
umbótasinnans Mikails Gorbatjovs.
Erlent
fréttaljós á
laugardegi
Sá að kommúnisminn
riðaði til falls
Óöld hefur ríkt í Albaníu að undanförnu og hafa yfir 1500 manns látist í átök-
um. Efnt var til kosinga um síðustu helgi og fóru þær friðsamlega fram. í
fyrradag lést einn maður og nokkrir særöust er til átaka kom milli iögreglu
og konungssinna sem mótmæltu úrslitum í þjóöaratkvæðagreiöslu sl.
sunnudag þar sem því var hafnað að Albanía yrði konungsríki á ný.
Símamynd Reuter
kosningasvindls Berisha fyrir 13
mánuðum síðan.
CQ DP800
® Útvarp 18 FM/ 6 AM stöðvar Bassa og diskant stilling
Sjálfvirk innstilling stöðva A.T.M. Loudness tenging f/magnara
Geislaspilari 1 Bit. Klukka
Magnari 4x35w Laus framhlið
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
Akranes: Málningarþjónustan Metro/ Hljómsýn • Borgarnes: Kaupfélag
Borgfirðinga • Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir • Bolungarvík: Laufið •
fsafjörður: Póllinn • Sauðárkrókur: Verslunin Hegri • Akureyri:
Radíóvinnustofan / Radíónaust / Metro / Tölvutæki-Bókval • Húsavík: Ómur •
Seyðisfjörður: Kaupfélag Héraðsbúa / Pétur Kristjánsson • Egilsstaðir:
Rafeind / Kaupfélag Héraðsbúa • Neskaupstaður: Tónspil • Vopnafjörður:
Verslunin Kauptún • Höfn: Rafeindaþjónusta B.B. • Selfoss: Kaupfélag
Árnesinga • Vestmannaeyjar: Brimnes/Tölvubær • Keflavík: Rafhús •
Reykjavík: Nesradíó og Japis
j
Dæmdur í fangelsi
Hann varð áberandi í stjórnmál-
um Albaníu árið 1991 er hann
leiddi kommúnista til sigurs en
brautin var ekki greið og stjóm-
málaástand óstöðugt. Ári síðar tók
ævintýramaðurinn og fyrrum
kommúnistinn, Sali Berisha, við
forsetaembætti. Hann kom því til
leiðar að Nano var dæmdur í 12 ára
fangelsi fyrir spillingu.
Berisha forseti bar hins vegar
mun meiri skaða af fangelsun Nano
en hann sjálfúr. Utanlands höfðu
fæstir trú á fulyrðingum forsetans
og í Albaníu var litið á Nano sem
píslarvott. Þegar honum var sleppt
úr haldi í mars sl. vora honum allir
vegir færir og nú rúmum þremur
mánuðum síðar er hann að taka við
stjóm landsins.
Byggt á Jyllands-Posten
UKAWA 625 E
Notuð beltagrafa, Furukawa 625E
15 tonn, árg. 1991. Gott ástand.
Uppl. hjá sölumönnum.
v Skútuvogi 12A, s. 581 2530