Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
ifðtal
Tólf ára gamall í jólaskapi með gítarinn, í sfðasta bekk í barnaskóla en samt kominn í gagnfræðaskólahljómsveit -
með undanþágu skólastjóra!
hafi er Bassi tannsmiður að aðalat-
vinnu. Hann lauk því námi 1976 frá
Tannsmíðaskóla Islands og fór strax
að stunda sjálfstæðan rekstur á
Króknum. Aðspurður segir hann
vinnuna fara vel með tónlistinni.
„Ég er minn eigin herra og get ráð-
ið vinnutímanum. Get kannski hætt
á hádegi á föstudegi og unnið það
upp á mánudagskvöldi. Þetta fer
mjög vel saman. Með því að hætta í
hljómsveitum gat ég komið því
þannig fyrir að ég réði öllum mínum
tíma sjálfur, bæði í tannsmíðum og
tónlist. Nú er svo komið að það er
allt brjálað að gera,“ segir Bassi sem
ferðast víða um land í sinni spila-
mennsku.'Ekki bara á böllum heldur
alls kyns mannfognuðmn, s.s árshá-
tíðum og í brúðkaupsveislum.
Fyrsta lagið
Bassi samdi sitt fyrsta lag skömmu
eftir að hann lærði á gítar, eða þegar
hann var 12 ára. Lagið er Drengur og
er á væntanlegri plötu eins og áður
kom fram. Textinn við lagið varð til
þegar Bassi og eiginkona hans, Mar-
grét Sigurðardóttir, áttu von á sínu
fyrsta bami.
„Ég átti frekar von á strák en svo
kom stelpa sem var að sjálfsögðu í
góðu lagi. En textinn var hara þannig
að ómögulegt var að breyta honum,“
segir Bassi og brosir. Upp frá þessu
hefur hann veriö iðinn við lagasmíö-
arnar. Segist eiga nóg á lager og aðra
plötu tilbúna ef því væri að skipta.
En af hverju ekki fyrr með sólóplötu?
Bassi segist ekki hafa verið tilbúinn
fyrr en nú.
„Ég var alltaf staðráðinn í að fá
eins mikið af landsliðsfólkinu okkar
og ég mögulega gæti þannig að plat-
an yrði sem vönduðust. Ég held að
mér sé óhætt að segja að það hafi tek-
ist,“ segir Bassi sem er eins og áður
segir með einvalalið. í hópi söngvara
eru Björgvin Halldórsson, Sigga
Beinteins, Pálmi Gunnarsson, Guð-
rún Gunnarsdóttir, Grétar Örvars-
son, Ari Jónsson, Helga Möller,
Eyjólfur Kristjánsson, Jóhannes
Eiðsson og loks Bassi sjálfur. „Ég fæ
að raula pínuiítið með!“
Hljóðfæraleikarar eru ekki heldur
af verra taginu. Meðal þeirra má
nefna Jon Kjell Seljeseth, sem leikur
á hljómborð, Hammond-orgel og sér
um forritun, Pétur Hjaltested, sem
einnig leikur á Hammond, Guðmund
Pétursson og Jón Elvar Hafsteinsson
sem sjá um gítarspilið, Jóhann Ás-
mundsson á bassa, Gulla Briem á
trommunum, Kjartan Valdimarsson
á harmonikku, Eirík Öm Pálsson á
trompet og flugel-hom og loks fær
Bassi að plokka á bassann, hvað ann-
að! Upptökustjórn og útsetningar
voru í höndum Jons Kjell.
Bassi semur texta við fjögur lög á
plötunni en aðrir textahöfundar eru
Jónas Friðrik Guðnason, Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, Ársæll Guð-
mundsson, Kristján Hreinsson og
Stefán Hilmarsson. Lögin eru tekin
upp í Hljóðsmiðjunni, Hljóðhamri,
Gijótnámunni og Stúdíói Sýrjandi.
„Ég er mjög ánægður meðutkom-
una. Það var mjög gaman að vinna
með öllu þessu fólki. Það skemmti-
lega við þetta líka var að fleiri en ég
komu að lagavali á plötuna. Ég var
með mínar kröfur en til þess að plat-
an yrði ekki leiðinleg til hlustunar
lét ég aðra velja úr stórum hópi laga
sem ég hef samið. Þetta kom mjög vel
út,“ segir Bassi að endingu sem bíð-
ur spenntur eftir útkomu plötunnar.
-bjb
23
LAUGAVEGUR 45 • SIMI 511 2555
UPPLVSINGAR OG PANTANIR i
SÍMA 8 999 777
0pi6 á Vegas Reykjavfk
Sunnudaga til limmtudaga kl. 21.00-61:00
Föstudaga og laugardaga kl. 21.00-03:00
Sjá textavarp RUV bls 669
AU=
bílalyftur
Borgartúni 26 • Sími: 535 9000
Fax: 535 9040 • www.bilanaust.is
zhsieqÖ
ccaaxaocaacoaœa&&'ÍÍ?3tf’
xoxcxxxxxxaxájXS) 03Xj%p
Uimr
Ciitiiivojji H - itsyipvli « íiyú/tivsy H - Kjjjuvuiji
Berið
saman
verð og
gæði. það
gerðum
alegeium