Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 éttir Maöur sem ákæröur er fyrir áreitni gegn 6 stúlkum í Vesturhlíöarskóla: Var einnig fylgdarmað- ur á vegum borgarinnar „Svona atburðir, ef sannir reyn- ast, eru hörmulegir fyrir skólasam- félagið og samfélag heymarlausra. Fræðsluyfirvöld munu gera sitt til að halda utan um nemendur og skóla og styðja við bakið á fjölskyld- um þeirra sem í hlut eiga og skólan- um,“ sagði Arthur Morthens, for- stöðumaður á Fræðslumiðstöð borg- arinncir, um ákæru á hendur karl- manni á þrítugsaldri sem ákærður er fyrir kynferðislega áreitni gegn 6 núverandi og fyrrverandi nemend- um Vesturhlíðarskóla þar sem em heymarlausir og heyrnarskertir nemendur. Málið kom upp á yfirborðið í nóv- ember í fyrra. Einn úr hópi foreldra barnanna sagði við DV í gær að um- ræddur maður hefði hins vegar skyndilega hætt sem starfsmaður í skólanum vorið 1998. Hann hefði samt sem áður haldið áfram að vera svokallaður fylgdar- eða liðsmaður á vegum Félagsmálastofnunar um sumarið. Þannig hefði hann komið heim til fólksins, náð í dótturina og farið með henni og öðram í sund, Fjölskyldugarðinn og svo framvegis - en borgin ræður fólk til að skipu- leggja slikt fyrir ýmsa hópa. í nóvember hefði síðan komið upp rökstuddur granur um að mað- urinn hefði verið að áreita börn í skólanum fyrr á árinu. Um er að ræða stúlkur sem nú era 10 til 18 ára. Sakamálið hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur með birt- ingu ákæru þar sem sakbomingur hefur tekið afstöðu til sakarefn- anna. Réttarhöldin verða á næst- unni og verða þau lokuð. -Ótt Leikskóladómur: Röng nið- urstaða Leikskólakennarar fagna dómi Félagsdóms: - segir lögmaðurinn DV, Árborg: „Ég held að þessi dómur sýni að það er orðið alveg nauösyniegt að stíga til fulls það skref sem stjómvöld og Alþingi hafa verið að stíga til að skapa einn vinnumarkað á íslandi og að það eigi tafarlaust að fella úr gildi lögin um kjarasamning opinberra starfsmanna frá 1986 og í staðinn á ekkert að koma,“ sagði Ástráður Haraldsson hæstaréttar- lögmaður um dóm Félagsdóms í máli leikskólakennara þar sem þeir era sýknaðir vegna fjöldauppsagna. „Það sem stendur uppúr í dómnum að mínu mati er sú staðreynd að dómurinn bygg- ir á því sem reglu, að því er virðist, að vinnulöggjöfm sé ekki almenn lög í landinu og að staða laganna um kjara- samning opinberra starfsmanna sem sérlaga gagnvart vinnulöggjöfinni sem almennra laga er ekki viðurkennd. Vinnulöggjöfm samkvæmt þessum dómi taki ekki til þeirra sem lögin um kjarasamning opinberra starfsmenn Salla um og það er niðurstaða sem ég tel klárlega ranga," segir Ástráður. -NH Til talsverðra átaka kom er Unnar Gunnarsson, starfsmaður Heimilistækja hf., elti uppi þjóf sem hljóp út meö mynd- bandstæki úr versluninni síðdegis í gær. Þjófurinn náði að komast inn í bíl og keyrði á annan bíl en Unnar náði mann- inum út úr bílnum og handsamaði hann. Grunur leikur á að þjófurinn hafi ekki verið einn á ferð og að hann hafði ver- ið á stolnum bíl. DV-mynd S. Stéttarfélagið ekki í vitorði - segir Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara Kristrún Hafliðadóttir leikskólakennari er hæstánægð. Hér er hún við vinnu sína í gær. DV-mynd Njörður DV, Árborg: „Ég er yfir mig ánægð með þessa niðurstöðu og tel að hún sýni að einstaklingurinn hefur rétt til að gera þetta,“ sagði Kristrún Hafliðadóttir, leik- skólakennari í Árborg, um dóm Félagsdóms varðandi fjöldauppsagnir leikskóla- kennara. Kristrún er ein þeirra sem sögðu upp störfum sin- um vegna óánægju með laun sín. „Dómurinn staðfestir það sem við vissum allan tímann, að stéttarfélagið væri ekki í vitorði með þessum félagsmönnum. Dómur- inn staðfestir það líka að einstak- lingar í þessu þjóðfélagi, alla vega opinberir staifsmenn, hafa það frelsi að geta sagt upp vinnunni sinni séu þeir óánægðir með ráðn- ingarkjör. Og í framhaldi af því að kjarasamningur sem er gerður á milli samningsaðila er grunnur, það er ekkert sem segir að ekki megi felast annað í ráðningarkjöram heldur en kemur fram í kjarasamningi, hann er lág- mark,“ sagði Björg Bjama- dóttir, formaður félags leik- skólakennara, við DV. Björg segir að ólík lög gildi fyrir hópana á al- menna vinnumarkaðinum og opinhera starfsmenn. „Það er líka ýmislegt í þeirra