Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Blaðsíða 68
Qjölaldurj
jdlíER
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
Búast má við miklu lottóæði hjá íslendingum í dag því potturinn í lóttói kvöldsins er sjöfaldur. Er það í fyrsta skipti í sögu lottósins og því er líklegt að fjöl-
margir freisti gæfunnar nú. Mjög mikil sala hefur verið á lottómiðum síðustu daga og þetta fólk lét sitt ekki eftir iiggja heldur keypti sér miða í gær. Búist er
við að fyrsti vinningur verði talsvert yfir 40 milljónir króna. DV-mynd Pjetur
Mikil ólga innan Læknafélagsins vegna segulbandamálsins:
Framkvæmdastjóri hættir
- ósiðlegt að hljóðrita án vitneskju manna, segir Sigurður Líndal lagaprófessor
Atlanta:
Fjórar flugvélar
kyrrsettar
Breska flugmálastjómin hefur
kyrrsett fjórarj flugvélar Atlanta
m flugfélagsins I Bretlandi. „Flugmála-
' r 9 stjórnin gerði athugasemdir við
vinnureglur á meðhöndlun vara-
hluta á flugvellinum S Kent. Þeir
hafa ekki sent þær til okkar en
höfðu samband við íslensku flug-
málastjórnina. Það er ekki rétt að
það sé búið að svipta okkur flug-
rekstrarleyfi. Við munum funda
með Bretunum í London á mánudag
og þá verður fundin lausn á mál-
inu,“ segir Hafþór Hafsteinsson,
flugrekstrarstjóri Atlanta. -RR
Nýr landlæknir:
Áhyggjur af
— fíkniefnum
„Það er mikill
heiður að feta t fót-
spor Ólafs Ólafsson-
ar sem hefur gegnt
starfi landlæknis af
stakri prýði. Ég er
nú ekki kominn til
starfsins enn en
mér sýnist að vandi
stóru spttalanna og
heilsugæslunnar úti á landi sé mik-
ill. Þá finnst mér vaxandi fikniefna-
! *■ vandi meðal íslenskra ungmenna
verulegt áhyggjuefni. Við sem
eyland eigum að geta og verðum að
taka á fikniefnavandanum af festu,"
sagði Sigurður Guðmundsson I sam-
tali við DV en hann var í gær skip-
aður landlæknir af heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra frá 1. des-
ember nk.
Sigurður er sérfræðingur í lyf-
lækningum og smitsjúkdómum á
Landspítalanum. Hann hefur veitt
vísindasiðanefnd formennsku. -aþ
Þórshöfn:
Sjór flæddi inn í
loðnubræðsluna
Sjór flæddi inn í loðnubræðsluna
á Þórshöfn I miklum sjógangi í gær-
morgun. Talsverðar skemmdir eru
taldar hafa orðið á bræðslunni. Sjór
flæddi upp í bæinn og alveg upp að
elliheimilinu.
Þverspíra slitnaði frá bryggjunni
á Húsavík í miklum sjógangi í fyrri-
nótt með þeim afleiðingum að trilla
losnaði frá bryggjunni.
Trilluna rak frá en mönnum tókst
að bjarga henni og festa aftur við
bryggju. Skemmdir urðu á hafnar-
voginni sem fylltist af sjó í óveðr-
inu. Sjór flæddi inn í loðnuverk-
smiðjuna í bænum og tjón varð á
nýjum grjótgörðum við höfnina.
Mikill snjór var á götum Húsavíkur
,f m í gær og varð lögregla að aðstoða 15
ökumenn vegna ófærðar. -RR
Páll Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Læknafélags íslands, hefur
ákveðið að hætta störfum hjá félag-
inu eftir meira en aldarfjórð-
ungslanga þjónustu. Hann mun
starfa út uppsagnarfrestinn en hef-
ur óskað eftir stcufslokasamningi.
Páll hefur í hvívetna notið trausts í
störfum sínum og kemur uppsögn
hans nú verulega á óvart. DV náöi
tali af Páli í gær. Hann kvaðst ekki
geta gefið neinar upplýsingar fyrr
en að loknum fundi í stjórn Lækna-
félagsins á þriðjudag. Þeir sem gerst
þekkja til í húsi lækna á Kópavogs-
hæðum sögðu í gær að segulbanda-
málið svokallaða hefði verið það
korn sem fyllti mælinn hjá Páli.
