Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Blaðsíða 56
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 J3\T
* •» i Gridge
íslandsmót í einmenningi 1998:
Magnús E. Magnússon vann í þriðja sinn
íslandsmótið í einmennings-
keppni var haldið um sl. helgi og
sigraöi Magnús E. Magnússon eftir
haröa keppni í síðustu setunum.
Magnús hefur unnið mótið þrisvar
sinnum, 1993,1995 og 1998.
Röð og stig efstu manna var ann-
ars þessi:
1. Magnús E. Magnússon 1948
2. Kristján Blöndal 1920
3. Brynjar Jónsson 1886
4. Kristinn Kristinsson 1870
5. Erla Sigurjónsdóttir 1866
6. Haukur Haröarson 1852
7. Ómar Olgeirsson 1842
8. Kristinn Þórisson 1822
Keppnin var mjög spennandi síð-
ustu loturnar og skiptust efstu
menn á forystunni.
En Magnús kreisti út yfirslag í
einu grandi í síðasta spilinu og það
reið baggamuninn.
Hér er eitt skemmtilegt spil frá
mótinu sem hafði heldur leiðinleg
eftirmál.
S/0
* AK842
v A83
> KD4
* D4
* 765
4A2
* 10973
* K9765
* DG
*»G95
* A86
* AG1082
Sagnimar voru frískar og tók
fljótt af:
Suður Vestm Norður Austur
1 * pass 2* pass
3 * pass 6 GR pass
pass pass
Spilamennskan tók enn þá styttri
tíma. Austur spilaði út hjartakóng
og norður horfði augnablik á blind-
an. Síðan sagði hann um leið og
hann drap og spilaði út laufdrottn-
ingu: Ef laufkóngur liggur vitlaust
þá er ég einn niður. Vestur drap á
kónginn og eftirgjöfin var sam-
þykkt. Síðan var næsta spil spilað
og setunni lokið.
Eins og glöggir lesendur hafa séð
þá stendur spilið alitaf, jafnvel þótt
laufkóngur liggi vitlaust, því vestur
á ekkert hjarta til þess að spila. Það
er því ljóst að annaðhvort taldi
noröur sína slagi vitlaust eða hann
gerði ekki ráð fyrir þeim möguleika
að vestur ætti ekkert hjarta til þess
að spila.
f umræðum um spilið eftir að set-
unni lauk uppgötvaði norður mis-
Magnús E. Magnússon.
tökin en næstu viðbrögð eru óljós.
Líklega hefur hann kært sjálfan sig
til keppnisstjóra fyrir eftirgjöfma.
Það næsta sem gerist er að keppnis-
stjórinn, allir tveir metramir, kem-
ur ábúðarfullur að máli við vestur
og spyr: Gast þú fengið annan slag?
Vestur renndi gmn í hvað um var
að vera: Nei, ekki ég, ef til vill
maikker á hjarta, sagði hann skjálf-
andi röddu. Við þetta svar strunsaði
keppnisstjórinn burt. Síðan gerist
það að keppnisstjórinn kemur aftur
til vesturs nokkm seinna og til-
kynnir honum með hreim þess sem
valdið hefur: Ég ætla að breyta
skorinni! Svo mörg vora þau orð.
Hvorki
austur né suður vora virtir við-
lits. Þetta hlýtur að vera einsdæmi í
keppnisstjóm og það á íslandsmóti.
En svona er ísland í dag!
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Til þess að gera langa sögu stutta
er rétt að fletta upp lagagrein sem
tekur nákvæmlega á svona málum.
Það er grein 68. Krafa um eða eftir-
gjöf slaga. B-grein, Eftirgjöf skil-
greind, segir svo: Sérhver yfirlýsing
i þá átt, að spilari telji sig tapa
ákveönum slagafjölda er eftirgjöf
þeirra slaga. Og grein 69 fjallar um,
að krafa eða eftirgjöf sé tekin til
greina. A-liður: Krafa eða eftirgjöf
telst tekin .II greina, ef mótherji
samþykkir hana og hreyfir engum
andmælum áður en hans hlið segir
i næsta spili, eða áður en setunni
lýkur. Spilið er skráð eins og
slagimir, sem krafist var eða sem
gefnir voru eftir, hafi unnist eða
tapast í spilamennsku. Svo mörg
vora þau orð.
Ég tel þó rétt að vara við þá sem
telja slagi sína vitlaust og gefa eftir
slagi sem þeir eiga að betri tíð fyrir
þá er ekki í vændum. Þótt þetta hafi
heppnast hjá norðri í þetta sinn tel
ég ólíklegt að svipað atvik heppnist
aftm.
í helgarblaði Dags f 1
iiiiiiiii iii i n iTiirii'TnfmfwnOTi—él mm
■
Michael Owen.
Lukkudrengurínn
og fyHibyttan,
tvær ólíkar
knattspyrnuhetjur.
Tve
Ellefu ára stúlka segirfrá einelti
Þorsteinn Pálsson
um pólitíkina,
Davíð og framtíðina í
viðtal við Kolbrúnu.
Ráðlagður
dagsskammtur
af kynlífi.
Missið ekki af
pistli Halldóru.
Fluguveiði, krossgáta, Líf & stíll, matargatið, bókahillan, bíó, á seyði.
i
I
I
I