Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998 JUj’V Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, slmi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Úr Nifíungahringnum Fyrir tveimur árum hótaöi Davíð Oddsson forsætis- ráðherra Sverri Hermannssyni bankastjóra bréflega að nota ellefu milljarða tap Landsbankans og 900 miUjóna tap Lindar til að láta reka bankastjórana, ef hann sæi ekki um, að bankinn fylgdi vaxtastefnu stjórnvalda. í framhjáhlaupi er athyglisvert, að forsætisráðherra skuli fyrir meira en tveimur árum hafa vitað nákvæm- lega um 900 milljóna sukkið, sem bankaráðherra sver nú og sárt við leggur að hafa ekki vitað um, þegar hann gaf Alþingi rangar upplýsingar um málið. Sverrir gaf eftir og var ekki rekinn. Hann vissi, að skilaboð formanns Flokksins voru þungvægari en form- legt valdakerfí bankans, þar sem bankastjórar heyrðu undir bankaráð, sem þá heyrði undir Alþingi. í bréfinu talaði landseigandi við einn lénsherra sinna. Bréfið hefur verið birt og gefur góða innsýn í hugar- heim ráðamanna, sem minnir meira á þriðja heiminn en nágrannalöndin. Lög og reglur og hefðir víkja fyrir afrískum geðþótta, sem gengur þvert á allar leikreglur og form, sem gilda í lýðræðisríkjum nútímans. Forsætisráðherra var ekki að lækna sukkið í rekstri bankans heldur nota það sem skiptimynt í ágreiningi um vexti. Enda fór svo fyrir tveimur árum, að ekkert var gert í málum bankans, sem hafði tapað ellefu millj- örðum, þar af tæpum milljarði á einni Lind. Forsætisráðherra fór ekki réttar boðleiðir samkvæmt bókfærðu skipulagi. Hann leit svo á, að sem formaður Flokksins gæti hann skákað þeim herrum, sem höfðu fengið lén á vegum flokksins. Þetta reyndist vera alveg rétt hjá honum, enda er ísland þriðja heims ríki. Svipað hugarfar kom fram hjá Sverri Hermannssyni, þegar hann var löngu síðar rekinn vegna allt annarra mála, laxveiða sinna. Þá lagðist hann í herferð gegn spillingu annarra, ekki til að bæta heiminn, heldur til að hefna sín á þeim, sem höfðu stjakað við honum. Sverrir ljóstraði upp um bankaráðherra og utanríkis- ráðherra vegna óráðsíustráks á framfæri þeirra, þing- mann af Vestfjörðum fyrir ósiðlega yfirtöku einokunar- fyrirtækis og ríkisendurskoðanda fyrir fjárhagslega misnotkun embættisins. Aðra sukkara lét hann í friði. Bankastjórinn fyrrverandi og forsætisráðherrann nú- verandi eru aftan úr grárri forneskju, þar sem hefnd og hroki, lén og níðsla réðu ferð, áður en farið var að búa til formlegar umgengnisreglur til að byggja upp flókin nútímariki. Þeir koma úr Niflungahringnum. Á ytra borði ríkir hér svipað þjóðskipulag og í ná- grannalöndunum, þar sem forfeður manna urðu að fórna lífinu til að losna undan kúgurum fortíðarinnar. Undir niðri ríkir fortíðin samt áfram hér á landi, enda var forfeðrum okkar gefið lýðræði á silfurfati. Stjórnunarstíll fyrrverandi borgarstjóra og núverandi forsætisráðherra væri ekki framkvæmanlegur í ná- grannalöndnum. Hann virkar hér á landi, af því að millistjórnendur þjóðfélagsins líta á sig sem lénsherra, sem hafi þegið lén sín úr hendi Davíðs konungs. Venjulega fer stjórnunarstíll að hætti Niflungahrings- ins fram í síma og er því ekki skjalfestur. Bréfið til bankastjórans er einstakt í sinni röð, af því að það gef- ur svart á hvítu innsýn í svörtustu forneskju, sem menn grunaði, að væri til, en gátu