Miklar deilur hafa sprottið vegna
þess að tekinn var upp fundur for-
svarsmanna Læknafélagsins og
Bretans Ross Anderson með Kára
Stefánssyni. Bretinn er sérfræðing-
ur hvað varðar dulkóðun og hefur
lýst því að áætlanir íslenskrar
erfðagreiningar varðandi öryggi
persónuupplýsinga í gagnagrunni
séu ekki fullnægjandi. Samkvæmt
heimildum DV var Páli fram-
kvæmdastjóra ekki kunnugt um að
upptökurnar fóru fram á sínum
tíma.
„Ég get staðfest það að fram-
kvæmdastjórinn er að hætta,“ sagði
Guðmundur Björnsson, formaður
Læknafélags íslands, í gær. „Þetta á
sér nokkurn aðdraganda, en við
munum skýra írá þessu nánar síð-
ar, ýmsar staðreyndir munu koma
fram síðar.“ Guðmundur sagði að
hann gæti ekki staðfest að uppsögn-
in kæmi vegna segulbandamálsins
svokallaða, þegar fundur lækna og
ÍE með erlendum sérfræðingi var
hljóðritaður. Samkvæmt heimildum
DV er mikil ólga innan Læknafé-
lagsins vegna segulbandamálsins og
er jafnvel talið að stjórnin sé völt í
sessi vegna þessa.
Sigurður Líndal, prófessor í lög-
um, var spurður um réttmæti þess
að taka upp fundi sem þessa án þess
að annar aðilinn hefði vitneskju
„Þetta var ágætur fundur sem ég
átti með dómsmálaráðherra. Þetta er
fyrsti fundurinn sem ég og lögmaður
minn, Jón Steinar Gunnlaugsson,
eigum með ráðherra um Geirfinns-
málið en ég hef persónulega hitt ráð-
herra nokkrum sinnum vegna máls-
ins áður. Ráðherra var að leita eftir
nánari skýringum á nokknun atrið-
um. Ég held að það komi einhver
niðurstaða i þetta mál fljótlega. Ég
hef reyndar gert margt skemmti-
legra en að standa enn eina ferðina í
þessu máli en ég vil fá að sjá niður-
stöðu og vegna hvers menn notuðu
þessa mynd af mér við gerð leirstytt-
unnar," sagði Magnús Leopoldsson í
samtali við DV í gær.
Magnús, sem sat saklaus í varð-
haldi í 105 daga í Geirfinnsmálinu,
átti fund með Þorsteini Pálssyni
um. Hann sagði að þetta væri í
fyrsta lagi afar ósiðlegt, en hann
kvaðst ekki í aðstöðu til að svara
því strax hvað íslensk lög og evr-
ópskar reglur segðu um slíkar upp-
tökur.
Miklar skipulagsbreytingar hafa
verið gerðar á skrifstofum Læknafé-
lagsins og Lífeyrissjóðs lækna, sem
dómsmálaráðherra í gær. Magnús
hefúr farið fram á opinbera rann-
sókn á gerð leirstyttunnar Leir-
finns. Nýjar upplýsingar, m.a. viö-
þýðir að á þessu ári hafa nokkrir
starfsmenn látið af störfum. Þarna
hafa starfað allt að tíu manns. Guð-
mundur sagði að hann hefði sem
nýr formaður hlotið í arf þann
beiska kaleik að fylgja eftir sam-
þykktum um sparnað og endur-
skipulagningu hjá félaginu.
töl í DV, hafa bent til þess að lög-
reglan hafi látið gera leirstyttuna
Leirfmn eftir mynd af Magnúsi.
-RR
-JBP/-rt
Magnús Leopoldsson hitti dómsmálaráöherra:
Vil sjá niðurstöðu í
Geirfinnsmálinu
Magnús Leopoldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson mæta til fundar í gær.
DV-mynd Pjetur
Veörið á sunnudag
og mánudag:
Él eða snjó-
koma fyrir
norðan
Á næstu dögum verður norð-
an- og norðvestanátt, nokkuð
hvöss um landið austanvert á
sunnudag. Éljagangur eða snjó-
koma verður norðan- og norð-
austanlands en úrkomulaust um
landið sunnan- og vestanvert.
Frost verður á bilinu 0 til 4 stig.
Veðrið í dag er á bls. 73.
iSUBUJRV*
-SUBUJRV'
-SUBLUflV
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt 2
Islenskir stafir
5 leturstæröir
6 leturgeröir,
6, 9 og 12mm prentboröar
Prentar í 2 línur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Slmi 554 4443
Vetfanq: www.if.is/rafport