Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Blaðsíða 33
13 "V LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
33
{{veiðivon
Ekki á flæðiskeri stödd
Julia Roberts er búin að koma sér
ágætlega fyrir ef marka má þá upp-
hæð sem hún á að fá i laun fyrir
framhaldið af Pretty Woman. Mynd-
in á að heita The Runaway Bride og
fær Julia tæpa 1,2 milljarða króna
fyrir viðvikið. Þetta lyftir henni
nær körlum eins og Tom Cruise,
Mel Gibson, Harrison Ford og
Bruce Willis og yfir Jodie Foster,
Meg Ryan, Sigourney Weaver,
Michelle Pfeiffer og nýstirnið
Cameron Diaz.
Julia Roberts.
Núna þegar laxveiði- og sjóbirtingstíminn eru úti og veiði-
tölurnar sumarins eru komnar fœrum við veiðiþáttinn í helg-
arblaðið. En við birtum auövitað fréttir í blaðinu í hverri
viku efþurfa þykir. Gœsa- og rjúpnaveiðin er á fullu þessa
dagana.
Vetrarstarf veiðifélaganna er að hefjast og veiði gengn um
ís byrjar um leið og hœgt er. Við hvetjum stangaveiðifélög
um landið vítt og breitt að láta okkur vita sé eitthvað í
gangi. En allt þetta styttir biðina eftir nœsta sumri. Sumrinu
sem allir veiðimenn eru farnir að tala um að verði það besta,
fyrr og síðar. Með þessu öllu munum við fylgjast. Við mun-
um brydda upp á ýmsu nýju í veiðiþættinum í vetur en það
kemur í Ijós seinna hvað það verður.
Sjóbirtingsveiðin var ails ekki til
að hrópa húrra fyrir þetta árið en
veiðin verður vonandi betri á því
næsta. Við heyrðum þó af góðri
veiði undir lokin í veiðiá á Mýrun-
um en þar veiddust í síðasta veiði-
túr sumarsins 100 fiskar. Þar af
voru 97 sjóhirtingar og þrir laxar,
sjóbirtingamir voru 1 til 3 pund og
áin var Álftá. Góð sjóbirt-
ingsveiði var líka í Brenn-
unni í Borgarfirði enda
greinilegt að sjóbirtingur
veit alls ekki hvar hann
á heima og hvert hann
á að fara. Hann hef-
aldrei
vitað það, blessaður.
Fyrir austan var veiðin alls ekki
góð og við fréttum af veiðimönnum
sem fóm í Tungufljótið en veiddu
bara ís og klaka, fiskamir vom
mjög fáir. En hvað gerir maður ekki
fyrir veiðina og útiveruna.
Skotveiðifélagið 20 ára
Skotveiðifélag íslands varð 20 ára
á þessu ári en félagið hefur heldur
betur dafnað hin síðari ár. Það gef-
ur út sitt eigin blað og rekur öfluga
starfsemi. Formaður Skotveiðifé-
lagsins er Sigmar B. Hauksson. Við
munum segja nánar frá þessum
merku tímamótum í næsta helgar-
blaði. -G.Bender
Eflaust hefur margur
veiðimaðurinn gert
bað sama og
þessi ungi
maður í
sumar.
Besta
Veturinn hefur aldrei verið sá
tími sem veiðimenn dá en þeir lifa
hann af. Til að stytta biðina eftir
næsta sumri hvetjum við stanga-
veiðimenn til að hafa samband og
segja okkur eina góða veiðisögu frá
sumrinu eða tvær. Bara það að fá
eina góða veiðisögu styttir tímann.
Veiðieyrað
Þó svo veiðitíminn sé rétt nýbú-
inn eru veiðimenn strax farnir að
tala um næsta sumar. Hvort það
verði bara ekki betra en þetta sem
var að klárast. Alla vega ætla veiði-
menn að kaupa mikið af veiðileyf-
um og þá sérstaklega fyrir norðan.
sviðsljós
Þar sem tveggja ára laxinn gæti
skilað sér vel næsta sumar. Það
gæti orðið fjör í byrjun sumars í
Blöndu, Laxá á Ásum, Vatnsdalsá,
Víðidalsá og Miðfjarðará þegar
tveggja ára laxinn kemur í toifum í
árnar. Hver vill missa af þeim veiði-
skap? Ég bara spyr? Alla vega ekki.
Stangaveiðifélag
Reykjavíkur fær Gljúfurá
Það hefur verið nokkuð á reiki
síðustu daga hver fái Gljúfurá í
Borgarfirði næsta sumar en þeir
sem þóttu heitastir voru Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur, Árni Bald-
ursson og Ingvi Hrafn Jónsson. Það
er vist Stangaveiðifélagið sem fær
ána, höfum við
heyrt.
Gottí
Ipkin í
Alftá
veiðisagan