ekki sannað. Og þjóðin er því miður bara feitur þræll, sem lætur bjóða sér lénsskipulag í lok tuttugustu aldar, af því að frelsið hefur aldrei fest rætur í brjósti hennar Jónas Kristjánsson Staða Rússa í deilunni Bandaríkjastjórn og Evr- ópusambandið vilja koma í veg fyrir að það sama gerist í Kosovo og Bosníu. Rússar eru þó sem fyrr andvígir beinni íhlutun, enda vinaþjóð Serbíu frá fornu fari. En ef ástandið versnar frekar i Kosovo má búast við því að þeir láti und- an, eins og í Bosníumálinu. Nú bendir margt til þess að NATO beiti hervaldi til að stöðva átökin í Kosovo. NATO og Kosovo Erlend tíðindi Valur Ingimundarson Nú stefnir allt i beina hernað- aríhlutun NATO í Kosovo. Spurningin snýst frekar um hvenær og með hvaða hætti það verði gert. Stefna vestrænna ríkja hefur harðnað eftir sprengjuárásir serhneskra her- sveita á svæðinu milli Djakovica og Decani við landamæri Júgóslavneska sambandsríkisins og Albaníu að undanfórnu, enda óttast margir að nýjar þjóðemis- hreinsanir séu í uppsiglingu. Um 40.000 hafa misst heimili sín af þeim 65,000 sem búa í Decani- héraði og flöldi manns hefur hef- ur flúið til Albaníu. Sú ákvörðun vamarmálaráðherra NATO á fimmtudag að fyrirskipa undir- búning hernaðaraðgerða í Kosovo kemur ekki á óvart. All- ir vissu að líkja mátti ástandinu við Kosovo við suðupott. En það var greinilegt að NATO vanmat ástandið, enda hafði bandalagið ekki gert ráð fyrir því að hefja heræfing- ar í Albaníu fyrr en í ágúst. Nú er jafnvel búist við því að þær hefjist í næstu viku. Eftir reynsluna í Bosníu er tengslahópurinn í málefnum Júgóslavíu sammála um að hóta Slobodan Milosevic Serbíufor- seta hervaldi. Ef það gengur ekki upp ætlar NATO hefja loftárásir á serbnesk skotmörk og jafnvel að senda landher til Kosovo. Stuðningur við hernaðaríhlutun Fyrr í vikunni gripu Bandaríkjastjórn og Evr- ópusambandið til efnahagsrefsiaðgerða gegn stjórn- inni í Belgrad: Annars vegar með því að banna evr- ópskar fjárfestingar í Serbíu og hins vegar með því að frysta júgóslavneskar eignir í Bandaríkjunum. Þetta em þó aðeins táknrænar aögerðir sem hafa lítil áhrif. Hverjum dettur I hug að fjárfesta í Serbíu eins og ástandið er á Balkanskaga? Stjórn- völd í Washington höfðu fram að þessu dregið úr fréttum þess efnis að Bandaríkjamenn kynnu að senda hersveitir til Kosovo eða Albaníu á vegum NATO. En þrýstingurinn á Bill Clinton Bandaríkja- forseta hefur aukist stöðugt síðustu daga, ekki síst á Bandarikjaþingi, þar sem andstæðingar hans úr röðum repúblikana ráða lögum og lofum. Andstaða margra þing- manna við hernaðaríhlutun í Bosníu er enn í fersku minni, en vegna reynslunnar af því stríði er mun meiri stuðning- ur á Bandaríkjaþingi nú við beitingu vopnavalds. Það er mikið í húfi: Ef blóðug borg- arastyrjöld brýst út í Kosovo gæti hún breiðst út til ann- arra landa, eins og Albaníu, Makedóníu og jafnvel Tyrk- lands og Grikklands. Jeltsín Rússlandsforseti, sem var í heimsókn í Bonn í vikunni, hefur deilt á þá ráðstöfun Bandaríkjastjórnar og Evrópusambandsins að beita Serba efnahagsþvingunum og ætlar að hitta Slobodan Milosevic að máli á næst- unni til að fá hann til að stöðva hern- aðaraðgerðir serbneskra öryggissveita í Kosovo. Ekkert bendir þó til þess að það eigi eftir að bera árangur, enda höfðu Rússar takmörkuð áhrif á stjórnina í Belgrad í Bosníudeilunni. Bretar