Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 13. JUNI 1998 21 Á morgun verður sýnd í Sjón- varpinu ný heimildarmynd um ferðamennsku á íslandi. Myndin nefnist í fótspor ferðamanns og er unnin upp úr verkefni sem unnið var árið 1996 í tengslum við Nýsköp- unarsjóð námsmanna. Verkefnið fólst í þvi að farið var á helstu ferða- mannastaði landsins og ferðamenn spurðir spurninga um island; hverju þeir sæktust eftir og hverju þeir vildu breyta. Úrtakið var 1200 manns frá 24 löndum. Verkefnið fékk Nýsköpunarverðlaun forseta íslands í fyrra. Athyglisvert andrúmsloft Þau sem að verkefninu stóðu voru Davíð Bjarnason, Einar Skúla- son og Erla Hlín Hjálmarsdóttir. Eftir að þau fengu verðlaunin fóru þau að velta því fyrir sér hvað þau gætu gert í framhaldinu. Þeim datt þá í hug að gera heimildarmynd sem sýndi ferðamenn á hinu raun- verulega íslandi þar sem er ekki alltaf sól. „Á þessum ferðamannastöðum er oft athyglisvert alþjóðlegt andrúms- loft með séríslenskum blæ. íslend- ingar sem kynnast þessu andrúms- lofti eru yfirleitt að vinna við ferða- þjónustu en það er sjaldgæft að ís- lenskir ferðamenn kynnist því. Okkur langaði til að færa heim er- lendu ferðamannanna til íslendinga og sýna hvernig þeir ferðast um ís- land,“ segir Einar Skúlason. Þau fengu til liðs við sig norskan kvikmyndatökumann, Kim Terje- Holm, sem kom frá Noregi með tæki, tól og tæknikunnáttu. Einnig fengu þau sér til fulltingis Lee Ann SaintAndrea sem var aðstoðartöku- maður, auk þess sem hún kom að hljóðvinnslu. Jakob Halldórsson sá um klippingu og lokafrágang. Myndin er byggð á ferðamönnun- um sjálfum. Þeir segja frá og fylgst er með þeim. íslenskri umræðu um ferðamál er blandað inn í. Tekið var efni úr fréttum þar sem verið var að fjalla um ferðamál og stefnumótun. „Við reynum að velta upp nokkrum sjónarmiðum sem hafa verið í um- ræöunni." Þau töluðu við ferðamennina í náttúrulegu umhverfí og á þeirra eigin tungumáli. „Flestar kannanir hafa verið gerðar í þéttbýli, á flug- völlum, rútum eða hótelum. Við vildum fá viðbrögð fólks í umhverf- inu sem verið var að spyrja um.“ Aðalþema myndarinnar er nátt- úruferðamennska. Allar kannanir, sem gerðar hafa verið, sýna að lang- flestir ferðamenn koma til íslands vegna náttúrunnar. í myndinni er verið að skoða tengsl fólks við nátt- úruna. „í myndinni koma fram ein- staklingar sem koma til landsins á ólíkum forsendum en samt allir til að skoða náttúruna. Sumir byggja meira á tilfinningum en aðrir eru að skoða náttúruna út frá fræðileg- um forsendum. Enn aðrir eru í æv- intýramennskunni. En allir eiga það sameiginlegt að þeir eru að leita að ósnortinni náttúru." Einar segir að ferðamenn fái sterka tilfinningu fyrir því hvernig land verður til þegar þeir heim- sækja hið hráa ísland. „Ferðafólk sér hvernig þetta byrjar allt saman. Hvernig landið verður til, hvernig það mótast. Því finnst það vera að fara til upphafsins og að það sé frumlegt að fara til íslands." í könnuninni voru ferðamenn spurðir hvort bæta ætti aðgengi að hálendinu. Meirihlutinn svaraði þeirri spurningu neitandi og yfir- gnæfandi meirihluti vildi að ekki yrði hróflað við neinu. „Fólk virtist hrætt við að það væri verið að eyði- leggja hið ósnortna." Enginn gróði Eincir segir að þessi mynd sé ekki nein gróðalind. Þau nái að greiða Einar Skulason og Jakob Halldórsson unnu höröum höndum síöustu dagana viö lokafrágang myndarinnar. DV-mynd Hilmar Þór allan kostnað en séu sjálf launalaus þetta tímabil. „Þetta er rándýrt. Við gerðum ekki ráð fyrir því að fá út- hlutað úr Menningarsjóði útvarps- stöðva og það gekk eftir. Maður lær- ir af reynslunni. Þetta er bara skóli. Peningar eru ekki aðalatriðið," seg- ir Einar. -sm beltagrafa, 22 tonn, yfirfarin og í góðu ástandi. Skútuvogi 12A, s. 568 1044 ■2 D> T Þú þarft ekki að missa af ? ° | leik í HM '98 því ef þú | pantar pízzu og kók I hjá Pizza G7 fylgir | ókeypis hágæða myndbandsspólal Taktu pátt í HM-leik Pizza 67! 100 pizzuveislur i verðlaun! Skemmtilegur og léttur leikur þar sem 100 heppnir þátttak- endur geta unnið sér inn pizzuveislu fyrir fjóra með þvl einu að skrá nafn sitt, heimilisfang og símanúmer hér að neðan. Þú skilar miðanum þegar þú kaupir næstu pizzu hjá Pizza 67 eða í síðasta lagi fyrir 1. júlí Hinir heppnu fá pizzu-veisluna siðan senda heim sunnudaginn 12. júli þegar úrslitaleikurinn í HM98 fer fram! nafn ég vil taka þátt í léttum HM-leik Pizza 67. Hringt veróur i 100 þátttakendur og ef þeir geta svarað léttri HM-spurningu hafa þeir unnið sér inn pizzuveislu. heimili póststöð simi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.