Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Síða 24
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 13 "V 'W TK 24 Hífanica lewinsky Hestakerrur sáum við ekki aðrar í Washington. Þessi var enda nógu glæsileg. Piltarnir Mark, Phil, Tom og Joe hvíldu lúin bein við stall kerrunnar. Þeir voru of ungir til að spyrja um Monicu. Roy Thompson er ábúðarfullur þar sem hann stendur vörð um þinghúsið en nýlega var maður drepinn á tröpp- um þess. Skammt frá þinghúsinu er Ifka hverfi sem reið- ir blökkumenn brenndu til grunna árið 1968 þegar Martin Luther King var myrtur. Hverfið er enn brunarústir. Þar býr enn fólk. Roy hafði ekki séð Monicu í eigin persónu. Capitol Hill hefur svipaðan sess í hugum Washingtonbúa og Austurvöllur í huga Reykvíkinga. í samræmi við mannfjölda er Capitol Hiii nokkru stærra. í fjarska rís minnismerkið fræga. Beint út frá því til hægri er býli for- setans: Hvita húsið. Þar var Monica en er ei lengur. Hún er alls staðar... Öll blöð í Washington eru full af fréttum af hneykslismálum úr Hvíta húsinu. Upplogin viðtöl við Monicu Lewinsky: Ég er ekki feit drusla! Brjálæðislegt samsæri gegn Hill- ary! Leyniþjónustan óttaðist að hún myndi gelda forsetann! Brjálæðiskast vegna sambands forsetans og móður hennar! Og eflaust var aldrei talað við stúlkuskinnið heldur hugmyndarík- ir menn fengnir til að hugsa upp skemmtilega sennileg tilsvör við leiðinlega fáránlegum spurningum. Úr jörðu er stéfnt til himins. ... en þó hvergi „Ég er ekki jafn feit og fólk vill vera láta,“ segir Monica. „Ég var reglulega heit þegar ég byrjaði í Hvíta húsinu." Svona gengu sögum- ar um telpuhnokkann. Það var auð- vitað deginum ljósara að við urðum að fmna hana; tala við hana; rétta hlut hennar ef það var þá hægt. Hvar átti að leita? Einn staður er í Washington þar sem hana var ör- ugglega ekki að finna: Hvíta húsið. Alls staðar annars staðar. Vinur okkar á hóteiinu, dyravörðurinn Ganoye, ættaður frá betri héruðum Eþíópíu, gat í engu hjálpað okkur. Það voru vonbrigði en þó skiljanlegt þar sem karlgreyið hafði ekki verið í Bandarikjunum nema tæpt ár. -sm Það er eins og maður hafi óvart villst inn í söguna um ferðina inn að miðju jarðar þegar stiginn flytur mann niður á Dupont Circle-neðan- jarðarstöðina en eina hliðstæða hennar á íslandi væri Núllið. Neð- anjarðar vorum við fluttir á vett- vang. Hér bjó drottning slúðursins. Þetta er hin fræga bygging Watergate þar sem allt fór í háaloft fyrir nokkrum árum. Hérna bjó Monica ásamt móður sinni. Bob Dole býr víst líka í þessu húsi og margir fleiri þekktir. Nú er Monica víst flutt og sendi sambýiisfólki sínu bréf þar sem hún baðst afsökunar á öllu þvf ónæði sem vera hennar hefði valdið þeim. David virtist Ifka alvörugefinn við fyrstu sýn. Þegar hann var spurður hvort hann hefði séð Monicu Lewinsky gat hann ekki haldið al- vörusvipnum og það brast á meö brosi í andlitinu á honum. Samt hafði hann bara séð hana í öllum fjölmiðlum en aldrei á götu. DV-myndir E.ÓI. Jerry er alvörugefinn maður þrátt fyrir múnderinguna. Hann vinnur öruggiega f tónlistarverslun á dag- inn og leikur á trommur í djass- hljómsveit á kvöldin. Um helgar er þetta samt hlutskipti hans. „No comment," var hans framlag að þessu sinni. Faðir Damien ber það með sér að hafa verið glaumgosi og mikill grallari. Hann ku vera ættaður frá Hawaii og þrátt fyrir að hafa dvalið lengi í þinghúsinu f Washington hafði hann ekki heyrt minnst á Monicu. Don og Sophie eru frá Nýju-Mexíkó og voru f heimsókn f Washington í nokkra daga. Washington og Hvfta húsið er sem helgireitur í augum margra Ameríkana og það gilti svo sannarlega um þetta ástfangna par. Þau höfðu komið alla þessa leið til að komast inn f Hvfta húsið. Að- spurð hvort þau hefðu séð Monicu sagði Sophie: „Nei, en við sáum forsetann!" Og gleðin skein úr aug- um hennar. Hún þvær sér örugg- lega ekki alveg á næstunni. Washington D.C. er vettvangur valdatafla og endalauss slúðurs: r A slóðum Monicu Washington er háborg valda í heiminum þótt völdin hafi ekki ver- ið áberandi síðustu vikur heldur miklu frekar kynorkan. Washington er fögur borg og andrúmsloftið í þeim hverfum sem vemduð eru af pólitíi er afslappað og þægilegt. Utan þeirra svæða er þó að finna öllu æstari hverfi og þar gildir framskógarlögmálið: Lögmál eiturs- ins og dauðans. Þeir sem villast þangað inn reyna yfirleitt að kom- ast þaðan aftur sem fyrst og era þá ekkert að velta sér upp úr rauðum ljósum og þess háttar skrauti. Við fóram ekki þangað, enda ástæðu- laust því Monica okkar Lewinsky hélt sig örugglega á vemdaðri svæð- um. ■ Æ&SífeíS5l«4ftS>: hr Qu^mQueu, &&P-8Z+SZS** °SsZQlsl^m Ltnyn4?hnfr<emJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.