Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Blaðsíða 42
LAUGARDAGUR 23. OKTOBER 1999 Hvers konar skóla viljum við? Jafnrétti til náms - eða meðalmennskudekur Fyrir hinu háa Alþingi liggur nú fyrir lagafrumvarp um breytingar á grunnskólalögunum frá 1995. Þar er kveðið á um að við lok grunnskóla skuli gefa nemendum kost á að þreyta samræmd lokapróf í allt að sex námsgreinum, sem mennta- málaráðherra ákveður, auk bráða- birgðaákvæðis um að menntamála- ráðherra sé heimilt að veita sveitar- félögum sem þess óska frest til 1. september 2004 til að framkvæma ákvæði um einsetinn grunnskóla. I athugasemd við fyrri greinina segir að með auknu valfrelsi nem- enda í 9. og 10. hekk grunnskóla sé, í samræmi við aðalnámskrá grunn- -jýskóla, stuðlað að því að nemendur taki meiri ábyrgð á námi sínu. Auk- ið valfrelsi þýði að nemendur geti lokið grunnskóla með mismunandi áherslum og á skemmri tíma en tiu árum. Frumvarp þetta hefur hlotið nokkra umræðu á þingi og hafa þær gagnrýnisraddir þá helst heyrst að frumvarpið hvetji til óeðlilegrar samkeppni. Það hlýtur hvert einasta foreldri að staldra við þessar umræður og velta því fyrir sér hvers konar íSkólakerfi við búum við, ef sam- keppni er talin óeðlileg, einkum vegna þess að við viljum vera sam- keppnishæf i öllu á alþjóðamarkaði. Sú spurning hlýtur að vakna hvenær við ætlum að kenna böm- unum okkar að vera samkeppnis- hæf. Er það þegar þau eru búin með grunnskóla? Hæfileikar og geta Einn helsti vandi grunnskóla- kerfisins er^ margþvældur útúr- snúningur á hugtakinu „jafnrétti til náms“. Hugtaki sem ætti að þýða að hver einstaklingur fái að njóta hæfileika sinna og getu. Það . skólakerfi sem við búum við er >’hins vegar nokkuð þétt einstefna i bóknámsátt og lítið sinnt um hæfi- leika og getu þeirra sem ekki eru upp á bókina. Þeir njóta ekki jafn- réttis til náms. Annar vandi grunnskólakerfisins er hin ein- kennilega stefna að blanda í bekki og leyfa ekki nemendum sem skara fram úr að vinna hraðar. Þeim er Nú. þegar fyrir liggur frumvarp til breytinga á grunnskólalögunum, er Jtm til að skoða hvort við erum ánægð með þá þró- un sem hefur orðið á grunnskólanum á síðustu tuttugu árum, hvort ekki sé kominn tími á breyt- ingar, hvort ábyrgð og mskyldur skólamanna og foreldra hafi þróast á rátt- an hátt og spyrja hvort við búum við raunverulegt jafnrátti til náms. í umræðunni um jafnrétti til náms hefur ekki bara verið litið fram hjá mismunandi hæfileikum einstaklinganna, heldur er einnig litið fram hjá mismunandi fé- lagslegum aðstæðum nemenda skyldu sem stuðningskerfi skóla á að sjá um. Síðastliðinn vetur lýsti einn skólastjóri í Reykjavík því yfir að skólinn hans nyti þess vafasama heiðurs að eiga flest pláss á Stuðl- um. Það er ekki frítt við að í þessum orðum felist töluverð hugsana- skekkja. Það var eins og skólastjór- inn væri búinn að gangast inn á það að skólinn bæri meginábyrgð á börnunum, fremur en foreldramir og hefði þá verið eðlilegra að segja „fjölskyldurnar í hverfinu njóta þess vafasama heiðurs að eiga flest pláss á Stuöium", því skólinn á ekk- ert í bömunum okkar. Hans hlut- verk er að leggja