Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Side 28
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 DV
28 fréttaljós
Augusto Pinochet, fyrrum einræðisherra í Chile, bíður örlaga sinna í haldi yfirvalda í London:
Dýrkaður og hataður heima og erlendis
Augusto Pinochet fer ekki í fleiri
teboö til Margaretar Thatcher. Ekki
að sinni, að minnsta kosti. Þess í
stað varð ást hans á öllu því sem
enskt er honum að falli.
Einræðisherrann fyrrverandi,
sem hélt Chile í heljargreipum sín-
um frá því hann rændi völdum í
september 1973 til ársins 1990, var
handtekinn á sjúkrastofnun í
London í síðustu viku þar sem hann
var að jafna sig eftir skurðaðgerð á
baki. Hann hafði jafnan verið
aufúsugestur í London í stjómartíð
íhaldsflokksins og því misreiknaði
hann sig svona hrapaliega í fyrstu
heimsókn sinni eftir að Verka-
mannaflokkiu- Tonys Blairs komst
til valda.
Pinochet var gómaður að kröfu
spænsks rannsóknardómara sem
vill rétta yfir honum fyrir þjóðar-
morð, pyntingar og fleiri alvarlega
glæpi. Meira en þrjú þúsund manns
voru ýmist drepnir eða hurfu á
meðan á valdaráninu stóð eða í of-
sóknuum á hendur vinstrimönnum
á næstu árum.
Bjargvætturinn Pinochet
Sitt sýnist hverjum um handtöku
hins 82 ára gamla Pinochets. Marg-
aret Thatcher, fyrrum forsætisráð-
herra Bretlands sem bauð Pinochet
heim tii sín í te aðeins tveimur vik-
um áður en hann var handsamaður,
krafðist þess í bréfi til dagblaðsins
Times á fimmtudag að gamli maður-
inn yrði látinn laus og leyft að fara
úr landi. Hún vísaði til þess að
hann hefði komið í veg fyrir dauða
fjölda breskra hermanna með stuðn-
ingi sínum við Breta þegar þeir áttu
í stríði við Argentínumenn um
Falklandseyjar árið 1982.
Heima í Chile, þar sem Pinochet
er bæöi dýrkaður og hataður, hafa
aðgerðir Breta valdið miklum titr-
ingi. Svo miklum reyndar að mjög
mun reyna á nýfengna lýðræðislega
stjómarhætti i landinu. Eduardo
Frei, forseti Chile, hvatti lands-
menn sína til að sýna stillingu, þeg-
ar hann kom úr utanlandsferð á
miðvikudag. Við það tækifæri ítrek-
aði hann afstöðu stjómar sinnar,
nefnilega þá að bresk stjómvöld
ættu að virða þá friðhelgi sem Pin-
ochet nýtur sem öldungadeildar-
þingmaður heima í Chile og sleppa
honum. Bretar hafa hins vegar sagt
að sú friðhelgi gildi ekki hjá þeim.
„Mér verður óglatt og flestum
borgumm þessa lands verður óglatt
við tilhugsunina um að grimmur
einræðisherra á borð við Pinochet
geti notið diplómatískrar friðhelgi,"
sagði Peter Mandelsohn, viðskipta-
og iðnaðarráðherra Bretlands,
vegna mótmæla Chilestjómar.
Þagað þunnu hljóði
Eftirtekt vekur að bandarísk
stjómvöld hafa þagaö þunnu hljóði
um handtöku Pinochets. Breska
blaðið Guardian hélt þvi meira að
segja fram að ráðamenn í Was-
hington reyndu að koma í veg fyrir
framsal Pinochets til Spánar þar
sem óþægilegar upplýsingar um
þátt Bandaríkjanna í valdaráninu
kynnu þá að koma fram í dagsljósið.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, James Rubin, vísaði
þessu hins vegar á bug.
„Ef spumingin er þessi: Höfúm
við farið fram á það við Breta að
þeir framselji ekki Pinochet, er
svarið nei,“ sagði Rubin á fundi
með fréttamönnum.
Bandarísk leyniskjöl sem nýlega
vom gerð opinber sýna að Richard
Nixon, þáverandi Bandaríkjaforseti,
og Henry Kissinger utanríkisráð-
herra hafi átt mun meiri þátt í
valdaráni Pinochets en hingað til
hefur verið talið. í skjölunum
kemur fram að Nixon fyrir-
skipaði bandarísku leyni-
þjónustunni CIA að
koma í veg fyrir að
sósíalistinn
Salvdor
Allende
kæmist
til valda,
eða þá að
bola
honum
úr emb-
ætti. Nixon heimil-
aði að tíu miiijónir
dollara yrðu lagðar
í leynilegar aðgerð-
ir í þessu skyni.
