Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Blaðsíða 23
23 V LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998
FÉLAG
GfiRÐPLÖNTU-
FRANLEIÐSHDA
MJÚKUR SOLI
FOTLAGA BOTN SEM
VERNDAR 8AK1Ð
LEÐURINNLEGG
OG YFIRLAG
Helstu útsölustaðir:
Intersport - Sportkringlan - Lyfja Lágmúla - Lyfja Setbergi - K.Á. Selfossi - K.Á. Hellu
K.Á. Hvolsvelli - Apótek Vestmannaeyja - Siglufjarðarapótek - Fríhöfnin Keflavík
Sótti son sinn í útskrift í Stokkhólmi í fullum víkingaskrúða:
Til skips skulum við halda
Fætur í örum vexti
fara vel í barnaskóm
frá Scholl
o
Ingi Bjarni ásamt sænskri unnustu sinni, henni Línu,
sem einnig var aö útskrifast frá skólanum í Táby þenn-
an dag.
„Ég er kominn hér til að sækja
þig, sonur sæll. Til skips skulum við
halda og fara til íslands þar sem þú
ert fæddur og barnbor-
inn. Heim skulum
við halda, drengur
minn, og höggva
menn og aðra!“
Svo mælti Jó-
hannes Viðar
Bjarnason, eig-
andi Fjöru-
krárinnar í Hafnarfirði, i fullum
víkingaskrúða og á hestbaki er
hann sótti son sinn, Inga Bjarna, að
lokinni stúdentaútskrift frá Mennta-
skólanum í Taby í Stokkhólmi á
dögunum. Eins og gefur að skilja
vakti þetta mikla athygli útski'iftar-
gesta. Ekki á hverjum degi sem ís-
lenskur vikingur sést á götum
Stokkhólms í fullum skrúða og ríð-
andi á íslenskum hesti í þokkabót.
Frá athöfninni riðu þeir burtu á
gæðingunum Dofra og Óðni og fóru
í langan útreiðartúr um götur
Stokkhólms. Jóhannes sagði lögregl-
una hafa látið þá í friði. Ýmislegt
hefði verið leyft á þessum útskrift-
ardegi í sænskum menntaskólum.
„Þeir hefðu heldur ekki þorað i mig,
alvopnaðan víkinginn!"
Frá Islandi á indíána-
slóðir
Ingi Bjarni hefur verið búsettur í
Svíþjóð ásamt móður sinni, Þor-
björgu Jóhannesdóttur, frá 6 ára aldri
og því gengið þar í gegnum allt skóla-
kerfið. Nú ætlar hann að fara ásamt
móður sinni heim til íslands í sumar-
frí eða þar til hann stekkur vestur
um haf til Bandaríkjanna í haust.
„Þar ætla ég að búa með indíán-
um í Nýju-Mexíkó í
nokkra mánuði,
það fer eftir því
hvað ég tolli
lengi með
þeim. Eftir það
ætla ég i ein-
hvern skóla til
enskuna. Það er
nú megintilgangur
ferðarinnar,"
sagði Ingi Bjarni
sem síðar meir
hyggur á við-
skiptafræðinám
við Háskóla ís-
lands.
Jóhannes sagði
i samtali við helg-
arblaðið að athöfn-
in hefði tekist
mjög vel.
„Að sænskum
sið var ýmis hátt-
ur hafður á að
sækja krakkana
eftir útskrift og á
alls kyns farartækjum. Líklega
vöktum við feðgamir einna mestu
athyglina. Kannski ekki að undra,“
sagði Jóhannes og brosti.
Víkingahátíð fram undan
Hann sagðist vera saklaus af
þeirri hugmynd að sækja Inga á
hestbaki í víkingaskrúða. Vísaði
ábyrgðinni til móðurinnar! Hún
vissi auðvitað sem var að víkingar
væru Jóhannesi hugleiknir. Hann
hefur sem kunnugt er verið einn af
forvígismönnum Víkingahátíðar-
innar í Hafnarfirði. Nú er ein slík
fram undan, dagana 17. til 21. júní.
„Að vanda verður mikið um dýrð-
ir. Við eigum von á fjölmörgum vik-
ingum að utan eftir helgina sem
munu skylmast, sýna handverk og
framkalla ýmsar aðrar uppákom-
ur,“ sagði víkingurinn Jóhannes
Viðar. -bjb/S
Að útreiöartúr loknum gátu feögarnir tekiö af sér víkingahjálma og stúdents-
húfur og verið „eölilegir".
Jóhannes Viöar Bjarnason í fullum víkingaskrúða ásamt syni sínum, Inga
Bjarna, nýútskrifuöum meö hvíta kollinn. Fjölskyldan stendur næst þeim.
DV-myndir S
KRAKKAR.
I GOOUM SUMAOSKOM
KÁTIR
„Til skips skulum við halda og fara
til íslands þar sem þú ert fæddur og
barnborinn," mælti víkingur frá ís-
landi, hátt og snjallt.
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI WPPSKRIFT
PAR SEM PU RÆÐUR FERÐINNI
5
>
cr
z
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
I
Gult
súkkulaði
Alltaf fersJtt... Seiect