grunn að náms- möguleikum þeirra í framtíðinni - hver sem geta þeirra og hæfni er. Hlutverk foreldra er hins vegar að kenna börnunum að verða sjálf- stæðir, heiðarlegir, ábyrgir og heil- steyptir einstaklingar og i þeirri kennslu felst meðal annars eitt af markmiðum umrædds frumvarps, „að nemendur taki meiri ábyrgð á námi sínu“, en til þess þurfa foreldr- ar að axla ábyrgð á sínu hlutverki. Það er eins og bæði skólafólk og foreldrar eigi orðið í erfiðleikum með að greina hvar ábyrgð, skyldur og vald liggja. Eins og skólakerfið lítur út i dag, bera kennarar og skólastjórar ábyrgð á börnunum en foreldrar hafa völdin. Þetta kom berlega í ijós síðastliðinn vetur þeg- ar nemendur tóku upp á því að sprengja flugelda innan veggja Hagaskóla. Þar var skyldu- og ábyrgðarruglingurinn mjög augljós og það grunnskólakerfi sem við búum við studdi þann rugling. Þegar grípa átti til ráðstafana gagnvart þeim nemendum sem hlut áttu að máli kærðu foreldrar þeirra ákvörðun skólastjóra til fræðslu- ráðs, sem gerði ráðstafanir hans að engu. Skólastjórinn var gerður valdalaus. Það voru öll vopn slegin úr höndum hans til að verja sinn skóla og halda uppi nauðsynlegum aga. Ef halda á uppi virku grunnskóla- starfl er nauðsynlegt að rammi skól- ans sé smíðaður úr ábyrgð og aga. Það þýðir ekki að eingöngu hið op- inbera eða kennarar og skólastjórar beri ábyrgð á námi, líðan og fram- tíðarmöguleikum barnanna. Til þess þarf líka foreldra. haldið niðri. Hæfileikar þeirra og geta eru ekki að njóta sín. Þeir njóta ekki jafnréttis til náms. Það er ekki að sjá annað en að það frumvarp sem liggur frammi núna ráðist einmitt að þessum vanda. Það þyrfti að ganga enn lengra og gefa góðum nemendum möguleika á að standa sig enn betur frá upp- hafl skólagöngu og styðja við non- bóknámsnemendur með því að bjóða upp á fleiri greinar í verk- námi. En koma tímar, koma ráð. Það koma ekki allir dagar í einu. Jafnrétti tU náms hefur þróast út í það að halda meðalmennsku- kúrfunni í lagi. Það hefur gengið svo langt að dæmi eru þess að nemendur sem skara fram úr hafa verið settir í bekki með börnum sem eiga í erfiðleikum í námi til þess að hífa upp „meðal“einkunn- ina í viðkomandi bekk. Aíleiðing- amar geta allt eins orðið tU þess að nemandinn sem skarar fram úr missir móðinn, fer niður í meðal- mennskuna, vegna þess að náms- hraðinn virðir ekki hæfni hans og getu. En þar með er kannski til- ganginum náð; hann hefur verið dreginn niður á meðal- mennskuplanið. Óskýr skilgreining á ábyrgð í umræðunni um jafnrétti til náms hefur ekki bara verið litið fram hjá mismunandi hæfUeikum einstaklinganna, heldur er einnig litið fram hjá mismunandi félágsleg- um aðstæðum nemenda, sem hvorki lagasetningar né starfsmenn grunn- skóla geta borið ábyrgð á en hefur á einhvern hátt snúist í höndunum á kerfinu í stöðugri ,jafnréttis“við- leitni, þannig að kennarar eru í auknum mæli að sinna uppeldis- ' skyldu foreldra og þeirri sálfræði- Hlutverk foreldra er hins vegar að kenna börnunum að verða sjálfstæðir, heiðarlegir, ábyrgir og heilsteyptir einstak- llngár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.