Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Side 27
3Diyr LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
27
\ibox
Jón Hauksson á Egilsstöðum flýgur suður til að horfa á box:
Sekúndumar 45
- flugmiðans virði
Láttu lita á þér háriö með BIO-GLITZ eina háralitnum sem er
UMHVERFISVÆNN, AMMONIAKLAUS og SKAÐLAUS
Bio-Glitz liturinn er auðþekktur, skær á litinn og hefur ávaxtailm.
Aðeins eftirtaldar hársnyrtistofur bjóöa upp á Bio-Glitz umhverfisvænan lit:
Reykjavík: Bardó, Feima, Figaro, Hár-Fókus, Hársport Hraunbæ, Helena, Hjá Hönnu, Hödd, Stofan Mín,
Tinna.Seltj.nes: Félagsst. aldraöra. Kópavogur: Marisa. Garöabær: Andromeda, Þórunn Ingólfs.
Hafnarfj.: Hilson Hár, Þema. Grindavík: Hárhöllin. Keflavík: Anna Steina, Capello, Guölaug Jóhanns, Hár-
Inn, Lilja Sig.Sandgeröi: Svandís. Garöur: Camilla. Borgarnes: Margrét. Grundarfj.: Eygló, Sauöárkr.:
Hárlist, Kolla Sæm. Akureyri: Eva, Þórunn Páls. Kópasker: Hársker. Vopnafj.: Þórhildur. Egilsstaöir:
Hárhöllin, Neskaupsstaöur: María Guöjóns, Sveinlaug. Fáskrúösfj.: Albert frændi. Djúpivogur: Anis, Höfn:
Olga Ingólfs. Kirkjubæjarkl.: Jóna. Hvolsvöllur: Særún. Vestmannaeyjar: Strípan.
Umboösaðlli: sfictcc’TMofatý&UKfea*? sími 565 8100.
DV, Egilsstöðum:____________________
„Auðvitað get ég horft á leikinn í
gervihnattasjónvarpi en þá vantar
Bubba og Ómar og þeir eru pottþétt
ómissandi," segir Jón Hauksson,
hnefaleikaáhugamaður á Egilsstöð-
um, sem ætlar að bregða sér flugleið-
is í hæinn til að horfa á viðureign
þeirra Prins Naseem Hamed og írans
Wayne McCullough sem sýnd verður
beint á sjónvarpsstöðinni Sýn um
næstu helgi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jón
skreppur til höfuðborgarinnar til að
horfa á hnefaleika. Síðast fór hann
suður til að fylgjast með viðureign
Lennox Lewis og Pólverjans Andrew
Golota. - Sá bardagi stóð í 45 sekúnd-
ur!
„Það var dýr skemmtun en vel þess
virði,“ segir Jón og brosir í kampinn.
aðrar greinar. Þetta var alvörubox hjá
okkur strákunum og hart barist.
Stundum lá við að menn lægju rotað-
ir. Við höfðum bara þessa einu
hanska og sá sem ekki hafði þá lét sér
nægja fremur efnislitla kuldavett-
linga.“
Dramatíkin heillar
Jón Hauksson hefur það orð á sér
að vera rólynt ljúfmenni. Hvað finnst
honum svona heillandi við bardaga-
íþrótt eins og hnefaleika?
„Þetta er mjög spennandi íþrótt og
sennilega ein sú erfíðasta sem stund-
uð er í heiminum, mikil læti og „ak-
sjón“ sem heiilar mig. Það er líka svo
mikil dramatík í kringum hana, mik-
ið um alls konar yfirlýsingar og heit-
ingar sem auka á spennuna. Vissu-
lega getur þetta sport verið hættulegt
en menn eru oftast í þessu af fúsum
Jón Hauksson rifjar upp nokkra góða takta frá bílskúrsárunum. Mynd AÞ
„Ég hef séð allar beinar útsending-
ar frá hnefaleikum á Sýn því þegar ég
kemst ekki suður læt ég senda mér
upptöku af þættinum með flugi strax
daginn eftir. Það er þó engan veginn
það sama og að horfa á leikinn i
beinni útsendingu að fá þetta beint í
æð.“
Jón hefur haft áhuga á hnefaleikum
frá því hann var smápolli.
„Þetta byijaði strax þegar ég var í
grunnskóla. Pabbi átti gamla box-
hanska frá stríðsárunum sem við
bræðurnir slógum eign okkar á og síð-
an var barist í bílskúr hér úti í bæ.
Við vorum oftast fimm í þessu, félag-
arnir. Tveir úr hópnum, þeir Hjálmar
Vilhjálmsson og bróðir minn, Ey-
steinn Hauksson, eru stundum nefnd-
ir í íbróttafréttum en hafa skipt yfir í
og frjálsum vilja. í einstaka tilfellum
hafa þeir raunar verið knúnir áfram
af erfiðum íjárhagsaðstæðum og það
er auðvitað ekki nógu gott.“
- Finnst þér að leyfa eigi hnefaleika
á íslandi?
„Ólympíska hnefaleika, alveg tví-
mælalaust. Þetta er mjög gott sport
sem reynir vel á allan líkamann og
veitir mönnum útrás. Það má gjarnan
koma fram að ég er mjög þakklátur
sjónvarpsstöðinni Sýn og þeim Bubba
og Ómari fyrir þessar útsendingar.
Þær eru frábært framlag og mig lang-
ar að koma á fram þeirri hugmynd
hvort ekki sé möguleiki að efna til
höpferðar á einhverja góða viðureign.
Ég er viss um að margir hefðu áhuga
á slíkri ferð.“
- Svona að lokum, hver er bestur?
„Það er Tyson. Enginn vafi, þrátt
fyrir hneykslið." -AÞ
I. OKTÓBER
NYJAR VORUR
með sérstökum afslætti
20%-50%
Þad cr ckki nö nstæöulausu aö Norödekk eru mest seldu dekk á íslandi, þau eru einfaldlega góöur og öruggur kostur viö íslenskar aöstæöur.