„Ég fæ ekki séð
hvers vegna við verð-
um að láta land taka
upp marxískt stjómar-
far bara af því að þjóð-
in er óábyrg,“ sagði
Henry Kissinger árið
1970 á fundi nefndar
sem hafði yfirum-
sjón með leyni-
legum aðgerð-
um
Kondór
skoð-
aður
CIA.
Skjölin leiða
að Chile var á
þessum
ljós
tíma þungamiðja leyniaðáætlunar
sem kennd var við kondórinn. Þar
var um að ræða samvinnu
herstjóma í nokkram
ríkjum Suður-Amer-
íku við að elta
uppi og útrýma
útlægum and-
stæðingum
sínum.
Spænski
dómarinn sem
hefur krafist
framsals Pin-
ochets til Spánar,
Baltasar Garzon,
er einmitt að
skoða aðild Pin-
ochets að leyni-
áætluninni
Kondór í rann-
sókn sinni á hvarfi 94
manneskja frá Spáni,
Argentínu, Chile,
Bandaríkjunum og Bret-
landi í „skítugu stríði"
suður-amerískra her-
stjórna gegn vinstri-
mönnum.
Manuel Contreras, yf-
irmaður leynilögreglu
Pinochets, sem situr i
fangelsi í heimalandinu
fyrir að skipuleggja
moröið á
Fórnarlamb Pinochets segir frá:
Tvö ár í
pyntingarklefanum
„Þeir komu heim til mín klukk-
an tíu að kvöldi og þrifu mig með
sér. Ég var tekinn burt frá fjöl-
skyldunni sem ekki var sagt hvert
fara ætti með mig. Næstu tvö árin
dvaldi ég í pyntingarklefunum
undir forsetahöllinni. Það var fullt
af fólki þama. Suma þekkti ég. All-
ir voru misnotaðir á hroðalegan
hátt. Ég var niðurlægður á hverj-
um degi. Ég var hengdur upp og
barinn.“
Þannig lýsir chileski blaðamaö-
urinn Carlos Reyes meðferð sinni
hjá pyntingameisturam Augustos
Pinochets einræðisherra í Chile, í
viðtali í breska blaðinu Guardian
í vikunni. Reyes var handtekinn í
mars 1974 og sakaöur um hryðju-
verkastarfsemi gegn ríkinu.
„Það sem böðlamir reyna að
gera er að svipta mann allri
reisn,“ heldur Reyes áfram. „Þeir
léku fyrir mig upptökur af öskr-
andi bömum og sögðu mér að
þetta væra raddir minna eigin
bama. Þeir sögðu aö ég væri að
hlusta á þegar verið væri aö pynta
son minn og dóttur og að þau yrðu
drepin ef ég væri ekki samvinnu-
þýður. Þeir vildu fá nöfn fólks í
flokknum en ég hafði ekki nein
nöfn til að gefa þeim.
Mig langar til að gráta jpegar ég
heyri að búið sé aö handtaka Pin-
ochet. Ég lít ekki á handtöku háns
sem persónulegan sigur, hún er
réttlæti fyrir þúsundir manna sem
hurfu sporlaust. Það verður að
finna þá. Þeir vora allir vinir mín-
ir, sumir voru blaðamenn eins og
ég. Ég hef heyrt að sumir hafi ver-
ið drepnir og að fjölskyldur þeirra
hafi verið þurrkaðar út. Ég var
heppinn, ég slapp. En ég mun
alltaf muna hvemig það er að vera
pyntaður og kominn upp á náð og
miskunn manna sem kunna að
láta sér standa á sama.“
Carlos Reyes var í haldi þar til í
desember 1979. Þá var hann send-
ur til Panama en handtekinn á ný.
Hann var settur um borð í flugvél
á leiö til Chile en slapp þegar hún
haföi viðdvöl á Heathrow-flugvelli
í London.
sósíalistanum Orlando Letelier í
Washington DC áriö 1976, sagði í
fyrra að hann hefði tekið við skip-
unum frá Pinochet.
Sonur tollheimtumanns
Augusto Pinochet fæddist þann 25
nóvember 1915 í borginni Valpara-
iso í suðurhluta Chile. Faðir hans,
sem var af frönsku bergi brotinn,
var starfsmaður tollgæslunnar í
borginni. Sautján ára gamall gekk
hann í herskóla og eftir það lá leið
hans upp á við, allt þar til Salvador
Allende forseti skipaði hann yfir-
mann chileska sjóhersins árið 1973,
aðeins nokkram vikum fyrir
valdaránið.
Pinochet er mikifl aðdáandi leið-
toga eins og Júlíusar Sesars, Napól-
eóns Bónapartes og Charles de
Gaulles. Fyrirmyndina að stjórnar-
háttum sínum sótti hann hins vegar
til annars illræmds harðstjóra,
Franciscos Francos á Spáni.
