Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998 313 V (Hwgt fólk ,Um leið og komið er inn í leikhús fer maður í ákveðið hlutverk. Það á líka við um áhorfandann. DV-myndir Pjetur Leikhusrottur Innan við hráan ganginn leyndist stór salur með stólaröð vinstra megin og eins konar sviði hægra megin; ferðatöskur dreifðar á svörtum fjöl- um; stólar og málverk; hvít glugga- tjöld. Það er rússneskt sumar á Ægis- götu 7. Þegar augun hafa teygað í sig sal- inn birtist maður sem er að bisa við að koma upp ljósum. Maðurinn, sem er ungur, tekur mig tali og dregur mig um kima salarins og útskýrir með styrkum ákafa og innlifun það sem hefur gerst og mun gerast áður en frumsýnt verður á svörtum fjölunum. Þegar við höfum spjaOað smástund fer fólkið að streyma inn. Þetta er stórvirki. Hópur ungs fólks, rétt rúmlega tuttugu ára, hefur valið sig saman og er að setja upp leiksýningu og leikhúsið utan um sýn- inguna. Þau hafa verið að afla fjár- magns undanfama mánuði og hafa meðal annars fengið 800 þúsund króna styrk frá Evrópuráðinu. Síðustu daga hafa þau, jafnframt því sem þau hafa verið að æfa, verið að byggja leikhúsið því að þegar þau komu að var húsnæðið samkomusal- ur. Þau hafa því verið önnum kafm við að innrétta, útrétta og blása leik- húsanda í húsnæðið. Leikskólinn Hópurinn sem stendur að uppbygg- ingunni kallar sig Leikskólann. í fyrrasumar kviknaði hugmyndin að fyrirbærinu. Þau hafa öll áhuga á leiklist og stefna öll á það að þjóna - Leikskólinn frumsýnir í fyrsta sinn Þau taka sig ekki alvarlega því lífið er nógu alvarlegt þó að þau séu ekki að velta sér upp úr því í leikhúsinu. leiklistargyðjunni þótt það verði á mismunandi hátt. Sum ætla í nám en hjá öðrum er þetta áhugamál, aðalá- hugamál. í vetur hafa þau haldið námskeið með reyndu leikhúsfólki. í byrjun vetrar hélt Ásdís Þórhallsdóttir leik- stjóri eins konar leikhúsfræðinám- skeið og upp úr því hófst vinnan við þessa uppfærslu. Ásdís lærði leik- stjóm í Rússlandi og hefur síðan verið fastur aðstoðarleikstjóri í Þjóðleikhúsinu auk þess sem hún leikstýrði barnaleikritinu Litla Kláusi og Stóra Kláusi þar árið 1997. Frum- sýningin verður á laugardaginn en sýningamar verða ekki margar því að upp úr næstu mánaðamótum fer hóp- urinn að tínast úr landi. Tilbrigði við Sumargesti Sýningin sem þau eru að setja upp er leikgerð þeirra á Sumargestum eft- ir Maxím Gorkí. Leikritið er talsvert breytt - þau segja að 60% verksins haldi sér. Ásdís hefur í samvinnu við hópinn fært hluta leikritsins til og leikið sér að ýmsum túlkunarmögu- leikum. Hópurinn lítur líka á sig sem skóla og vill læra sem mest. Þau segjast samt ekki taka sig alvarlega því líflð sé nógu alvarlegt þó að þau séu ekki að velta sér upp úr því í leikhúsinu. Leikhúsrottur „Við erum leikhúsrottur," segir Birna Ósk Einarsdóttir, ein þeirra sem leika i og standa að sýningunni, þegar ég spyr hvað það sé sem hafi dregið þennan hóp saman í svo viðamikið verk- efni - engin laun, bara vinna. „Það er einhvern veginn þannig að þessi uppsetning er svo afslöppuð. Maður er ekki að rífa úr sér hjartað. Ásdís er alltaf að segja: „Ekki leika“, það er text- inn sem skiptir máli og það verð- ur að skila ákveðnu andrúmslofti sem ekki má vera áreynslu- kennt,“ segir Bima. En hvað er það sem er svona heillandi við leikhúsið? „Ætli það sé ekki heildin, allt sem að leikhúsinu snýr. Um leið og komið er inn í leikhús er maður laus við veruleikann um stund og fer í ákveðið hlutverk. Það á líka við um áhorfandann. Hann kemur í ákveðnum búningi; skilur jakkann sinn eftir í fata- henginu; kaupir sælgæti sem hann kaupir hvergi annars staðar og situr í öðruvísi sætum,“ segir Birna. -sm ... í prófíl Gunnar Ólason, söngvari í Skítamóral Kennitala: 270576-5679. Maki: Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir. Börn: Engin. Starf: Poppari. Skemmtilegast: Að eiga notalega kvöldstund með kærustunni. Leiðinlegast: Að taka til. Uppáhaldsmatur: Lambakjöt með öUu tilheyr- andi. Uppáhaldsdrykkur: Vatn. Fallegasta konan (fyrir utan maka): Demi Moore. Uppáhaldslíkamshlut- inn: EyrnasnepiUinn. Ertu hlynntur eða and- vígur ríkisstjórninni? Hef enga skoðun á því. Með hvaða teiknimynda- persónu vildirðu eyða nótt? Beavis og Butthe- ad. Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson. Uppáhaldstónlistarmað- ur: Stevie Wonder. Sætasti stjórnmálamað- urinn: Þeir eru aUir misfríðir. Uppáhaldssjónvarpsþátt- ur: Simpsons. Leiðinlegasta kvik- in: The Cover Girl Murders. Fallegasta röddin: Einar Ágúst Víðisson. Sætasti sjónvarpsmaður- inn: Elín Hirst. Uppáhaldsskemmtistað- ur: Enginn sérstakur. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Það er svo langt þang- að tU að ég er ekki bú- inn að ákveða mig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.