Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998 T>V fréttir Verðstríð stórmarkaðanna á höf- uðborgarsvæöinu harðnar með hverjum degi og stöðugar iækkanir fylgja í kjölfarið. Sveinn Sigurbergsson, verslunar- stjóri hjá Fjarðarkaupum, segir að Fjarðarkaupsmenn séu ákveðnir að halda sinu sæti áfram sem lægsti hefðbundni stórmarkaðurinn. „Við ætlum að svara yfírlýsingum Hag- kaupsmanna um að alltaf séu betri kaup hjá þeim. Stööugar njósnir Þaö eru menn í vinnu hjá öllum stórmörkuðunum sem fylgjast með verðinu hjá keppinautunum. Við erum með menn í vinnu sem kanna verðið hjá samkeppnisaðilunum með skanna sem er beintengdur til okkar og hinir gera eins. Það er því komin hefð fyrir svona njósnurum," sagði Sveinn. Mikil taugaveiklun Að sögn forsvarsmanna stór- markaðanna stendur stríðið helst um mjólkurvörur, grænmeti, kjöt og pakkavörur. Júlíus Jónsson, einn eiganda Nóatúns, telur að um tímabundnar lækkanir sé að ræða: „Við hjá Nóa- túni fylgjum auövitað straumnum en við erum ekkert að fara á taug- um eins og sumir. Matvörumarkað- urinn er eilífur slagur en ég tel að þessar lækkanir nú séu komnar frá mönnum sem vilja slá sig til riddara með einhverjum auglýsingabrell- um. Þetta er bara bóla sem springur því það heldur það enginn lengi út að borga með stórum hluta af þeim vörum sem hann kaupir inn.“ Bónusmenn ósáttir „Við erum afar óhressir með hvemig fjallað hefur verið um þetta Útsendarar stórmarkaðanna eru óhræddir viö aó arka inn í verslanir samkeppnisaóilanna og kanna verö þar. verðstríð. Fjarðarkaup og 10-11 hafa verið að upphefja sig sem ódýrustu stórmarkaðina á höfúðborgarsvæð- inu. Það er hins vegar alger fjar- stæöa. Við erum enn langódýrastir eða um 20% ódýrari en Fjarðarkaup sem kemur næst á eftir.“ Markaöurinn róast „Það era allir aö fylgjast með öll- um á þessum markaði en ég tel að það séu helst við hjá 10-11 og Fjarð- arkaup sem getum veitt Hagkaupi aðhald," sagði Herta Þorsteinsdótt- ir, innkaupastjóri hjá 10-11. Herta taldi einnig augljóst að all- ir stórmarkaðimir seldu nú ein- hverjar vörur sínar undir innkaups- verði og það gengi auðvitað ekki til lengdar. Afleiðingarnar hlytu því að verða þær að markaðurinn róaðist aftur og verð á einhverjum vörum hækkaði. Ekki auglýsingabrella Þórður Þórisson, innkaupastjóri hjá Hagkaupi, vísar því alfarið á bug að verðstríðið sé einfaldlega auglýsingabrella hjá Hagkaupi. „Fyrirtækinu var einfaldlega skipt upp í Hagkaup og Nýkaup til þess að einfalda línumar fyrir neytend- ur.“ Að sögn Þórðar sér ekki fyrir endann á þessari samkeppni og era Hagkaupsmenn enn að lækka vörur sínar og jafnvel að selja þær undir innkaupsverði eins og samkeppnis- aðilarnir. -glm Veröstríö stórmarkaöanna: Borgað með vörunum Bændur í Landbroti búnir að fá nóg: „Munum krefj- ast skaðabóta" - segir Erlendur Björnsson „Við viljum fá vatnið sem af okk- ur var tekið," segir Erlendur Bjömsson, bóndi á Seglbúðum í Skaftárhreppi. „Það eru nokkrir bæir sem byggja afkomu sína á sölu sjóbirtingsveiðileyfa. Þessar tekjur skipta milijónum. Ef svo fer fram sem horfir og Grenlækur og Tungu- lækur þurrkast upp blasir við hrun í byggðinni héma. Við höfum snúið okkur til lögfræðings. Við ætlum okkur að höfða mál og krefjast þess að ástandinu hér verði komið I fyrra horf. Þá viijum við skaðabæt- ur fyrir það tjón sem þegar er orðið og verður hugsanlega síðar.