hafa lagt fram tillögu í Örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna, sem veit- ir stórveldunum umboð til að beita „öllum ráðum“ í þeim tilgangi að hindra þjóðemishreinsanir og mann- fall. Rússar eru mótfallnir henni en draga má sterklega í efa að þeir geti komið i veg fyrir hernaðaraðgerðir NATO, jafnvel þótt þeir beittu neitun- arvaldi í Öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna. Talið er að um 250 manns hafi beðið bana í átökum í Kosovo síðan í mars. Þær aðferðir, sem serbneskar öryggissveitir hafa beitt í Kosovo síðustu tvær vikur, eru kunnuglegar frá því í Bosníu: „Fyrst eru gerðar árásir á þorp og síðan kveikt í íbúðarhúsum til að koma í veg fyrir að íbúarnir snúi aftur til sins heima. Þótt bera megi saman Kosovo og Bosníu er einnig vert að huga að því sem skilur þessi tvö svæði að. Ekki yrði um að ræða „þjóðernishreinsanir" i þeim skilningi að Kosovo-Serbar kæmu í staðinn fyrir albanska meirihlutann sem er um 90% íbúanna. Ef borgara- styrjöld brýst út í Kosovo er unnt rétttlæta hernað- aríhlutun NATO með því að benda á hættuna á mannfalli og að átökin kunni að breiðast út til ann- ara landa á Balkanskaga. En andstætt Bonsíu eru líkur á því að júgóslavneski sambandsherinn veiti mótspymu ef hervaldi yrði beitt. Og það er ekki unnt að réttlæta hernaðarafskipti erlendra ríkja af deilunni ef þau styrktu Frelsisher Kosovo-Albana (KLA) sem staðið hefur að hryðjuverkum gegn serb- nesku lögreglunni. Það yrði aðeins ávisun á lang- vinna borgarastyrjöld í stað varanlegrar pólitískrar lausnar. skoðanir annarra Skriðdrekar Milosevics „Slobodan Milosevic, leiðtogi Serba, hefur sent skriðdreka og önnur þungavopn gegn varnarlaus- um þorpum í hinu sjálfstæöissinnaða Kosovohér- aöi. Þetta eru einmitt þjóðernishreinsanir af þvi taginu sem stjórn Clintons hafði hvað eftir annað sagt að ekki yrðu látnar viðgangast. Viðbrögðin til þessa hafa þó verið veikburða. Kosovo er hérað i Serbiu þar sem 10 prósent íbúanna eru Serbar en 90 prósent Albanir. Með því að kúga meirihlutann hef- ur Milosevic tekist betur en öðrum að laða fólk til fylgis við sjálfstæðishreyfinguna. Núna ætlar hann sér að brjóta þessa hreyfíngu á bak aftur með her- valdi.“ Úr forystugrein Washington Post 10. júní. Efinn á rétt á sér „Jafnvel þótt þeir sem þekkja Abubakar hers- höfðingja segi að í hópi æðstu hershöfðingja Niger- iu sé hann sá minnst spillti og sá sem minnst hungrar í völd er rétt hjá Nígeríumönnum að vera fullir efasemda. Fyrsta verk hans ætti að vera að leysa úr haldi alla pólitíska fanga og binda enda á ofsóknir á hendur þeim sem gagnrýna stjórnvöld. Utanaðkomandi geta lagt sitt lóð á vogarskálarnar með þvi að krefjast þess að komið verði á borgara- legu lýðræöi." Úr forystugrein New York Times 11. júní. Afleit byrjun „Sjálfsánægðir Frakkar með fótboltahetjuna og framkvæmdastjórann Michel Platini í fararbroddi ganga með þær grillur í höfðinu að gestgjafinn eigi að fá hæstu einkunn áður en fyrsta sparkiö fer fram á Stade de France í St. Denis í París. Það eiga hvorki Frakkar né FIFA skilið eftir byrjun þar sem svo að segja allt, sem getur farið úrskeiðis, fór úr- skeiðis. Nú er það leikmannanna að bjarga HM sem næstum allir aðrir hafa reynt að eyöileggja." Úr forystugrein Jyllands-Posten 10. júní

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.