Salvador Allende, forseti Chile,
lést af völdum skotsára sem hann
hlaut í valdaráni Pinochets. Ná-
kvæmlega undir hvaða kringum-
stæðum hefur aftur á móti aldrei
verið upplýst. Allende var inni í for-
setahöllinni La Moneda þegar flug-
herinn gerði loftárásir á hana eftir
að hann hafði neitað að segja af sér
og þiggja boð um að fara úr landi.
Pinochet gerði sjálfan sig að
æðsta leiðtoga þjóðarinnar þegar
eftir valdaránið en að forseta í des-
ember 1974. Þingið var leyst upp,
stjórnmálaflokkar voru bannaðir,
stjórnarandstæðingar vora hundelt-
ir og kúgunin var miskunnarlaus.
Harðstjórinn naut dyggs stuðnings
bandarískra stjómvalda og klerka-
stéttareinnar heima. Með þennan
stuðning að bakhjarli var hann
kjörinn forseti landsins í þjóðarat-
kvæðagreiðslu árið 1980. Átta árum
síðar kallaði hann þjóðina aftur að
kjörborðinu. Hann ætlaðist þá til að
hún staðfesti setu hans á forseta-
stóli til aldamóta. Þjóðin var hins
vegar á öðru máli. Tæp 55 prósent
hennar höfnuðu áframhaldandi vist
Pinochets í forsetahöllinni. í desem-
ber 1989 var Patricio Alwyn, leiðtogi
stjómarandstöðunnar, kjörinn for-
seti og Pinochet hvarf úr forseta-
höllinni í mars 1990. Hann var þá
búinn að tryggja sér stöðu yfir-
manns hersins, sem gegndi þar til í
mars á þessu ári, og eftir það ævi-
langa setu í öldungadeild þingsins,
með öllum þeim forréttindum sem
til heyra, svo sem áðurnefndri og
umdeildri friðhelgi.
Blóði drifinn
séntilmaður
Bæði vinir Pinochets og óvinir
kalla hann séntilmann. Vist er að
þessi gamli gráhærði maður lítur
heldur meinleysislega út. I upphafi
greinar þessar var nefnd ást hans á
öllu því sem enskt er. Hann lýsti því
meira að segja einu sinni yfir að
Bretland væri óskastaðurinn til að
búa á, vegna þess að þar hefðu
menn í heiðri virðingu fyrir reglum
og kurteisi. Hann sá þó ekki ástæðu
tfl að koma þannig fram við and-
stæðinga sína.
I ferðum sínum tfl Bretlands á
undanfórnum áram fór Pinochet
ekki aðeins í teboð til frú Thatcher,
heldur keypti hann bresk flugskeyti
og heimsótti söfn. Hann og eigin-
konan Luisa heimsóttu vaxmynda-
safn Madame Tussaud reglulega og
þau létu sig hafa það að borga átta
pund og standa í biðröð með öðram
ferðamönnum sem vildu skoða
Windsorkastala Bretadrottningar.
Hann kaupir hálsbindin sín í glæsi-
versluninni Harrods og er veikur
fyrir annarri stórverslun, Fortnum
and Mason. Þá ku það hafa glatt
gamla manninn mjög að yfirmaður
söludefldar Burberrys bar kennsl á
hann.
Fyrir fjórum áram snæddi Pin-
ochet á vinsælu og virtu veitinga-
húsi í London, River Café í
Hammersmith-hverfinu. Reikning-
urinn hljóðaði upp á fimm hundrað
pund. Andvirðið var gefið mann-
réttindasamtökunum Amnesty
Intemational.
„Við vildum ekki peningana hans
og þeir hjá Amnesty sögðust ekki
vilja þá heldur en þeir ákváðu að
þiggja þá sem gjöf frá River Café og
nota þá til að standa straum af
löfræðikostnaði í Chile," sagöi Ruth
Rogers, annar eigandi veitingahúss-
ins, í viðtali við Guardian.
Fyrirmynd annarra
Pinochet hratt af stað umbótum á
efnahagslífi Chile í anda markaðs-
hyggjunnar, andstætt því sem aðrir
einræðisherrar i Suður-Ameríku
gerðu. Pinochet sjálfur og stuðn-
ingsmenn hans guma sig gjaman af
efnahagsframförunum, sem að
sönnu hafa aðeins komið litlum
hluta þjóðarinnar til góða. Chileskt
efnahagslíf hefur síðan orðið fyrir-
mynd stjórnvalda í öðram ríkjum
Suður-Ameríku sem hafa viljað
koma skikk á efnahaginn heima fyr-
ir.
Perúski rithöfundurinn Mario
Vargas Llosa hefur kallað stjóm
Pinochets best heppnuðu einræðis-
stjóm Suður-Ameriku en bætti við
að hún væri blóði drifin.
Byggt á Reuter, Guardian,
Libération, o.fl.