“ Bændur í Landbroti segja að varnargarður sem Vegagerðin byggði árið 1992 viö Skaftá valdi því að lækimir séu nú að þurrkast upp. Þurrkurinn hefur þau áhrif að a.m.k. tveir árgangur seiða munu eyðileggjast og það stefnir jafnvel í að sjóbirtingur og bleikja komist ekki að hrygningarstöðum í sumar. Erlendur leggur líka áherslu á að ekki sé bara um fjárhagslegt tjón fyrir bænduma að ræða. „Lífríkið héma almennt hefur beðið mikinn skaða.“ Vegagerðin og bændur hafa lengi tekist á um vatnið á svæðinu. Vegagerðin heldur því fram að framkvæmdir hennar séu ekki or- sök þurrka heldur sé snjóleysi og af- brigðilegu veðurfari um að kenna. -JP Formaður félags hjúkrunarfræöinga: Stjórnvöld bera ábyrgð á ástandinu - ef neyðarástand skapast „Það er ekkert nýtt í stöðunni. Við höfum veruiegar áhyggjur af þessu máli. Við í félaginu teljum að stjómvöld bera ábyrgö á því neyð- arástandi sem hugsanlega skapast 1. júlí ef deilan leysist ekki,“ segir Ásta Möller, formaður félags hjúkrunar- fræðinga. Tæplega 700 hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum. Uppsagnimar taka gildi um næstu mánaðarmót. „ Ef stjórnvöld telja sig þurfa meira svigrúm til að leysa þessa deilu þá hefðu þau lagalega heimild til þess. Þau nýttu sér það þó ekki. Um leið taka þau á sig þá ábyrgð að leysa þessa deilu fyrir 1. júlí. Stjóm- völd hafa áram saman beitt hjúkrun- arfræðinga misrétti í launamálum. Hjúkrunarfræðingar era með tugum prósenta lakari laun heldur en fólk með sambæriiega menntun og ábyrgð. Ég met það þannig að þolin- mæði hjúkranarfræðinga er á þrot- um,“ segir Ásta. -RR Vörur úr Vikartindi: Eitt stærsta uppboð sem haldið hefur verið í dag klukkan, 13.30, fer fram lausafjáruppboð á vörum úr Vik- artindi. Uppboðið fer fram í Toll- húsinu við Tryggvagötu. Að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, deildarstjóra í nauðungarsölu, er þetta með stærstu lausafjárupp- boðum sem haldin hafa verið á vegum embættisins. Meðal þess sem boðið verður upp eru bílar, fatnaður, gler- og skrautvörur, stólar, myndbandsspólur og loft- verkfæri. Starfsmenn tollstjóraembættis- ins voru í gær að gera klárt fyrir uppboðið á vörum úr Vikartindi. DV-mynd ÞÖK 890 ökumenn kærðir á tæpum mánuði 890 ökumenn hafa veriö kærðir fyr- ir of hraðan akstur í Reykjavík frá 14. maí sL Þá voru aðgerðir lögreglunnar hertar til muna í umferðareftirliti. Nokkrir tugir þessara ökumanna hafa verið sviptir ökuréttindum. Þess má geta að á sama tíma í fyrra voru tæplega 270 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í borginni. 