lagaákvæðum sem opinberir starfs- menn vildu gjaman sjá í sínum lög- um, til dæmis allt ferli í kringum verkfallsboðanir er mun flóknara og tekur miklu lengri tíma hjá opin- berum starfsmönnum þannig að ef á að fara að bera saman aðstæður þessara hópa þá verður að taka all- an pakkann," sagði Björg. -NH Björg Bjarna- dóttir. Frá upphafi landsfundar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri í gær. DV-mynd gk Landsfundur vinstri- grænna á Akureyri DV, Akureyri: „Við getum ekki síst verið stolt yfir þvi að hafa náð þeim árangri í íslenskum stjórnmálum sem raun ber vitni með þeim aðferðum sem við höfum notað. Sem sagt að leggja áherslu á okkar stefnu, okkar mál- stað, reyna að taka skýra og afdrátt- arlausa afstöðu til mikilvægra mála, vera við sjálf og láta ekkert slá okkur út af laginu í þeim efn- um,“ sagði Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs, á Akureyri í gær. Á annað hundrað fulltrúar hafa rétt til setu á þessum fyrsta landsfundi flokksins. Fundurinn stendur yfir til morguns og mun samþykkja stjórnmálaályktun en drög að henni voru lögð fram við upphaf fundarins. -gk stuttar fréttir Rannsaka hveraörverur Þijú fyrirtæki hafa sótt um leyfi til rannsókna á hveraörverum, ís- lenskar hveraör- verur ehf., Bláa lónið hf. og Humall ehf. Mati á um- sóknum er nú lokið og hlutu ís- lenskar hveraörverur ehf. leyfi á 28 svæðum og Bláa lónið á tveim svæðum. Humall ehf. skilaði ekki umbeðnum gögnum og var litið svo á að umsóknin væri dregin til baka. Leyfin era unnin f samráði við um- hverfisráöuneytið. Gengi bréfa í FBA lækkar Gengi bréfa í FBA lækkaði tals- | vert í gær, en búist hafði verið við í því að það myndi hækka í Ijósi þess að meiri áhugi reyndist vera á j kaupum á hlut ríkisins en búist var við. Gengið var 2,78 á funmtudag en | var komið niður í 2,66 í gær og þýð- g ir það að um 6% vantar upp á þá tölu sem ríkið vill fá fyrir sinn hlut, eða 600 milljónir króna. Bylgjan ! greindi frá. Faglega úttekt Þingmenn Sam- fylkingar vilja að hópur sérfræðinga, helst undir sljóm Vals Ingiinundars- sonar sagnfræð- ings, verði styrkt- ur til að gera fag- | lega og hlutlausa úttekt á samskipt- um íslands og Bandaríkjanna hvað meðferð og geymslu kjamorku- vopna varðar. Bylgjan greindi frá. Leitað að svikahrappi í Lögreglan í Reykjavík leitar tæp- lega tvítugs manns, á stolnum bU, í en hann stal og sveik út vörur á I tveimur bensínstöövum Esso í gær. Maðurinn náðist á öryggismynda- vél þegar hann reyndi að nota við- | skiptakort annars manns. Nefndarlaunum skilað Guðlaugur Þór Þórðarson og Pét- jí ur Friðriksson, fulltrúar Sjálfstæð- s isflokksins í hinni aflögðu atvinnu- og ferðamálanefhd Reykjavíkur, s endurgreiddu í gær 120 þúsund ! krónur hvor, sem þeir höfðu fengið ; í laun fyrir setu í nefndinni eftir að 5 hún hafði verið lögð niður. í gær var sagt að flokksbræðumir hefðu endurgreitt ofgreidd laun en Guð- | laugur Þór segist vilja árétta að j ekki hafi verið um að ræða að þeir Pétur hafi staðið í skuld við borgar- j sjóð vegna málsins. íslensk kirkjutónlist í viðtali við Margréti Bóasdóttur c á menningarsiðu í gær fórst fyrir að | geta þess að tónleikarnir Gjafir and- | ans með Margréti Bóasdóttur og Bimi Steinari Sólbergssyni org- | anista verða kl. 20 annað kvöld, | sunnudagskvöld, í Langholtskirkju. IHæsti vinningurinn Einn Lengjuspilari datt heldur betur í lukkupottinn í gær þegar hann tippaði á leiki í Evrópukeppni félagsliða. Hann tippaði á 6 leiki og fékk stuðulinn 91,63 og greiddi 11.000 kr. fyrir miðann. Allir leik- imir reyndust réttir og er vinning- urinn því 1.007.930 krónur. Þetta er hæsti vinningur sem fengist hefur í Lengjunni á einn miða. Vísir.is greindi frá. Treysta yfirlýsingum Getgátur banda- rískra fræði- manna um að kjamorkuvopn hafi verið geymd á Keflavikurflug- velh vora ræddar á fúndi utanríkis- | málanefhdar Alþingis í gær. Þar í sagðist Halldór Ásgrímsson utan- I rikisráðherra hafa skriflega yfirlýs- ;; ingu frá bandarískum yfirvöldum um að kjamavopn hafi ekki verið hér á landi. Halldór segir það hafa komið skýrt fram á fundinum að menn treysti þeim yfulýsingum ; sem komið hafa frá Bandaríkjunum ; i þessu máh og telji hann að málið 1 sé upplýst. RÚV greindi frá. -AA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.