45 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur eftir hádegi í gær til klukkan 6 í morgun. Á sama tíma urðu tuttugu árekstrar í borginni. Ekki er vitað til þess að slys hafi orð- ið á fólki. -RR Þjóðskáld slær lán Skáld eitt íslenskt á hægri væng stjómmálanna, sem gaf út verk sín sjálft og seldi, hugðist fyrir nokkrum árum færa út kvíamar og gefa út eftir íleiri en sjálfan sig. Til þess skorti hann skot- silfur og gekk því á fund þáverandi banka- stjóra bankans og flokksbróður, Sverris Hermannssonar. Eft- ir að hafa kynnt sig fyrir bankastjóranum og rétt honum nafnspjald sem á stóö að viökomandi væri Poet/Publ- isher, eða skáld og útgefandi, ræddu þeir lánamálið og þar kom að Sverrir þurfti að bregða sér út af kontómum tii þess, að því skáldið hélt, að koma málinu í réttan farveg hjá starfsmönn- um lánadeildar. Sverrir kom síðan inn aftur og sagöi skáldinu að málið yrði nú athugað í bankanum og þeir skyldu ræða saman aftur síðar í vikunni, stóð svo upp, kvaddi gest sinn meö handa- bandi og opnaði dyrnar. Þá sá skáldið að nokkur fjöldi bankastarfsmanna hafði skipaö sér í tvöfalda röð framan við dymar. Sverrir ávarpaði „heiö- ursvörðinn“ og sagði: Heilsiði nú þjóð- skáldinu! Skáldiö gekk út fram hjá heiðursverðinum og kom aldrei aftur í bankann til að vitja um lániö. Mirabelle Kvótakóngarnir af Austfjörðum hafa undanfarin misseri fjárfest í steinsteypu og fataverslunum í Reykjavík. Innreið þeirra í höfúðborg- ina heldur áfram. Ný- lega festi ungur dreng- ur kaup á veitinga- staðnum Mirabelle í miöbæ Reykjavíkur. Ekki væri þaö í frá- sögur færandi nema fyrir það leyti að hér er á ferðinni fúiltrúi fjölskyldu sem hefúr hingað til látið sér nægja aö skipta með kvóta og báta. Eigandinn nýi er nefnilega bamabam Aila ríka, Aðalsteins Jónssonar á Eskifiröi, og ber víst sama nafn ... Óþekkt Ellerts í innsta hring Sjálfstæöisflokksins bera menn sig ekki vel undan meintri óþekkt Ellerts B. Schram og hve hann hafi alltaf rekist illa í flokknum. Þeir segja að það væri eftir öðra að hann taki að leggja lag sitt við væntanlegt framboð Sverris Hermanns- sonar. Hann hafi alltaf stokkiö til og hlaupið á eftir sprengiframboðum í von um að verða alþingismaður á ný, borgarfulitrúi eða borgarstjóri. Þeir Ellert og Sverrir ættu áreiðanlega eftir aö ná vel saman á ný, en þegar þeir sátu saman á Alþingi forðum uröu hæfileikar Ellerts Sverri svo hugstæðir að hann orti þessa vísu: Ellert gefrn- engin grið og er það miður. Naumar mun hann vaxinn upp en niður. Farfuglar hverfa Verslunarrekendur á Akranesi eru farnir aö kvíöa því aö Hvaifjarðargöng- in verði tekin í notkun því að þá óttast þeir aö missa mikilvæga viðskiptavini, sumargesti, sem hverfi algerlega úr bænum. Þetta eru erlendir ferðamenn sem feröast gangandi, á puttanum eða á reiöhjólum um landið. Þessi hópur ferðamanna hefur í áranna rás verið flölmennur meöal farþega Akraborgar- innar á sumrin. Þeir taka skipið upp á Skaga, dveija þar dagstund eða hluta úr degi, kaupa sér í svanginn í mat- vöruverslunum bæjarins og halda síð- an leið sinni áfram. Nú hættir Akra- borgin senn siglingum og hjólreiðar um göngin verða ekki leyfðar. Umsjón: Stefán Ásgrímsson Netfang: sandkorn @ff. is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.